Vísir - 27.09.1977, Blaðsíða 10
10
Þriðjudagur 27. september 1977 VISIR
VÍSIR
Utgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Davíö Guömundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
Ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð-
mundur G. Pétursson.
Umsjón meö Helgarblaöi: Arni Þórarinsson.
Blaðamenn: Anders Hansen, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón
Arngrímsson, Jón Óskar Hafsteinsson, Kjartan L. Pálsson, Magnús Olafsson, Óli
Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi
Kristjánsson. Ljósmyndir: Einar Gunnar Einarsson, Jens Alexandersson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson ....
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Askriftargjald kr. 1500 á mánuöi
Auglýsingar: Siöumúla 8. Símar 82260, 86611. innanlands.
Afgreiösla: Stakkholti 2-4 sími 86611 Verö í lausasölu kr. 80 eintakið
Ritstjórn: Síöumúla 14. Simi 86611 7 linur Prentun: Blaöaprent hf.
Stórveldaheimsóknir
ón pólitískrar merkingar
Rikisstjórnin hefur að undanförnu ástundað eins kon-
ar jafnvægispólitík gagnvart stórveldunum. Geir Hall-
grímsson forsætisráðherra lýkur í dag viku opinberri
heimsókn til Ráðstjórnarríkjanna, og Einar Ágústsson
utanríkisráðherra hefur verið í Bandaríkjunum í boði ut-
anríkisráðherra þeirra og rætt þar við æðstu valdamenn.
Opinber heimsókn forsætisráðherra til Ráðstjórnar-
rikjanna er athyglisverð fyrir ýmsar sakir. Þetta er
fyrsta opinbera heimsókn íslensks þjóðarleiðtoga til
Ráðstjórnarríkjanna. Slík heimsókn hefði verið nær ó-
hugsandi fyrir þremur árum meðan varnarmálin voru
enn í óvissu. Almenningsálitið hefði tæplega liðið hana á
þeim tima.
Að þessu leyti hafa aðstæður breyst verulega. Núver-
andi ríkisstjórn ákvað þegar i upphafi að halda áfram
varnarstamstarfi við Bandaríkin. Á hinn bóginn hefur
þrýstingur Ráðstjórnarríkjanna á Norður-Atlantshafinu
stöðugt farið vaxandi á síðustu árum. Enginn stjórn-
málaleiðtogi hefur bent á þá ógnun jafnákveðið og Geir
Hallgrímsson.
Að því leyti kemur það mönnum spánskt fyrir sjónir,
að formaður Sjálfstæðisf lokksins skuli sem forsætisráð-
herra þiggja opinbert heimboð ráðamanna í Kreml. En á
það er að lita, að við viljum viðhalda friðsamlegum sam-
skiptum við Ráðstjórnarrikin, og sennilega hefði forsæt-
isráðherra úr öðrum flokki ekki getað farið þangað án
pólitískrar merkingar af okkar hálfu. Að þvi leyti var
skynsamlegt að þessi ferð skyldi farin.
En kjarni málsins er sá, að viðræður forsætisráðherra
og utanríkisráðherra við ráðamenn stórveldanna í síð-
ustu viku sýnast hafa verið að mestu án pólitískrar þýð-
ingar. Enn sem komið er hefur a.m.k. ekkert komið
fram, sem bendirtil, að þær hafi haft pólitískt gildi.
Yfirlýsingar Einars Ágústssonar utanríkisráðherra
um þau málefni, sem hann fer með i ríkisstjórninni,
hafa að öllu jöfnu enga pólitíska merkingu. Hann er í
grundvallaratriðum andvígur þeirri utanríkisstefnu,
sem ríkisstjórnin fylgir og hann framkvæmir. Samtöl
þess konar utanríkisráðherra við bandaríska ráðamenn
geta því ekki skipt máli frá pólitísku sjónarmiði.
Viðræður Geirs Hallgrímssonar við ráðamenn í Kreml
gátu ekki verið annað en yfirborðsspjall. Þó að við vilj-
um stunda góða og friðsamlega sambúð við Ráðstjórn-
arríkin, er staðfest djúp pólitisks grundvallarágreinings
á milli ríkjanna. Kurteisisviðræður í Kreml breyta engu
þar um.
Forsætisráðherra sagði í Moskvu, að á milli landanna
væru engin óleyst deilumál. Þetta er að mestu leyti rétt,
þrátt fyrir stjórnmálalegan grundvallarágreining. Á
milli Islands og Ráðstjórnarrikjanna hafa ekki risið sér-
stakar deilur, er þjóðarleiðtogarnir þurfa að setja niður.
