NT - 07.09.1984, Síða 4
YFIRJ.fSING:
ilcr mcð lýsi cg yfir af óq cr ... ð:l. ' tll aó segja
•jpp kcr.narastuíu mnn. txl »t r.r.ý ... «.m lcióréttingu á
V. j'iruhum. ef fulltrúaráí Kf:r.NARASAMBANDS ISLANDS telur ekki
iðr.ir lcióir vcnlcqri til .ii ná bvi marki.
Komi til þessa, þá bró cq fulltrú.irAé KSNNARASAMBANDS ISLANDS
aí scnda mcr uppsaqnareyóubiaó, som óq mun fiá útfylla og
soniia bvi strax aftur.
Komi til þcss aó cq soq i upp stöóu minni, {iá mun cq ekki
cndurráóa mrq til kennslu ncma allir þcir kennarar, sem á
sama hátt scqja upp stöóum slnum um leié oqéq, vcrói cndur-
ráðnir á ekki lakan ráóningarkjörum en þelr hrtfðu oq með
sama ráðnmqar formi .
s: / — ^ 1984.
:.öir.(jesrug JfiL(-íiesJ°r{.,/,u
Uj'HLP&llBiSUeiíiNti _
Póstr.úmcr og pósts*. öð : /01
nl í.ilit rú.iráís KKSNARASAMBANDS ISLANDS
Grcttisqöt.i 89, 10í Reykjavik.
■ Undir þennan lista hefur Gestur Valgeirsson skrifað þar sem hann
felur það í hendur Kennarasambandsins að ákveða um uppsögn, og
skuldhindur sig til að ráða sig ekki til kennslu nema í samfloti með
öðrum kennurum.
Föstudagur 7. september 1984 4
Kennarar undir-
búa uppsagnir!
- stefna í eitt félag, BK
■ Um 13% kennara í Hinu
íslenska kennarafélagi hafa þeg-
ar skilað inn yfirlýsingu sem í
felst skuldbinding um að þeir
séu reiðubúnir að segja upp
stöðu sinni ef samtök þeirra
telja ekki aðrar leiðir vænlegri
til að ná fram leiðréttingu á
kjörum. Kennarasamband ís-
lands er með sams konar lista í
gangi.
Forsvarsmenn kennaranna
sögðu á blaðamannafundi að
undirtektir væru miklu betri en
þeir hefðu reiknað með. Kenn-
arar væru nú rétt að byrja að
ræða þessi mál, enda skólar að
byrja, en samt streymdu Iistar
inn. Greinilega væri mikill hug-
ur í kennurum.
Þessi tvö félög hafa stofnað
með sér Bandalag Kennarafél-
aga, BK, sem vinnur nú að því
að móta samstarf þessara fél-
aga. Markmið þess er einkum
að ná fram sjálfstæðum samn-
ingsrétti handa stéttarfélagi
kennara og lögverndun á starfs-
heitinu (svo að við hin getum
ekki hlaupið í kennslu þegar
þeir verða búnir að hækka
kennaralaunin). Kennarar hafa
ekki gert það upp við sig hvernig
aðild þeirra að BHM og BSRB
verður háttað í framtíðinni,
telja það ekki tímabært, en
þeir telja augljóst að kennarar
sameinist í stéttarfélagi sem hafi
samningsrétt um aðalkjara-
samning.
Forystumenn BK kynntu
bandalagið fyrir Albert fj ármála
í gærmorgun og árnaði hann
þeim allra heilla. Þeir náðu
ekki í Ragnhildi menntamála,
sem farin er til Kína.
■ Forystumenn Bandalags Kennarafélaga kynntu starf bandalagsins og viðhorf kennara á blaðamannafundi í gær. F.v. Þóra Kristín
Júnsdóttir (HÍK) Ómar Árnason (HÍK), Kristján Thorlacíus (form.HÍK), Kristján Bersi Ólafsson (varaf. BK), Valgeir Gestsson (form.
KI) og Ingibergur Elíasson (KÍ).
■ Slökkviliðsmenn að störfum við Kárastíg þar sem kviknaði í
sjónvarpstækinu í fyrrakvöld. NT-mynd: s«mr
Eldsvoðar af völdum sjónvarpstækja
færast í vöxt:
Gefið gaum að
gömlum tækjum
og gætið þess að slökkva á þeim
■ „Eg kastaði teppi yfir tækið
og reyndi að kæfa eldinn en án
árangurs. Skömmu síðar sprakk
það“ sagði Sigríður Pétursdótt-
ir, öldruð kona sem varð fyrir
því óláni að íbúð hennar stór-
skemmdist í fyrrakvöld, þegar
kviknaði í sjónvarpstæki. Nær-
liggjandi íbúðir fylltust þegar af
sóti og reyk, og voru tvær
konur úr næsta stigagangi flutt-
ar á slysadeild af þeim völdum.
Enginn er þó talinn hafa orðið
fyrir teljandi skaða og gekk
slökkvistarf greiðlega fyrir sig.
Framangreint óhapp er eitt af
mörgum sem að undanförnu
hafa orðið af völdum sjónvarps-
tækja hérlendis. NT sneri sér
til Jóns Gamalíelssonar, raf-
magnseftirlitsmanns, og spurði
hann um hugsanlegar orsakir
þessa. Sagði Jón að í flestum
tilfellum væru það gömul tæki
sem yllu íkveikju einkum ef
fólk gleymdi að slökkva á þeim.
