Morgunblaðið - 07.10.2004, Page 4
Cole fékk
þyngri
refsingu
ANDY Cole, framherji
enska úrvalsdeildarliðsins
Fulham, var í gær úrskurð-
aður í þriggja leikja bann
vegna atviks sem átti sér
stað í leik liðsins gegn
WBA hinn 18. september.
Cole fékk að líta rauða
spjaldið í leiknum og var
úrskurðaður í þriggja
leikja bann en aganefnd
enska knattspyrnu-
sambandsins hefur úr-
skurðað í málinu og bætt
við þremur leikjum til við-
bótar.
Hinn 32 ára gamli fram-
herji notaði orðbragð sem
ekki þótti hæfa við þetta
tækifæri og að auki lenti
hann í útistöðum á leið
sinni af vellinum. Cole þarf
að greiða 1,3 millj. kr. í
sekt vegna atviksins.
Keflvíkingar riðu á vaðið á síð-ustu leiktíð og tóku þátt í bik-
arkeppni Evrópu og náðu ágætum
árangri með tvo
bandaríska leik-
menn í sínum röð-
um. Derrick Allen
og Nick Bradford
vöktu athygli útsendara evrópskra
liða í leikjum sínum í keppninni og
vera þeirra á Íslandi varð til þess
að þeir komust að hjá stærri og
betri liðum. Allen í Þýskalandi og
Bradford á Englandi. Að auki
samdi Fannar Ólafsson við grískt
félagslið. Að mati Keflvíkinga var
samkeppnisstaða þeirra mun betri
með tvo bandaríska leikmenn í sín-
um röðum en liðið vann alla þá
titla sem í boði voru á síðustu leik-
tíð.
Skiptar skoðanir hafa verið um
hve margir erlendir leikmenn ættu
að fá að taka þátt í leikjum ís-
lenskra félagsliða og fannst mörg-
um nóg um á síðustu leiktíð er allt
að 6 leikmenn komu við sögu hjá
einu félagsliði.
Engar hömlur voru á fjölda er-
lendra leikmanna af hálfu Körfu-
knattleikssambands Íslands fyrir
ári en í ár er félagsliðum gert að
vinna eftir þeim reglum að ekki
fleiri en tveir bandarískir leikmenn
séu í liðinu. Að auki geta liðin
fengið leikmenn frá Evrópu en
launagreiðslur leikmanna mega
ekki fara yfir 500.000 kr. á mánuði.
„Betri æfingar en áður“
Pétur Ingvarsson, þjálfari Ham-
ars/Selfoss, segir að íslensk fé-
lagslið hafi tekið framförum á und-
anförnum árum og megi að hluta
til rekja það til fjölgunar erlendra
leikmanna. „Það eru mismunandi
aðstæður hjá hverju liði fyrir sig.
Æfingarnar hjá mínu liði eru betri
með tvo bandaríska leikmenn en
þegar við vorum með einn banda-
rískan. Jafnvægið er meira og
menn verða að herða sig til þess að
halda í við þá sem eru betri. Hjá
okkar liði eru aðstæður þannig að
smæð sveitarfélagsins gerir okkur
ekki kleift að halda úti mörgum
yngri flokkum. Erlendir leikmenn
verða því alltaf hluti af okkar upp-
byggingu. Ég hef ekkert á móti því
að erlendum leikmönnum hefur
fjölgað undanfarin ár og við
vinnum bara eftir þeim reglum
sem samþykktar eru á ársþingi
KKÍ,“ sagði Pétur en hann er á því
að íslenska landsliðið hafi einnig
gott af veru erlendra leikmanna.
„Ef það eru tveir bandarískir leik-
menn í liðinu og fimm íslenskir
landsliðsmenn að auki, eins og get-
ur gerst hjá liðum á borð við
Keflavík, Njarðvík eða Grindavík,
þá liggur ljóst fyrir að þeir þrír
sem leggja mest á sig komast í
byrjunarliðið. Hinir tveir verða að
leggja meira á sig til þess að kom-
ast í liðið. Samkeppnin er til góðs,
svo einfalt er það,“ sagði Pétur og
benti á árangur Keflvíkinga í Evr-
ópukeppninni á síðustu leiktíð og
sigur þeirra gegn félagsliðum frá
Norðurlöndum í Ósló á dögunum.
