Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1981, Blaðsíða 6
Sólveig Árnadóttir
f. 20.11 1918 d' 28-*l 1980.
Sólveig Arnadóttir lést á Landsspital-
anum aðfaranótt, 28. nóv. 1980, eftir
hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm s.l.
þrjú ár. Hún var fædd i Reykjavik, 20.
nóvember 1918. Foreldrar hennar voru
Arni Jónsson, járnsteypumeistari af Vik-
ingslækjarætt, f. á Eyrarbakka og Soffia
Magnea Jóhannesdóttir, eiginkona hans
af Deildartunguætt, f. á Skriðufelli i
Gnúpverjahreppi Arnessýslu. Arni lést að
kvöldi 65 ára hjúskaparafmælis þeirra þ.
9. mai 1979 91 árs aö aldri en Soffia Magn
ea lést þ. 4. júni s.l. 84 ára. Þau hjónin
bjuggu allan sinn búskap i Reykjavik.
Veiga, eins og við kölluðum hana
daglega var næstelst 7 systkina en þau
voru: Ólafur búsettur i Reykjavik —
Margrét f. 1928 dáin 1929 — Jón f. 1931 bú-
settur í Kanada — Jóhannes f. 1932 dáinn
1971 — Margrét f. 1934 búsett i Reykjavik
og Orn f. 1938 búsettur i Kanada.
Veiga giftist ekki og eignaðist engin
börn. Hún bjó með foreldrum sinum á
meðan þau lifðu og reyndist þeim eins vel
og hægt er að hugsa sér. Hún varð fyrir
þvi áfalli að veikjast af brjósthimnubólgu
innan við tvftugs aldur og var að
dvelja til læknismeðferðar á Landsspit
ala og Vifilsstaöaspitala um nokkurn
tlma. Veiga hefur alla tið verið trúföst og
lifsglöð og veit að það heiur hjálpað henni
Likt og ljúfur draumur
liðu bersku árin.
Oft þó hallir hryndu,
hurfu í brosi tárin.
Með leik og starfi lærðist
að leysa nokkurn vanda,
fást við þrautir flestar
fullorðinna handa.
Man ég aldna ömmu,
eina á rúmi sfnu
sitja við að semja
sokk úr bandi finu.
Lúin bæði og lotin,
frá lífsferöinni ströngu.
•Eftir þrældóms ævi,
að enda sína göngu.
Þegar börö og bæir
byrgðust hrfðarmuggu,
átti amma vísu
um ofurlitla duggu.
Kveikti ljós á lampa,
lagði á eldinn brenni.
að sigrast á þessum hættulega sjúkdómi
sem brjósthimmnubólga var i þá daga.
Þá veit ég að umönnun hennar elskulegu
móður eftir spitalavistina heíur hjálpað
henni og kannski ráðið úrslitum um, að
hún næöi heilsunni aftur. Það er áreiðan-
lega mikil lifsreynsla aö veikjast alvar-
lega á þvi aldursskeiði og veit enginn
Margar geymdi minjar
mótað hrukkum enni.
Orhratt áfram þjóta
óteljandi myndir
brosglit bjartra daga,
brek og drýgðar syndir.
Mótun mannlifsþátta,
merlar gengin saga.
Treguð árin týndu,
til sfn hug minn draga.
Hylur höfug moldin
horfna vini, dána.
Yfir mætri minning
muna dreg ég fána.
Vaki sól og vermist
vaxtarsprotar nýir.
Gefist enn sem áður
auðnudagar hlýir.
Lóa Þorkelsdóttir.
nema sá sem reynir, hvaða spor liggja
eftir.
Eftir að Veiga náði heilsunni aftur þá
gerði hún saumaskap að ævistarfi sinu og
vann á saumstofu undirfatagerðarinnar
Artemis á meðan henni entust kraftar,
eða hátt I 40 ár. Veiga vann öll sin störf af
frábærri vandvirkni og samviskusemi og
veit ég að vinnuveitendur hennar kunnu
vel að meta hennar góðu eiginleika, þvi á
milli hennar og þeirra var mikil vinátta
og trúnaðartraust.
Veiga hafði mikið yndi af hannyrðum og
lestri góðra bóka. Hún hafði mikla ánægju
af söng og góðri tónlist og lét hún oft eftir
sér að sækja tónleikahald. Ennfremur
var hún gefin íyrir ferðalög og var svo
lánsöm að geta veitt sér það. Veiga flikaði
ekki tilfinningum sinum og var i eðli sinu
nægjusöm og ákaflega þakklát þeim sem
eitthvaðgerðu fyrir hana. Hún var ákveð-
in i skoðunum og sagði sina meiningu
þegar hún taldi það við eiga.
Veiga lét sér annt um fjölskyldu sina og
vinafólk og voru ófá spor hennar til þess
að gera þeim gott. Á milli hennar og Mar-
grétar systur hennar var ætið mikill kær-
leikur. Þegar Margrét giftist og stofnaði
sitt eigið heimili, var eldri systirin ætið
boðin og búin til að létta undir með henni.
F'yrir þetta og margt margt fleira stönd-
um við hjónin og börn okkar i óendanlega
mikilli þakkarskuld við hana. Hún bar inn
á heimilið hlýju og gleði sem okkur er
mikils virði.
Okkar fyrsta barnabarn var skirt i
höfuöiö á ömmusystur sinni og voru þ®r
nöfnur i miklu dálæti hvor hjá annarri.
Skarðernú fyrir skildi minnar kærumág-
konu. Það sæti verður vandfyllt, en minn-
ingin um góða konu lifir.
„Far þú i friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt”.
Útför Sólveigar fer fram frá Frikirkj-
unni i Reykjavik i dag, föstudag, 5. des.
1980, kl. 13:30.
Blessuö sé minning hennar.
GIsli Guðmundsson.
6
Islendingaþættir