24 stundir - 13.03.2008, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2008 24stundir
Formaður aðdáendaklúbbaknattspyrnuliða í Bret-landi
varar við því að
komið sé að
mörkum þess
að hinn al-
menni áhuga-
maður hafi efni
á að fylgja liði
sínu eins dyggilega og verið
hefur undanfarin ár. Þrátt fyrir
stopp margra félaga á hækkun
miðaverðs á leiki hækkar verðið
engu að síður með verðbólgu.
Bendir hann á að 1992 kostaði
ódýrasti miði á heimaleik Ars-
enal 1300 krónur eða tæpar
1700 krónur uppfært til verð-
lags dagsins í dag en raunverð á
ódýrasta miða á Emirates í dag
sé 4400.
Slúðurblaðið Sun sem oftaren ekki tekur of stórt uppí sig telur
sig hafa heim-
ildir fyrir að
Chelsea ætli sér
að skipta út
Frank Lamp-
ard í sumar og
fá í hans stað
hinn brasilíska Diego frá Wer-
der Bremen. Diego sem er einn
af fimm bestu leikmönnum
heims sem ekki spila í topp-
deildum heimsins yrði fín við-
bót en Lampard er goð á Stam-
ford Bridge og fáir tækju slíku
ýkja vel.
Hector Cúper er nýrþjálfari Parma á Ítalíu.Cúper
hefur víða
komið við með
misjöfnum ár-
angri en hon-
um er þakkað
að koma Val-
enciu í hóp
toppliða Evrópu kringum síð-
ustu aldamót þar sem liðið er
enn þótt aðeins hafi hallað
undir fæti.
Ásama tíma tilkynnti Ro-berto Mancini að hannmyndi hætta þjálfun
Inter að leik-
tíðinni lokinni
en gaf engar
frekari skýr-
ingar á þeirri
ákvörðun en
hann hann er
með samning til 2012.
Þýski varnarjaxlinn Chri-stoph Metzelder verðurnæsti Jonathan Wood-
gate ef fregnir reynast á rökum
reistar. Þýskir
miðlar segja
kappann á
heimleið í
sumar eftir ár
hjá Real Ma-
drid. Þar hefur
hann verið
mikið frá vegna meiðsla og
staðið sig hörmulega í þeim
leikjum sem hann hefur náð að
spila. Borussia Dortmund hef-
ur þegar lýst yfir áhuga sínum.
Stjórn FIFA hefur ákveðiðað hætta við að notatölvu-
tækni til að
skera úr um
vafamál á völl-
um í framtíð-
inni. Fremur
skal ráða fleiri
dómara til leiks
en nú tíðkast.
Sterkar líkur eru á að Royal-deildin skandinavíska
hefjist á ný á þessu ári eftir árshlé en deildin sú er
nokkurs konar Meistaradeild Norðurlanda þótt félög
frá Íslandi, Finnlandi eða Færeyjum taki ekki þar þátt.
Royal-keppnin er sérstakt mót sterkustu liða Dan-
merkur, Svíþjóðar og Noregs en umrædd keppni hefur
þrívegis verið haldin frá árinu 2004 þegar hún hófst
fyrst. Fjögur efstu félög í umræddum deildum keppa
þar sín á milli og eru verðlaunin hreint ágæt fyrir sigur
eða um fimmtán milljónir króna. Knattspyrnusam-
bönd allra aðildarlanda eru fylgjandi því að hún verði
áfram haldin með sama sniði og verið hefur og er nú
fundað um hvort og þá hvenær hún eigi að spilast á
næstu leiktíð.
Dönsk félög hafa einokað sigurverðlaun í keppninni
þau þrjú ár sem hún hefur verið haldin. FC Kaup-
mannahöfn sigraði 2005 og 2006 en Bröndby náði titl-
inum 2007.
Svokölluð Meistaradeild Norðurlanda endurvakin á árinu
Íslendingar sem fyrr ekki með
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Um það geta flestir sparkáhuga-
menn verið sammála að fyrir
tveimur árum var Barcelona óum-
deilanlega skemmtilegasta liðið í
álfunni. Ronaldinho var upp á sitt
langbesta, ungur strákur að nafni
Leo Messi var að stíga sín fyrstu
skref með aðalliðinu og voru þau
skref yfirleitt tiltölulega létt
framhjá varnarmönnum andstæð-
inga. Að sama skapi var Samuel
Etóo að spila eins og konungur fyr-
ir framan markið og aðeins aftar
blómstruðu þeir Deco og Xavi sem
leikstjórnendur. Í dag er uppistaða
liðsins að mestu sú sama nema
hvað markamaskínan Thierry
Henry og hinn eitilharði Eric Abi-
dal hafa bæst í ágæta vörnina fyrir
utan ungstirnin Bojan og dos San-
tos. Engu að síður hefur enginn
neisti kviknað innan liðsins og köll
eftir nýjum þjálfara orðin hávær.
