NT - 27.09.1985, Síða 13
Borað eftir heitu vatni til fiskeldis í ðlfusi:
Vatn kemur úr holunni
nálægt kjörhitastigi
ÍTST
Föstudagur 27. september 1985 13
■ „Ég fór út í að bora þarna
vegna þess að ég hafði á tilfinn-
ingunni að þar væri vatn sem
gæti komið að góðum notum,“
sagði Guðmundur Birgisson,
Núpum í samtali við NT í gær.
Eins og skýrt var frá í blaðinu í
gær hefur nú síðustu daga verið
borað eftir vatni í hlíðum Núpa-
fjalls í landi Núpa III í Ölfusi og
kom í Ijós að þar fékkst talsvert
niagn af vatni sem er mjög
nálægt kjörhitastigi til fiskeldis,
en það er 10-15°. Um er að ræða
30-50 sekúndulítra af 19 gráðu
heitu vatni.
„Það hefur ekki verið gerð
nákvæm mæling á því hvað
þetta er mikið magn, en starfs-
menn Jarðborana segja mér
að þetta sé ekki minna en 35
sekúndulítrar. Hvað varðar
hitastigið, þá er það mjög
jákvætt, því vatnið er aðeins
yfir kjörhitastigi, sem gefur
möguleika á að leiða það nokk-
urn spotta," sagði Guðmundur
aðspurður um magn og hita
vatnsins. Hann sagði ennfremur
að borað hefði verið í klöpp,
svo hægara væri með fóðringar
holunnar og ennfremur að þar
sem borað væri í fjallshlíð væri
hægt, án mikillar fyrirhafnar,
að fá sjálfrennandi vatn. Svipuð
hola hefur verið boruð á Þór-
oddstöðum þar sem Fiskilón er
með fiskeldi, og báðar eru þess-
ar holur frekar grunnar, eða um
80 til 180 metrar.
Aðspurður um efnasamsetn-
ingu vatnsins í þessari nýju holu
sagði Guðmundur að úr annarri
minni holu, sem boruð var með
höggbor Ræktunarsambands-
ins, við hliðina á þessari, hefði
komið vatn sem við efnagrein-
ingu reyndist í góðu lagi. Aðeins
hafi verið vottur af járni í því
vatni, sem þó hafi verið langt
innan æskilegra marka.
Mikill fjörkippur hefur verið
í fiskeldismálum í Ölfusi að
undanförnu og eru einar níu
fiskeldisstöðvar í undirbúningi
eða komnar af stað.
Sænsk-íslenska fyrirtækið
Silfurlax hefur uppi áform um
að reisa á þessum slóðum um-
fangsmikla fiskeldisstöð með
milli fimm hundruð þúsund og
milljón seiði. Algengast er
að kjörhitastigi vatns til fiskeldis
sé náð með því að nota heitt
vatn til að hita lindarvatn með
svokölluðum forhiturum og hef-
ur því óhjákvæmilega verið
mikill kostnaður samfara bor-
unum og flutningi vatns á milli
staða. Gjöfular borholur hafa
þó fundist á þessu svæði, t.d. á
Bakka og Þóroddstöðum. Silf-
urlax hefur borað í sumar eftir
bæði heitu og köldu vatni, með-
al annars í landi Núpa III, með
misjöfnum árangri en talsverð-
um kostnaði.
„Það sem mér finnst aðal-
atriðið í niðurstöðum þessarar
borunar hér,“ sagði Guðmund-
ur að lokum, „er að á þessu
svæði eru að fara af stað og eru
í undirbúningi margar fiskeldis-
stöðvar og flestar byggja á þeirri
hugmynd að nýta bæði kalda og
heita vatnið til að ná fram hinu
eftirsóttá kjörhitastigi.' Ég held
hins vegar að það sé full ástæða
til að athuga þessi mál aðeins
betur og athuga hvort ekki sé
hægt að notfæra sér þennan
möguleika. Ef hann reynist fýsi-
legur, sem er ekki ólíklegt,
a.m.k. í fjallshlíðinni niðurmeð
Þorlákshafnarveginum, væri
hægt að spara hundruð þúsunda
jafnvel milljónir. Það verður
líka að hafa í huga, að fiskeldi
er á byrjunarstigi hér og ekki
komin reynsla á hvort eða
hvernig það á eftir að ganga, og
því er nauðsynlegt að menn séu
ekki að leggja út í of stórar
fjárfestingar strax, heldur fari
hægt af stað og þreifi sig áfram. “
í þúsund mola
■ Fleiri hundruð gler fóru í
þúsund mola, þegar bíll frá Öl-
gerðinni Egill Skallagríinsson
missti kassastæðu af pallinum í
vikunni. Óhappið varð í einni
slaufunni við Elliðaárbrúna.
