NT - 07.09.1984, Blaðsíða 15
Föstudagur 7. september 1984 15
Hljóðvarpkl. 16.20: Sjónvarp kl. 22.20:
Veraldleg velgengni, en
ekkieralltsemsýnist
■ Andrés Indriðason
Nýtt
íslenskt
framhalds-
leikrit
■ Laugardaginn 8. septem-
ber kl. 16.20 hefst flutningur á
nýju íslensku framhaldsleikriti
í útvarpinu. Það nefndist
„Draumaströndin“ og höf-
undur þess er Andrés Indriða-
son.
Leikritið er í 5 þáttum og
lýsir á gamansaman hátt fyrstu
sólarlandaferð íslenskrar fjöl-
skyldu sem lendir í ýmsum
óvæntum uppákomum á
Draumaströndinni.
Leikendur í fyrsta þætti, sem
ber nafnið Maður er og verður
íslendingur" eru: Arnar
Jónsson, Kristbjörg Kjeld,
Tinna Gunnlaugsdóttir,Stein-
unn Jóhannesdóttir, Hjalti
Rögnvaldsson, Guðbjörg t>or-
bjarnardóttir, Axel Comez,
Þór Thuliníus, Jón Stefán Krist-
jánsson, Þórhallur Vilhjálms-
son og Arinbjörn Vilhjálms-
son.
1. þáttur verðurendurfluttur
föstudaginn 14. septembert kl.
21.35.
■ Það er ekki allt sem sýnist
í frönsku kvikmyndinni sem
sýnd verður kl. 22.20 á laug-
ardagskvöld í sjónvarpinu.
Myndin fjallar um fjölskyldu
í París sem eftir öllum sól-
armerkjum og ytri aðstæðum
Sjónvarp kl. 18.30:
Brúður
bregða
áleik
■ Breski brúðumyndaflokk-
urinn Þytur í laufi er vinsæll
meðal yngstu áhorfenda sjón-
varpsins og vonandi hinna eldri
einnig.
Fjórði þáttur verður í sjón-
varpinu kl. 18.30 á laugardag
og nefnist sá Ævintýri á ánni.
Þar skeður margt skondið og
skemmtilegt eins og í öðrum
þáttum frá þessum ævintýra-
heimi.
að dæma er ofan á í lífinu.
Söguhetjan er tveggja
barna móðir sem jafnframt
er prófessor og yfirlæknir og
er gift vel metnum og hátt-
settum embættismanni. Hjá
svona fjölskyldu ætti allt að
leika í lyndi samkvæmt bók-
inni. En svo er þó ekki og
munu áhorfendur myndar-
innar eiga þess kost að fá að
sjá að ytri umbúnaður fjöl-
skyldulífs og þjóðfélagsleg
staða eru ekki einfaldir mæli-
kvarðar á fyrirmyndarlíf fjöl-
skyldu eða einstaklinga.
Aðalhlutverkið, læknirinn,
prófessorinn, móðurina og
eiginkonuna leikur Francoise
Perier, mann hennar, emb-
ættismanninn leikur Jean-Pi-
erre Cassel og börnin leika
þær Isabel Huppert og Jos-
ephine Chaplin.
Meðfylgjandi myndir eru
úr kvikmyndinni Móðir,
kona, læknir, sem gerð var
árið 1976
Laugardagur
8. september
7.00Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.Tón-
leikar. Þulur velur og kynnir. 7.25
Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöur-
fregnir. Morgunorð - Rósa Svein-
bjarnardóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir). Óskalög
sjúklinga, frh.
11.20 Súrt og sætt. Þáttur fyrir ungl-
inga. Stjórnendur: Sigrún Halldórs-
dóttir og Erna Arnardóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
1 Örn Pétursson.
14.00 Á ferð og flugi. Þáttur um
málefni líðandi stundar í umsjá
Ragnheiðar Davíðsdóttur og Sig-
urðar Kr. Sigurðssonar.
