Vísir - 17.02.1981, Side 4
Vantar umboðsmann á
Blönduós
Sími
86611
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 84., 89. og 93. tbl. Lögbirtingablaðsins
1980 á eigninni Esjugrund 51, Kjalarneshreppi, þingl. eign
Huldu Þorgrimsdóttur fer fram eftir kröfu Gjaldheimt-
unnar i Reykjavik, á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febru-
ar 1981 kl.15.30. ,
Sýslumaðurinn I Kjósarsyslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 84., 89. og 93. tbl. Lögbirtingablaðsins
1980 á eigninni Brekkutangi 20, Mosfellshreppi, þingl. eign
Péturs Korneliussonar fer fram eftir kröfu Jöns Magnús-
sonar, hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1981
kl. 15.00. . ,
Sýslumaðurinn i Kjósarsyslu
Skeifunni 17>
Sfmar 81390
Tilboð óskast
í neðangreindar bifreiðar, sem
skemmst hafa í
umferðaróhöppum
Subaru station 4x4 árg. '78
Volkswagen Variant 1600 árg. '70
Honda Civic 1300 árg. '74
Mazda 1300 árg. '73
Cortina 1600 árg. '74
Datsun 180 B station árg. '78
Mazda 818 árg. '72
Trabant 601 árg. '78
Bifreiðarnar verða til sýnis að Hamarshöfða
2, þriðjudaginn 17. feb. frá . 12.30-17.00
Tilboðum sé skilað að skrifstofu vorri Aðal-
stræti 6/ eigi síðar en miðvikudaginn 18. febrú-
ar.
TRYGGINGAMIÐSTOÐIN U
AÐALSTRiETl a — REYKJAVÍK — alm
Breski kaupskipaflotinn er að
visu fjórði stærsti i heimi, en þó
ekki nema skugginn af sjálfum
sér.miðað við fyrir 15 árum.
Hnienun hans. sem áður lagði
grundvöllinn að breska heims-
veldinu hefur i rauninni staöið i
nokkra áratugi. Veldur þvi fleira
en sihækkandi launakostnaður,
sem skipafélögin bera sig undan
nú i yfirstandandi deilu við
sjómannafélögin, og hækkandi
gengi sterlingspundsins, sem ger-
ir þeim erfitt um vik i samkeppn-
inni.
Þau hafa heldur ekki haft vilja
til þess að ráðast i nýsmiðar
skipa, og þvi trauðla fylgst með
þróun nýtisku skiparekstrar.
Þegar best tekst til, eru keypt
notuð skip, yngst ársgömul, svo
að útgerðin er alltént einu ári á
eftir flestum samkeppnisaðilum.
Fyrir siðari heimstyrjöldina
voru tveir þriðju skipaeigenda
breskra menn, sem höfðu hafist
upp af sjálfum sér. Oft skipstjór-
Breski flolinn er ekki
svipur hjá sjón
ar, sem önglað höföu saman i sitt
fyrsta skip. Utan Bretlands
endurtekur sú saga sig enn i dag.
Fyrir utan það, að viða þrifast
enn vel gömlu frumherjarnir,
eins og i Grikklandi og i Hong-
kong. Af bresku skipakóngunum
gömlu eru fáir orönir eftir.
Það er ekki lengra siðan en
1967, að breski kaupskipaflotinn
gat talist sé stærsti i heimi. Hann
hefur hrunið siðan, bæði miðað
við hve stór hann var og eins i við-
miðun við aðra, sem stækkað
hafa á meðan. 1914 áttu Bretar
42% kaupskipa heims. 1970 áttu
þeir 11.4% og i dag aðeins 6.5%.
Bresk kaupskip i dag annast nú
24% þeirra vöruflutninga, sem
millirikjaverslun Bretlands þarf
áað halda. Fyrir tveim árum var
það 35%.
Nú hafa tekið við skip, sem
sigla- undir fánum Liberiu og
Panama.
Bresk skipafélög hafa litið grip-
ið til þess að skrá sin skip i
Liberiu eða Panama. Þó ætlaði
Cunardfélagið i vetur að bregða á
þaö ráð i deilum við sjómanna-
samtök, en þau fengu hindrað
það. Kom þá i ljós, að það getur
orðið erfiðari róðurinn fyrir
skipafélög i Bretlandi að freista
slikra úrræða til þess að skjóta
sér úndan hækkandi launakröf-
um.
Enn má sjá nokkrar leifar fyrri
glæsitima. Aður var naumast
komið svo til hafnar i austurlönd-
um fjær, að þar blöstu ekki við
einkennislitir á skipum „British
India Line’s” eða Alfred Holt’s
„Blue Funnel Line”. Eitthvað
eimir eftir af þeim ennþá, og
nokkrar hinum frægu skipafjöl-
skyldum af reka enn sin skipa-
félög. Adrian Swire rekur enn
Guðmundur
Pétursson,
fréttastjóri
erlendra
frétta.
„Far Eastern”, sem afi hans
stofnaöi, og er stjórnarformaður i
hinu 108 ára gamla „China
Navigation”, sem hefur að visu
mjög dregið saman seglin.
