Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Síða 9

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Síða 9
Guðmundur Kr. Símonarson verzlunarmaður Guðmundur er fæddur i Götu i Holt- um i Rangárvallasýslu 22. ágúst 1897, ári siðar en jarðskjálftarnir miklu gerðu þar sem mestan usla. Vegna erfiðleika og fátæktar flosnuðu þá margir bændur af jörðum sinum og fluttu búferlum. A þeim umrótartim- um konahans. Guðmundur, þá sjö ára gamall, að Meiri-Tungu, sem var orð- lagt myndar- og menningarheimili. Þar dvaldi hann æskuár sin og unglingsaldur. Seint á öðrum tug aldarinnar lagði Guðmundur leið sina til Reykjavikur. Þar hóf hann fyrst vinnu við að hlaða hús við Veghúsastig, en i þvi húsi stóð til að hefja framleiðslu á smjörliki, enda hófst sú framleiðsla nokkru sið- ar. Það var hinn mikli framkvæmda- maður Ragnar i Smára, sem þar hóf framleiðslu sina á Smárasmjörlikinu. Meðan Guðmundur var við þessa vinnu, kom til hans Bergur heitinn sút- ari og spurði hann hvort hanú ætlaði eigi annað að gera um ævina en að raða steinum. Það varð siðan úr, að Guðmundur réði sig til sútunarstarfa hjá Bergi og varð útlærður sútari og hlaut sveinsbréf i þeirri iðngrein. Nokkru siðar varð verðfall á allri grá- vöru. Atvinnuhorfur við þá iðngrein lokuðust þvi alveg um tima. Guðmundur leitaði nú fyrir sér um annað lifsstarf. Hann réðst til verzlun- ar Jes Zimsen 15. janúar 1932. Vann fyrstog fremst að glerskurði, en vitan- lega stundaði hann jöfnum höndum önnur afgreiðslustörf i verzluninni. Húsakynni voru ekki sem hlýjust, sér- staklega þar sem glerskurðurinn fór fram, en Guðmundur var þá á Unga aldri, hraustur og lifsglaður. Þegar sem kaldast var söng hann sér til hita, eða öllu fremur til að gleyma kuldan- úm. A þeim timum var það ekki venja atvinnurekenda að greiða starfsfólki sinu meira kaup en þeir nauðsynlega þurffu, eða um var samið, en svo vel Hkaði Jes Zimsen störf Guðmundar og samvizkusemi, að hann hækkaði kaup við Guðmurtd hvað eftir annað óum- beðið. Það sýnir bezt hve mikils hann hefur metið störf hans, og þar með tryggt sér starfskrafta hans áfram. Alls hefur Guðmundur starfað við verzlunina rösklega fjörutiu ár. Fyrir marga hefur hann skorið gler og snitt- að lykla á undanförnum áratugum, auk annarrar afgreiðslu i búðinni. Nú mun hann hafa lagt verzlunarstörfin á hilluna, enda er nú aldur farinn að fær- ast yfir hann. Ég var nýlega að lesa ferðaþætti þeirra Jóns Sigurðssonar frá Yztafelli og Sigurðar Jónssonar á Arnarvatni, sem prentaðir eru i Gutenberg árið 1911. Þar segja þeir frá ferð sinni um Norður- og Suðurland og kynnum sin- um af búskap og byggingum bænda i þeim sýslum, er þeir fóru um. Þegar þeir voru á móti i Þjórsártúni, varð þeim einna minnisstæðast handahlaup sem ungur piltur sýndi þar. Löngu sið- ar komst ég að þvi að piltur þessi var enginn annar en Guðmundur Kr. Simonarson, siðar deildarstjóri og söngmaður i Reykjavik um áraraðir. Þessari iþrótt hélt Guðmundur þvi miður, ekki við, eftir að hann íluttist til Reykjavikur. Iþrótt þessi mun með öllu hafa lagzt niður, enda þótt hún hafi til forna eitthvað verið stunduð, enda ber einn af jöklum landsins nafn af handahlaupsmanni, sem barg lifi sinu, með handahlaupi upp á jökulinn. Þegar Guðmundur var við sútunar- störfin hjá Bergi sútara, söng hann við vinnuna og reyndi að yfirgnæfa hávað- ann i vélunum. Þá rákust þeir þar inn Hallur heitinn Þorleifsson og Jón heit- inn Guðmundsson. Það var ekki að sökum að spyrja, þeir urðu strax hrifnir af söng Guðmundar og leiddu hann fljótlega inn i salarkynni söngs og gleði. — Eftir þetta fór Guðmundur að syngja með karlakór K.F.U.M. (hafði þó áður sungið við guðsþjónust- ur i Frikirkjunni), þar næst með Fóst- bræðrum og loks i Dómkirkjukórnum. — Alls mun Guðmundur hafa farið fimm sinnum með islenzkum kórum til söngvahalds á erlendri grund. 1 Morgunblaðinu 22. ágúst 1947, far- ast Helga Tryggvasyni kennara (siðar presti) eftirfarandi ummæli um Guð- mund: „Löngu áður en ég þekkti Guðmund Simonarson persónulega, vissi ég frá Sigfúsi Einarssyni, dómkirkjuorgan- ista, að hann taldi rödd Guðmundar og skapgerð hafa verið visa til frama, að honum hæfði að standa einum á söng- palli og helga sig sönglistinni einvörð- ungu. En fyrir honum hefur ætíð verið rikust hin félagslega hlið söngsins, enda getur ekki ákjósanlegri féíaga en Guðmund. Telur hann sig gæfumann, að hafa átt samleið með mörgum góð- um og glöðum dreng, en heimilisgæfu sina þó mesta með góðri konu og mannvænlegum börnum”. Með linum þessum var meiningin fyrst og fremst sú, að rita litils háttar um söngferil Guðmundar, en þar eð ég hef ekki haft tækifæri nema að litlu leyti, til að fylgjast meö söngferli hans, kýs ég, enn á ný, að vitna I viðtal sr. Helga Tryggvasonar við Guðmund, sem birtist I Lesbók Morgunblaðsins 13. júni 1971. Þá heimsækir sr. Helgi Guðmund Simonarson, hinn alþekkta tenorsöngvara á Holtsgötu 12, og 'slendingaþættir 9 Framhald á bls. 10

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.