Morgunblaðið - 07.10.2004, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2004 B 3
FORMENN knattspyrnudeilda
þeirra félaga sem leika í úrvals-
deild karla fara í dag til Möltu um
leið og íslenska landsliðið. Árlegur
formannafundur á vegum Knatt-
spyrnusambands Íslands verður
haldinn á Möltu og býður sam-
bandið formönnunum þangað.
Þessir fundir hafa verið haldnir um
árabil en í fyrra var brugðið á það
nýmæli að halda fundinn í Stokk-
hólmi. Sú ferð þótti heppnast mjög
vel og því var boðið til fundarins á
Möltu að þessu sinni. Formennirnir
fá því tækifæri til að fylgjast með
báðum landsleikjunum, 21-árs
leiknum á morgun og A-lands-
leiknum á laugardaginn.
Formanna-
fundurinn
á Möltu
HELGI Valur Daníelsson, knatt-
spyrnumaður úr Fylki, er kominn
heim á ný eftir að hafa æft í
nokkra daga með sænska úrvals-
deildarliðinu Sundsvall. Helgi Val-
ur sagði við Morgunblaðið að hann
hefði ekkert heyrt frá for-
ráðamönnum félagsins og vissi
ekki hvort um framhald yrði að
ræða. „Mér leist ágætlega á mig í
Sundsvall, þetta er greinilega fínt
félag og leikmannahópurinn er
sterkur. Það kom mér reyndar á
óvart að liðið leikur á gervigrasi,
sem nýbúið er að leggja á völl fé-
lagsins, en þetta er norðarlega í
Svíþjóð og það var kaldara þar en
hér heima,“ sagði Helgi Valur.
Helgi kom-
inn frá
Sundsvall
ÓLAFUR Ólafsson hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Ólafs H.
Kristjánssonar, þjálfara úrvalsdeild-
arliðs Fram í knattspyrnu, í stað Jör-
undar Áka Sveinssonar sem tekinn
er við þjálfun 2. deildarliðs Stjörn-
unnar. Ólafur, sem á árum áður lék í
vörn Víkings, þjálfaði yngri flokka
hjá Fram fyrir nokkrum árum en
hefur stýrt meistaraflokki kvenna
hjá HK/Víkingi undanfarin tvö ár.
LOGI Geirsson skoraði 5 mörk
fyrir Lemgo sem steinlá fyrir HSV
Hamburg, 34:23, í þýsku 1. deildinni
í handknattleik í gærkvöld. Logi og
Volker Zerbe, sem skoraði 6, voru
atkvæðamestir í liði Lemgo.
JALIESKY Garcia skoraði eitt
mark fyrir Göppingen sem vann
óvæntan sigur á Kiel, 31:30. Andrius
Stelmokas, fyrrum KA-maður, skor-
aði 4 marka Göppingen. Johan Pet-
tersson skoraði 14 mörk fyrir Kiel í
leiknum.
RAGNAR Óskarsson skoraði eitt
mark fyrir Skjern sem vann Team
Tvis/Holstebro, 29:28, í dönsku úr-
valsdeildinni í handknattleik í gær-
kvöld. Daníel Ragnarsson var ekki á
meðal markaskorara FCK Håndbold
sem tapaði, 31:35, fyrir Kolding.
HRAFNHILDUR Skúladóttir
skoraði 4 mörk í gærkvöld þegar lið
hennar, SK Århus, lagði GOG að
velli, 32:29, í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik.
JÓNA Margrét Ragnarsdóttir
skoraði 7 mörk fyrir Weibern og Sól-
veig Lára Kjærnested 2 þegar Ís-
lendingaliðið steinlá fyrir Nürnberg,
41:21, í þýsku 1. deildinni í gærkvöld.
Dagný Skúladóttir gat ekki leikið
með Weibern vegna meiðsla.
TEITUR Þórðarson og lærisvein-
ar hans í 2. deildarliðinu Ull/Kisa í
Noregi komust ekki í úrslitakeppn-
ina um laust sæti í 1. deild norsku
knattspyrnunnar á næstu leiktíð.
Liðið endaði í 4. sæti af 14 liðum í
b-riðli 2. deildar, en alls eru riðlarnir
fjórir. Ull/Kisa endaði með 41 stig en
Lörenskog var í þriðja sæti með 45
stig, b-lið Lilleström í öðru með 46
stig og Follo í því efsta með 48 stig.
AUSTURRÍSKI skíðamaðurinn
Josef Strobl hefur öðlast slóvenskan
ríkisborgararétt og vonast hann til
að keppa fyrir hönd Slóveníu á kom-
andi skíðavertíð. Strobl hefur um
árabil verið í fremstu röð brunmanna
í heimi og hefur unnið sex heimsbik-
armót í greininni.
