Nýja dagblaðið - 04.04.1934, Blaðsíða 4
4
W f J A
BASB1.AI19
Annáll
Hiónaefni. Á skírdag opinber-
uöu trúlofun sína ungfrú Ingi-
björg Amadóttir verzlunarmœr og
Hallsteinn Hinriksson kennari í
Hafnarfiröi.
S. 01. T. hefir alla dansleiki
sína í G. T.-húsinu og er nœsti
Öarisleikur á laugardagskvöldið.
Dr. phil. Ame Möller flytur nú
i vikunni 5 fyrirlestra við héskól-
ann um íslenzkan og danskan
sélmakveðskap og rœðugerð á 17.
öld og áhrif frá þýzkalandi og
Engiandi í þessum efnum, og
fjalla fyrirlestramir einkum um
Pessíusálma Hallgríms Pétursson-
ar og danska skáldsins Kingo og
um Vídalínspostillu. Fyrsti fyrir-
l.esturinn var fluttur i 1. kennslu- ’
stofu háskólans í gær. Næsti íyr- '
irlestur verður í dag á sama stað, 1
og svo á fimmtudag, föstudag og '
laugardag kl. 6—7, og er öllum '
heimill aðgangur. Fyrirlestramir 1
verða fluttir á dönaku.
EykindiU heitir nýstofnuð
kvennadeild í Slysavarnaféiagi ís-
iands 1 Vestmannaeyjum. Félags-
konur eru hátt á annað hundrað
og er áhugi mikill.
Háöldrað kona látin. f fyrra
máh. andaðist Karitas Jóhtmns-
dóttir, að Hólum í Helgafellssveit.
Hún var háöldruð, vantaði aðeins
tœþa fjóra mánuði í hundrað ár.
Heimili hafði hún átt á aama bæ
í sámfleytt 7A ár.
Dánarlregn. Nýdáin er Helga
Sigurðardóttir Hjaltalín, frá Gröf
í Eyi-arsveit, kona Jóns Lárusson-
ar bónda þar. Hún var 76 ára
gömul. Var hún til lækninga i
Stykkishólmi og lézt þar.
Svonefndar Hallgrímshátíðir er
nú búið að halda viða um land
allt Eru þær haldnar til ágöða
fyrir vœntanlega Hailgrímakirkju
1 Saurbæ. Sýna þær mæta vel,
hversu sterk ítök hið mikla sálma-
skáld á í hugum þjóðarinnar. Ný-
lega hafa Hallgrímshátíðir verið
haldnar á Akranesi og Auðkúlu í
Húriavatnssýslu.
Jakobína Johnson skáldkona. í
nýkomnum Skinfaxa hreyfir þór-
hallur Bjarnarson þeirri tillögu,
að Landssamband kvenna, ung-
mennafélögin og Félag Vestur-ís-
lendinga hér í bæ, beiti sér fyrir
þvi, að hinni merku vestur-ís-
lenzku skáldkonu, frú Jakobínu
Johnsson, verði boðið hingað heim
í sumar. Sambandsstjóm ung-
mennafélaganna hefir fallizt á
tillöguna og ætlar að leita sam-
vinnu við stjórnir annara félags-
samtaka, um að hrinda málinu í
framkvæmd.
Mokafli. Blaðið átti tal við
Akranes og Vestmannaeyjar í gær.
Var mokaíli á báðum stöðun-
um þessa undanfarna daga ög
beztu vonir manna á meðal, að
vertiðin lagist til mikilla. muna,
þó aö þetta sé liðið á hana.
Hjúskapur. Gefin voru saman
í hjónaband á páskadag, af ‘Hálf-
dáni Helgasyni Mosfelli, ungfrú
Gréta Kristjánsdóttir Hverfisgötu
101 og Jónas Jósteinsson kennari i
Austurbæjarskóla Reykjavíkur, ;—
Heimili uhgu hjónanna er á Eg-
ilsgötu 30.
Ikveikja í Skildinganesi. Á ann-
an í páskum kviknaði í húsinu
við þjórsórgötu 2 í Skildinganesi.
Oi-sökin var sú, að húsmóðirin
hafði viljað koma manni sínum út
úr húsinu, en ekki tekizt og tók
hún þó til bragðs, að kveikjaj í
húsinu. H.elti hún olíu ó gólfið og
kveikti í. • Með þessu móti tókst
henni að koma manninum út, því
hann þaut út til þess að kalla ó
slökkviliðið til hjálpar. þegar
slökkviliðið kom ó vettvang, var
konan þó búin að slökkva eldinn.
