Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Side 2
komuna til Reykjavlkur. Var skorinn
upp, en bati lét á sér standa. Fréttir
bárust litlar af liðan Halldórs hingað
vestur, eða það óljósar, að af þeim
varð litiö ráðið. Fólk bjóst þó við þvi,
að þess mundi langt að biða, að hann
kæmi til starfa á ný, þótt honum batn-
aði sjúkleikinn.
Sunnudaginn 23. mal voru fánar I
hálfa stöng á húsum I Súöavik. Halldór
Magnússon hafði andazt á Landakots-
spitala kl. 15 daginn áður. Sama dag
var ég að slita barna- og unglingaskól-
anum I Súðavik og hafði lokið við að
flytja skólaslitaræöuna skömmu fyrir
klukkan þrjú slðdegis. Var þetta
kannski tilviljun? Ég veit það ekki.
Halldór Magnússon var hamingju-
maður i einkalifi. Hann kvæntist 6.
desember 1958 ágætri konu, Huldu
Engilbertsdóttur, Þórðarsonar sjó-
manna á Efri-Grund I Súðavik, sem
fædd er 22. okt. 1931.
Börn þeirra eru: 1. Kristinn
vélskólanemi i Reykjavik, f. 9. júli
1955, kvæntur. 2. Elin Ellsabet, f. 28.
okt. 1956, ógift heima. 3. Hreinn, f. 16
marz 1960, nemandi i Núpsskóla. 4.
Hlynur, f. 24. nóv. 1967, nemandi i
barnaskóla Súðavikur.
Auk þessara barna ólu þau hjónin
upp Asu Valgerði Einarsdóttur, sem
fædd er 29. nóv. 1953, en hún er dóttir
Huldu og Einars Jóhannessonar
læknis i Sviþjóð, Björnssonar frá Hofs-
stöðum i Skagaf. Hún er stúdent og
kennari aö menntun. Var kennari viö
barna- og unglingaskólann i Súöavik
s.l. vetur.
Súöavik hefurmisst mikið við fráfall
Halldórs Magnússonar, en mest eigin-
kona hans og börn og aðrir vanda-
menn. Vottum viö hjónin þeim einlæga
samúð. Og Halldóri þökkum við stutt,
en ánægjuleg kynni.
Auðunn Bragi Sveinsson.
f
,,Við svo stóran missi manns
minir þankar vakna.
Lifandi drottinn lát mig hans
lengi ekki sakna.”
(J.Þ.)
Á þessa lund kvað Jón skáldprestur
á Bægisá um einn tryggðavina sinna.
Og vist er um það, að þankar manna
vakna, þegar fólk á bezta aldri er
hrifið burt úr jarðvistinni. Fámennt
sjávarþorp á Vestfjörðum hefur nú
misst virtan og traustan mann langt
fyrir aldur fram. Hávarður Halldór
Magnússon, en svo hét hann fullu
nafni, var fæddur á bænum Brekku i
Langadal i'Nauteyrarhreppi i Noröur-
tsafjarðarsýslu. Foreldrar hans voru
Magnús bóndi þar Jensson, siðar
2
bóndi á Hamri i sömu sveit, og kona
hans Jensina Arnfinnsdóttir.
Eins og flestra ungmenna við Djúp
lá leið Halldórs i héraðsskólann að
Reykjanesi. Landsprófi lauk hann viö
héraðsskólann á Núpi i Dýrafirði, árið
1953. Ari siðar lauk hann burtfarar-
prófi frá Samvinnuskólanum i Reykja-
vik.
Ég minnist þess, er Halldór kom til
Súðavikur sumariö 1954 til þess að
taka við starfiútibússtjóra Kaupfélags
Isfirðinga. Maðurinn var friður sýnum
og ljós yfirlitum, prúður I framgöngu
og alúðlegur i viðmóti. Tókust brátt
góð kynni okkar i millum, þótt aldurs-
munur væri nokkur. Þrátt fyrir að ég
væri þá aðeins unglingur á 13. ári,
talaði Halldór ávallt við mig sem full-
orðinn mann. Tel ég að þær stundir
hafi orðið til þess, að móta að nokkru
lifsskoðanir minar siðar. Að vera i
návist eldri manns, sem góðvilja og
góðri greind er gæddur ásamt einlægni
og rökfestu i skoðunum, er ómetanlegt
hverri ungri sál, vilji sá hinn sami
blanda sér i mannlifið i kringum sig.
