Heimilistíminn - 25.11.1976, Blaðsíða 3
Hæ, Alvitur!
Ertu ekki hress?
Mig langar til að spyrja þig um hvar
ég get lært kjólasaum? Viltu segja
mér hvaða próf þarf að og bara allt,
sem þú veizt um það? Hvernig fara
svo tveir vatnsberar saman?
Hvernig er skriftin og stafsetningin?
Hvað heldur þú að ég sé gömul?
Heiga G.
Svar:
Það þarf að komast i nám hjá kjóla-
meistara og það mun vera erfitt um
þessar mundir. Áuk þess er krafizt
náms i Iðnskóla tvisvar sinnum fjög-
urra mánaða af þeim, sem eru gagn-
fræðingar, og þrisvar sinnum f jögurra
mánaða af þeim sem hafa miðskóla-
próf. Sjá siðasta blað svar við spurn-
ingu um húsgagnasmiðanám og
iðnskólanám.
Vatnsberar pru taldir eiga bezt við
fólk úr tvibrua- eða vogarmerki.
Skriftin er góð og stafsetningin lika,
nema þú skrifaðir spyrja með i, sem er
slæm villa.
Þú ert liklega sautján.
Elsku Alvitur!
Viltu svara nokkrmn spurningum
fyrir okkur?
Hvað tekur langan tima að verða
dýralæknir eftir gaggann? Þarf maður
að vera stúdent, ef svo er hvað tekur
það langan tima i allt?
Telur þú, að allir kennarar séu ráð-
rikir?
Getur þú gefið okkur ráð til þess að
hætta að naga á okkur neglurnar?
Geturðu visað okkur á einhvern,
sem selur gamlar plötur?
Með fyrirfram þökkum fyrir birting-
una.
Vonandi lendir þetta bréf ekki I þinni
heimsfrægu ruslakörfu?
Tvær með leiðinlegan ávana
Svar:
Dýralækningar eru a.m.k. fjögurra
ára háskólanám. Ef þú ert gagnfræð-
ingur, tekur það þig trúlega um fjögur
ár að ná stúdentsprófi og kemur það til
viðbótar.
Ætli það sé ekki upp og ofan eins og
með annað fólk.
Þið gætuð reynt að fara i lyfjabúð og
biðja um eitthvertbragðvont efni til að
bera á þær. Annars get ég hrætt ykkur
með þvi, að ekkert gerir neglurnar og
fingurgómana eins ljóta og að naga
neglurnar. Svo er annað ráð, hvernig
væri að naga neglurnar á tánum lýtin
af þvi sjást ekki eins og það væri auk
þess góð leikfimi!!!!!
Margir fornsalar selja gamlar plöt-
ur, m .a. man ég eftir litilli verzlun við
Óðinsgötu, sem hefur þær á boð-
stólum.
Kæri Alvitur!
Hvernig fer maður að þvi að verða
flugfreyja?
EB
Svar:
Það væri reynandi að sækja um,
þegar flugfélögin auglýsa eftir flug-
freyjum. Siðan er valið úr umsækjend-
um og úrvalið sent á námskeið til
undirbúnings starfinu. Áherzla er lögð
á málakunnáttu, fallega framkomu og
góða almenna menntun.
N
Meðal efnis í þessu blaði:
Teiknari skopsog þjóðsagna..........bls. 4
Tungustapi..........................bls. 6
Hnýtt motta....................... bls. 8
Börnin teikna.......................bls. 10
Lísa t Undralandi.................. bls. 12
Kjarval og Ingi T................ bls. 16
Víkingarnir............................bls. 20
Jólasælgæti...........................bls. 22
Indiánar í Bandaríkjunum..............bls. 24
Rauðu kettirnir.......................bls. 32
Leyndarmál oddvitans..................bls. 36
Ennfremur Heillastjarna, Pennavinir, Alvit-
ur, Hlæið o.fl.