Pressan - 12.09.1991, Page 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. SEPTEMBER 1991
7
SKUUMR YHR
200 MHLMNIR
ENAEIflflHNA
KRRNU
Reykjakaup, fyrirtœki Friðriks Gíslasonar fyrrum kaupmanns í Hafnar-
firði og Garðabœ, hefur verið gert upp vegna gjaldþrots. íljós kom að
skuldirnar voru 168 milljónir króna auk vaxta og kostnaðar. Engar
eignir fundust í búinu. Friðrik segir að Páll í Polaris hafi ekki staðið
við gerða samninga og því hafi fyrirtœkið tapað tugum milljóna króna.
um fékk Páll greitt með allskyns
pappírum sem allir fóru í vanskil.
KJÖTMIÐSTÖÐIN
MEÐAL KRÖFUHAFA
Þrotabú Kjötmiðstöðvarinnar er
með tugmilljóna króna kröfu í
þrotabú Reykjakaups, fyrirtæki
Friðriks. Þrotabú Kjötmiðstöðvar-
innar er ekki öflugt fyrir og ekki
bætir það stöðuna að fyrirtækið
sem keypti helstu eign Kjötmið-
stöðvarinnar á ekki krónu og getur
því ekki gert upp kaupin á verslun-
inni í Garðabæ.
Þegar Páll í Polaris keypti þá versl-
un greiddi hann fjórar milljónir í
víxlum, yfirtók skuldir upp á nærri
sextiu milljónir og afganginn
Friðrik Gislason á þeim tíma sem
hann var kaupmaður i Garðabæ.
greiddi hann með hluta í eigninni
númer 5a við Krókháls í Reykjavík,
eða eitt þúsund fermetrum.
A eigninni hvíldu talsverðar
skuldir sem Páll átti að aflétta. Það
var ekki gert. Landsbankinn átti 60
milljónir króna sem voru veðsettar
á Krókhálsinum. Ekki tókst að af-
iétta veðunum sem varð til þess að
eignin, sem var yfirveðsett, var seld
Friörik Gíslason keypti óvænt verslunina Kostakaup í
Hafnarfirði af Páli G. Jónssyni í Polaris í september 1988.
Kaupverðið var 25 milljónir króna. Síðar keypti Friðrik
verslun Kjötmiðstöðvarinnar í Garðabæ af Kjötmiðstöð-
inni hf. sama dag og það fyrirtæki var tekið til gjaldþrota-
skipta. Kaupverðið var 80 milljónir króna. Kaupverð og
rekstrarskuldir vegna þessa verslunarrekstrar Friðriks
fóru fljótlega í vanskil. Síðar seldi hann Páli í Polaris versl-
unina í Garðabæ. Eftir að Reykjakaup, fyrirtæki Friðriks,
fór í gjaldþrot streymdu inn kröfur í þrotabúið, en það átti
hins vegar engar eignir.
UR MYNDBANDALEIGU I
STÓRVERSLUN
Þegar Friðrik keypti Kostakaup
var hann lítt eða ekkert þekktur í
viðskiptalífinu. Hann hafði átt og
rekið Myndbandaleigu kvikmynda-
húsanna í Reykjavík og víðar, alls ní-
tján afgreiðslustaði, að sögn Frið-
riks. Páll í Polaris seldi Friðriki versl-
unina fyrir 25 milljónir króna, en
Páll hafði áður keypt hana af þrota-
búi Kostakaups, fyrir 20 milljónir.
Friðrik greiddi fyrir með allskyns
pappírum sem lítið eða ekkert
fékkst greitt fyrir.
Páll í Polaris keypti Kostakaup
upphaflega til að reyna að bjarga
600 þúsund króna tapi sem blasti
við honum vegna gjaldþrots Kosta-
kaups.
Þegar Páll keypti verslunina í
Garðabæ losnaði Friðrik undan því
sem hann átti ógreitt til Páls vegna
Kostakaups og eins við miklar við-
skiptaskuldir við Sanitas, fyrirtæki
Páls.
Friðrik sagði í samtali við PRESS-
UNA að hann hefði keypt Kjötmið-
stöðina á of háu verði. Sér hefðu
ekki verið gefnar upp réttar veltu-
töiur og hann hefði því borgað yfir-
verð fyrir verslunina.