Haustið 1955 fluttist ég með for-
eldrum minum til Reykjavikur. Tók
Halldór þá viö ýmsum opinberum
störfum og við félagsútgerð, sem faðir
minn hafði haft á hendi þau 7-8 ár er
hann var búsettur 1 Súðavikurþorpi, og
gegndi Halldór þeim um árabil. Ariö
1958 lét Halldór af starfi sem útibús-
stjóri K1 og gerðist kennari viö barna-
skóla staðarins, og kenndi þar allt til
ársins 1974 og var einnig skólastjóri I
nokkur ár. Oddviti hreppsnefndar-
innar varð hann 1958, formaður
Sjúkrasamlags Súðavikurhrepps 1962,
i stjórn Byggingafélags verkamanna
frá 1960 og þá er sparisjóður var stofn-
aður á staðnum hafði hann stjórn hans
á hendi, einnig var hann sýslunefndar-
maður.
Það lætur að likum aö vinnudagur
manns, er svo mörgum störfum
gegndi, hefur ekki ætið verið bundinn
við klukkuna. Halldór var mjög
traustur embættismaður og virtur af
samferðamönnum sinum á lifsleiðinni.
Prúðmannleg framkoma og snyrti-
mennska i störfum voru eöliskostir,
sem honum voru i bóð bornir.
Halldór kvæntist 1958 Huldu Engil-
bertsdóttur, hinni mætustu konu.
Hulda er dóttir hjónanna, Einars
Engilberts Þóröarsonar og konu hans
Asu Valgerðar Eiriksdóttur. A sinum
tima áttu þau heima á Efri-Grund i
Súðavik, siðar á Akranesi, en eru bæði
látin fyrir nokkru. Börn Halidórs og
Huldu eru: 1. Kristinn, vélskólanemi i
Reykjavik, kvæntur Sigrúnu Sigurðar-
dóttur, Sveinssonar frá Góustöðum i
Skutulsfiröi. 2. Elin Elisabet. 3.
Hreinn. 4. Hlynur. Auk þessara barna
ólu þau hjónin upp dóttur Huldu, Asu
Valgerði Einarsdóttur, sem Hulda átti
fyrir kynni þeirra Halldórs. Asa Val-
gerður er stúdent og kennari að
menntun, og kenndi við skólann i
Súðavik s.l. vetur.
Eðlilega urðu samskipti okkar Hall-
dórs minni er ég fluttist á annað lands-
horn, en við hittumst þó alloft, þegar
ég var á ferð i Súöavik eða hann hér i
Reykjavik, það var þó orðið minna hin
siðari ár. Það var alltaf ánægjulegt að
sækja þau hjón heim, hlýlegt og
snyrtilegt heimili þeirra bar vott um
hversu samhent þau voru.
Astúð og hamingja rikti á heimili
þeirra, ásamt góövild og gestrisni. Ég
heimsótti Halldór i Landakotsspitala
tveimur dögum fyrir andlát hans, þá
heltekinn af þeim sjúkdómi, er varð
honum að aldurtila. En samt sem áður
og þrátt fyrir veikan mátt, brá hann á
gamanmál þá stuttu stund, er ég stóð
við. Slikt var æöruleysi hans og and-
legt þrek. Ég kveð mætan mann og
góðan vin með virðingu og þökk. Ugg-
laust verður lífsgátan seint eða aldrei
ráðin, og þvi horfir maður jafnan
spurulum saknaðaraugum út i óviss-
una við óvænt dauðsfall, líkt og skáldið
i þessu ljóðræna erindi, þótt af öðru til-
efni sé.
Það var eitt kvöld, að mér heyröist
hálfvegis barið. / Ég hlustaði um
stund og tók af kertinu skarið. / Ég
kallaði fram og kvöldgolan veitti mér
svarið: / „Hér kvaddi Lifið sér dyra,
og nú er það farið.”
Konu Halldórs, börnum þeirra og
öðrum vandamönnum, votta ég samúð
mina.
29. mai 1976
Hjalti Jóhannsson
f
Halldór Magnússon, hreppstjóri og
oddviti I Súðavik, andaðist I Reykjavík
22. þ.m., en hann hafði legiö þar á
sjúkrahúsi undanfarnar vikur.
Hann var fæddur að Brekku i Naut
eyrarhreppi 9. júni 1933 og þvi tæplega
43 ára gamall er hann lézt. Foreldrar
hans voru hjónin Jensina Arnfinns-
dóttir og Magnús Jensson. Halldór
iauk landsprófi frá Núpsskóla I Dýra-
firði 1953 og nám I Samvinnuskólanum
stundaði hann árin 1953-54. Hann var
útibússtjóri viö útibú Kaupfélags ls-
firðinga I Súöavik 1954-58. Mörg ár var
hann kennari við bamaskólann I Súöa-
vik og I nokkur ár skólastjóri. Hann
var hreppstjóri Súöavikurhrepps frá
1955, oddviti sveitarstjórnarinnar frá
1958, og umboðsmaður skattstjórans i
Vestfjaröaumdæmi frá 1962. Um tima
islendingaþættir