Morgunblaðið - 07.10.2004, Page 1
2004 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SKIPTAR SKOÐANIR UM FJÖLDA ERLENDRA LEIKMANNA / B4
Cameron Echols
til KR-inga
ÚRVALSDEILDARLIÐ KR í körfuknattleik hef-
ur gert samning við Bandaríkjamanninn Camer-
on Echols og mun hann fylla skarð Curtis King
sem leystur var undan samningi sínum á dög-
unum. Echols er 23 ára gamall, fæddur og uppal-
inn í Chicago og kemur frá Ball State-háskól-
anum, þar sem hann skoraði að meðaltali 12 stig í
leik og tók 7,5 fráköst. Áður spilaði hann eitt ár
með Tallahassee CC þar sem hann skoraði að
meðaltali 18,3 stig og tók 14,5 fráköst. Cameron
er 203 cm á hæð og leikur í stöðu miðherja. KR er
einnig með bandaríska bakvörðinn Damon Garr-
is í sínum röðum en hann er 192 cm á hæð og 24
ára gamall.
Keflvíkingar höfðu einnig borið víuarnar í
Echols en þeir létu Jimmy Miggins fara frá liðinu
um síðustu helgi en hann hafði verið í herbúðum
liðsins í einn mánuð.
ÍSLENSKA karlalandsliðið í
knattspyrnu kom saman hér á
landi í gær til undirbúnings fyrir
leikina gegn Möltu og Svíþjóð í
undankeppni HM. Liðið æfði í
Kópavogi í gær og aftur í dag, og
fer síðdegis til Möltu þar sem það
mætir heimamönnum á laug-
ardag. Á myndinni hér að ofan
ræða Helgi Sigurðsson og Her-
mann Hreiðarsson málin um leið
og þeir stíga upp í rútu liðsins á
leið á æfingu í gær og Brynjar
Björn Gunnarsson bíður fyrir aft-
an þá.
Leikmenn ungmennalandsliðs-
ins komu saman í Keflavík í gær
til æfinga, en 21 árs leikmenn-
irnir mæta Möltumönnum á
morgun á Ta’Qali-þjóðarleikvang-
inum.
Undir-
búningur
hafinn
Morgunblaðið/Kristinn
Leiknir verða fimm leikir á sexdögum og því ljóst að um mjög
erfiða keppni verður að ræða.
Tvær efstu þjóðirnar áfram úr og
fara í leiki sem háðir verða í júní á
næsta ári um sæti í HM sem fram
fer í Rússlandi í desember á næsta
ári.
Ísland er í öðrum riðli en í hinum
riðlinum, sem fram fer í Aserbaídj-
an leika auk liðs heimamann, Búlg-
arar, Portúgalar, Ítalir, Grikkir og
Sviss.
„Við erum klárlega í sterkari
riðlinum og í raun skil ég ekki
hvernig hefur verið raðað í riðl-
anna,“ sagði Stefán Arnarson
landsliðsþjálfari í samtali við
Morgunblaðið í gær. Stefán sagði
að Litháen væri með sterkasta liðið
í riðlinum og því til staðfestingar
má nefna að Ramune Pekarskyte,
hinn sterki leikmaður Hauka, hefur
ekki komist í landsliðið. „Þá eru
Pólverjar og Slóvakar einnig með
góð lið,“ segir Stefán sem reiknar
með að kalla saman landsliðshóp
upp úr næstu helgi. Íslenska lands-
liðið komst upp úr svipaðri riðla-
keppni fyrir ári í undankeppni Evr-
ópumótsins og lék því við Tékka
tvo leiki í vor sem leið um sæti á
EM í Ungverjalandi í desember.
Til stendur að íslenska landsliðið
taki þátt í fimm landa móti í Hol-
landi síðar í þessum mánuði til
undirbúnings. Þar verður leikið við
Rúmeníu, Spán, Svíþjóð og Hol-
lendinga. „Við leikum einnig tvo
leiki við Sviss ytra áður en við för-
um til Póllands í lok nóvember, svo
við ætlum að undirbúa landsliðið
eins og kostur er, en þetta verður
erfitt verkefni,“ sagði Stefán.
Ísland í sterkum
HM-riðli í Póllandi
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik leikur í riðli með Tyrkj-
um, Slóvakíu, Póllandi, Makedóníu og Litháen í forkeppni að und-
ankeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik, en leikið verður í
Kielce í Póllandi frá 23.–28. nóvember.
MARK Schulte, bandaríski varn-
armaðurinn sem lék með ÍBV í
sumar, hefur gert samning við
Eyjamenn um að leika áfram með
þeim á næstu leiktíð. Schulte
handsalaði samning við for-
ráðamenn ÍBV áður en hann hélt
til síns heima en Eyjamenn voru
mjög ánægðir með framlag
Bandaríkjamannsins í sumar.
Schulte lék feikivel í stöðu hægri
bakvarðar og spilaði alla 18 leiki
ÍBV-liðsins í úrvalsdeildinni.
Schulte áfram
með ÍBV
EYJAMENN eru þessa dagana í
viðræðum við FH-inginn Guðlaug
Baldursson um þjálfun á úrvals-
deildarliði sínu í knattspyrnu. Guð-
laugur staðfesti þetta í samtali við
Morgunblaðið í gær og sagði að
málin myndu vonandi skýrast á
næstu dögum.
Guðlaugur hefur þjálfað hjá FH í
ellefu ár. Hann var um skeið að-
stoðarþjálfari meistaraflokks og
hefur verið yfirþjálfari yngri
flokka undanfarin fjögur ár. Hann
hefur jafnframt þjálfað 2. flokk fé-
lagsins síðustu tvö árin og undir
hans stjórn vann FH yfirburðasigur
á Íslandsmótinu í 2. flokki 2003.
Guðlaugur í
viðræðum
við ÍBV
ÞAÐ gæti dregist fram yfir næstu
helgi að tilkynnt verði hver verður
næsti landsliðsþjálfari í handknatt-
leik karla. Heimildir Morgunblaðs-
ins herma að valið standi enn í
fullri alvöru á milli Geirs Sveins-
sonar og Viggós Sigurðssonar en
aðrar heimildir telja að yfirgnæf-
andi líkur séu á að Viggó verði
tekinn fram yfir Geir.
Viðræður hafa staðið síðustu
daga á milli starfshóps HSÍ og
þeirra sem koma til greina til
starfsins og verður þeim haldið
áfram í dag, eftir því sem næst
verður komið. Eru HSÍ-menn
ákveðnir í að halda sig við upp-
haflega áætlun og gefa sér þann
tíma sem þeir telja sig þurfa til að
ráða nýjan landsliðsþjálfara „og
láta utanaðkomandi pressu um
skjóta lausn ekki hafa áhrif á sig,“
eins og heimildarmaður Morg-
unblaðsins komst að orði í gær.
Valið stendur
á milli Viggós
og Geirs