Vísir - 17.02.1981, Blaðsíða 2
2
Þriðjudagur 17. februar 1981
Fylgistu
með tiskunni?
Kjartan Asgeirsson: Já.
Lilja Bjarnadóttir, vinnur á
Borgarspitalanum: Það er sára-
litið.
Erla Jóhannsdóttir, afgreiöslu-
stúlka: Nei.
■m
Ásta Björk Sveinsdóttir, nemi:
Já, stundum.
Björn Sigurösson, múrari: Nei.
t * *
VÍSZR
„HEF STARFM FYRIR
SJEHDASAMIOKIH 130 AR”
- seglr Agnar Guðnason. Diaðafuiilrúi BúnaOamings, sem var sett i gær
„Búnaðarþing er
eiginlega eins konar
ráðgjafaþing, þvi svotil
öll landbúnaðarlöggjöf,
sem samþykkt er á
Alþingi, hefur áður
farið fyrir Búnaðar-
þing”, sagði Agnar
Guðnason, blaðafull-
trúi Búnaðarþings, og
forstöðumaður Upp-
lýsingaþjónustu land-
búnaðarins.
„BUnaðarþingið lætur álit sitt
i ljds á þeim frumvörpum, sem
fyrir liggja á Alþingi og stund-
um er tekið tillit til þess sem
BUnaöarþingið leggur til — og
stundum ekki”.
Agnar sagöi, að Búnaðarþing^
hefði komið saman frá þvi fyrir
aldamót, fyrst i stað annað
hvort ár, en siðustu þrjátiu árin
á hverju ári.
— Hvað liggja mörg mál fyrir
þinginu aö þessu sinni?
„Það liggur tuttugu og eitt
mál fyrir sem stendur og það
má búast við að þau verði yfir
þrjátiu áöur en yfir lýkur.
Aðalmálið verður sennilega
erindi Búnaðarfélags tslands
Agnar Guðnason,
Visismynd: GVA
um loðdýrarækt. Þá er annað
erindi frá Búnaðarfélaginu, sem
nefnist: Samstilling á gangmál-
um kúa. Með öðrum orðum nýtt
skipulag á mjólkurframleiöslu á
landinu.
Þá verður lagt fyrir erindi um
hlunnindi, sem Búnaðarfélagið
og einstakir ráðunautar leggja
fyrir. Þá má nefna erindi frá
Búnaðarfélagi Austurlands um
skógrækt i þágu bænda.
Ekki er að efa, aö mikiö verð-
ur rætt um framleiðslumálin og
verður frumvarp lagt fyrir
Búnaðarþingið sem nú liggur
fyrir Alþingi um verðskráningu
og verðmun á larídbúnaðaraf-
urðum.
Þá verða lögö fyrir þingið er-
indi um fiskrækt, nýbyggingar-
gjald og leiðbeiningar i sam-
bandi við útihúsabyggingar.
Mörg önnur athyglisverð mál
verða lögð fyrir þingið”.
Agnar Guðnason hefur unnið
fyrir BUnaðarfélag Islands og
bændasamtökin frá þvi áriö 1953
og hefur viða komið við á þeim
tima. Nú er hann sem fyrr segir
forstöðumaður Upplýsingaþjón-
ustu landbúnaðarins. Fyrst
vann hann við tilraunastörf að
Sámstöðum eftir aö hann lauk
námi við landbúnaðarháskólann
i Kaupmannahöfn. Siðan sá
hann um „Handbók bænda” i
fimmtán ár. —ATA
Ný fiölmlðla-
könnun
Hagvangur hf. hefur
hleypt nýrri fjölmiðla-
könnun af stokkunum og
stendur hún nú yfir.
Nær hún til 1000 manna
úrtaks af landinu öllu. Er
spurt ýtarlega um notkun
dagblaða, allflestra sér-
rita, sem út eru gefin, svo
og rfkisfjölmiðlanna.
Þaö er Samband
islenskra auglýsingastofa
sem kostar könnunina og
er hún önnur i röðinni,
sem Hagvangur sér um
framkvæmd á.