Og viðskipti milli landanna er óþarfi að auka.
Hafi komið upp mál, sem hugsanlega gætu valdið á-
greiningi af okkar hálfu við Ráðstjórnarríkin, hefur þess
verið gætt að þagga þau niður. Þannig var t.a.m. farið
með Kleifarvatnstækin, sem m.a. voru notuð til að hlera
talrásir varnarliðsins við aðalstöðvar Atlantshafsbanda-
lagsins. Bæði vinstri stjórnin og núverandi ríkisstjórn á-
kváðu að varpa því máli undir huliðshjálm. Þannig má
oft komast hjá óþægindum.
Þó að viðræður forsætisráðherra og utanríkisráðherra
við ráðamenn i Moskvu og Washington i síðustu viku geti
ekki talist hafa mikla pólitíska þýðingu, þjóna heim-
sóknir þeirra þeim tilgangi að staðfesta áhuga okkar á
góðum samskiptum við þessi stórveldi, þó að með ólíkum
hætti sé. Að því leyti þjóna þær jákvæðum tilgangi.
Frá aðalfundi RKl i ráðstefnusal Hótel Loftleiða. Eitt aðalverkefni fundarins var umræða um
félagsmál. Visismynd: EGE.
II
ii
íslendingar
eru slysaþjóð
— segir nýkjörinn
formaður RKÍ,
Ólafur Mixa
Á aðalfundi Rauðakross íslands, sem haldinn var
fyrir stuttu, urðu formannsskipti í félaginu. Björn
Tryggvason, sem verið hefur formaður félagsins frá
1971, lét af embætti, en við formennsku tók ólafur
Mixa.
Af þessu tilefni ræddi Visir
stuttlega við Ólaf um hið viða-
mikla starf Rauða krossins og
framtiðaráætlanir.
Hvaða helstu breytingar hafa
orðið á starfi Rauða kross Is-
lands undanfarin ár?
„Fyrst og fremst þær,
hvað Rauða krossinum hefur
vaxið fiskur um hrygg. Það
voru aðallega tveir atburðir
sem ollu þvi, Vestmannaeyja-
gosið, sem allt i einu beindi
starfi Rauða krossins upp i
mikið skarð og varð félaginu
mikil hvatning. A sama tima
komu svo til sögunnar söfnunar-
kassarnir frægu, sem hafa
reynst mikil tekjulind. Að visu
hefur veriðbólgan rýrt mikið
verðgildi tikallanna sem eru
notaðir i kassana, svo að glorian
af rikidæmi Rauða krossins hef-
ur dvinað nokkuð. En söfnunar-
kassarnir leika enn stórt hlut-
verk i fjáröfluninni.
Þessir 2 atburðir breyttu svo-
litið blænum á Rauða krossin-
um. Sumum fannst að starf fé-
lagsins frá fyrri tið hefði beinst
meira að beinni hjálp við bág-
stadda. Þetta viðhorf var ein-
mitt rætt á nýafstöðnu þingi.”
-Og þá i þá átt að auka þessa
beinu hjálp?
,,Já, en sá hluti starfseminnar
byggist einmitt mikið á sjálf-
boðastarfi. Fé hefur verið meira
varið i annars konar fram-
kvæmdir.
Nú, af öðrum breytingum á
siðustu árum ber að nefna starf-
rækslu sjúkraheimilisins, sem
er geysistórt verkefni. Það er nú
þegar gert i Reykjavik og er i
undirbúningi á Akureyri. Loks
verður að geta þess mikla starfs
sem kvennadeildin vinnur. Það
er mjög mikið og unnið i sjálf-
boðavinnu yfir 200 kvenna. Það
var lika rætt um vanda þeirra á
þinginu.
I ársskýrslu Rauða krossins
fyrir 1976 stendur meðal ann-
ars: „Stöðugt er unnið að undir-
búningi nýrra deilda, haft sam-
band við forystufólk á ýmsum
stöðum á landinu. Má vænta
þess að innan tiðar verði komið
net deilda, sem nær til landsins
alls. Þá hlýtur að vakna sú
spurning, hvað taki þá við, þeg-
ar slikt net er orðinn veruleiki.
Skipulag Rauða krossins er
slikt, að það er byggt upp á
deildastarfi, en RKl er nokkurs
konar móðurfélag, sem styður
við bakið á deildunum. Þær hafa
sitt sjálfstæði, sina heimastjórn
með eigin verkefnum og vanda-
málum, en siðan eru önnur
sameiginleg verkefni sem RKÍ
hefur yfirstjórn á.