SAM Cassell mætti ekki á fyrstu
æfingu Minnesota Timberwolves er
NBA-liðin í körfuknattleik hófu
formlega æfingar fyrir komandi
keppnistímabil. Cassell er 34 ára
gamall og hefur óskað eftir því að
samningur hans verði framlengdur
en hann á tvö ár eftir af samningi sín-
um.
FÓLK
Katrín aftur í
landsliðshópinn
KATRÍN Jónsdóttir, ein reyndasta landsliðskona Íslands, er í 22
manna landsliðshópi sem Helena Ólafsdóttir valdi í gær til und-
irbúnings fyrir leikina tvo gegn Norðmönnum í nóvember. Þjóð-
irnar leika þá um sæti í úrslitakeppni Evrópukeppni landsliða.
Katrín, sem á 48 landsleiki að baki, lék síðast með landsliðinu fyr-
ir rúmum tveimur árum, þá gegn Englandi í úrslitaleikjum um sæti í
lokakeppni HM.
Hún hefur að mestu einbeitt sér að námi síðan en lék með Val í
sumar og hefur frá því í byrjun september spilað með norska 1.
deildarliðinu Amazon Grimstad. Áður lék Katrín í sjö ár með Kol-
botn í norsku úrvalsdeildinni.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Þóra B. Helgadóttir, Kolbotn, María B. Ágústsdóttir,
KR, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Val.
Aðrir leikmenn: Katrín Jónsdóttir, Amazon Grimstad, Margrét
Lára Viðarsdóttir, ÍBV, Olga Færseth, ÍBV, Björg Ásta Þórð-
ardóttir, Keflavík, Edda Garðarsdóttir, KR, Guðlaug Jónsdóttir,
KR, Guðrún S. Gunnarsdóttir, KR, Hólmfríður Magnúsdóttir, KR,
Erla Hendriksdóttir, Skovlunde, Erna B. Sigurðardóttir, Skovlunde,
Erla S. Arnardóttir, Stattena, Ásta Árnadóttir, Val, Dóra María Lár-
usdóttir, Val, Dóra Stefánsdóttir, Val, Íris Andrésdóttir, Val, Laufey
Ólafsdóttir, Val, Málfríður Erna Sigurðardóttir, Val, Nína Ósk
Kristinsdóttir, Val, Pála Marie Einarsdóttir, Val.
Hópurinn kemur væntanlega saman á morgun en leikirnir við
Norðmenn fara fram 10. og 13. nóvember, sá fyrri í Egilshöll en sá
síðari í Valhöll í Ósló.
Haukar eru með öflugt lið, svipaðog í fyrra að mörgu leyti, og al-
veg augljóst að liðið verður í topp-
baráttunni í vetur þó
svo það hafi ekki
sýnt allar sínar
bestu hliðar allan
leikinn í gær. „Ég er
sáttur. Við fengum tvö stig og það er
númer eitt, tvö og þrjú,“ sagði Páll
Ólafsson, þjálfari Hauka, eftir leik-
inn. „En það getur verið erfitt að ná
upp fullri einbeitingu hjá leikmönn-
um þegar verið er að fara í stórverk-
efni eins og Meistaradeild Evrópu og
mér sýndist það vera raunin hjá okk-
ur í kvöld. Samt fannst mér við leika
ágætlega á köflum og veturinn
leggst mjög vel í mig. Það verður fínt
fram að jólum, tveir leikir á viku og
lítið um æfingar og ég held bara að
strákarnir séu sáttir við það,“ sagði
Páll og bætti við brosandi að hann
væri líka ánægður með þetta. „Fáar
æfingar og margir leikir – það er
fínt,“ sagði Páll.
Markverðir liðanna, Egidijus
Petkevicius hjá Fram og Birkir Ívar
Guðmundsson hjá Haukum, fóru á
kostum framan af leiknum og vörðu
þá báðir mjög vel. Haukar léku sína
flötu 6-0 vörn á meðan Framarar
léku 3-2-1 vörn þar sem Sigfús Páll
Sigfússon var fremstur og gekk vel
þar. Fyrirliðinn, Guðlaugur Arnars-
son, stóð fyrir sínu í vörninni en fór
meiddur af velli um miðjan fyrri
hálfleikinn, fékk þungt högg á nefið.
Hann mætti þó til leiks á ný í upphafi
síðari hálfleiks en um hann miðjan
var honum vikið af velli í tvær mín-
útur, mótmælti því full kröftuglega
að mati dómaranna og fékk því aðrar
tvær mínútur og þar með rautt því
það var hans þriðja brottvísun.
