Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 16
16 B SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ bílar CITROËN hefur hafið mikið endur- nýjunarferli á framleiðslulínu sinni. Nýlega kom á markað stóri milli- stærðarbíllinn C5, sem keppir á sama markaði og VW Passat og Ford Mond- eo, og um þessa helgi frumkynnir Brimborg, umboðsaðili Citroën, nýjan smábíl sem heitir einfaldlega C3. Bíln- um var fyrst reynsluekið í Frakklandi síðastliðið vor og þar kynntist undirrit- aður fyrst nýstárlegu útliti og hreint ágætum aksturseiginleikum þessa skemmtilega smábíls. Á dögunum var bílnum síðan reynsluekið á grófgerð- ari íslenskum vegum og nú með 1,4 lítra bensínvélinni. Hábyggður Það sem vekur strax athygli við hönnun C3 er hversu hábyggður bíll- inn er. Þetta er í takt við nýja strauma í smábílahönnun þar sem áhersla er lögð á sem mest innanrými í sem minnstum bíl. Það er fyrir vikið afar þægilegt að umgangast bílinn og gott að setjast inn í hann og stíga út úr honum. Lofthæðin er alls staðar mikil og þess vegna er unnt að hafa sæta- stöðuna hærri en vant er í smábílum. Ökumannssætið er þar fyrir utan með hæðarstillingu. Þótt C3 sé smábíll í öllum skilningi þess orðs rúmar hann ágætlega fjóra fullorðna og farangursrýmið er með fölskum botni og rúmar meira en mann grunar í fyrstu. Bjartur að innan Bíllinn er afar bjartur að innan. Rúður eru stórar og veita mikilli birtu inn í bílinn auk þess sem þær gefa ökumanni góða yfirsýn yfir veginn. Þó skyggja þykkir a-hurðapóstar nokkuð á útsýn úr ökumannssætinu. Mælaborðið er nýstárlegt og mælarn- ir sérviskulegir og í anda Citroën. Hraðamælirinn er stafrænn og snún- ingshraðamælirinn er hálfhringlaga kvarði þar fyrir ofan. Smekklegt en því miður venst illa að lesa af snún- ingshraðamælinum. Tvö hanskahólf og skúffa undir fremra farþegasæti geyma lausa- munina og armhvílur eru staðalbún- aður í framsætum. Stíllinn og útlitið er nútímalegt og glæsilegt en efnisvalið veldur á hinn bóginn vonbrigðum. Þrátt fyrir lag- legt útlit verður ljóst um leið og farið er að þreifa á hlutunum að flest allt er mótað úr veigalitlu plasti og sums staðar er frágangurinn heldur ekki upp á það besta. Rafstýri En nóg um það því C3 er uppfullur af góðum kostum sem fara langt með að vega upp þessa annmarka. Bíllinn er með rafstýrðu vökvastýri og er af- ar léttur í stýri í borgarumferðinni, sem er eftirsóknarverður kostur þeg- ar leggja þarf í þröng stæði og koma sér áfram í þungri umferð. Stýrið þyngist síðan með auknum hraða. Rafmagnsstýrið hefur líka þann kost að draga úr eldsneytisnotkuninni. Vélin skilar 75 hestöflum að há- marki við 5.400 snúninga. Þetta er spræk vél sem hentar vel í borg- arakstri og skilar líka sínu í þjóðvega- akstri. Upptakið er ekkert sérstakt, eða heilar 14,2 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða. Fjöðrunin er fremur stillt fyrir þægindi en stífleika til að ná hámarksgripi og bíllinn er því þægilegur í langkeyrslu. Bíllinn var prófaður með fimm gíra handskiptum gírkassa sem er bæði lipur og ratvís og snyrtilegur og um leið einfaldur frágangur í kringum gírstöngina vek- ur athygli. C3 er líka fáanlegur með sjálfskiptingu. Hagstætt verð C3 fyllir hóp nýrra smábíla sem ný- lega hafa verið kynntir til sögunnar. Þar má nefna nýjan VW Polo, Opel Corsa, Ford Fiesta og innan tíðar koma á markað enn nýir bílar í þess- um flokki, s.s. Hyundai Getz og Niss- an Micra. Citroën getur borið höfuðið hátt í flestum samanburði því fyrir- tækinu hefur tekist að smíða bíl sem vekur athygli jafnt fyrir formfegurð og mikið notagildi. Bíllinn er líka á hagstæðu verði með tilliti til keppi- nautanna og búnaðar. Með 1,4 l vél- inni í SX-gerð kostar hann 1.389.000 kr. og 1.509.000 kr. sjálfskiptur. Stað- albúnaður er m.a. ABS hemlar með EBD-hemlajöfnun og EBA-neyðar- hemlunarbúnaði, geislaspilari, fjórir öryggispúðar, fimm þriggja punkta öryggisbelti og hnakkapúðar, fjar- stýrð samlæsing og rafstýrðar fram- rúður ásamt regnskynjara í fram- rúðu. Morgunblaðið/Þorkell C3 er á fremur hagstæðu verði miðað við búnað. Í farangursrýminu er falskt gólf sem myndar mörg hólf. Vel búinn og laglegur Citroën C3 REYNSLUAKSTUR Citroën C3 SX 1.4i Guðjón Guðmundsson Bíllinn er bjartur að innan og lofthæðin er mikil. Vél: Fjögurra strokka, 1,4 lítrar. Afl: 75 hestöfl. Tog: 118 Nm. Hröðun: 14,2 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/ klst. Eyðsla: 6,2 lítrar í blönduðum akstri. Lengd: 3.850 mm. Breidd: 1.670 mm. Hæð: 1.520 mm. Eigin þyngd: 1.039 kg. Farangursrými: 282 lítrar. Hemlar: Skálar, ABS, EBD. Verð: 1.389.000 kr. Umboð: Brimborg hf. Citroën C3 SX 1.4i gugu@mbl.is Daily vits FRÁ Langsterkasta blandan á markaðnum. Með gæðaöryggi FRÍHÖFNIN S ta n sl a u s o rk a H á g æ ð a fra m le ið sla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.