Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
„ÞETTA sem við sýndum í þessum
leik var sorglega slappt. Við vorum
bara ekki að gera það sem við ger-
um best og höfðum lagt áherslu á
undanfarnar vikur,“ sagði Einar
Einarsson, þjálfari Grindavíkur.
„Það er eins og oft áður hjá okkur
að einstaklingsframtakið ræður
ríkjum þegar illa gengur. Þá ætla
allir að redda liðinu og bjarga mál-
unum. Og ábyrgðin er mikil hjá er-
lendu leikmönnum liðsins sem voru
ekki að leika vel,“ sagði Einar og
taldi að Darrel Lewis ætti mikið
inni. „Hann leggur sig fram á æf-
ingum og er jákvæður en það er
eins og það gangi ekki neitt upp hjá
honum í leikjunum. Kannski eru all-
ir farnir að lesa hann eins og opna
bók eftir að hann varð íslenskur.
Kannski leikur hann eins og Íslend-
ingur í dag,“ sagði Einar og dæsti.
„Við erum með þetta lið í dag,
kannski er þetta ekki rétta bland-
an, en þetta er liðið og við breytum
því ekkert úr þessu. Ef menn hafa
eitthvað stolt lýsi ég eftir því fyrir
leikinn gegn Keflavík á laugardag-
inn. Það er það eina sem við getum
gert úr þessu. En þessi leikur var
hreint ekki nægilega góður hjá
okkur þrátt fyrir að Keflavík sé
sterkt á heimavelli og hafi ekki tap-
að leik í vetur verðum við að leggja
okkur fram. Það gerðum við ekki
og núna er að bretta upp ermarnar
fyrir næstu rimmu. Það verður ekki
síðasti leikur okkar í vetur,“ sagði
Einar Einarsson, þjálfari Grinda-
víkur, eftir tapið í Grindavík í gær.
Verðum að bretta upp
ermar fyrir næsta leik
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflavík - Grindavík 101:80
Keflavík, úrvalsdeild karla, Intersport-
deildin, úrslitakeppni, fyrsti leikur í 8-liða
úrslitum, fimmtudagur 10. mars 2005:
Gangur leiksins: 4:2, 11:10, 13:15, 17:17,
22:20, 28:22, 40:24, 43: 28, 45:38, 53:43,
55:48, 77:68, 81:68, 86:69, 98:77, 101:80.
Stig Keflavíkur: Anthony Glover 30, Nick
Bradford 26, Gunnar Einarsson 19, Jón
Hafsteinsson 6, Sverrir Sverrisson 6, Arn-
ar Freyr Jónsson 5, Magnús Gunnarsson 5,
Elentínus Margeirsson 2, Gunnar Stefáns-
son 2.
Fráköst: 31 í vörn – 18 í sókn.
Stig Grindavíkur: Jeffrey Boschee 25,
Darrel Lewis 20, Terrel Taylor 12, Páll Ax-
el Vilbergsson 12, Morten Szmicdowicz 6,
Helgi Jónas Guðfinnsson 3, Jóhann Ólafs-
son 2.
Fráköst: 23 í vörn – 14 í sókn.
Villur: Keflavík 24 – Grindavík 24.
Dómarar: Einar Skarphéðinsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson gerðu mörg mistök líkt
og leikmenn beggja liða.
Áhorfendur: Rúmlega 600.
Snæfell - KR 89:91
Stykkishólmur:
Gangur leiksins: 4:0, 8:8, 10:12, 17:12, 21:18,
23:22, 25:25, 28:28, 34:28, 40:28, 42:32,
47:37, 53:46, 53:51, 56:53, 61:55, 63:59,
67:61, 71:65, 73:69, 77:70, 77:76, 80:80,
85:82, 87:88, 89:91.
Stig Snæfells: Hlynur Bæringsson 20,
Mike Ames 17, Sigurður Á. Þorvaldsson 16,
Ingvaldur Magni Hafsteinsson 13, Calvin
Clemmons 13, Pálmi F. Sigurgeirsson 8,
Helgi Reynir Guðmundsson 2.
Fráköst: 23 í vörn – 12 í sókn.