Haukar náðu fljótt undirtökunum
enda nýttu Framarar sóknir sínar
ekki nægilega vel og voru raunar
óheppnir því þeim tókst að skapa sér
ágæt færi en skutu mikið í stang-
irnar og eins voru Haukar duglegir
að taka öll fráköst – þar kom leik-
reynslan sér vel.
Undir lok leiksins náðu Framarar
að minnka muninn í þrjú mörk en
voru klaufar að ná ekki að þjarma
meira að Haukum.
Haukar eru auðvitað alls ekki há-
aldraðir, en þó með mun leikreynd-
ara lið en Framarar sem koma með
marga kornunga leikmenn sem lofa
góðu, en það má segja að þeim sé
hent beint út í djúpu laugina og verði
að axla mikla ábyrgð strax á fyrsta
ári sínu.
„Okkur hefur gengið ágætlega og
ég held að sex stig af átta sé ágæt
byrjun hjá okkur. Liðið er ungt en þó
eru ágætlega reyndir menn innan
um. Þetta eru duglegir strákar sem
hafa staðið sig vel upp alla yngri
flokkana hjá okkur. Þá vantar dálít-
inn styrk ennþá en það kemur með
æfingunni og við eigum Ingólf Ax-
elsson enn inni, en hann hefur verið
meiddur,“ sagði Heimir Ríkarðsson,
þjálfari Fram. Jóhann G. Einarsson
er skemmtilegur örvhentur leikmað-
ur sem gaman verður að fylgjast
með. Þá er Sigfús Páll Sigfússon lif-
andi sem leikstjórnandi og Arnar
Sæþórsson átti ágætan dag á línunni
auk þess sem Petkevicius varði vel.
Hjá Haukum var Andri Stefan
mjög sprækur, Vignir Svavarsson er
ávallt sterkur á línunni og Gísli Jón
Þórisson kom ágætlega út úr skyttu-
stöðunni vinstra megin.
Haukamenn
nýttu reynsluna
HAUKAR lögðu Fram að velli að Ásvöllum í gærkvöldi, 31:25. Liðin
voru bæði án taps í norðurriðli Íslandsmótsins í handknattleik
karla. Haukar voru sterkari og sigurinn því sanngjarn, en Framarar
áttu alveg að geta gert betur og hefðu átt að nýta sér að Haukar eru
að hefja keppni í Meistaradeild Evrópu og hugur leikmanna virtist á
stundum við það verkefni.
Morgunblaðið/Kristinn
ð þegar hann reynir að verjast Andra Stefan, leikmanni Hauka.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
LITALEIKIR Íslendinga og Norðmanna um
í lokakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í
tspyrnu fara báðir fram undir þaki. Fyrri
rinn verður í Egilshöll í Grafarvogi miðviku-
nn 10. nóvember og síðari leikurinn í Valhall
ó laugardaginn 13. nóvember. Sigurvegarinn
essu einvígi kemst í úrslitakeppni EM sem
fer á Englandi á næsta ári.
að er ljóst að á brattann verður að sækja fyrir
ska landsliðið enda hafa Norðmenn lengi
ð í fremstu röð.
Leikir Íslands
og Noregs
innan dyra
Strákarnir sigr-
uðu Búlgaríu
NGLINGALANDSLIÐIÐ í knattspyrnu,
9 ára og yngri, sigraði Búlgaríu, 3:2, í
ndanriðli Evrópukeppninnar í Noregi í
ær. Búlgarar náðu forystunni snemma en
jálmar Þórarinsson, Ragnar Sigurðsson
g Kjartan Henry Finnbogason skoruðu
rjú mörk á sjö mínútna kafla í fyrri hálf-
iknum. Búlgarar áttu síðan lokaorðið
nemma í síðari hálfleik og sóttu stíft
inni hluta leiksins en náðu ekki að jafna
etin. Þetta var síðasti leikur íslenska
ðsins og það komst ekki áfram í milliriðil.
TVEIR íslenskir körfuknattleiks-
dómarar fengu alþjóðleg verkefni á
dögunum þegar raðað var niður á
leiki í Evrópukeppni félagsliða, þar
sem Keflvíkingar verða meðal
þátttökuliða. Kristinn Óskarsson
mun dæma leik í Hollandi 9. nóv-
ember milli Amsterdam Deamon
Astronauts og Anwil Wloclavek frá
Póllandi og sama dag mun Sig-
mundur Már Herbertsson dæma
leik Energy Braunschweig og
franska liðsins Disjon en sá leikur
er í Þýskalandi. Tveimur dögum
síðar verður Sigmundur Már aftur
á ferðinni er hann dæmir leik 1880
Wasserburg og ESMA Búdapest í
EM kvenna.
Körfudóm-
arar á far-
aldsfæti
ÍÞRÓTTIR