Nýja dagblaðið - 16.06.1938, Síða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Islenzk skinn og alþýdan
Eftir Halldór Krístjánsson
irá Kirkjubóli I Önundarfirði
Sennilega eru allir sammála
um það, að merkileg framför
hafi orðið í skinnaiðnaði ís-
lendinga síðustu árin. Prýðileg-
ir hlutir eru nú unnir úr skinn-
um okkar innanlands í stað
þess, sem öll vinna við verkun
þeirra og framleiðslu úr þeim
var áður keypt erlendis. Það er
alltaf gleðiefni, að þjóðin hafi
tök á að uppfylla þarfir sínar
sjálf. Og einn liðurinn i þeirri
lífsvenjubreytingu, sem verður
að komast á, er einmitt sá, að
skinnin okkar verði fullunnin
til fatnaðar o. fl. nýtilegra efna
innanlands, en ekki flutt sem
ódýrt hráefni út úr landi, sem
atvinnuleysi þjakar sárlega.
Þess vegna fagna allir góðir ís-
lendingar því, sem samvinnu-
mennirnir hafa afrekað í þess-
um efnum.
En jafnframt því að gleðjast
yfir þessu, sem þegar hefir
náðst, verður að gera sér ljóst
að hverju eigi að keppa næst.
Og víst eru það mikil verkefni,
sem biða úrlausnar á þessu
sviði. Töluvert vantar á að því
sé komið í æskilegt horf.
Það er enganveginn nægilegt
að skinnaiðnaðurinn sé stór-
iðnaður. Margskonar smáiðnað-
ur getur þrifizt í skjóli verk-
smiðjurekstursins, ef rétt er á
haldið. Og það er rétt að stuðla
að því, að heimilisiðnaður
landsmanna geti orðið sem
mestur og beztur.
Skinnaiðnaður okkar þarf að
komast í svipað horf og ullar-
iðnaðurinn. Ullarverksmiðjur
hafa umboðsmenn við hverja
höfn og taka þar við ull manna
og skila henni aftur i því á-
standi, sem óskað er. Sumir
láta vinna úr henni dúka, aðrir
band eða lopa. Það fer allt eftir
því hverjar ástæður þeir sjá
sig hafa til vinnslu heimafyrir.
Víða eru loparnir spunnir á
handspunavélar, sem eru sam-
eign margra fjölskyldna heima
1 sveitunum. Prjónavélar eru
víða og mikið nótaðar og sum-
staðar er ofið. Á þann hátt get-
ur sveitafólkið gert sér tóm-
stundirnar verðmætar með
hjálp ullarverksmiðjanna. En
auk alls þessa hafa verksmiðj-
urnar saumastofur sínar fyrir
þá, sem telja sér hentara að
kaupa fullunnin föt, og verzla
víðsvegar með band og lopa og
dúka.
Eitthvað líkt þessu þarf að
verða um skinnaiðnaðinn. —•
Verkuð skinn þurfa að verða al-
menn verzlunarvara eins og
lopar, band og dúkar frá ullar-
verksmiðjunum, auk þess sem
menn þyrftu að eiga þess kost
að fá skinnin verkuð fyrir sig
eins og þeir vilja. .
Slíkt yrði eflaust til þess, að
skinnin tækju veglegan sess í
heimilisiðnaði íslendinga. Ým-
iskonar skjólföt yrðu saumuð
úr þeim í heimahúsum, auk
þess, sem þau yrðu höfð til bók-
bands, reiðtýgja, aktýgja o. fl.
Þá myndi slíkt líka flýta fyrir
útbreiðslu ýmiskonar smávegis
listiðnaðar og hannyrða, sem
þjóðin er að læra.
Skinnin eiga að setja svip á
íslenzka klæðamenningu kom-
andi tíma. Margar hagar og
iðjusamar hendur bíða þess að
fá vel verkuð skinn til að vinna
úr. Fullkomin verksmiðjutækni
á þar að koma alþýðunni til
hjálpar. Fólkinu þarf að gefast
lcostur á að vinna nauðsynjar
sínar sjálft eftir því, sem það
hefir manndóm og ástæður til.
