Heimilistíminn - 25.11.1976, Qupperneq 30
Þú hefur ekki lokið áformum
þinum. Þú hefur gert ýmis mis-
tök, sem þú þarft að færa til
betri vegar. Þú skalt hefjast
handa. Þú færð mikilvægt bréf i
vikunni.
Þú hefur hneigzt til að setja
ljós þitt undir mæliker og þess
er ekki þörf, þvi þig skortir
hvorki hæfileika né hugmyndir.
Sýndu nú sjálfstraust og griptu
tækifæri, sem þér gefst til aö
komast I sviðsljósið.
Vatnsberinn
20. jan — 18. feb.
Þér berst óvænt frétt, sem
krefst aö þú breytir ýmsu I þin-
um högum. Erfiðleikar fylgja
þessu, en meö dugnaði geturðu
búizt við góðum árangri. Góöur
timi til fjárfestinga.
Þótt þú fáir ekki allar þinar
óskir uppfylltar mun þetta samt
verða ánægjuleg vika. Þú ert
heppinn i flestu og berð meira
úr býtum er þú hafðir gert ráð
fyrir. Gleymdu ekki öldruðum
ættingja á merkisdegi.
Gullni meðalvegurinn er oft-
ast bezta leiðin. Þú skalt þess
vegna ekki vera róttækur i vissu
máli, heldur hafa sannleikann i
heiðri og málið mun leysast.
Þetta verður bezt fyrir þig.
Hæfileiki þinn til að sýna
meðborgurum skilning kemur
gömlum vini til góða og bjargar
honum i erfiðri aðstöðu. Um
helgina færðu tvö boð, sem bæði
eru velkomin, og þaö veldur þér
nokkurri gremju að þurfa að
velja á milli.
Þessi vika verður ööru visi en
sú siðasta hjá þeim i þessu
merki, sem komnir eru á full-
orðinsár. Vinir og ættingjar
koma i heimsókn og pósturinn
kemur með fréttir, sem lifga
upp á tilveruna.
30