„Það er mikil uppsveifla hjá yngri
landsliðum okkar sem hafa náð
betri árangri en áður. Viðmiðanir
þeirra sem ætla sér að komast í úr-
valsdeildarlið eru hærri en áður
því samkeppnin er harðari,“ sagði
Pétur Ingvarsson.
Ekki ákjósanleg þróun
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari
Njarðvíkinga, segir að hann hafi
verið fylgjandi þeirri tillögu sem
felld var á ársþingi KKÍ þess efni
að aðeins einn bandarískur leik-
maður mætti leika með íslenskum
liðum. „Við búum reyndar svo vel
að hafa Brenton Birmingham í
okkar röðum en hann er með ís-
lenskt ríkisfang. En til lengri tíma
litið þá tel ég réttast að hafa færri
erlenda leikmenn en hafa verið í
deildinni undanfarin ár. Kostnað-
urinn vegur þar þungt enda rekst-
ur deildanna þungur. Þetta er ekki
ákjósanleg þróun. En ef við ætlum
okkur að vera með í baráttunni um
meistaratitla þá verðum við að
taka þátt í þessum leik,“ segir Ein-
ar en liði hans er spáð sigri í deild-
inni þetta árið. „Íslensku strák-
arnir verða að leggja harðar að sér
ef þeir ætla að komast í liðið og
þeir geta lært mikið af þeim leik-
mönnum sem koma til okkar. En
það eru margar hliðar á þessu máli
og það virðist vera sem íslensk fé-
lagslið viti ekki hvaða stefnu þau
eiga að taka. Sum þeirra eru í Evr-
ópukeppni þar sem nauðsynlegt er
að hafa tvo erlenda leikmenn. Önn-
ur hafa úr fáum leikmönnum að
moða og verða að treysta á erlend-
an liðsstyrk. Og það eru líka til fé-
lög sem hafa marga efnilega ís-
lenska leikmenn sem verða að sitja
á bekknum á meðan þeir erlendu
fá að spreyta sig. Þetta er staðan í
dag og lítið við henni að segja,“
sagði Einar Árni.
Skiptar skoðanir um fjölda erlendra leikmanna í liðunum í körfuknattleik á Íslandi
„Sam-
keppnin af
hinu góða“
Morgunblaðið/Kristinn.
Sævar I. Haraldsson úr Haukum felur sig bak við knöttinn en
Jón Nordal Hafsteinsson úr Keflavík reynir að ná honum.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
AÐ MEÐALTALI komu 4 erlendir leikmenn við sögu hjá íslenskum
körfuknattleiksliðum í úrvalsdeild á síðasta ári eða 48 alls á leiktíð-
inni. Í upphafi leiktíðarinnar sem hefst í kvöld eru 25 erlendir leik-
menn „munstraðir“ á bátana 12 sem leggja úr höfn eða rétt rúm-
lega 2 leikmenn á hvert lið. Reyndar eru nokkur lið að leita fyrir sér
að liðsstyrk og má búast við að 2–3 erlendir leikmenn bætist í hóp-
inn á næstu vikum. Skiptar skoðanir eru um ágæti þess að hafa
stóran hóp erlendra leikmanna í úrvalsdeildinni en svo virðist sem
íslensku liðin ætli sér að fara hægar í sakirnar í þessum efnum á
þessu keppnistímabili en því síðasta.
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka ráð-
ast ekki á garðinn sem hann er
lægstur þegar þeir hefja þátttöku
sína í riðlakeppni Meistaradeildar
Evrópu í handknattleik á Ásvöllum
á sunnudagskvöld. Haukar taka þá
á móti þýska stórliðinu Kiel.
Kiel er án alls vafa eitt besta fé-
lagslið í heimi en liðið hefur verið
í fremstu röð síðasta áratuginn.
Til marks um það hefur Kiel unnið
þýska meistaratitilinn sjö sinnum á
síðustu tíu árum og í þrígang hef-
ur liðið fagnað sigri í EHF-
keppninni, síðast í vor þegar liðið
sigraði Altea frá Spáni í úrslita-
leik. Kiel hefur einu sinni komist í
úrslit Meistaradeildarinnar, árið
2000 en liðið tapaði samanlagt
með eins marks mun fyrir Barce-
lona.
Í leikmannahópi Kiel er valinn
maður í hverju rúmi og landsliðs-
mennirnir 13 talsins, þar af sex
sænskir landsliðsmenn.
