24 stundir - 26.08.2008, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 24stundir
Undanfarna mánuði hafa gífur-
legar hækkanir orðið á eldsneytis-
verði, eins og flestir ökumenn hafa
orðið varir við. Á myndinni hér til
hliðar má sjá hvernig hækkanir á
heimsmarkaði og útsöluverð hér
heima hafa haldist í hendur.
Myndin byggist á tölum frá Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda.
„Þetta sýnir þróun á milli inn-
kaupaverðs og útsöluverðs, en sýn-
ir ekki beint álagninguna,“ segir
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB. Lítraverð á heimsmark-
aði er gengisleiðrétt miðað við
hvern dag og borið saman við út-
söluverð hvers tíma – en hvorug
upphæðin er færð til núvirðis.
„Við höfum verið að benda á –
sem olíufélögin hafa líka viður-
kennt – að álagning hefur aukist í
sumar. Hún lækkaði hlutfallslega á
vormánuðum en snarhækkaði í
sumar. Við höfum verið að bíða
eftir frekari lækkunum.“
Runólfur segir þær ástæður sem
gefnar hafa verið fyrir hækkunum
olíufélaganna hér heima og tregðu
þeirra til að lækka verð í takt við
lækkanir á heimsmarkaði duga
skammt.
„Við teljum ekki boðlega skýr-
ingu að vegna aukins kostnaðar
verði menn að auka álagningu. Það
geta menn ekki gert í öðrum
rekstri.“ andresingi@24stundir.is
Útsöluverð eldsneytis helst í hendur við innkaupaverð á heimsmarkaði
Álagningin við dæluna hækkar stöðugt
24stundir/bms
Verðþróun á bensíni og dísilolíu
80
70
60
50
40
30
20
Ja
n.
07
Fe
b.
07
M
ar
.0
7
Ap
r.
07
M
aí
.0
7
Jú
n.
07
Jú
l.
07
Ág
ú.
07
Se
p.
07
Ok
t.
07
Nó
v.
07
De
s.
07
Ja
n.
08
Fe
b.
08
M
ar
.0
8
Ap
r.
08
M
aí
.0
8
Jú
n.
08
Jú
l.
08
Ág
ú.
08
195
185
175
165
155
145
135
125
115
105
Innkaup bensín Innkaup dísilolía
Bensín - sjálfsafgr. Dísil - sjálfsafgr.
Skalinn vinstra megin sýnir innkaupsverð í krónum á lítra, en sá hægri sýnir verð á dælu.
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Surtseyjarfélagsins, segir að
formleg skilyrði hafi ekki verið
uppfyllt þegar Umhverfisstofnun
veitti undanþágu fyrir lagningu
sæstrengs í gegnum friðlandið við
Surtsey. Sigrún Ágústsdóttir, sviðs-
stjóri laga og stjórnsýslu hjá Um-
hverfisstofnun, segir að skilyrðin
hafi verið uppfyllt.
Í reglugerð umhverfisráðherra
um friðlandið í og við Surtsey seg-
ir: „Mannvirkjagerð, jarðrask, efn-
istaka og aðrar breytingar á landi
og hafsbotni innan friðlandsins eru
óheimilar nemi komi til leyfi Um-
hverfisstofnunar og sveitarstjórnar
Vestmannaeyjabæjar að fenginni
umsögn Surtseyjarfélagsins.“
Umsögn sögð fullnægjandi
Sigrún segir að umsögn Surts-
eyjarfélagins hafi komið símleiðis
frá Steingrími og að hún hafi verið
á þá leið að hann hafi tekið undir
umsögn ráðgjafarnefndar um mál-
efni Surtseyjar, en þar var lagst al-
farið gegn framkvæmdinni. Engin
skrifleg gögn eru þó til sem stað-
festa það. „Það stendur ekki í frið-
lýsingunni að þessi umsögn þurfi
að vera skrifleg. En það þarf að vera
umsögn þannig að það var ekki
hægt að ganga frá þessu leyfi fyrr
en þessi umsögn kom fram,“ segir
Sigrún aðspurð hvort umsögn í
gegnum síma sé fullnægjandi.
