Morgunblaðið - 29.07.2001, Qupperneq 4
4 C SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Umdæmisstjóri
í Snæfellsbæ
Siglingastofnun auglýsir laust til umsóknar
starf umdæmisstjóra í Snæfellsbæ. Umdæm-
isstjóri annast rekstur skrifstofunnar í Ólafsvík.
Önnur verkefni eru úttektir á nýsmíði og breyt-
ingum á skipum og skipaskoðanir.
Æskileg menntun er skipstjórnarmenntun sem
heimilar umsækjanda að stjórna skipi sem er
1.600 brúttórúmlestir að stærð eða meira (sbr.
STCW, regla II/2), eða vélfræðingsmenntun
sem veitir réttindi til starfs um borð í skipi þar
sem afl aðalvélabúnaðar er 3000 kW eða meira
(sbr. STCW, regla III/2).
Gerð er krafa um starfsreynslu og kunnáttu
í ensku og einu Norðurlandamáli. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
og stéttarfélags viðkomandi starfsmanns.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Um sérstök umsóknareyðublöð er ekki að
ræða, en umsóknum ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skal skila til Siglinga-
stofnunar Íslands, Vesturvör 2, 200 Kópavogi.
Nánari upplýsingar veitir Geir Þór Geirsson
í síma 560 0000. Að sjálfsögðu verður öllum
umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráð-
ningu liggur fyrir.
Siglingastofnun er framsækin þjónustustofnun sem vinnur að öryggi
sjófarenda og aukinni hagkvæmni í sjósókn. Með sérfræðiþekkingu
og skilvirkni miðlun upplýsinga um málefni hafna og siglinga þjónar
Siglingastofnun stjórnvöldum, sjófarendum og útgerðarmönnum.
Lausar stöður
Leikskólakennarar
Óskum eftir leikskólakennurum í leikskólana
Álfheima og Glaðheima Selfossi.
Fáist ekki leikskólakennarar verða ráðnir starfs-
menn með aðra uppeldismenntun og/eða
starfsmenn sem hafa reynslu og áhuga á að
vinna með börnum í leikskólum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi
Árborgar, Austurvegi 2 Selfossi og er umsókn-
arfrestur til 10. ágúst nk.
Nánari upplýsingar gefur Ásthildur Bjarnadóttir
í síma 480 1900 netfang heiddis@arborg.is .
Starfsfólk í félagsstarf unglinga.
Okkur vantar gott fólk sem er tilbúið að vinna
með ungu fólki í félagsstarfi á Selfossi og við
ströndina. Mikið uppbyggingarstarf á sér stað
í sveitarfélaginu og er stefnt að því að félags-
miðstöð á Selfossi flytji í nýtt húsnæði í skóla-
byrjun. Við leitum að fólki með frístundanám
eða aðra uppeldismenntun að baki. Leitið upp-
lýsinga hjá fræðslustjóra í síma 480 1900.
Grunnskólakennara vantar
í forfallakennslu í Árborg.
Um tímabundna vinnu getur verið að ræða.
Umsjónarmaður með skóladagvist
á Selfossi
Að Bifröst á Selfossi, þar sem forstöðumaður
hefur fengið ársleyfi. Um er að ræða 80% starf
og verður ráðið í stöðuna til eins árs. Metnað-
arfullt uppbyggingarstarf er á Bifröst og leitum
við að hæfileikaríkum starfsmanni sem hefur
frístundanám eða aðra uppeldismenntun að
baki. Starfið er fjölbreytilegt og krefjandi og
reynir ekki síst á góð samskipti. Leitið nánari
upplýsinga hjá fræðslustjóra í síma 480 1900
eða á netfangi thorlakur@arborg.is .
Umsóknarfrestur um aðrar stöður en leikskóla-
kennara er til 5. ágúst og ber að skila umsókn-
um til fræðslustjóra Árborgar, Ráðhúsi Árborg-
ar Austuvegi 2, Selfossi.
Fræðslustjóri Árborgar.
X
Y
Z
E
T
A
/
S
ÍA
Leikskólakennarar, þroskaþjálfar eða starfsmenn með aðra
menntun og/eða reynslu óskast til starfa í leikskólann Rauðuborg
við Viðarás.
Rauðaborg er þriggja deilda leikskóli þar sem dvelja 60 börn samtímis.
Upplýsingar um störfin veitir Ásta B. Stefánsdóttir leikskólastjóri
í síma 567 2185.
Umsóknareyðublöð má nálgast á ofangreindum leikskóla, á
skrifstofu Leikskóla Reykjavíkur og á vefsvæði, www.leikskolar.is.
Spennandi störf
í leikskólanum Rauðuborg