Fljótt var brugðið við og hreins-
unardeild borgarinnar hreinsaði
upp glerbrotin. Ekki var um
tjón að ræða fyrir ölgerðina,
þar sem verið var að keyra
glerin á ruslahaugana, þar sem
þeim skyldi hent ásamt kössun-
um. „Þctta var bara vinnutap,“
sagði verkstjóri hjá ölgerðinni
sem NT ræddi við. NT-mynd: Róbert
Fríkirkjuprestur brottrækur:
Sóknarnefndin
skipti um lás
svo presturinn komist ekki í kirkjuna
hér, cn fyrst heyrst hefur aö
hann ætli samt að messa næst-
komandi sunnudag, neyöumst
við til aö gera þetta honum er
annars veikomin aðganga aö
kirkjunni nema í þeim tilgangi
að messa."
Þess má geta að Dómkirkju-
söfnuðurinn verður meö messu
í Fríkirkjunni á sunnudag kl.
11.00 vegna viðgeröa á Dóm-
kirkjunni, en ekki er enn vitað
hvernig fer með seinni messuna
sem auglýst hefur veriö.
Eldur í Jórufelli:
Tveir drengir
kveiktu eldinn
■ Reykskemmdir urðu á einni
íbúð og stigagangi í Jórufelli 8 í
gærdag. Kveikt var í svampdýnu í
reiðhjólageymslu á jarðhæð. Talið
er að kveikt hafi verið í með
bensíni. Þegar slökkvilið og lög-
regla komu á vettvang var nóg að
gera. Slökkvilið réðst til uppgöngu
í húsið og reykræsti stigaganginn.
Tveir piltar 14 og 15 ára gáfu sig
fram við lögreglu og játuðu íkveikj-
una. Þeir fóru í yfirheyrslur hjá
rannsóknarlögreglu.
Jónas Hallsson hjá RLR hafði
talað við drengina og hann sagði
að þarna hefði verið_um að ræða
fikt með eld sem leiddi til slyss.
Reykur af brennandi svampi er
blásýrumyndandi og því mjög
hættulcgur. Varðstjóri hjá slökkvi-
liði Reykjavíkur sem NT ræddi
við sagði að skemmdir á stigagangi
hefðu verið talsverðar af völdum
reyks. Ekki þurfti að fjarlægja
íbúana, en þar sent reykskemmdir
urðu á íbúðinni var það vegna þess
að íbúi hljóp út og skildi eftir sig
opna hurð. Annars héldu íbúar
kyrru fyrir þar til slökkvistarfi var
lokið.
Akærur vegna ólöglegra útvarpsstöðva:
Átta mál
óafgreidd
- fyrsta málið í sakadómi Isafjarðar
■ Kæra vegna reksturs ólög-
legrar útvarpsstöðvar á Isa-
firði, fyrir tæpu ári, verður
dómtekin í sakadómi ísafjarð-
ar fljótlega. Frestur verjanda
útvarpsmanna, sem eru tíu
talsins, rennur út um mánaða-
mót. Pétur Kr. Hafstein bæjar-
fógeti á ísafirði sagði í samtali
við NT í gær að upp hefði
komið ágreiningur milli verj-
andans og dómara um rann-
sóknarskyldur dómara, og
lengdi það frestinn eitthvað.
Mál af sama toga verða fljót-
lega dómtekin víðar. Fjögur
mál eru fyrirhuguð í sakadómi.
Það er Fréttaútvarp þeirra DV
manna og Frjálst útvarp, frjáls-
hyggjumanna. Þriðja málið er
einstaklingur sem útvarpaði úr
Breiðholti. Þá hefur einnig
verið gefin út ákæra vegna
útvarpssendinga frá Háa-
leitisbraut 1.
Sakadómur Siglufjarðar
mun taka til dóms mál vegna
reksturs útvarpsstöðvar á
Siglufirði.