EKkert
má nú
t miðri sundlauginni I
ónefndum nágrannabæ
Reykjavikur er áberandi
skilti, þar sem stendur
með stórum stöfum:
REYKINGAR
BANNAÐAR
Boðlð heim I
mal
Skrifstofumaöurinn átti
von á stöðuhækkun og
haföi boðið forstjóranum
heim I mat, svona rétt til
aö minna á sig. Þegar
forstjórinn haföi hesthús-
að vænan skammt af
smásteikinni, hallaöi
hann sér aftur strauk
ýstruna og sagöi:
„Mikiö óskaplega var
þetta nú góður matur”.
„Já”, pipti Nonni litli,
sem endilega þurfti að
vera nærstaddur. „Pabbi
sagði líka. að kettirnir
mættu vera góðir til að
allur þessi eltinga- leikur
borgaði sig”.
Fjðlelgn skal
bað heita
Hið nýja félag áhuga-
manna um flugrekstur,
þ.e. félagsskapur Loft-
leiðamanna, hefur nú
hlotið nafn. Hefur það
verið skráð undir heitinu
Fjöleign hf. i hlutafélags-
skrá.
Kristjana Milla
Thorsteinsson, stjórnar-
maður i Fjöleign hf .
Nýr lýGB njósn-
ari á Islandi
Upphaflega var ætlunin
sú, að félagið yrði skráð
undir heitinu Sameign hf.
Við athugun hjá Borgar-
fógetaembættinu kom i
ljós. að það heiti var þegar
á firmaskrá. Höföu Hjalti
Geir Krist jánsson og
Guðrún Kristjánsdóttir
látið skrá Sameign sf. um
rekstur fasteigna, lána-
starfsemi o.fl.
Heitið Fjöleign hf.varö
þvi fyrir valinu og er for-
maður stjórnar félagsins
Einar Guðmundsson.
úauður
fugi
Tveir Hafnfirðingar
voru á skemmtigöngu I
fjörunni. Allt I einu sagði
annar:
„Nei sko. Þarna er
dauöur fugl”.
„Ha, hvar?”, spuröi
hinn og leit upp I loftið.
Tveggja
svína tal
og svo var þaö svlniö,
sem sagöi viö hitt svíniö:
Triíir þú á llf eftir jólin?
Beðlð eftlr
Brésnel
Flugskýlabyggingarn-
ar á Keflavikurflugvelli
hafa hleypt skjálfta i
fleiri en ráöherra Alþýðu-
bandalagsins.
Undanfarna viku hefur
Moggi veiklast mjög og
stöð skjálftinn I hámarki
um helgina. Rússarnir
eru nefnilega komnir — í
hinum margvislegustu
gervum.
SI. fimmtudag gerðist
t.d. sá válegi atburður að
sovéskir sjómenn sáust á
vappi um götur höfuð-
borgarinnar. „3 01
sovéskur sjómaður I
höfuöborginni”, upplýsti
Moggi daginn eftir, og
bætti þvi við að skip
þeirra heföu vist verið að
taka hér vatn og vistir.
En vei þeim.sem trúir
slíku orðagjálfri. Enda
upplýsir Benedikt
Gröndal i Alþýðublaði og
siðar Morgunblaði um
helgina, að þetta sé :
„Diplomatisk aðgerð til
aö minna á styrk og
nálægð ■Sovétrikjanna,
einmitt þegar varnar-
stöðin i Keflavik er stór-
mál i Islenskri pólitik”.
Og sami Moggi segir
okkur aö nýr sovéskur
njósnari hafi tekið sér
bólfestu i sovéska sendi-
ráðinu við Garðastræti,
auk þess sem gerð er nán-
ari úttekt á viðtækri
starfsemi KGB I greininni
I blaðinu.
Og nú biðum viö bara
eftir Brésnef...
ðvænl
heimsókn
Hjón ein hrukku upp
um miðja nótt við eitt-
hvert þrusk i ibúðinni.
Þau ruku fram úr og leit-
uðu um allt, en án
árangurs. Loks var hús-
bóndanum gengið fram i
baðherbergi og sá þá að
hengið fyrir sturtunni
heyföist. Hann svipti þvi
til hliðar og þar stóð þá
innbrotsþjófurinn, sem
sagði með þjósti:
„Hvaö er þetta eigin-
lega? Má maður ekki
kjósa í friði?
Páll
Magnússon,
blaðamaöur,
skrifar.