Stig KR: Aaron Harper 36, Cameron Ech-
ols 21, Steinar Kaldal 9, Lárus Jónsson 9,
Hjalti Kristinsson 6, Jón Ólafur Jónsson 6,
Brynjar Þ. Björnsson 4.
Fráköst: 17 í vörn – 4 í sókn.
Villur: Snæfell 18 – KR 22.
Dómarar: Sigmundur M. Herbertsson og
Eggert Aðalsteinsson
Áhorfendur: 224
1. deild karla
Ármann/Þróttur - Þór Þ. ......................84:92
NBA deildin
Leikir í fyrrinótt:
Phoenix - San Antonio ......................107:101
Toronto - Orlando Magic ....................106:96
Boston - Atlanta ....................................95:91
Detroit - Golden State ..........................92:88
New Jersey - New Orleans ..................86:85
Chicago Bulls - Portland...................... 97:84
BLAK
Úrslitakeppni karla, undanúrslit.
ÍS - Stjarnan ..............................................0:3
(19:25, 15:25, 21:25)
Stjarnan komin áfram, 2:0
Fyrsti leikur:
Þróttur R. - HK .........................................0:3
(24:26, 19:25, 16:25)
HK er yfir 1:0.
KNATTSPYRNA
UEFA-bikarinn, 16-liða úrslit, fyrri leikir:
Partizan Belgrad - CSKA Moskva..........1:1
Ivan Tomic, víti, 83. - Eugeni Aldonin 17.
Olympiakos - Newcastle ..........................1:3
Predrag Djordjevic, víti, 16. - Alan Shear-
er, víti, 12., Laurent Robert 34., Patrick
Kluivert 69. Rautt spjald: Grigorios
Georgatos 11., Thanassis Kostoulas 44.,
báðir hjá Olympiakos. - 33.000.
Shakhtar Donetsk - AZ Alkmaar ...........1:3
Francelino Matuzalem 45. - Robin Nelisse
27., Joris Mathijsen 50., Kenneth Perez,
víti, 90. - 19.000.
Austria Vín - Real Zaragoza ...................1:1
Sigurd Rushfeldt 32. - Bortolini Savio 74. -
Lille - Auxerre ..........................................0:1
Middlesbrough - Sporting Lissabon............
Joseph-Desire Job 79., Chris Riggott 86.
- Alexandre Pedro Barbosa 49., Da Silva
Liedson 53., Rodolph Douala 65. - 23.739.
Sevilla - Parma .........................................0:0
Steaua Búkarest - Villarreal ...........frestað
Skandinavíudeildin
1. milliriðill:
Rosenborg - Malmö FF............................2:0
2. milliriðill:
IFK Gautaborg - Brann ...........................2:0
Þeir náðu að minnka muninn afog til í leiknum en að mínu
mati var þetta aldrei í hættu hjá
okkur,“ bætti Gunn-
ar við en hann skor-
aði 19 stig í leiknum
og var ógnandi.
„Núna er
skemmtilegasti tími ársins að byrja,
við höfum fengið hápunkta í vetur
með Evrópuleikjunum og markmið-
ið var að ná góðum leik gegn
Grindavík og slá þá út af laginu. Það
tókst og ég sé ekkert annað í stöð-
unni en að við ljúkum við þetta
verkefni í Grindavík á laugardag-
inn,“ sagði fyrirliðinn og glotti, enda
sigurviss.
Varnarleikur Grindavíkur hefur
ekki verið upp á marga fiska í vetur
og var greinilegt að leikmenn liðsins
ætluðu sér mikið í upphafi leiks og
náðu þeir yfirhöndinni er staðan var
15:13 í fyrsta leikhluta. En Keflvík-
ingar skoruðu sex síðustu stigin í
fyrsta leikhluta og höfðu yfir, 28:22,
og í upphafi annars leikhluta skor-
uðu þeir 12 stig gegn 2 stigum
Grindavíkur og má segja að taflið
væri búið hjá Grindavík.