Tvö mál verða tekin fyrir
sakadómi Akureyrar, en þar
stóðu menn af dagblaðinu
Degi fyrir rekstri útvarpsstöðv-
ar. í tengslum við það mál var
gefin út ákæra á hendur pilti
sem hafði tæki þau undir hönd-
um sem Dagsmenn notuðu til
útsendinga.
Jónatan Sveinsson saksókn-
ari sagði í samtali við NT í gær
að síðasta ákæra í þessum
málaflokki hefði verið gefin út
þann 22. ágúst.
BSRB
greiðir
málskostn-
að útvarps-
manna
■ Stjórn BSRB hefur
ákveðið aö greiða allan
málskostnað þeirra
starfsmanna útvarps og
sjónvarps, sem nú hafa
verið kállaðir fyrir rétt
vegna mótmælaaðgerða í
október í fyrra, þegar þeir
lögðu niður vinnu vegna
þess að þeir höfðu ekki
fengið greidd laun fyrir-
fram.
í ályktun frá stjórninni
er ítrekaður stuðningur
við málstað starfsmann-
anna. Þá segir þar að „sú
misbeiting ákæruvaldsins,
sem átt hefur sér stað í
málum vegna kjarabaráttu
samtakanna haustið 1984,
er alvarlegt áfall fyrir ís-
lenskt réttarfar og árás á
starf stéttarsamtaka í
landinu.“
■ Á íþróttahátíðinni í Laugarda! verður opið svæði fyrir yngri
árganga skólanna þar sem hægt er að fara í snú-snú, dósakast o.fl.
■ Stjórn Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík hefur nú látiö skipta
um skrá í Fríkirkjunni, og að
sögn eins stjórnarmanna er til-
gangurinn með því, að varna
séra Gunnari Björnssyni, brott-
reknum fríkirk j upresti, inn-
göngu.
Eins og komið hefur fram í
fréttum, neitar séra Gunnar að
taka uppsögnina gilda og hefur
þegar auglýst messu næstkom-
andi sunnudag kl. 14.00.
„Það er engin ástæða til þess
að séra Gunnar hafi áfram lykla-
völd að kirkjunni,“ sagði Magn-
ús Gunnarsson einn þeirra sem
sitja í stjórn Fríkirkjusafnaðar-
ins, „hann er ekki lengur prestur
Iþróttahátíð
unga fólksins
■ I dag og laugardag verður
mikið um dýrðir hjá ungum
íþróttamönnum í Reykjavík, en
þá fer fram Íþróttahátíð grunn-
skólanna.
Iþrótta- og tómstundaráð, í
samvinnu við grunnskóla höfuð-
borgarinnar stendur fyrir þess-
ari hátíð, en hún er haldin í
tilefni þess að nú er ár æskunn-
ar. Þátttakendur í hátíðinni eru
grunnskólanemendur og í aðal-
atriðum verður um að ræða
keppni milli sömu árganga úr
hinum ýmsu skólum. Keppnin
mun að mestu leyti fara fram á
íþróttasvæðinu í Laugardal,
nema körfuknattleikur sem
verður í íþróttahúsi Álftamýrar-
skóla.
í stórum dráttum er dagskráin
sem hér segir. Frjálsíþrótta-
keppnin fer fram á frjálsíþrótta-
vellinum í Laugardal og hefst
kl. 14 í dag, föstudag. Sund-
keppnin fer fram í sundlaugun-
um í Laugardal og hefst kl.
14.30 í dag föstudag. Knatt-
spyrnan verður á gervigrasinu,
og hefst keppni kl. 14.15 í dag
föstudag, en úrslitaleikirnir hjá
bæði piltum og stúlkum verða
leiknir um hádegi á laugardag.
Handknattleikur verður á
dagskrá í Laugardalshöllinni á
föstudag og hefst kl. 14.15 en
úrslitakeppnin verður svo á
sama stað á laugardeginum.
Körfuknattleikskeppnin fer
hins vegar fram í Álftamýrar-
skóla eins og áður segir, en hún
hefst kl. 14.15 í dag þó úrslit
ráðist ekki fyrr en á laugardeg-
inum. Samhliða þessari dagskrá
verður opið svæði vestan við
gervigrasvöllinn þar sem hægt
er að spreyta sig á ýmsum
þrautum s.s. dósakasti, hjól-
böruakstri, hringjakasti, snú-
snú o.fl. Þetta svæði er einkum
ætlað yngri aldursflokkum úr
skólunum.