Markvörður Kiel er Henning
Fritz, einn albesti markvörður
heims, en hann hefur verið aðal-
markvörður Þjóðverja undanfarin
ár og átti frábæra leiki með þeim
á Ólympíuleikunum í síðasta mán-
uði. Honum til trausts og halda er
Svíinn Matthias Andersson sem á
28 landsleiki að baki fyrir þjóð
sína.
Skyttur Kiel eru ekki af verri
endanum. Fyrstan skal nefna
sænska landsliðsmanninn Stefan
Lövgren sem um árabil hefur ver-
ið talinn í hópi þeira bestu en Löv-
gren hefur tvívegis verið valinn
besti leikmaður HM, 1999 og 2001.
Christian Zeitz er örvhenta skytta
liðsins, afar öflugur leikmaður
sem er þýskur landsliðsmaður og
er sem stendur markahæstur í 1.
deildinni. Aðrar skyttur liðsins eru
norski landsliðsmaðurinn Frode
Hagen sem kom til Kiel fyrir leik-
tíðina frá Barcelona, sænski lands-
liðsmaðurinn Martin Boqvist og
slóvenski landsliðsmaðurinn Rom-
an Pungartnik.
Horna- og línumenn þýska liðs-
ins eru engir aukvisar en tveir
sænskir landsliðsmenn eru þar í
aðalhlutverkum, hornamaðurinn
Johan Pettersson og línumaðurinn
Marchus Ahlm auk þýska lands-
liðsmannsins Klaus-Dieter Pet-
ersen en hann leikur einnig lyk-
ilhlutverkið í afar sterkri vörn
liðsins.
Haukar gegn Kiel
GUÐJÓN Valur Sigurðsson var
valinn í lið vikunnar fyrir frammi-
stöðu sína með Essen um síðustu
helgi. Guðjón skoraði þá 9 mörk
þegar Essen bar sigurorð af Pfull-
ingen í þýsku 1. deildinni.
STEINN Viðar Gunnarsson,
varnarmaður úr KA, var úrskurð-
aður í eins leiks bann á fundi aga-
nefndar KSÍ. Steinn tekur leik-
bannið út í upphafi næstu leiktíðar.
TRYGGVI Nielsen féll úr leik í
1. umferð í einliðaleik á Opna
danska meistaramótinu í bad-
minton í Árósum. Hann tapaður
fyrir Svía í þremur lotum, 15:8,
13:15, 15:10. Þá heltust Tryggi og
Davíð Þór Guðmundsson einnig úr
lestinni í 1. umferð í tvíliðaleik er
þeir töpuðu fyrir Kínverjum, 15:1
og 15:3.
DAVÍÐ Þór varð einnig að játa
sig sigraðan í 1. umferð í einliða-
leik, hann tapaði fyrir Dana, 15:6
og 15:9.
DANÍEL Reynisson tapaði einn-
ig fyrir dönskum keppanda í 1. um-
ferð í tveimur lotum, 15:0, 15:6.
Sömu sögu er að segja af Hólm-
steini Valdimarssyni, hann tapaði
einnig í fyrstu umferð í tveimur
lotum, 15:3, 15:0.
RAGNA Ingólfsdóttir sat yfir í
fyrstu umferð en mætti Söru Pers-
son frá Svíþjóð í annari umferð í
einliðaleik kvenna. Ragna vann
fyrstu lotuna, 11:9, en tapaði
tveimur þeim næstu, 11:2, 11:3 og
er það með úr leik.
TINNA Helgadóttir fór sömu
leið og piltarnir í 1. umferð móts-
ins þegar hún varð að sætta sig við
tap, 11:4, 11:9, í hörkuleik. Katrín
Atladóttir laut einnig í lægra haldi
í tveimur lotum fyrir danskri konu,
11:5, 11:4.
AÐALHEIÐUR Pálsdóttir fékk
slæma útreið í leik við japanska
konu, tapaði í tveimur lotum sem
báðar enduðu 11:1.
RAINER Niemeyer, þjálfari
þýska handknattleiksliðsins GWD
Minden, sem Patrekur Jóhannes-
son leikur með, var í gær leystur
frá störfum. Liðinu hefur gengið
illa það sem af er leiktíðinni og er
við botn 1. deildar eftir sex um-
ferðir. Niemeyer er fyrsti þjálf-
arinn sem vikið er úr starfi á leik-
tíðinni.
FÓLK