Steingrímur segir að umsögn
Surtseyjarfélagsins hafi aldrei verið
lögð fram sem slík. „Ég staðfesti að
okkar afstaða væri samhljóma um-
sögn ráðgjafarnefndarinnar. En
það er ekki fullnægjandi þegar litið
er á reglugerðina,“ segir hann.
Rannsóknarskylda stjórnvalda
Trausti Fannar Valsson, lektor í
stjórnsýslurétti við Háskóla Ís-
lands, segir að á grundvelli stjórn-
sýslulaga beri stjórnvöld almennt
sjálfstæða rannsóknarskyldu. „Þau
þurfa að tryggja að fullnægjandi
umsagnir berist og eins að um-
sagnir séu fullnægjandi. Þau þurfa
sjálf að gæta að því að umsögnin sé
fullnægjandi, bæði hvað varðar
form og efni,“ segir hann en tekur
fram að hann þekki ekki nægjan-
lega til þessa máls og geti því ekki
sagt til um það hvort skilyrði reglu-
gerðarinnar hafi verið uppfyllt.
Deilt um lögmæti
leyfisveitingar
Formaður Surtseyjarfélagsins segir að skilyrði fyrir leyfi fyrir lagningu sæstrengs hafi
ekki verið uppfyllt Umhverfisstofnun er ósammála og segir þau hafa verið uppfyllt
Sætrengur lagður
Sæstrengur var lagður
við Surtsey fyrir tveim
vikum.
➤ Umhverfisstofnun veittihinn 8. ágúst síðastliðinn
leyfi fyrir því að Farice legði
tvo sæstrengi í gegnum
friðlandið við Surtsey.
➤ Surtsey var tekin á heims-minjaskrá UNESCO 8. júlí
síðastliðinn. Álit UNESCO á
framkvæmdinni liggur ekki
enn fyrir.
SÆTRENGUR Í FRIÐLANDI
„Við leggjum áherslu á að ná
samningum áður en til verkfalla
kemur,“ segir Guðlaug Einarsdóttir,
formaður Ljósmæðrafélags Íslands.
„Það er alveg ljóst að ljósmæður
eru á einu máli um að krefjast
launaleiðréttingar, enda samþykktu
99% þeirra er kusu boðaðar verk-
fallsaðgerðir,“ segir hún en tekur
fram að aðgerðirnar endi með
ótímabundnu verkfalli í lok septem-
ber.
„Okkur er alvara, við viljum af-
stýra vandamálinu til framtíðar með
því að leiðrétta laun ljósmæðra og
það ætlum við okkur að gera,“ segir
Guðlaug en tekur fram að vilji sé að
skrifa undir samning sem flest félög
innan BHM hafa nú þegar sam-
þykkt um 20.300,- króna hækkun
allra grunnlauna. Fjöldapóstur gekk
manna á milli í júní til að vekja at-
hygli á stöðu ljósmæðra og kom
stuðningsfólk saman í kjölfarið við
Stjórnarráð Ísland þar sem ríkis-
stjórnin fundaði. Kennarasamband
Íslands, Læknafélagið og hjúkrunar-
fræðingar hafa einnig lýst yfir
stuðningi við ljósmæður.áb
Kjaranefnd ljósmæðra fundar með ríkissáttasemjara
Alvarleg staða ef ekki semst
Ljósmæður Boða til
verkfalla ef ekki semst.
Lögreglan rannsakar enn
stórfellt smygl á hassi sem
fannst í Norrænu við komu
til Seyðisfjarðar 10. júní síð-
astliðinn. Að Sögn Friðriks
Smára Björgvinssonar, yf-
irlögregluþjóns rannsókn-
ardeildar, er meðal annars
beðið eftir gögnum erlendis
frá og erfitt er að svara til
um hvenær takist að ljúka
rannsókn.
Tveir menn sitja í gæslu-
varðhaldi vegna málsins, Ís-
lendingur og sjötugur Hol-
lendingur. Gæsluvarðhaldið
rennur út 3. september
næstkomandi. fr
Hasshlass í rannsókn
Beðið eftir
gögnum
tækni
SÍÐUMÚLA 37
SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
F
A
R
T
Ö
L
V
U
R
SvarLán er greiðsludreifing
sem viðskiptavinum Svar
tækni býðst til allt að 59
mánaða á kreditkort eða 36
mánaða á kennitölu.
Mánaðargreiðslur eru frá
2.124 kr á mánuði!