NT - 07.09.1984, Qupperneq 5
s
Föstudagur 7. september 1984 5
Bruninn á Ökrum:
sváfu í. Þar var meðal annars
rafmagnstafla og kynding
hússins. Taldi Kristján líklegast
að eldurinn hafi kviknað útfrá
rafmagni en rafmagnskynding
var í húsinu. Hús Kristjáns var
tæpir 140 fermetrar að gólffleti
með 90 fermetra íbúðarrisi;
timburhús með járnþaki og
steinsteyptum bílskúr í kjallara.
Bílskúrinn var það eina sem
ekki brann en Kristjáni tókst að
ná bílskúrshurðinni frá eftir að
eldur komst í hana og stöðva
þannig frekari útbreiðslu elds
þar. „Pað var líka það eina sem
hægt var að gera, húsið hvarf
alveg á tveimur tímum“, sagði
Kristján. Aðspurður um hvað
tæki nú við vonaðist hann til
þess að geta reist hús á grunnin-
um að nýju en fyrsta skrefið
væri að hreinsa grunninn.
■ Eldurinn hafði engu eirt,
frystikista og aðrir málmhlutir
lágu eins og litlar klessur á
grunninum og snúrustaur í um
20 metra fjarlægð er að falli
kominn.
NT myndir Róbert
■ Bflskúrínn og innbú hans var það eina sem bjargaðist en
Krístjáni tókst að stjaka bflskúrshurðinni frá þegar eldur hafði
komist í hana og með hjálp handslökkvitækja að koma í veg fyrír
að eldurinn læstist í skúrínn.
Sími 83730
Byrjendafl. ~
12-13 ára þrið.-fim. kl. 4.30 (Bolh.)
14-15 ára mán.-mið. kl. 5 (Bolh.)
14-15 ára kl. 6.30 (Bolh.)
16 ára og eldri mán.-mið. kl. 4
16 ára og eldri mán.-mið. kl. 8.40
20 ára og eldri þrið.-fim. kl. 6.30
Framh. 2x í viku (styttra komið)
7-11 ára mán.-mið. kl. 5
12-13 ára þrið.-fim. kl. 6.40
14-15 ára þrið.-fim. kl. 7.40
16 ára og eldri þrið.-fim. kl. 8.40
Framh. 3x í viku (lengra komið)
mán.-mið.-fös. kl. 6
þrið.-fim.-fös. kl. 4
þrið.-fim.-fös. kl. 5.20
5x í viku mán.-þrið.-mið-
fim.-fös. kl. 7.20
Flokkaröðun og skírteinaaf-
hending fer fram 8. og 9. sept-
ember sem hér segir: Fram-
haldsflokkar frá kl. 2 til 5 laugar-
daginn. Byrjandaflokkar frá 2 til
5 sunnudaginn.
Jazzballettskólí Bóru
StigahlíA 45.
Suðurveri.
Björguðust naumlega þegar
húsið og allt innbú brann
- hreinsa grunninn og reisi nýtt, segir eigandinn Kristján Gunnlaugsson
Skólinn tekut
til starfa
lO.sept-
■ „Ég vaknaði upp við dynk
og þá var eldurinn kominn inn í
svefnherbergisdyr“, sagði
Kristján Gunnlaugsson á
Ökrum við Hellna á Snæfells-
nesi en hann bjargaðist naum-
lega ásamt 7 ára dóttur þegar
eldur kom upp í íbúðarhúsi
hans í fyrrinótt. Húsið sem var
byggt 1980 brann til kaldra kola
með öllu sem í því var. Þau
mæðginin björguðust fáklædd
út um glugga með sængurnar
einar í höndunum. Karen dóttir
hans var alveg ómeidd en hann
hlaut minni háttar meiðsl á
höndum og fótum auk þess sem
hár hans sviðnaði lítillega.
„Ég braut glugga og skutlaði
dóttur minni út þar og fór svo
sjálfur á eftir. Berfættur á galla-
buxunum og hún á náttkjóln-
um einum fata,“ sagði Kristján
en þegar þau mæðginin, sem
voru ein í húsinu, vöknuðu um
klukkan 5 var húsið nær alelda.
Er helst talið að eldurinn hafi
átt upptök sín í hornherbergi
fjærst því herbergi sem þau
Hitinn frá eldinum var gífur-
legur og til marks um það benti
Kristján blaðamanni á örlitla
hrúgu inni í grunninum sem
nokkrum klukkutímum áður
var frystikista. Gras umhverfis
sviðnaði allt niður í rót og
snúrustaur í um 20 metra fjar-
lægð brann að miklu leyti.
Að sögn Kristjáns var húsið
tryggt skyldutryggingu eins og
lög gera ráð fyrir en tryggingu
innbús hvað hann hafa verið allt
of lága enda langt síðan það
hefði verið metið.
■ Kristján og litla dóttir hans
Karen en þau tvö björguðust
naumlega út um glugga sem
stóð rétt þar hjá sem þau eru á
myndinni.
■ Það rauk ennþá úr rústunum þegar NT menn mættu á staðinn um hádegisbil í gær. Nú bíður
Kristjáns að hreinsa grunninn og byrja svo upp á nýtt.