Varðandi þetta net, þa hefur
Rauði krossinn gert formlegt
samkomulag við Almannavarn-
ir um aðgerðir ef til náttúru-
hamfara eða annarra stórat-
burða kemur. Undanfarið hefur
verið mikið unnið að þvi að und-
irbúa slikt, setja byggðir i við-
bragðsstellingar. En Rauði
krossinn getur ekki sinnt sliku,
á meðan enn eru staðir á land-
inu sem ekki hafa Rauða kross
deildir. Auk þess er það ákveðið
metnaðaratriði aö hafa Rauða
kross deildir á hverjum stað.”
-Geturðu nefnt einhverja tölu
um það, hvernig starfsemi
Rauöa krossins skiptist i fyrir-
byggjandi aðgerðir eins og
fræðslu og svo beina sjúkra-
hjálp?
„Ég veit ekki^fræðslan er allt-
af mikil, en ég held að mjög
gróflega áætlað sé hún um 10%
af öllu starfi félagsins. Þar er
um að ræða námskeið i skyndi-
hjálp og fræðslu kennara, sem
siðan geta haldið slik námskeið.
Rauði krossinn hefur verið að
koma sér upp gögnum og náms-
efni.til sliks”.
-Er þetta rökrétt hlutfall að
þinu mati?
„Það spunnust einmitt um
þetta töluverðar umræður á
þinginu, hvort þessar fyrir-
byggjandi aðgerðir ættu að vera
stærri hluti af starfinu og skoð-
anir voru skiptar um það. En
um leið og starfsemin verður
umfangsmeiri, verður erfiðara
að draga mörkin og sjá hvað er
fyrirbyggjandi starfsemi. En ég
hugsa að þessi tala, 10%, sé að
hækka, þvi að félagslegt starf
Rauða krossins, sem er i aukn-
ingu, fer að einhverju leyti inn á
það svið”.
— E'r éitthvert sérstakt'mál,
sem þú hefur áhuga á að koma i
framkvæmd þegar þú tekur við
formannsstarfinu?
„Já, það er nú eiginlega það
sem fjallað var mikið um á
þessum aðalfundi, það er þessi
félagslega velferð, eins og hún
var kölluð þar eða félagsmála-
starf Rauða krossins. Ég hef
mjög mikinn áhuga á að reyna
að koma i gagnið sumum af
þessum hugmyndum, sem þar
komu fram.
Það er aðallega kvennadeild
Reykjavikurdeildar RKl, sem
hefur unnið mikið starf á þessu
sviði. Konurnar hafa stundað
svokallað sjúklingavinastarf á
sjúkrahúsum, séð um bókaútlán
og jafnvel lesið fyrir sjúklinga
auk annarra starfa svipaðs eðl-
is. Nú er deildin i óða önn að
vikka þessa starfsemi með
heimsóknum til þeirra sem eiga
á einhvern hátt óhægt um vik.
Auk þessa er Akureyrardeild að
hefja mikið samstarf við félags-
máladeild Akureyrar i sama
dúr. Ein þeirra hugmynda, sem
er til umræðu, er að reyna að
senda mat heim til aldraðra”.
Hver heldurðu við fyrstu sýn
að verði þinn aðalvandi i for-
mannsstarfinu?
„Einn aðalerfiðleikinn verður
i sambandi við Sjúkraheimilið i
Reykjavik. Það hefur verið rek-
ið með töluverðum halla undan-
farið, en nú eru hafnar viðræður
við stjórnvöld, eða Trygginga-
stofnun um það mál. Rauði
krossinn er liklega ekki viljugur
að taka að sér rekstur sjúkra-
heimilisins með vaxandi halla.
Eitt af þvi sem við i stjórninni
höfum i veganesi með okkur frá
aðalfundinum er að reyna að
draga skýrar fram, hvernig þvi
fé er varið, sem Rauði krossinn
hefur til umráða. Þetta þarf að
gera, svo að þeir aðilar sem alla
tið hafa stutt RKl, geti fylgst
með þvi hvort fénu er vel varið.
Annars sé ég enga sérstaka
erfiðleika. Ég er með gott fólk
með mér, og er bjartsýnn á
starfið.”
-Eitt að lokum, Eru Islending-
ar slysaþjóð?
„Já, það held ég. Þetta er að-
eins min persónulega skoðun, ég
hef engar tölur eða upplýsingar
um það við höndina, en það er
min tilfinning að Islendingar
séu slysaþjóð. Umferðarslys
hér eru óeðlilega tið, og ég held
að aðgætni sé ekki næg”.
— HHH.