Vísir - 20.06.1979, Síða 8
VÍSIR
Miðvikudagur 20. júni 1079
/ ''
utgelandi: Reykjaprenth/f
Framkvæmdastjóri: Davlð Guðmundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Höröur Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guömundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
'lendra frétta: Guömundur G. Pétursson.
Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar
Salvarsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin
Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Siguróur Sigurðsson,
Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og
Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Utlit
og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Askrift er kr. J000 á mánuði
Auglysingar og skrifstofur: innanlands. Verð I
Slðumúla 8. Slmar 84611 og 82260. lausasölu kr. 1S0 eintakið.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611.
Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur. jfrentun Blaöaprent h/f
Bráðabirgöalög m nauösyn
Það hefði einhvern tima þótt
tíðindum sæta, að vinstri stjórn á
fslandi setti bráðabirgðalög, til
þess að banna launamönnum
verkföll og láta kjaradóm ákveða
kaup þeirra og kjör.
En þetta er sú staðreynd, sem
nú blasir við. Hin sundurþykka
rikisstjórn Olafs Jóhannessonar,
vinkona verkamanna, hefur
bundið enda á farmannaverk-
fallið með bráðabirgðalögum og
svipt farmenn rétti sínum, til
þess að semja um laun sin sjálf ir
á þessu ári.
Engu að síður er ekki við því að
búast, að launamenn almennt
kippi sér upp við þessi tíðindi og
liklegt er að farmenn kyngi
þessum lögum, þrátt fyrir fyrri
yfirlýsingar.
Undir venjulegum kringum-
stæðum væri slík lagasetning á-
mælisverð, en hér á landi rikir
ekkert venjulegt ástand. Við-
skiptakjör þjóðarinnar hafa
rýrnað svo nemur tugum þús-
unda á hvert mannsbarn í land-
inu, og útlit er fyrir, að þjóðar-
tekjur vaxi lítið sem ekkert á
milli ára.
Áhrif farmannaverkfallsins
voru orðin uggvænleg. Stór iðn-
f yrirtæki höfðu stöðvast eða voru
Brá&abirgBalögin um kjaradóm og stöövun farmannaverkfallslns eru skynsamieg
miöaö viö efnahagsástandiö og þaö þrátefli sem komið var f farmannadeilunni.
I þann mund að stöðvast vegna
hráefnisskorts. Birgðir hlóðust
upp hjá útflutningsatvinnuveg-
unum þannig að erlendir mark-
aðir voru í hættu.
Farmannaverkfallið bitnaði
einnig á neytendum. Farið var að
bera á vöruskorti og ýmsar nauð-
synjavörur, sem flytja þurfti
með flugvélum til landsins, urðu
allt að helmingi dýrari fyrir
bragðið.
En lögin ná einnig til verk-
banns vinnuveitenda og fyrir-
hugaðs samúðarverkbanns sem
átti að koma til framkvæmda 25.
júní næstkomandi. Verkbannið
hefði lamaðflestar framleiðslu-
greinar í landinu og verið sem
olía á það ófremdarástand sem
þegar ríkti.
Verkfallið hafði staðið í 8 vikur
og allar sáttaumíeitanir um
kaupliði samninga reynst árang-
urslausar. Og loks skilaði sátta-
nefnd, sem ríkisstjórnin hafði
skipað í deiluna, skýrslu um, að
hún teldi vonlaust að náð yrði
samkomuiagi.
I Ijósi þessara staðreynda
verður aðtelja að ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að stöðva verk-
fall farmanna og verkbann
vinnuveitenda hafi verið skyn-
samleg. Sú ákvörðun var ill-
skárri en að einhver sáttatillaga
sáttanefndar í deilunni hefði ver-
ið lögbundin.
Allt fram á síðustu stundu lá
það í loftinu, að jafnframt yrðu
sett bráðabirgðalög um 3%
grunnkaupshækkun til allra laun-
þega sem ekki höfðu þegar feng-
ið þá hækkun fyrr á árinu.
Frá því var horfið, enda mikill
ágreiningur um það meðal
stjórnarþingmanna. Slík laga-
setning hefði verið fljótræði af
hálfu ríkisstjórnarinnar og vand-
séð á hvaða rökum hún yrði reist.