Inn og út
Um fátt hefur verið meira skrif-
að í Englandi en afar tíðar leik-
mannabreytingar hjá Rafa Benítez,
stjóra Liverpool. Hefur hann nán-
ast frá upphafi sagt að enginn ætti
fast sæti í byrjunarliði og hefur sú
ákvörðun ætíð verið talin honum
til lasts. Spænskir blaðamenn veita
þessu minni athygli en samanburð-
ur 24 stunda leiðir í ljós að stefna
Frank Rijkaard í vetur er keimlík
stefnu Benítez eins og sjá má á
meðfylgjandi töflu. Þetta eilífa rót
fer illa í marga og nú síðast Thierry
Henry, en hann var höfuð, heili og
fætur Arsenal í mörg ár og eitthvað
stórkostlegt þurfti til að hann væri
tekinn út af í leik eða hæfi ekki leik.
Nú er hann smáfiskur í stórri tjörn
og hæfileikar hans, sem eru óum-
deilanlegir, nýtist lítið enda spilar
hann bæði óreglulega og mismun-
andi stöður á vellinum.
Endastöð
Tap Börsunga á heimavelli fyrir
Villarreal var punkturinn yfir i-ið
fyrir marga aðdáendur en liðið hef-
ur nú tapað tveimur leikjum á
heimavelli í deildinni í vetur. Eiður
Smári hefur til að mynda þótt leika
vel í mörg þau skipti sem hann fær
tækifæri en framhjá honum er
engu að síður litið trekk í trekk og
eftir því er tekið í katalónskum
fjölmiðlum. Dæmi um það er að
Eiður hefur spilað helmingi færri
leiki en nýstirnin Giovani dos San-
tos og Bojan þótt enginn vafi leiki á
að Eiður er talsvert leikreyndari og
þroskaðri en þeir báðir.
Það er líka til merkis um stefnu-
leysi Rijkaards að þessa leiktíðina
hefur hann leikið sér mun meira
með mismunandi taktík og upp að
vissu marki er slíkt eðlilegt. Sú
vinna á þó eðlilega að fara fram
fyrir leiktíðina að mestu.
Tvær netkannanir, annars vegar
í Sport og hins vegar í La Vangu-
ardia nýlega, gefa enda glöggt til
kynna að mun fleiri aðdáendur
liðsins vilja breytingar í brúnni og
það sem fyrst.
Uppgjafarsvipur Framlína Barca er ein
sú flottasta í heimi hér. Engu að síður er
Samuel Etóo með aðeins níu mörk í vet-
ur, markahæsti maður liðsins.
Tími kominn
á Rijkaard
Áhangendur Barcelona skiptast nokkuð í tvo hópa hvað varðar
gengi liðsins Meirihlutinn telur þó þjálfarann kominn í þrot
Barcelona
➤ Leo Messi22 leikir 12 skiptingar
➤ Ronaldinho17 leikir 10 skiptingar
➤ Thierry Henry21 leikir 9 skiptingar
➤ Eiður Smári13 leikir 12 skiptingar
Liverpool
➤ Peter Crouch17 leikir 13 skiptingar
➤ Fernando Torres26 leikir 13 skiptingar
➤ Ryan Babel24 leikir 22 skiptingar
LEIKIR OG SKIPTINGAR
Einn eigenda Williams-liðsins
í Formúlu 1, Patrick Head, vill
sjá frekari breytingar á keppn-
inni sem hann telur ekki nógu
spennandi fyrir Pétur, Pál og
konurnar þeirra. Vill hann sjá
öfuga rástímaröð frá því sem
nú er þannig að þeir sem
bestu tímana eiga byrji aftast í
stað þess að vera fremstir.
Þannig skapist meiri spenna,
fleiri framúrskeyrslur en rétti
maðurinn ætti engu að síður
að sigra þegar upp væri staðið.
Framúrkeyrsla
Þeim fækkar því sem næst
daglega stjörnunum sem ekki
ætla til Peking á Ólympíu-
leikana í sumar. Nú hefur
tennisstjarnan Andy Roddick
hætt við þátttöku og ætlar að
einbeita sér heima í Banda-
ríkjunum en þar fara fram
sterk mót á sama tíma. Fyrr í
vikunni hafði maraþongoð-
sögnin Haile Gebrselassie
hætt við sökum loftmengunar
í borginni.
Brottfall
Gönguskíðagarpurinn norski
Ole Einar Björndalen tryggði
sér í vikunni sinn fimmta
heimsmeistaratitil í 15 kíló-
metra göngu þegar hann end-
aði sjötti á móti í Rússlandi.
Björndalen er fyrir allnokkru
kominn í hóp mestu afreks-
manna Norðmanna og engan
bilbug er á honum að finna.
Langfremstur
jafningja
Knattspyrnumaðurinn Viktor
Bjarki Arnarsson mun leika
með KR í Landsbankadeild-
inni í sumar. Viktor er á mála
hjá Lilleström í Noregi en
verður til láns hjá KR. Hann
var valinn leikmaður ársins
árið 2006 hér á landi.
Heima er best
SKEYTIN INN
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Fjögur efstu félög í sænsku, norsku og
dönsku deildinni taka þátt og keppa sín
á milli og eru verðlaun fyrir sigur á mótinu
aldeilis ágæt; um fimmtán milljónir króna.