Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Síða 8

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Síða 8
Tveir minnisstæðir söngvarar Gísli Guðmundsson bókbindari og GIsli fæddist aö Lambastöðum I Flóa 29. mai 1874. Foreldrar hans voru Guömundur Magnússon steinsmiöur og Sigrlður Glsladóttir frá Núpum I ölfusi. Þegar Gisli var á ööru ári flutt- ist hann ásamt foreldrum slnum til Reykjavlkur og átti þar slöan heima unz hann kvaddi þessa jarövist 6. marz 1958. Bókbindaranám hóf GIsli I bók- bandsvinnustofu Isafoldar áriö 1888. Hann mun hafa lokið þvl námi 1892. Næstu fjögur árin stundaöi hann ýmsa vinnu, svo sem steinsmlöi, meö fööur sfiium, vegavinnu á Grjóthálsi I Borgarfiröi og um tima vann hann viö undirstöðu Garöskagavita. A þessum árum smiöaöi hann legstein á leiði Guömundar bróöur slns og einnig vann hann ásamt öörum aö þvl aö ná á flot togara, sem strandaö haföi á Meöal- landsströnd. Aö þessum tima liönum sneri GIsli sér aftur aö bókbandsiöninni. Vann hann fyrst hjá Halldóri Þöröarsyni og siöan hjá Arinbirni Sveinbjarnarsyni, unz hann, aö þessu fjögurra ára tlma- bili liönu, tók aftur til starfa I bók- bandsvinnustofu Isafoldar, þar sem hann vann óslitiö úr þvl, meðan aldur og heilsa entist, eöa samtals um 64 ára tímabil. Gisli var einn af stofnendum Hins Isl. bókbindarafélags 11. febr. 1906 og var kjörinn heiðursfélagi þess áriö 1954. — Gisli var þrlgiftur. Fyrsta hjónabandiö stóö ekki nema tvö ár. Þá skildu þau. Annaö hjónabandiö stóö I 8 ár, en endaði meö skilnaöi. 1 þriöja sinn kvæntist hann 57 ára gamall Sig- rlöi Loftsdóttur frá Eyrarbakka. Eftir 40 ára hjónaband missti hann þá konu slna. Var GIsli þá oröinn 72 ára. Kjör- sonur þeirra, Guömundur Gislason, stjórnar nú bókbandsstofu Isafoldar. Þegar Gisli var á 15. árinu, hóf hann aö syngja meö Söngfélaginu Svan á Seltjarnarnesi og á 16. árinu I Dóm- kirkjukórnum, söng þar um nálega 67 ára timabil. Auk þess söng hann meö ýmsum kórum, svo sem söngfélaginu „14. janúar”, Hlin og Karlakór K.F.U.M. Einnig söng hann einsöng 8 viö fjölmörg tækifæri, t.d. viö skemmtanir og jaröarfarir. Rlkisútvarpiö tók rödd hans upp á hljómplötu. Þá var GIsli orðinn fjör- gamall. Anægjulegra heföi verið, ef upptakan heföi veriö gerö einum eöa tveim áratugum fyrr, meöan röddin var styrkari. Um átta ára skeiö unnum viö GIsli saman I Isafold. Þaö var frá 1912 til 1919. Ég man aö GIsli samdi þannig viö slna húsbændur, aö hann gæti farið úr vinnu, meöan jaröarfarir stóöu yfir, þvl aö hann söng viö nálega allar greftranir ásamt Sigfúsi Einarssyni. Þaö var oft kaldranalegt að standa berhöföaöur viö gröfina og syngja, iöulega I fjúki og frosti. Sem betur fór, var þessi siður lagöur niöur. Orsökin mim hafa veriö sú, aö menn ofkældust aö staöaldri af þvl aö standa ber- höföaöir og stundum ekki nægilega vel klæddir viö útfarimar. — Þann tima, sem greftranirnar tóku, vann GIsli af sér meö þvi aö vinna lengur frameftir aö kvöldi til. — GIsli var mjög af- skiptalaus um annarra hagi og fram- komu, enda vel liöinn af öllu sam- starfsfólkinu. A fimm hundruö ára afmæli prent- listarinnar I heiminum, áriö 1940, sem þá var jafnframt fjögur hundruö ára afmæli prentlistarinnar á Islandi, var þessara afmæla minnzt af prenturum, prentsmiöjueigendum og bókbindur- um, með fjölmennri för til Hóla i Hjaltadal, þar sem vagga prentlistar- innar stóö til forna um langan tlma. Vestfjarðaprentarar bættust I hópinn viö Reykjaskóla I Hrútafiröi, en á Vatnsskaröi, sátu noröanprentarar fyrir sunnanmönnum, meösr. Friörik Rafnar, vigslubiskup I fararbroddi. En hann haföi tekiö aö sér guösþjónustu I Hólakirkju af tilefni þessarar hátlöar. Viö þetta tækifæri var Gísla Guö- mundssyni faliö aö æfa og stjórna söngflokknum I kirkjunni. Söngurinn haföi tekizt meö afbrigöum vel, enda var þar saman komiö samsafn af- bragös söngmanna. Ég heyröi heima- menn tala um það, aö messu lokinni, aö þvilikur söngur hefði aldrei fyrr heyrzti kirkjunni. Hólakirkju var færö aö gjöf frá prentarafélaginu elzta út- gáfa Guðbrandsbibliu, en kassinn, sem hún er geymd I, var gefinn af prentsmiðjueigendum. Isöngferli Gisla mun Hóiaförin hafa veriö meö ánægjulegustu endurminn- ingum I llfi hans, og einna ógleyman- legust. Enn munu fjölmargir Reykvikingar minnast Gisla meö hlýjum huga og þakklæti, vegna frábærrar elju hans og ánægju, sem hann veitti um ára- tugaskeiö meö sönggleöi sinni og meö- ferö sönglaga. Imallok, þessa árs, heföi GIsli oröiö 102 ára ef honum heföi auönazt svo langur ævidagur. — Þessi fáu og fá- tæklegu kveöjuorö til Gisla áttu aö birtast voriö 1974, en af ófyrirsjáan- legum ástæöum hefur þaö dregizt um skeiö. Er hann hér meö kvaddur meö þökk fyrir góö kynni á liönum áratug- um og ánægjulegt samstarf 1 tsa- foldarprentsmiöju um rösklega sjö áratuga tlmabil. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.