24 stundir - 13.03.2008, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2008 24stundir
Fæst í heilsubúðum og apótekum
Salus jurtasafinn er
pressaður úr lífrænt ræktuðum jurtum
á innan við þremur tímum eftir uppskeru, en við það
varðveitast að fullu öll virku efnin í jurtunum.
Salus Birkisafi og Fíflatrótarsafi eru vatnslosandi jurtasafar.
Sólhattur styrkir og eflir ónæmiskerfið.
Kraftmiklir
jurtasafar frá SALUS
SagaPro er náttúruvara
úr íslenskri ætihvönn ætlu› fleim sem
flurfa oft á salerni› á nóttunni.
Vaknar flú oft á nóttunni?
Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl!
www.sagamedica.is
Fæst í lyfja- og
heilsuvöruverslunum
„Ég hef›i ekki trúa›
a› ein lítil SagaPro
tafla úr ætihvönn fyrir
svefn myndi breyta
svo gersamlega lífi
mínu úr 4 til 5
salernisfer›um á
hverri nóttu í eina e›a
enga. Ég óska öllum
fullor›num karl-
mönnum til hamingju
me› SagaPro og ekki
sí›ur eiginkonum
fleirra“.
In
gv
i H
ra
fn
J
ón
ss
on
, ú
tv
ar
ps
m
a›
ur
LÍFSSTÍLLHEILSA
heilsa@24stundir.is a
Því fyrr sem krabbameinið greinist,
þeim mun meiri líkur eru á að með-
ferð beri góðan árangur.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
„Hugmyndin er að fræða karlmenn
um einkenni krabbameins og hvetja
þá til að þekkja líkama sinn og leita
sér ráða og fara til læknis ef eitthvað
bregður út af. Karlmenn eru oft
tregari til þess og tala minna um
þetta,“ segir Ragnheiður Alfreðs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Ráð-
gjafarþjónustu Krabbameinsfélags-
ins. Um þessar mundir stendur yfir
tveggja vikna átak félagsins um karl-
menn og krabbamein.
Því fyrr, þeim mun betra
Mikilvægt er að karlmenn bregð-
ist fljótt við ef þeir verða varir við
hugsanleg einkenni krabbameins.
„Því fyrr sem krabbameinið grein-
ist, þeim mun meiri líkur eru á að
meðferð beri góðan árangur. Það er
næg ástæða til að fara til læknis að
maður sé órólegur. Ef einhver náinn
ættingi hefur greinst vill maður
gjarnan athuga það því að sum
krabbamein eru ættgeng,“ segir
hún.
Einkenni krabbameins eru mis-
munandi eftir því um hvers konar
krabbamein er að ræða. Í tilefni
átaksins hefur verið búinn til bækl-
ingur og heimasíða þar sem fjallað
er um einkenni ólíkra meina. Bækl-
ingnum er dreift inn á hvert heimili
í landinu og vefsíðan er á slóðinni
www.karlmennogkrabbamein.is.
Leit að ristilkrabbameini
Skipuleg leit að brjóstakrabba-
meini og leghálskrabbameini hjá
konum hér á landi gerir að verkum
að meinið finnst oft í tæka tíð. Heil-
brigðisráðherra hefur lýst yfir vilja
til að koma á skipulegri skimun á
ristilkrabbameini bæði fyrir karla og
konur á næsta ári. „Þarna er verið
að leita að krabbameini á forstigum
þegar það er ekki búið að dreifa sér,
þegar það er ekki farið að vaxa inn í
þarminn og nærliggjandi vefi. Það
má gera ráð fyrir því að þegar skim-
un byrjar verði aukin tíðni því að þá
finnist eitthvað sem hefði annars
ekki fundist,“ segir Ragnheiður.
Líkur á að karlmenn fái krabba-
mein aukast þegar þeir eru komnir
yfir fertugt og því þeim mun meiri
ástæða til að vera á varðbergi. Ragn-
heiður bendir á að jafnframt sé
mikilvægt að huga að breytingum á
lífsstíl sem kunna að draga úr hættu
á að menn fái krabbamein. „Það er
mikið talað núna um ofþyngd og
fitu og að það auki tíðni krabba-
meins. Það sama má segja um kyrr-
setu og reykingar. Því meira sem
maður hamrar á þessu, þeim mun
meiri líkur eru á að það skili sér,“
segir Ragnheiður að lokum.
Brugðist skjótt við Mik-
ilvægt er að karlmenn
bregðist fljótt við einkenn-
um krabbameins en leiði
þau ekki hjá sér.
Átaksverkefni um karlmenn og krabbamein
Karlmenn leita
síður aðstoðar
Það er mikilvægt að karl-
menn þekki einkenni
krabbameins og bregðist
fljótt við ef þau gera vart
við sig. Því fyrr sem mein-
ið finnst, þeim mun meiri
líkur eru á að meðferð
beri árangur. Karlmenn
leita síður ráða læknis en
konur.
➤ Að meðaltali greinast um 630íslenskir karlmenn með
krabbamein á ári.
➤ Þar af eru um 190 meðkrabbamein í blöðruhálskirtli,
64 með lungnakrabbamein
og 51 með ristilkrabbamein.
➤ Horfur þeirra sem greinastmeð krabbamein hér á landi
eru almennt góðar.
KRABBAMEIN
Einkenni krabbameins eru mis-
munandi eftir því um hvaða teg-
und krabbameins er að ræða. Á
vefsíðunni karlmennogkrabba-
mein.is er hægt að sjá hvaða ein-
kenni fylgja krabbameini í lungum,
meltingarfærum, eistum, blöðru-
hálskirtli og húð. Einnig er þar að
finna ýmis almenn einkenni svo
sem blóð í þvagi, sæði eða saur,
aumar eða bólgnar geirvörtur, þrá-
lát bólga í eitlum, óeðlileg þreyta
eða slappleiki og lystarleysi.
Auk vefsíðunnar er hægt að
hringja í sérstakan upplýsingasíma
800 40 40.
Einkennistákn átaksins Karl-
menn og krabbamein er þrílit
slaufa (blá, hvít og fjólublá). Lit-
irnir eru táknrænir fyrir þrjár al-
gengustu tegundir krabbameins
hjá körlum: blöðruhálskirtils-,
lungna- og ristilkrabbamein.
Karlmenn og krabbamein
Einkenni krabba
Þó að það borgi sig að fylgjast vel
með eigin líkama og þekkja ein-
kenni krabbameins skiptir líka
miklu máli að huga að for-
vörnum. Með heilbrigðum lífs-
stíl, reglulegri hreyfingu, góðu
mataræði og tóbaksleysi getur
hver og einn dregið úr hættu á að
meinið skjóti rótum.
Fyrirbyggjandi
aðgerðir