Jafnvel þó að ríkisstjórnin telji
það sanngjarnt að aðrir launa-
hópar fái þessa þrjú prósent
hækkun til jafns við opinhera
starfsmenn getur hún ekki haft
frumkvæði að kauphækkunum
launþega með því að lögbinda
þær. Slíkt væru óeðlileg afskipti
af samningsrétti aðila vinnu-
markaðarins.
Bráðabirgðalögin um stöðvun
farmannaverkfallsins og verk-
bannsaðgerða og skipan kjara-
dóms, eru ill nauðsyn. Afskipti
ríkisvaldsins eru réttlætanleg á
þeim forsendum, að vinnudeilan
skaði hag þjóðarheildarinnar á
erfiðum tímum og engar horfur
séu á lausn deilunnar með frjáls-
um samningum. Lög um grunn-
kaupshækkanir eiga sér engar
sambærilegar röksemdir.
„Ætla að hafa pað
gott í sumar”
- SEGIR SIGURÐUR OJÖRNSSON, OÓNDII
SKÓGUM í ÖXARFIRÐI, EN JÖRD HANS HEFUR
EYÐILAGST AF VATNSGANGI
Bærinn Skógar I Oxarfirði en vatnsgangur hefur eyðilagt þar túnin þannig, að bóndinn hefur þurft að
bregða búi. Myndir Ómar Ragnarsson.
Þessi mynd var tekin I hlöðunni I Skógum i janúar 1976 skömmu
eftir að jaröhræringar hófust-, en á henni má sjá hvar vatnið hefur
flætt inn i geil I heyinu.
„Hér er orðið óbúandi fyrir
vatnsgangi”, sagöi Sigurður
Björnsson bóndi i Skógum i öx-
arfirði i samtali við VIsi, en
hann hefur nú ákveðiö aö hætta
búskap á jöröinni.
A Skógum er tvibýli en I jarö-
hræringunum i desember árið
1975 seig jarðarhluti Siguröar
þannig, að vatn hefur legið i
túnsverðinum siðan.
„Þetta er að verða kvik-
syndi”, sagði Sigurður. „Vatnið
hefur legið upp i jarðveginum i
nærfellt 4 ár og hann smáfúnar
og grotnar niður I siki sem er
engum fært”.
Vatnið hefur einnig komist I
útihús og hlöður. „Ég hef bæði
haft minni heyfeng og orðið
fyrir heyskaöa. Þrátt fyrir að ég
hafi hvað eftir annað hækkað i
hlöðunni hefur alltaf komist
vatn i hana”.
Sigurður sagði, að talið væri
að jörðin hafi sigið um 1,20
metra en sumir segöu allt að
þrjá metra þar sem útihúsin
standa. Ekki heföi gengið svo
langt, að hann hefði þurft að
vaða elginn inn I Ibúðarhús en
það stendur þar sem hæst ber.
Ibúöarhúsiö er þó ekki meir
en 2,20 metrum fyrir ofan
sjávarmál á ftáflóði.
„Ég hef þegar selt allar vélar
og áhöld en á eftir að selja bú-
fénað um 400 kindur”.
Sigurður sagöi, aö jöröin hefði
ekki verið mæld út I hekturum,
en fyrir nokkrum áratugum
hefði hún verið talin einhver al-
besta jörðin á landinu til sauð-
fjárbúskapar.
— Veröur þér bættur skað-
inn?
„Þvi hef ég ekki spurt eftir”,
sagði Sigurður. „Ég held, að
það hafi aldrei verið tyllt svo-
leiðis undir bændur. Þeir hafa
verið taldir óþurftarkvikindi i
þjóðfélaginu af öllum ráða-
mönnum og þeirra fylgifiskum.
Og það er svoleiöis enn og
hefur ekkert batnaö. Mér finnst
ótrúlegt að þaö verði farið að
rétta þeim fjármuni upp i hend-
urnar og ég mun ekki leita eftir
þvi”.
— Hvað ætlaröu aö taka þér
fyrir hendur?
„Ég ætla að hafa þaö gott I
sumar og siöan fara til sólar-
landa i vetur. Og svo ætla ég aö
taka einhverja stefnu og sjá
hvort þaö verði ekki komnir ein-
hverjir menn með viti til að
stjórna þessu landi”. —KS