Terrel Taylor miðherji Grindavík-
ur slapp með ótrúlega fólskulegt
brot í öðrum leikhluta er hann steig
viljandi á Jón N. Hafsteinsson fram-
herja Keflavíkur sem lá flatur á
gólfinu. Mikill hiti hljóp í leikmenn
beggja liða og Taylor lét ekki þar
við sitja þar sem hann lenti í sam-
stuði við Magnús Gunnarsson seint í
leiknum með þeim afleiðingum að
Magnús er líklega nefbrotinn.
Varnarleikur Keflavíkur var að-
alsmerki liðsins að þessu sinni og
Sverrir Sverrisson, Nick Bradford,
Gunnar Einarsson og Arnar Freyr
Jónsson hömuðust í skyttum
Grindavíkur frá upphafi til enda.
Páll Axel Vilbergsson náði sér eng-
an veginn á strik líkt og í úrslita-
keppninni í fyrra þar sem Keflavík
lagði Grindavík í undanúrslitum.
Darrel Lewis er gæðablóð sem læt-
ur skapið aldrei hlaupa með sig í
gönur en hann fær nú lítið gefins
hjá íslenskum dómurum almennt.
Og að mínu mati átti hann að fara
mun oftar á vítalínuna í gær en raun
bar vitni. Leikstjórnandinn Jeffrey
Boschee er með mikið vopnabúr í
sóknarleiknum en hann lenti í villu-
vandræðum og var mikið utan vall-
ar. Boschee á það til að „hanga“ of
mikið á boltanum og flæði sóknar-
leiks Grindavíkur var því lítið og
bitnaði það á heildinni. Títtnefndur
Taylor tók skorpu í fyrri hálfleik en
hann lenti í villuvandræðum og var
lítið með í þeim síðari.
Keflvíkingar eru til alls líklegir í
úrslitakeppninni og leikur liðsins
gekk eins og smurð vél. Það sem
þeir hafa í farteskinu en Grindavík
ekki er að hlutverkaskiptingin í lið-
inu er mun skýrari. Nick Bradford
sér um að skera varnir andstæðing-
anna eins og mjúkt smjör þegar á
þarf að halda og að auki leikur hann
vel í vörninni. Anthony Glover nýtir
kraft sinn undir körfunni og er vel
staðsettur. Sverrir Þór Sverrisson
er líklega þreyttur á því að vera tal-
in vanmetnasti leikmaður deildar-
innar, en hann er einfaldlega góður.
Gunnar Einarsson og Jón Norðdal
Hafsteinsson voru drjúgir í vörn
sem sókn og sá fyrrnefndi skoraði
ýmist með langskotum eða af stuttu
færi. Arnar Freyr Jónsson stjórnaði
leiknum vel er hann var inná og
braut niður vörn Grindavíkur hvað
eftir annað með færni sinni. En
Grindvíkingar reyndu að leika mað-
ur á mann vörn og einnig 3:2 svæð-
isvörn. Sem virkaði engan veginn.
„Þeir geta reynt hvað sem er gegn
okkur á laugardaginn. Við finnum
svör við því, gegn maður á mann
vörninni keyrum við að körfunni og
finnum frían mann. Gegn svæðis-
vörninni látum við boltann ganga og
skorum fyrir utan. Þetta er ekki
flókið,“ sagði Gunnar Einarsson fyr-
irliði Keflavíkur. Í Grindavík geta
menn undirbúið sig undir sumarfrí
á sunnudaginn ef ekki verður gríð-
arleg breyting á leik liðsins og hug-
arfari. Enda langt síðan Grindvík-
ingar hafa mætt eins andlausir til
leiks í grannaslag í Keflavík. Nick Bradford á auðum sjó við körfu
Grindvíkingar
sem börn gegn
meisturunum
„ÉG er ekki að gera lítið úr Grindavíkurliðinu en þetta var frekar
áreynslulaus sigur,“ sagði Gunnar Einarsson fyrirliði Íslandsmeist-
araliðs Keflavíkur eftir 101:80 sigur liðsins í fyrsta leik liðanna í 8
liða úrslitum Intersportdeildarinnar í körfuknattleik karla í gær. Orð
Gunnars segja allt sem segja þarf um leikinn þar sem Grindvíkingar
voru sem börn í höndunum á Keflavík og lykilleikmenn Grindavíkur
sáu vart til sólar.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
„GRINDVÍKINGAR náðu aldrei að ógna
okkur verulega en ég tel að við séum að
leggja sterkt lið að velli á heimavelli,“
sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Íslandsmeistara Keflavíkur, eftir leikinn
gegn Grindavík og var ekki sammála því
að liðið hefði átt náðugan dag þrátt fyrir
21 stigs sigur enda skildi ekki verulega á
milli liðanna fyrr en komið var fram í síð-
ari hálfleik.
