Nýja dagblaðið - 05.09.1934, Blaðsíða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár. j§ Reykjavík, miðvikudaginn 5. sept. 1934. 209. blað
Jakob Möller vikið frá
bankaeftirlitinu
Hann ev búinn að hirða 170
þúsund kr. af almannafé fyrir
verra en ekki neitt
500 fulltrúar mættir
á alheimsþingi samvinnumanna
»EínkaverziUnin er eins og
gamaldags seglskíp«, segir
forseti Alþjóðasambandsins.
Fjármálaráðherra, Eysteinn
Jónsson, skrifaði Jakob Möller,
þáverandi eftirlitsmanni banka
og sparisjóða svohljóðandi bréf
í gær:
»4. september 1934.
Hér mað er yður vikið úr
stöðu yðar sem eftirlitsmaður
með bönkum og sparisjóðum
vegna megnrar vanrækslu og
brota á skyldum yðar í starf-
inu.
Eysteinn Jónsson
(sif}n) ■
Torfi Jóhánnsson
(sign)
Til hr. alþm. Jakobs Möller
Hólatorgi 2«
Bréfið er ekki langt. Þess
gerðist ekki þörf. AJþjóð
manna er vel kunnugt, hversu
megnan ódugnað og trassaskap
Jakob hefir sýnt í starfinu.
Mun óhætt að fullyrða, að
þessari stjórnarráðstöfun verð-
ur fagnað um allt land. Jafnvel
nánustu pólitískir samherjar
Jakobs Möllers hafa játað, að
hann sýndi óverjandi van-
rækslu og hirðuleysi í því
trúnaðarstarfi, sem ríkið hafði
falið honum.
Fyrir óreiðuna og vanræksl-
una í þessu starfi hefir Jakob
hlotið jafnvel svo megnan
ímugust sinna eigin flokks-
manna, að þeir hafa hundruð-
urrí saman strikað hann út af
lista íhaldsins í bæjarstjómar-
og Alþingiskosningum undan-
farið.
Blöð íhaldsins, Morgunblað-
ið, Heimdallur og önnur slík,
sem hafa tekið málstað manna
eins og Einars fyrv. Barð-
strendingasýslumanns, Helga
Tómassonar, Oddgeirs Bárðar-
sonar og Araljóts Jónssonar,
hafa ekki treyst sér til að taka
upp vörn fyrir Jakob Möller.
Með þögninni hafa þau ját-
að sekt hans, og viðurkennt
hinar þungu, en réttmætu á-
sakanir almennings.
Það má vel vera, að Morg-
unblaðið og önnur lík blöð reki
nú upp einhverja kveinstafi,
þegar búið er að framkvæma
þann dóm, sem réttarmeðvit-
und almennings hefir kveðið
upp fyrir löngu, en íhaldið
hingað til getað stöðvað, að
yrði fullnægt.
Jakob Möller verður nú að
leggja niður það starf, á sjálf-
sagðan, en þó miður skemmti-
legan hátt, sem honum var
falið að gegna fyrir réttum 10
árum síðan.
Hann hafði verið einn af
þeim, sem á þinginu áður
hafði átt drjúgan þátt í að
skapa þetta embætti.
í nefnd, sem fjallaði um
þetta mál, áttu þeir allir þrír
sæti, Jón Auðunn, • Magnús
Guðmundsson og Jakob Möller.
I nefndarálitinu sögðu þeir
m. a.:
„Aðalstarf eftirlitsmanns á,
að áliti nefndarinnar, að vera
það, að rannsaka raunveru-
legt fjárhagsástand banka og
sparisjóða, gera tillögur til
stjórna þessara stofnana, ef
honum þykir þurfa, koma
skipulagi á bókhald sparisjóða,
gefa ríkisstjóminni skýrslur
og upplýsingar og vera ráðu-
nautur hennar í þessum1 mál-
um“.
(Alþt. 1923, A. 900).
Þetta lagði Jakob Möller
sjálfur til, að eftirlitsmaður-
inn ætti að gera.
Og hvað hefir nú eftirlits-
maðurinn Jakob Möller gert af
þessu ?
Hefir hann kynnt sér „raun-
verulegt fjárhagsástand banka
og sparisjóða"? Svarið hljóð-
ar þannig, að í stærstu stofn-
unina, sem hann átti að endur-
skoða, Landsbankann, hefir
hann ekki komið í S ár, sam-
kvæmt frásögn sjálfs banka-
ráðsins.
Hvað seinasta atriði snertir,
að vera ráðunautur ríkis-
Vilnmndar
biðst lausnar
Á seinasta bæjarstjóraar-
fundi fór fram kosning á
skólanefndarmönnum. Komu
jafnaðarmenn að tveimur, Vil-
mundi Jónssyni landlækni ög
Sveinbirni Sigurjónssyni kenn-
ara.
En eitthvað m'un þessi kosn-
ing hafa verið illa undirbúin
af þeirra hálfu, og sennilega
ósamkomulag um mennina, því
daginn eftir kosninguna flutti
Alþýðublaðið yfirlýsingu frá
Vilmundi, þess efnis, að hann
hefði verið kosinn, án sinnar
vitundar og óvist hvort hann
gegndi þessu starfi.