Dómur er ekki ennþó kveðinn upp
í mólinu.
Tveir meun voru teknir fyrir
bruggun hér í Reykjavlk rétt fyr-
ir páskana.
Ljósállar heitir leikrit, sem ver-
ið er að leika um þessar mundir.
Leikendurnir eru allir undir 16
ára aldri. Er þetta söngleikur
með nokkrum dönsum og syngja
börnin vel og lögin eru einkar
skemmtileg. Leikurinn mun verða
sýndur gftur innan skamms.
Austurríska stjáraln hefir til-
kynnt, að kostnaðurinn við borg-
arastyrjöldina á dögunum hafi
verið rúmlega tvær millj, sterl-
ingspunda, eða sem svarar krón-
um 44,300,000. — FÚ
Björgunarsklpið Artlgllo, sem
undanfarið hefir fengizt við, að
nó gulli ur gufuskipinu Egypt,
með svo. góðum árangri, að það
náði nólega öllum gullfarminum,
er nú farið óleiðis til Queenstown
á írlandi. Fregn kom um það, að
Artiglio myndi. næst leggja i það,
að gera tilraun til þess að bjarga
verðmætum úr Lusetania, sem
einnig var sökkt á stríðsórunum.
En björgunarfélagið ber, það til
baka að svo sé, en segir, að Arti-
glio muni nú fara að leita skipa,
sem sökkt. yar við írlandsstrendur
meðan á ófriðnum stóð, og gera
tilraupir til þess, að nó úr þeim
kopar og stáli. — FÚ.
Meiri Oyðingaoísóknlr7 í ýmsum
evrópeiskum og amerískum blöð-
um. er því haldið fram, að Naz-
istaflokkurinn þýzki hafi áformað
að leggja nýtt allsherjor viðskifta-
er það hve margir láta oft
elta sig með smáreikninga, sem
fallnir eru í gjalddaga, en
þeir þó ætla að greiða.
Fyrir reikningshafana eru
rukkanir bæði kostnaðarsamar
og þreytandi, og fyrir þann,
semi' reikninginn á að borga,
er hvimleitt, að vera alltaf að
verða fyrir ónæði af skuld-
heimtumönnum.
bann á Gyðinga í þessari viku.
Stjórn flokksins lýsir því yfir, að
fregnir þessar, sem stafi frá skrif-
stofu Gyðingsins Untermeyer í
New York, séu ósannar, en hitt
sé satt, að flokkurinn ætli nú að
láta fara fram ailsherjar eftirlit
með sjálfboðavinnu og atvinnu-
bótavinnu, að þar slæðist ekki
G.vðingar inn, en um Gyðingaof-
sóknir sé alls ekki að ræða 1 þessu
sambandi. — FÚ.
Uk Staviski hefir verið grafið
ugp í Chamonix og sent til Par-
ísar, til þess að þar fari fram
önnur líkskoðun. Rannsóknarnefnd
in tjáði sig ekki hafa nægar sönn-
ur fýrir því, að Staviski hefði
framið sjálfsmorð, og fór því fram
á, að komið væri með líkið til
Parísár til frekati athugunar.
Dáglega upplýsist eitthvað nýtt i
málinu. Skartgripir, sem eru tald-
ir við það riðnir, og virtir eru a
mörg þúsund sterlingspund, hafa
fundizt í London, en þar höfðu
þeir verið veðsettir margsinnis, og
aldrei tvisvar af þeim sama, frá
því í septemberlok þar til í byrj-
un febrúar. Lögreglan kvað vera
búin að hafa upp á sumum þeirra
manna, er eiga að háfa veðsett
skartgripina á þessu tímabili. FÚ.
Bandarikin ná sór nlBri á Frökk-
m Svo virðist, sem Bandaríkja-
stjóm hafi í hyggju að lóta það
bitna ó Frökkum ,að þeir ekki
hafi staðið við striðsskaldaafborg-
anir sinar, né greittt neitt í viður-
kenningarskyni undanfarna gjald-
daga. Morgenthau, f jármálaráð-
herra hefir boðið bönkum í Banda-
ríkjunum, að kaupa ekki verð-
bráf i hollenzku lóni til Frakk-
lands, og utanríkismólanefnd full-
tmadeildarinnar hefir lagt fram
frumvarp, sem bannar viðskipti,
bæði einstaklingum og því opin-
bera, við lönd þau, er ekki hafa
staðið í skilum með stríðsskuldir
sínar við Bandaríkin, óg er búizt
við að fulltrúadeildin samþykki
frumvarpið. — FÚ.