„Við vorum rosalega einbeittir í öllu
því sem við vorum að gera. En við gerð-
um okkur grein fyrir því að það mátti
aldrei slaka á gegn þeim og þeir náðu
aldrei þessum skorpum sem þeir eru
frægir fyrir. Að auki fundum við lausnir
á þeim vandamálum sem eru sett upp
gegn okkur. Það tók nokkrar sóknir að
finna taktinn gegn svæðisvörninni og
finna rétta blöndu af leikmönnum gegn
slíkri vörn. En ég tel að leikurinn á laug-
ardaginn verði góð skemmtun og það er
okkar markmið að ljúka við þetta verk-
efni á laugardaginn,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, ein-
beittur á svip.
Skiljum þetta eftir nú
þegar leiknum er lokið
Sigurður vildi ekki tjá sig um atvikið
sem átti sér stað í fyrri hálfleik er Terrel
Taylor traðkaði á Jóni Hafsteinssyni.
„Það atvik skiljum við eftir í þessum leik
sem er lokið,“ sagði Sigurður Ingimund-
arson og þar með var málið afgreitt af
hans hálfu opinberlega.
Ljúkum verkefn-
inu á laugardag
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin,
8 liða úrslit, fyrstu leikir:
Grafarvogur: Fjölnir - Skallagrímur...19.15
Njarðvík. UMFN - ÍR...........................19.15
1. deild karla:
Ásgarður: Stjarnan - Valur ..................19.15
Höllin Akureyri: Þór A. - Breiðablik ........19
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Kaplakriki: FH - Afturelding...............19.15
Selfoss: Selfoss - Fram .........................19.15
Seltjarnarnes: Grótta/KR - Stjarnan ..18.30
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni kvenna:
Fífan: Breiðablik - KR ...............................21
Í KVÖLD
Njarðvík endaði í þriðja deildarinnar og á í höggi
ÍR sem endaði í því sjötta. Re
segir að ÍR-liðið
afar köflótt og
sjaldan tvo g
leiki í röð. „Nj
víkingar eru að s
í getraunum eða lottóinu með þv
fá tvo nýja bandaríska leikmen
liðsins rétt fyrir úrslitakeppn
Ég tel hinsvegar að sá kjarni
lenskra leikmanna sem ber u
leik liðsins sé nógu góður til þes
„Njarðvík og Fj
Njarð
ÁTTA liða úrslit úrvalsdeildar
halda áfram í kvöld en þá eig
sem leikur gegn ÍR. En í Grafa
Fjölnir og Skallagrímur. Reyn
liðsins, spáir því að til oddale
um og þar muni heimavölluri
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
UM helgina taka tólf fatlaðir ís-
lenskir sundmenn þátt í opna
danska meistaramótinu í sundi en
mótið fer fram í Esbjerg. Ljóst er
að nú eru að eiga sér stað kyn-
slóðaskipti meðal fatlaðra sund-
manna og verður því fróðlegt að sjá
hver frammistaða íslensku kepp-
endanna verður. Þessir ein-
staklingar taka þátt í mótinu: Í
flokki þroskaheftra: Gunnar Örn
Ólafsson, Jón Gunnarsson, Adrian
Oskar Erwin, Skúli Steinar Pét-
ursson, Bára B. Erlingsdóttir, Úr-
súla K. Baldursdóttir, Hulda Hrönn
Agnarsdóttir, Lára Steinarsdóttir.
Í flokki hreyfihamlaðra: Pálmi
Guðlaugsson, Sonja Sigurðardóttir,
Jóna Dagbjört Pétursdóttir, Guð-
rún Lilja Sigurðardóttir.
Sundmenn
til Esbjerg