15.10 Listapopp - Gunnar Salvars-
son. (Þátturinn endurtekinn kl.
24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Draumaströndin“ eftir And-
rés Indriðason 1. þáttur: „Maður
er og verður íslendingur“ Leik-
stjóri: Stefán Baldursson. Leikend-
ur: Arnar Jónsson, Kristbjörg Kjeld,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Steinunn
. Jóhannesdóttir, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Hjalti Rögnvaldsson
og Axel Gomez. (1. þáttur endur-
tekinn föstudaginn 14. sept., kl.
21.35).
17.10 Frá Mozart-hátíðinni i Frank-
furt í júní s.l. Evrópska kammer-
sveitin leikur. Stjórnandi: Sir Georg
Solti. Einsöngvari: Kiri Te Kanawa.
a. Sinfónía I D-dúr K.504. b.
Óperu- og konsertaríur.
18.00 Miðaftann í garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Vertu maður til að standa
við þína skoðun" Guðrún Guð-
laugsdóttir ræðir við Baldvin Sig-
urðsson. (Áður útv. 1977)
20.00 Manstu, veistu, gettu. Hitt og
þetta fyrir stelpur og stráka. Stjórn-
endur: Guðrún Jónsdóttir og Mál-
fríður Þórarinsdóttir.
20.40 „Mangi gamli í skúrnum“,
smásaga eftir Hildi Gústafsdótt-
ur Helga Ágústsdóttir les.
21.15 Harmonikuþáttur Umsjón:
Sigurður Alfonsson.
21.45 Einvaldur í einn dag Samtals-
þáttur í umsjá Áslaugar Ragnars.
22.15 Véðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kvöldsagan: „Að leiðarlok-
um“ eftir Agöthu Christie Magn-
ús Rafnsson les þýðingu sína (16).
23.00 Létt sígild tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Laugardagur
8. september
24.00-00.50 Listapopp. Endurtekinn
þáttur frá Rás 1. Stjórnandi: Gunn-
ar Salvarsson.
00.50-03.00 Næturvaktin Stjórnandi
Einar Gunnar Einarsson.
Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá í Rás 2 um allt land).
Laugardagur
, 8. september
16.30 íþróttir Umsjónarmaöur Bjarni
Felixson
18.30 Þytur í laufi 4. Ævintýri á ánni
1 Breskur brúðumyndaflokkur í sex
þáttum. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
18.50 Enska knattspyrnan Umsjón-
armaður Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Heima er best Annar þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur i sex
þáttum. Aðalhlutverk: William
Gaunt og Patricia Garwood. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson
21 00 Fjársjóður hertogans. Endur-
sýning (Passport to Pimlico) f
Bresk bíómynd frá 1949. s/h Leik- '
stjóri Henry Cornelius. Aðalhlut-
verk: Stanley Holloway, Margaret
Rutherford, Hermione Baddeley
og Paul Dupuis. Ibúar Pimlico-
hverfis í Lundúnum ákveða að
stofna sjálfstætt ríki eftir að þar
finnst fjársjóður frá timum Búrg- •
undarhertoga. Þýðandi Óskar Ing-
imarsson.
22.20 Móðir, kona ..læknir (Docteur,
Francoise Gailland). Frönsk bíó-
mynd frá 1976. Leikstjóri Jean-
Louis Bertucelli. Aðalhlutverk:
Annie Girardot, Francoise Perier,
Jean-Pierre Cassel, Isabel Hupp-
ert og Josephine Chaplin. Franco-
ise Gailland er yfirlæknir og próf-
essor við sjúkrahús í París. Húner
gift háttsettum embættismanni og
eiga þau tvö efnileg börn. Þetta
litur vel út á yfirboðinu en ekki er
allt sem sýnist. Þýðandi Ólöf Pét-
ursdóttir.
00.00 Dagskrárlok