Föðurlandssvikari? Nýlátinn er
í London Coloriel Lynch, einn af
þjóðk\innustu læknum Breta, og
frægur rithöfundur. Liggja eftir
hann merkar bækur bæði í
stærðfræði og verkfræði. Hann
varð 82 ára. Col. Lynch átti sögu-
lega æfi. þótt hann væi'i Englend-
ingur, tók hann þátt- í Búastríð-
inu gegn Englendingum, og var
hann því kærður fyi ir landráð, og
dæmdur til dauða, en dónmum
var breytt í æfilangt fangelsi.
Rétt áður en dómurinn var kveð-
inn upp, hafði Lynch verið kjör-
inn til þings. Ekki sat hann nema
eitt ár i fangelsi, en var þá lát-
inn laus, og innti hann af höndum
merkilegt starf eftir það. Hann
var. lengi þingmaður. — FÚ.
InnflutninQur til Frakklands.
Franska stjórnin hefir nú gengið
frá nýjum ákvæðum um innflutn-
ingsleyfi til Frakklands, og ganga
þau í gildi 1. apríl. Samkvæmt
þeim er heildarinnflutningsmagn-
ið fyrir þetta ár ákveðið (4 af þvi
sem flutt var inn af hverri vöru-
tegund 1932, en því er ekki skipt
hlutíallslega milli innflytjenda-
þjóðanna, og er stjóminni gefin
heimild til þess að veita sumum
viðskiptaþjóðum fullt innflutnings-
leyfi, miðað við 1932, en synja öðr-
um algerlega ef henni svo sýnist.
Er talið að þessi síðasta ráðstöfun
sé sérstaklega gerð vegna Breta,
sem hafa krafizt þess að innflutn-
ingsleyfi á vörum frá Englandi
verði ekki takmarkað, og mun hún
vera afleiðing af t'undi þeim, er
franski verzlunarmálaráðherrann
átti með enska verzlunarmálaráð-
herranum í London nýlega. FÚ.
Skipafróttir. Gullfoss fór frá
yestmannaeyjum í gær á leið til
Leith. Goðafoss er í Hamborg.
Brúarfoss kom til Leith í fyrradag
ó hódegi. Dettiíoss fór vestur og
norður i gærkvöldi kl. 10. Lagar-
foss vai' í gærmorgun ó leið itl
Vopnafjarðar. Selfoss kom til
Grímsby í gær. ■
Skilvísir
kaupendur blaðsins gerðu því
mikinn greiða, ef þeir greiddu
blaðið án þess að þurfi að
fara oft með reikninga til
þeirra.
Ódýrn
auglýsing&rn&r.
Atyinna
iíaup og' sala
li
Lítið notaður barnavagn
(dökkur) óskast keyptur. Upp-
lýsingar á Hverfisgötu 34, efstu
hæð.
Vegna þrengsla seljast nokkr-
ir tvísettir klæðaskápar með
tækifærisverði og góðum
greiðsluskilmálum. A. v. á. eða
sími 2773. '
Gott, tvöfalt orgel óskast til
kaups. Uppl. í síma 2664.
Rúgbrauð, franskbrauð og
normalbrauð á 40 aura hvert.
Súrbrauð 30 aura. Kjamabrauð
30 aura. Brauðgerð Kaupfél.
Reykjavíkur. Sími 4562.
SPAÐKJÖT
af úrvalsdilkum alltaf fyrir-
liggjandi. S. 1. S. — Sími 1080.
2 stúlkur vantar í vor og
sumar á gott sveitaheimili. —
Uppl. í sima 2130.
Ráðskonu vantar á sveita-
heimili til efnaðs einhleyps
manns. Tilboð með kaupkröfu
leggist inn á afgr. N. dagbl.,
merkt „Valur“.
Tilkynningar
Sníð allan kvenfatnað eftir
máli, er að hitta alla virka
daga frá kl. 1—5 e. h. á heim-
| ili mínu, Laufásvegi 12.
Láretta Hagan. Sími 4247.
Menn teknir í þjónustu á
Kárastíg 9A (uppi).
Fæði, kaffi, mjólk, allt mjög
ódýrt. Sömuleiðis gott sólar-
herbergi. Iindargötu 8 C, uppi.
Get bætt við stúlkumj í
kjólasaumanámskeiðið apríl og
maí. Hildur Sivertsen, Mjó-
stræti 3. Sími 8085.
