Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Blaðsíða 16

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Blaðsíða 16
Attræður Sigurgrímur Jónsson í Holti Hinn landskunni bóndi og félags- málamaöur Sigurgrlmur Jónsson, Holti i Stokkseyrarhreppi er fæddur þar 5. júni 1896. Einn af samstarfsmönnum Sigur- grims I félagsmálum um langt árabil hringdi til min einn daginn i vor og sagóist vilja minna mig á afmæli hans, og að ég yrði aö skrifa afmælisgrein. Ég kvaðst auövitaö vilja veröa viö þessari ósk, þó ég aö visu vissi aö margiraðrir gætu þar betur gert. Ekki vildi ég þó koma aftan aö Sigurgrimi meö þetta og þvi tók ég fararskjóta minn og ók niður aö Holti um kvöld á fögrum degi til þess aö rabba viö hann um liöna ævi hans áöur en ég festi nokkuö á blaö. A leiöinni aö Holti kom margt i hug- ann eins og i kvæöi Hannesar Hafstein um Þjórsárdal segir: „Upp kynja kynningar kunna aö rakna, er mönn- um minningar fornar vakna.” Ég nam staöar á Holtsveginum og litaðist um. Viö þaö aö horfa yfir sveitina og sjá þar til bæja rifjast sagan upp um merka menn og atburöi frá liönum ár- um og öldum. Breiöumýri, hina mestu sléttu landsins hyllir uppi algróna. Fjallahringurinn er hinn viöasti og aö minum dómi hinn fegursti á landi hér og umlykur aUt Suöurlandsundirlend- iö. Ég fer aöhugsa um þaö, aö úr þessu umhverfi er Sigurgrimur sprottinn og þetta fagra vfösýni er hann búinn aö hafa fyrir augum i 80 ár. Ég veit engan mann sem erhreintæktaöri Fil óamað- ur og Arnesingur. Hann er I móöurætt 6. maöur frá Bergi i Brattsholti hinum kunna ættfööur Bergsættar. Og ef litiö er til fööurættarinnar þá hafa 10. for- feður hans hver fram af öörum búiö i Flóanum og veröur þaö rakiö aftur um 1600. Foreldrar Sigurgrims voru Jón bóndi og hreppsnefndaroddviti, Jóns- son I Holti og Ingibjörg Grimsdóttir frá Gljákoti. Þau áttu fjögur börn og var Sigurgrimur þeirra yngstur. Stór- býliö Holt blasir viö, þar er enginn kotungsbragur. Þrjú ibúöarhús standa þar og er eitt þeirra stórhýsi meö tveimur ibúöum. 100 hektarar af egg- sléttum túnum breiöa sig út frá staön- um. Rismikil gripahús, hlööur og turn- ar fyrir vothey standa hér i hvirfingu. Þar eruhýstar 60 kýr og 30 til 40 geld- neyti, 250 ær, og gemlingar til viöbót- 16 ar, mörg hrossleika séri haga. En þaö sem þó vekur mesta athygli er nýja fjósiö,þar sem 200gripir hafa pláss og hlaöan sem tekur fóöur fyrir þá. Ég renni fararskjóta minum aö stóra Ibúöarhúsinu, þvi aö þar veit ég aö Sigurgrimur muni dvelja, og sem ég stig út úr bilnum þá stendur hinn aldni búhöldur á dyrahellunni fyrir ut- an anddyriö. Hann er bjartur á svip og brosandi og skyggir hönd fyrir augu móti bjarma kvöldsólarinnar, sem gengin er I vesturenskin þó ennhátt á himni hins fagra vordags, og á ófarinn drjúgan spöl i djúpiö bak viö fjöllin. Mérflýgur ihug, aöhin fagra sólarsýn á þessari stundu muni boöa þaö, aö ævisól Sigurgrims, sem þarna stendur á heimahlaöi senn áttræöur, hress og glaöur, muni einnig eiga alllanga leiö aö hinu ókunna djúpi. Sigurgrönur visar mér til stofu, þar segi ég hopum frá þvi, aö ég hafi tekizt á hendur aö rita stutta afmælisgrein um hann og spyr hvort hann hafi nokk- uö viö þaö aö athuga. Hann kveöst láta sllkt afskiptalaust og bætir þvi viö, aö svo vel muni ég þekkja æviferU sinn, aö ég ætti aö geta þetta. Viö sitjum.núog tölum saman, fyrst um tiöina og skepnuhöldin eins og bændum er eölilegt, en svo berst talið aö félagsmálum bænda, efnahag og af- komuhorfum og þvi næst aö þjóömál- um almennt. Alls staöar er hinn aldni bændahöföingi fróöur um þaö sem er aö gerast og hefur ákveönar skoöanir á vandamálum þjóðarinnar. Loks vik ég talinu aö honum sjálfum, ævi hans og störfum. Hann leysir vel og greiö- lega úr þeim atriöum, sem ég er sér- staklega forvitinn um og segir frá á sinn skýra og látlausa hátt. Sumt af þvi fer hér á eftir innan um og saman viö þaö, sem ég sjálfur vissi og mun geta um. Sigurgrimur ólst upp á góöu heimili foreldra sinna, sem stóö föstum fótum á grunni þjóölegrar menningar. Jón i Holti var góöur búmaöur og haföi á þeirrar tiöar mælikvaröa allstórt bú, en þaö voru 8-9 kýr og 150-200 fjár og allmargt hrossa, þvi aö engjav gur var alllangur og var boriö á 10-12 hestum þegar hey var reitt af engjum. Var Jón áhrifamaöur i sveit sinni og hrepps- nefndaroddviti um skeiö. Barna- fræöslu naut Sigurgrimur aöeins einn vetrartima i farskóla, en 17 ára fór hann i Bændaskólann á Hvanneyri og lauk þaöan búfræöiprófi 1915 eftir tveggja vetra nám meö góöum vitnis- buröi. Eftir þaö var hann barnakenn- ari tvo vetur, en féll þaö starf ekki sér- staklega vel. Fór hann nú aö stunda sjó á vetrarvertiöum. Rériá opnu ára- skipi I Þorlákshöfn tvær vertlðir og bjó þá aö fornum hætti I sjóbúö og liföi viö skrihukost. Næstu fjórar vertiöir var hann á vélbátum frá Stokkseyri, en þeir voru i Sandgerði fyrri hluta ver- tiöanna meðan róið var með linu, en þegar net voru lögð var fariö heim og sjór sóttur þaðan. Þessi störf féllu Sigurgrimi vel. Ariö 1921 hinn 5. júni á afmælisdegi sinum þegar Sigurgrlmur var 25 ára gekk hann aö eiga Unni Jónsdóttur kennara frá Jarlsstööum I Báröardal og tóku þau um leiö viö jörö og búi I Holti. Jafnræöi var meö hinum ungu hjónum og mikiö ástriki og eindrægni alla ævi. Unnur var friökona, háttprúö og mikil húsmóöir. Hún andaöist 3. april 1973. Þau hjón eignuöust 9 börn, sem öll eru á lifi 6 syni og 3 dætur, búa 5 þeirra I Stokkseyrarhreppi þar af 3 bræöranna i Holti. Barnabörnin eru 32. Þegar Sigurgrimur fór aö búa var tún- iö I Holti rúmlega 4 ha og heyskapur mest tekinn á mýri. Áöur er þess getiö aö nú'er túniö 100 ha. Ariö 1912 gekk Sigurgrimur i ung- mennafélagiö i sveit sinni og varö þar brátt mjög starfssamur. Hann varö strax ungur ágætur ræöumaöur og rit- Framhald á 14. sióu. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.