Hefir Vilmundur nú gert al-
vöru úr þessu og sótt um
lausn til bæjarstjórnarinnar.
Nýja dagbl. fékk veður af
þessari ráðabreytni í gær, og
gerði þá strax tilraun til að fá
að sjá bréfið. En borgarstjór-
inn (Jón Þorláksson) neitáði,
að sýna bréfið.
í gærkvöldi náði blaðið í
bréfið hjá Vilmundi sjálfum,
og hljóðar það á þessa leið:
„Rvík 25. ágúst 1934.
Með því að mér er óljúft að
taka sæti í skólanefnd, sem ág
hefi verið kosinn i, og á ó-
hægt með að starfa þar, meðal
annars fyrir það, að ég geri
ráð fyrir að vera fjarverandi
fyrri hluta næsta skólaárs,
leyfi ég mér að fara fram á
við háttvirta bæjarstjóm, að
hún sýni mér þá vinsemd og
Alþýðuflokknum þá sanngimi
að leysa mig úr nefndinni
gegn því að Alþýðuflokksfull-
trúar í bæjarstjórninni nefni
mann í nefndina í minn stað.
Vilmundur Jónsson.“
Kemur það nú í ljós á
fimmtudaginn, hvort íhaldið
vill sýna Vilmundi „vinsemd“
og Alþýðuflokknum „sann-
gimi“!
stjórnarinnar í þessum málum,
þá er mönnum það margkunn-
ugt, að einu sinni hefir lands-
stjórnin leitað álits hans í
þeim efnum.
Það var þegar gjaldþrot Is-
landsbanka vofði yfir og búið
var að loka bankanum.
Jakob Möller var spurður að
því, hveraig hagur bankans
Framh. á 2. síðu
London 4/9. FÚ.
Fjórtánda þing Alþjóðasam-
bands samvinnumanna var
sett í dag í London, og flutti
þá Tanner, forseti sambands-
ins, ræðu um ástand atvinnu-
og viðskiptamála í heiminum,
og sagði meðal annars:
„Þjóðimar hafa nú flækst
inn í viðskiptastyrjöld, sem
hefir valdið þeim eins miklu
tjóni og' styrjaldir, sem háð-
ar eru með vopnum. Þessi við-
skiptastyrjöld hefir eyðilagt
öryggi verzlunarinnar og við-
skiptalífsins eins og það var
rekið á grundvelli einstakl-
ings. og samkeppnisverzlunar-
innar. Þess vegna hefir verið
Nýja dagblaðið átti í gær
tal við Guðlaug Rosinkranz
hagfræðing, sem er nýkom-
inn úr ferðalagi uni Norður-
lönd. — Talið berst að sam-
hinn ungi víðfrægi fiðlu-
leikari heldur hljómleika í
Iðnó kl. 8V2, í kvöld.
Hann hélt hljómleika í
Gamla Bíó í gærkvöldi, ogvarð
þar að spila mörg aukalög.
Hann er nú á förum héðan,
svo það er hver síðastur að
heyra hann spila.
nauðsynlegt, að finna nýjar
verzlunarleiðir, og þar hefir
samvinnufélagsskapurinn unn-
ið mikilvægt starf.
Þegar bornar ei’U saman við-
skiptamálastefnur saitívinnu-
manna og einkaverzlunar-
manna, má segja, að einka-
verzlunin sé eins og gamál-
dags seglskip, sem verður að
stöðva ferð sína þegar byrinn
vantar, og láta farþegana þola
hungur og kulda. En samvinnu-
stefnunni má aftur á móti
líkja við skip með nýtízku
vélum, sem skilar farþegunum
hverjum fyrir sig, heilu og
höldnu í áfangastað“.
Alþjóðafundinn sitja fimm-
hundruð fulltrúar.
vinnumálunum meðal frænd-
þjóðanna.
— Eru nokkrar nýjungar á
sviði samvinnuhreyfingarinnar,
sem þér getið sagt okkur frá?
— Já, það er alltaf eitthvað
nýtt á sviði samvinnunnar, sér-
staklega í Svíþjóð. Ég- skoðaði
t. d. tvær verksmiðjur, sem
sænska sambandið er nýbúið
að byggja og tóku til starfa á
þessu ári og því síðastliðna.
önnur er brauðgerðarhús, sem
framleiðir um 90 þús. kg. af
hörðu brauði á viku. Fram-
leiðsla brauðgerðarhússins hef-
ir gert það að verkum, að verð
harða brauðsins hefir lækkað
og eftirspumin aukizt mjög
mikið. Hitt er makkarónu-
verksmiðja. Framleiðslumagn
hennar man ég ekki hvað er
mikið, en makkarónurnar eru
góðar, og sambærilegar við
beztu ítalskar makkarónur. —
Báðar þessar verksmiðjur nota
eingöngu raforku og eru að öllu
leyti af fullkomtíustu gerð.
Þriðja verksmiðjan er í smíð-
um, en hún á að gera svokall-
að komflakes úr inánnagrjón-
um. Loks eru um 50 nýtízku
íbúðir í smíðum hjá samband-
inu. Það leigir síðan íbúðiraar
Framh. á 2,- síðu.
amvinnufélögin
Svíþjóð og Danmörku
Yiðtal Yið Uuðlaug Bósinkrauz