Húsnœði
Q
Lítil íbúð með öllum þægind-
um, óskast helzt strax eða 14.
maí í nýju húsi. Tilboð merkt
„50“ leggist inn á afgreiðslu
þessa blaðs.
Tvö herbergi og eldhús ósk-
ast 14. maí, má vera í góðum
kjallara. A. v. á.
Góð íbúð fæst til leigu á
Akranesi 14. maí. Siðurður
Símonarson Akranesi eða A.v.ó.
Maður óskar eftir húsnæði,
fæði og þjónustu á sama stað,
nú strax. Fyrirframgreiðsla. A.
RAUÐA HUSIÐ,
hann.
—- Það held ég. Komdu inn til mín þegar þú ert
tilbúinn.
Antony lokaði að sér og gekk út að glugganum,
opnaði hann og leit út. Herbergið var rétt yfir
bakdyrunum á húsinu. Útbyggingin, sem vinnuher-
bergið var í, var þama til vinstri handar. Hann gat
klifrast niður á dýraumgerðina og stokkið þaðan
niður á jafnsléttu. Það yrði örðugra að komast
upp aftur sömu leið. En þama var renna og gott
hald 1 henni, svo að þetta gat víst lánazt.
Hann var að enda við að búa sig, þegar Bill kom
inn til hans.
— Jæja. Hvaða skipun hefir þú að gefa? sagði
hann og settist á rúmstokkinn. En heyrðu annars,
hvað eigum við að gera okkur til skammtunar
seinni partinn?
— Ballskák?
—r- Þú ræður.
— Talaðu ekki svona hátt, sagði Antony og lækk-
aði róminn. Við erum hér beint yfir fors^lnum og
verið getur, að Cayley sé þar nú. Hann gekk nú að
glugganum. Við förum hér út í nótt. Það er of 4-
hættusamt, að fara um bakdymar. Þetta er greið-
asta leiðin. Við verðum á tennimkóm.
— Sjálfsagt. En heyrðu, það er ekki víst að mér
gefist aftur tækífæri til að tala við þig í einrúmi
— hvað á ég að gera þegar Cayley kemur og fer að
hagræða mér í rúminu?
— Það er vandi að segja. Hagaðu þér eins eðli-
lega og unnt er. Ég á við, að ef hann ber hægt á
dymar og lítur inn, þá skulir þú látast sofa.
Hrjóttu ekki of mikið. En verði hann með hávaða,
þá verður þú að rumska, nudda augun og spyrja
hvem þremilinn hann eiginlega vilji. Þú veizt
hvemig bezt er að haga því.
— Rétt. Nú og svo er þetta með druslubrúðuna.
Ég útbý hana, þegar við komum upp aftur og fel
hana undir rúminu.
— Já ... Annars held ég að það sé réttast, að«
við afklæðum okkur alveg. Við erum. ekki lengi að
fara í fötin aftur, og honum gefst þá góður tími
til þéss að hypja sig niður í göngin á meðan. Svo
kemur þú til mín.
— Ágætt ... Ertu tilbúinn ?
— Já.
Þeir urðu samferða ofan af loftinu.
Mr Beverley kafar í síkið.
Cayley virtist mjög hændur að þeim félögum
þetta kvöld. Þegar þeir voru búnir að borða, stakk
hann upp á því, að þeir gengi út sér til gamans.
Þeir gengu fram og aftur á gangstígunum1 utan við
húsið og töluðu fátt saman, þangað til Bill gat ekki
þolað við lengur. Síðustu tuttugu ferðirnar hafði
hann vongóður hægt á sér þegar þeir gengu fram
hjá húsdyrunum, en þeir sem með honum voru lét-
ust ekki sjá þessa bendingu, og í hvert skifti hafði
hann hugsað sér að fara rétt eina ferð til. Nú loks
ákveð hann að hefjast handa í málinu.
— Hvað segið þið um eina ballskák? sagði hann.
— Hvað segið þér um það? sagði Antony við
Cauley.
— Ég ætla að horfa á, sagði hann, og svo stóð
hann yfir þeim þangað til þeir voru búnir með tvo
umganga.
Þeir gengu nú inn í forsalinn og fengu sér í
glasi.
— Jæja, nú held ég að það sé bezt að fara að
hátta, sagði Bill og setti glasið frá sér. Kemur þú
með?
— Já, sagði Antony og drakk úr glasi sín*.
Hann leit á Cayley.
— Ég þarf ögn að sýsla áður, sagði Cayley. Ég
kem fljótlega á ®ftir.