PÁLL SELDI STRAX AFTUR
Páll átti verslunina í Garðabæ
ekki lengi. Hann fann annan ævin-
týramann, Jens Ólafsson í Grundar-
kjöri. Viðskipti Páls og Jens gengu
hratt fyrir sig. Páll eignaðist verlsun-
ina seinnipart dags 15. janúar 1990
og seldi Jens hana næstu nótt, þ.e.
aðfaranótt 16. janúar. Eins og áður
sagði keypti Páll af Friðriki fyrir 84
milljónir en Jens af Páli fyrir 105
milljónir króna. Hann greiddi sem
sagt rúmum 20 milljónum króna
meira fyrir verslunina en Páll gerði
fáum klukkustundum áður.
Af þessu mætti ráða að Páll hefði
gert góð viðskipti. Svo var alls ekki,
því hvorki Grundarkjör, fyrirtæki
Jens Ólafssonar, né Reykjakaup, fyr-
irtæki Friðriks Gíslasonar, reyndust
traustir kaupendur. í báðum tilfell-
ÚR KOSTAKAUP
í KJÖTMIÐSTÖÐINA
Friðrik lét sér ekki duga að eiga
eina verslun. Hann keypti verslun
Kjötmiðstöðvarinnar hf. við Garða-
torg í Garðabæ af Hrafni Bach-
mann. Kaupin voru gerð sama dag
og bú Kjötmiðstöðvarinnar var tek-
ið til gjaldþrotaskipta. Kaupverðið
var 80 milljónir króna.
Ekki tókst Friðriki vel upp með
reksturinn. Skuldir hlóðust upp og
enn kom Páll í Polaris til skjalanna.
Hann keypti Kjötmiðstöðina, sem
reyndar var búið að gefa nýtt nafn,
Garðakaup, og keypti verslunina af
Friðriki fyrir 84 milljónir króna.
Krókháls 5 í Reykjavík. Friðrik segir að gjaldþrotamáliö hefði tekið aðra stefnu
ef Reykjakaup hefði fengið það út úr þessu húsi sem því bar.
á nauðungaruppboði. Þannig fengu
kröfuhafar í þrotabú Reykjakaups
ekkert út úr eigninni, sem verður að
teljast eina eign fyrirtækisins sem
varð verðlaus vegna þess hversu
mikið var áhvílandi.
SKIPTARÁÐANDINN VILDI
EKKI í MÁL VIÐ PÁL
Friðrik segir að skiptaráðandinn
hafi ekki viljað höfða mál á hendur
Sanitas fyrir vanefndir. „Ef það
hefði verið gert og Sanitas þurft að
borga sitt er ég viss um að Reykja-
kaup hefði getað fengið nauðar-
samninga. Þetta var eitt þúsund fer-
metra húsnæði og ætli leigan sé
ekki fimm eða sex hundruð krónur
á hvern fermetra. Leigutekjurnar
hefðu því getað greitt talsvert niður
af skuldunum,“ sagði Friðrik Gísla-
son.
Friðrik nefndi einnig að Lífeyris-
sjóður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur hefði lýst kröfu í þrota-
búið. Samkvæmt samningi yfirtók
Páll í Polaris þessa skuld og Jens Ól-
afsson yfirtók hana síðan þegar
hann keypti af Páli.
Hvernig sem öllu er komið er ljóst
að kröfur í þrotabú Reykjakaups eru
168 milljónir króna auk vaxta og
kostnaðar, sem þýðir að með öllu
eru kröfurnar á þriðja hundrað
milljónir króna.
AFTUR Á BYRJUNARREIT
Friðrik Gíslason missti báðar
verslanir sínar, það er Kostakaup og
Garðakaup. Eins og áður sagði átti
hann myndbandaleigu áður en
hann fór út í matvörukaup-
mennsku. Eftir að hann tapaði versl-
ununum tók hann upp fyrri við-
skipti, þ.e. myndbandaleigurekstur.
Til skamms tíma átti hann mynd-
bandaleigu við Skipholt. Nú er búið
að loka þar, en Friðrik rekur aðra á
Seljabraut 54 í Reykjavík og auk
þess söluturn í Engihjalla 8 í Kópa-
vogi.
Sigurjón Magnús Egilsson