Hann gat þess að gömul tæki
safna í sig ló og ryki sem getur
orðið mjög eldfimt. Hinsvegar
virtist ekkert benda til þess að
ákveðnar tegundir sjónvarps-
tækja yllu íkveiku öðrum
fremur. Jón lagði áherslu á það,
að fólk gætti sín við notkun
myndbanda. Þegar myndband
hefur runnið sitt skeið í tækinu,
kemur engin stillimynd á
skjáinn, heldur er hann eins og
þegar slökkt hefur verið á sjón-
varpinu eftir útsendingu. Það
mætti hins vegar ganga úr
skugga um hvort straumur væri
á tækinu með því að gefa gaum
að rauðu Ijósi sem þá logaði á
myndbandstækinu.
Að öðru leyti taldi Jón ekki
að fók þyrfti að óttast sjónvarps-
tæki svo fremi það gætti fyllstu
varúðar og léti yfirfara gömul
tæki.
Staðan eftir 4. umferð á Skákþingi Islands
Jóhann og
Helgi efstir
■ Jóhann Hjartason hefur verið farsæll það sem af er mótinu.
Hann náði jafntefli á allt að því tapaða stöðu gegn Björgvini
Jónssyni í gærkveldi.
■ Heldur minnkaði baráttu-
fjörið í landsliðsflokki á Skák-
þingi fslands þegar 4. umferð
var tefld í gærkvöldi. Þrisvar
vaf samið á ótefldar stöður þar
af í skák efsta manns, Jóhanns
Hjartarsonar gegn Björgvini
Jónssyni en þar náði hinn
sókndjarfi Suðurnesjamaður
að byggja yfirburðastöðu en
sættist á skiptan hlut þegar
hann hafði alla þræði í hendi
sér, „unnið tafl,“ sagði
Jóhann. Halldór G. Einarsson
fékk skák sína gegn Lárusi
Jóhíinncss' ni í bið og stendur
höllum fæti. Hann á tværcrfið-
ar biðskákir. Úrslit í 4. umferð
urðu þessi:
Helgi - Dan 1:0
Jón - Guðmundur VxVi
Hilmar - Margeir 0:1
Haukur - Karl Vv.Vi
Björgvin - Jóhann Vv.Vi
Lárus - Halldór biðskák
Sævar-Ágúst biðskák
Aðeins tvær skákir unnust
því í gærkvöldi, undirritaður
lagði Dan Hanson að velli og
Margeir Pétursson vann Hilm-
ar Karlsson. Dan lenti í mikl-
um ógöngum í byrjuninni og
náði aldrei almennilega að
rétta úr kútnum. Hann gafst
upp í 41. leik. Þá sigraði
Margeir Hilmar Karlsson
næsta örugglega. Hilmar var
vinsamlegur að láta peð af
hendi þegar í byrjun tafls og
varð Margeiri ekki skotaskuld
að innbyrða vinninginn.
Þeir Jón og Guðmundur
sömdu jafntefli á óteflda skák.
Einhverjum varð að orði að
Guðmundur hefði samið af sér
en þess verður að geta að
staðan var afar flókin og tím-
inn af skornum skammti. Svip-
að gerðist í skák Hauks Ang-
antýssonar og Karls Þorsteins.
í tvísýnni stöðu var samið
jafntefli. Báðir áttu færi,
Haukur á kóngsvæng en Karl
á drottningarvæng.
Biðskákir umferðarinnar
voru hjá Lárusi Jóhannessyni
og Halldóri G. Einarssyni þar
sem vinningsmöguleikarnir
eru allir Lárusar megin en
staðan er þessi:
Lárus-Halldór
Lárus lék biðleik.
Lárus hefur verið afar sein-
heppinn það sem af er mótinu
en hann fær aldrei minna en
hálfan vinning út úr þessari
biðskák.
Þá fór skák Sævars Bjarna-
sonar og Ágústar Karlssonar
einnig í bið og virðist Sævar
hafa heldur betra tafl þó erfitt
sé að sjá hvernig hann á að
brjótast í gegn:
abcdefgh
Sævar-Ágúst
Sævar lék biðleik.
Eftir fjórðu umferð er stað-
an í mótinu þessi:
1 .-2. Helgi Ólafsson og Jóhann
Hjartarson 3 v. 3. Guðmundur
Sigurjónsson 2Vi v. 4. Halldór
G. Einarsson 2. v. + 2 biðskák-
ir. 5.-6. Margeir Pétursson 2 v.
+ 1 biðskák ogJónL. Árnason
2 v. og ein frestuð skák. 7. Dan
Hansson 2 v. 8.-9. Haukur
Angantýsson Wi v. + 1 bið-
skák og Björgvin Jónsson 1 'A
v. og ein frestuð skák. 10.
Hilmar Karlsson 1 Vi v. 11.
Sævar Bjarnason 1 v. + 2
biðskákir. 12. Karl Þorsteins
13.-14. Lárus Jóhannes-
son og Ágúst Karlsson 0 v. +
1 biðskák.
I dag verða biðskákir til
lykta leiddar auk þess sem Jón
L. Árnason og Björgvin Jóns-
son tefla frestuðu skákina sína
úr 3. umferð.
Á laugardaginn fer svo 5.
umferð fram og þá eigast við
Halldór og Helgi, Dan og Jón,
Guðmundur og Björgvin,
Ágúst og Lárus, Margeir og
Sævar, Karl og Hilmar og
Jóhann og Haukur.
5. umferð hefst kl. 14einsog
allar helgarumferðir. Á virk-
um dögum hefjast umferðirnar
hinsvegar kl. 18.
Þess má geta að á laugardag-
inn hefst einnig keppni í
kvennaflokki og tefla þar 9
konur um sæmdarheitið
„Skákmeistari fslands meðal
kvenna".
. Helgi
Olafsson
skrifar
umskák