Verksmiðjur okkar vinna gott
verk til þjóðþrifa, þegar þær
stuðla að því, að svo verði, eins
og ullarverksmiðjurnar. Þjóð-
arhögum okkar er þannig var-
ið, að ástæða er til að gleðjast
yfir hverjum sem getur gert sér
tímann verðmætan. Fólkið
treystir samvinnumönnunum
til forystu i þeim efnum fram-
vegis eins og hingað til.
K. A. Wallcnberg
látinn
Nýlega lézt í Svíþjóð einn
helzti fjármálamaður Svía,
Knut A. Wallenberg. Hann var
utanríkisráðherra Svía meðan
á heimsstyrjöldinni stóð og var
jafnan í fremstu röð í atvinnu-
og viðsklptalífi Svíþjóðar. —
Hann var einn af aðaleigendum
Stockholms Enskilda Bank, sem
annaðist lánveitinguna til
Sogsvirkjunarinnar árið 1934.
Umferðaslys
hafa nokkur orðið á Akureyri
undanfarna daga. Ingibjörg
Þorleifsdóttir Glerárgötu 6 á
Akureyri varð fyrir bifhjóli.
Klemmdist annar fótur hennar
milli gangstéttar og hjólsins og
meiddist hún allmikið. Á sunnu-
dagskvöldið varð Halldóra Sig-
urbjörnsdóttir frá Grímsey
einnig fyrir bifhjóli, er hún var
á gangi I Brekkugötu. Brotnaði
hægri handleggur hennar illa.
Hafliði Guðmundsson, sem á
hjólinu var, slöngvaðist af þvi
og féll 1 götuna. Fékk hann
heilahristing og nokkurn á-
verka á höfuðið.
Smjör
frá MJ'ÓLKURSAMLAGIEYFIRÐINGA
oftast fyrirliggjandi 1 % kg. pökkum, 25 kg. kútum og
50 kg. kvartilum.
Samband íslenzkra
samvinnuiélag'a.
er opið fyrir dvalargesti og ferðafólk. —
Upplýsingar á Laugarvatni gefnr Berg-
steinn Kristjánsson. Áœtlunarferðir dag-
lega frá Bifreiðast. Islands kl. 10 f. h.
Kjötverzlanir
Seljum hreínsaðar kindagarnir.
GARIVASTÖÐEV, Beykjavik.
Simi 4241.
— IIREÐAVATÁ —
Þar er fegursti staðurinn 1 Borgarfirði. Aðal ánlngarstaður ferðamanna,
er fara miiH Suður- og Norðurlands. SUungsveiði 1 þrem vötnum, laxveiði 1
Norðurá, fossar, lækir, skógur, hraun, hlíðar, brekkur, hvammar o. s. frv.
Vissara er fyrir ferðamenn, að panta með dálitmn fyrirvara máltiðir 1
Hreðavatnsskála. Og þeir, sem ætla að dvelja á Hreðavatnl, í sumarleyfinu,
ættu að tryggja sér rúm sem allra fyrst, þvi venjulega vUja íleiri búa að
Hreðavatni :í júli og framan af ágúst, heldur en að komast. — Simastöð er i
Hreðavatnsskála.
VIRCINIA CICARETTUR
20STK. pakkinn kostar KR. |* 50
Reykjavík - Akureyri
Næsta hraðferð um Ákranes til Áknr-
eyrar er á mánudag.
Bifreiðastöð Steindórs.
Sími 1580.
GriMr Magnnsson
heiur opnað lækníngastofu í Suðurgöfu 4«
Viðtalstímí 2—3.
Kjarnar — (Essensar)
Böfum birgðlr af ýmiskon-
ar kjörnum tU iðnaðar. —
ÁFEJVGISVEBZLUIV
BÍKISINS
IIIIIIIIIIIIIIIIHIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIimillllllllllUUUIIHUIHillMIMIIIIIIIIIIIU
► Borgíð Nýja dagblaðíð!
■aaUIIIUIHIIIIIHHHUIIUIIUHIIIIIIIIIHIIIUHIIHIIIIUIIUIUHUIUIIUIUIIUIIHnUHIIIUIUIIUIIUIUIIUIUIHUHIUIIUIIUIUIIMIIUIIIII