Cayzer-fjölskyldan heldur enn
um taumana á „British and
Commonwealth Shipping”, sem
áður flutti póst til S-Afriku.
Sonarsonur Inchcapes lávarðar
fæst enn viöskipaútgerð, en afinn
átti á sinum tima stærstan þátt-
inn i samruna „British India” og
„P&O”. Aðrar fjölskyldur, sem
nefna mætti, eru Vestey, Bibby,
Runciman og Ropner. Þær eru þó
allar horfnar i skuggann af nýrri
kynslóó skipakónga.
Upphaflega voru það griskir
fésýslumenn, sem söxuðu á
breska versíunarskipaflotann
með kaupum á notuðum skipum,
sem bresku skipafélögin töldu sig
ekki hafa not fyrir. Niarchos,
Onassis og fleiri spruttu þá upp.
Siðan komu til sögunnar Kinverj-
ar frá Hongkong. Ue-Kong Pao
byrjaði 1955,þegar hann keypti 17
áragamalt skip „Golden Alpha”.
Nú stýrir hann flota upp á 20
milljónir bróttólesta og á i pönt-
un ný skip upp á 3 milljónir lesta.
Ef bætt er við flotum tveggja ann-
arra Hongkong-skipajöfra, eins
og D.Y.Tung og Frank Chao, þá
eiga þessir þrir yfir stærri flota
að ráöa en allur hinn breski
kaupskipafloti samtals.
Þar á ofan er hinn breski floti
ekki 100% breskur. Töluvert af
erlendu f jármagni hefur komið til
sögunnar á siðustu árum. Sumir
segja, að útlendingar eigi um 40%
breskra kaupskipa. Svo sem eins
og Boris Vlasov, sem sjálfur situr
i Monte Carlo, en yfirtók „Silver
Line” árið 1973, eða C.Y. Tung,
sem keypti „Furness Withy” i
fyrra. Danska skipafélagið „A.P.
Möller” „franska Dreyfus-félagið
og fleiri eiga skip undir breskum
fánum, þvi að til skamms tima
hefur Bretland þótt liggja ekki
langt að baki Liberiu og Panama
og öðrum slikum löndum, sem
heppilegt þykir að skrá skipa-
félög sin i.
Hluti skýringarinnar á þessari
hnignun siðustu áratuga liggur i
hnignun heimsveldisins og upp-
lausn. Eins með tilkomu farþega-
flugsins, sem skapaði tómarúm
hjá skipafélögunum, er aldrei
hefur verið fyllt upp i siðan. Aður
höfðu bresk félög ódýrt vinnuafl
frá ýmsum samveldislöndum.
Fyrir 15 árum var fjórðungur
áhafna á breskum aðallega frá
Indlandi og Kina (Hong-kong), en
sjómannasamtökin hafa knúið
félögin til þess að skera þann
fjölda niður. Siglingaráð Bret-
lands ætlar, að það sé tvöfalt dýr-
ara að manna skipin með bresk-
um áhöfnum heldur en t.d.
kórönskum.
Einnig kemur til, að bresku
félögin hafa ekki verið nógu klók i
umsetningu og fjárfestingum.
Þau hafa selt skip sin, þegar
markaðurinn lá niðri og verð-
lagið lélegt, og of seinir að fylgj-
ast með nýbreytninni til þess að
kaupa á hagkvæmum tima.
Margar uppá
stungur fyrlr
HóDelspris
Lech Walesa, Jimmy Carter
fyrrum forseti, Alva Myrdal,
talsmaður afvopnunar og Robert
Mugaby, forsætisráðherra
Zimbabwe, eru I hópi þeirra, sem
tilnefnd hafa verið til friðar-
verðlauna Nóbels árið 1981.
Nóbelsverðlaunanefndinni hafa
borist alls um 60 uppástungur 50
einstaklinga og 13 stofnanir. 1
þessum hópi eru sex konur.
Einnig Robert McNamara, frá-
farandi bankastjóri Alþjóðabank-
ans, Jurij Orlov sovéski andófs-
maðurinn, og svo hinn týndi
diplómati Svla, Raoul Wallen-
berg.
Meðal stofnana eða samtaka,
sem tungið hefur verið upp á, eru
Hjálpræðisherinn, Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna
Mannréttindanefndin i E1 Salva-
dor og fleiri.
Loflbelgurinn
strandaður
Bandarisku mennirnir tveir,
sem ætluðu að fljúga i loftbelg
umhverfis jörðina i einum
áfanga, lentu loftbelgnum á
laugardag á Norður-Indlandi.
Eru þeir hættir við.
Þeir lögðu upp frá Luxor i
Egyptalandi á fimmtudag, en
þegar þeir voru yfir Nýju Delhi
slepptu þeir út lofti til að lækka
flugið og komast i ákveðna ioft-
strauma. Fram til þess höfðu þeir
svifið i 9 þúsund metra hæö.
Loftstraumana fundu þeir ekki,
og náðu heldur ekki aö hækka
belginn til þess að komast yfir
Himalaya-fjallgarðinn, svo að
lengra varð ekki komist.