Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 C 3
„VIÐ vinnum þá á laugardaginn, ef ekki, þá verðum við
að sætta okkur við það að þeir séu bara einfaldlega betri.
Við munum leggja allt undir í næsta leik, verðum að
sigra á útivelli ef við ætlum okkur áfram í úrslitakeppn-
inni. Í þessum leik voru þeir góðir og áttu skilið að vinna
leikinn sagði besti maður Snæfells í leiknum, Hlynur E.
Bæringsson, eftir leikinn við KR í Stykkishólmi í gær.
Herbert kampakátur
„Nú féll sigurinn okkar megin, eftir að Snæfell hafði
verið heppið í undanförnum leikjum, en leikirnir á milli
liðanna hafa verið mjög spennandi,“ sagði kampakátur
þjálfari KR, Herbert Arnarsson, í leikslok.
„Í fyrra byrjuðum við eins í úrslitakeppninni með því
að vinna Grindavík á útivelli en tapa síðan næstu tveimur
leikjum og falla úr úrslitakeppninni. Við verðum að ein-
beita okkur að heimavellinum á laugardaginn, fara með
því hugarfari að staðan sé 0:0, því Snæfell er með mjög
sterkt lið og verða erfiðir,“ bætti brosandi þjálfari KR-
inga við.
Vinnum þá
á laugardag
TALSMAÐUR Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA,
staðfesti í gær að það hefði til rannsóknar mál sem
grunur leikur á að hafi komið upp á Stamford Bridge
eftir leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu
í knattspurnu í fyrrakvöld. Ekki greindi hann frá því
nákvæmlega hvaða mál væri verið að skoða en líklegt
þykir að það séu atriði sem hefur verið fjallað um í fjöl-
miðlum upp á síðkastið.
Meðal þeirra er að Samuel Eto’o heldur því fram að
starfsmaður á vellinum hafi ráðist að sér eftir leikinn
og kallað sig apa. Einnig herma fregnir að Frank
Rijkaard, þjálfari Barcelona, og Ronaldinho hafi lent í
stimpingum í gangi við einhverja sem tengjast Chelsea
áður en þeir komust að búningsklefa sínum. Greinilegt
er á myndum frá leiknum að þeir voru afar ósáttir þeg-
ar þeir gengu af velli.
„Við höfum fengið skýrslu frá dómara og eftirlits-
manni um leikinn og ætlum að fara ofan í saumana á
ýmsum málum,“ segir talsmaður UEFA, Willuam Gaill-
ard, í samtali við Sky fréttastofuna í gær.
UEFA rannsakar
atvik á „Brúnni“
Fyrsti leikhluti var í járnum aðmestu þó heimamenn hefðu oft-
ar en ekki yfirhöndina, en jafnt var í
lok fjórðungsins. Á
fyrstu fjórum mínút-
um annars leikhluta
fóru heimamenn
hreinlega á kostum,
léku frábæra vörn, keyrðu upp mik-
inn hraða og skorðuð 15 stig gegn 3
stigum gestanna. Héldu margir að
Snæfell ætlaði að sýna KR-ingum í
tvo heimana og kafsigla þá, en gest-
irnir náðu andanum og komu síðan
hægt og rólega til baka með Aaron
Harper fremstan í flokki. Náðu
muninum niður í sjö stig í hálfleik,
53:46. Vesturbæingarnir byrjuðu
þriðja fjórðung mjög vel, héldu
áfram að saxa á forskot heima-
manna og náðu muninum í tvö stig
fljótlega í síðari hálfleik. Ef ekki
hefði komið til góður kafli hjá Hlyni
Bæringssyni á þessum tíma með
nokkra stolna bolta, hefðu gestirnir
ugglaust náð forustunni. Í lok þriðja
fjórðungs hafði Snæfell enn sex
stiga forskot á gestina og allt gat
gerst í síðasta leikhluta. Baráttan
hélt áfram og leikmenn beggja liða
fóru að komast í villuvandræði, en
Cameron Echols og Hjalti Kristins-
son KR-ingar voru þeir einu sem
fengu fimm villur og það í blálokin á
leiknum. Á loka mínútunum var
sama spennan og hefur verið í leikj-
um þessara liða í vetur, gestirnir ná
að jafna 80:80 þegar fjórar og hálf
mínúta eru eftir, en heimamenn ná
aftur forustunni, þar til tæpar tvær
mínútur lifa leiks þá komast KR-
ingar yfir, 87:88, í fyrsta skipti síðan
í fyrsta leikhluta, Hlynur skoraði
tvö stig og staðan 89:88, 25 sek-
úndur eftir, Harper gerði þrjú stig,
89:91, sjö sekúndur eftir. Snæfell
hóf sókn sem endar með því að
Hlynur Bæringsson fékk tvö víta-
skot þegar tæp sekúnda var eftir,
hann missti marks í fyrra skot og
varð því að freista þess að Snæfell
næði frákastinu og skoraði, en KR-
ingar tóku frákastið og fögnuðu
gríðarlega mjög góðum sigri á liði
Snæfells.
KR-liðið lék vel í kvöld með Harp-
er og Cameron Echols sem algjöra
yfirburðamenn í liðinu, þeir tveir
skoruðu 57 stiga af 91 þ.e. 63% stiga
liðsins og tóku 15 fráköst af 21 frá-
kasti sem KR náði. Án þessa mikla
framlags þessara tveggja leikmanna
er öruggt að KR hefði ekki unnið.
Í liði Snæfells lék Hlynur mjög
vel, með tuttugu stig, 10 fráköst og
marga stolna bolta. Þetta var hans
besti leikur í langan tíma og var öðr-
um leikmönnum góð fyrirmynd. Sig-
urður Á. Þorvaldsson átti skínandi
fína kafla í leiknum þó svo að
meiðsli hafi verið að hrjá hann síð-
ustu viku. Ingvaldur Magni Haf-
steinsson stóð sig einnig mjög vel,
lék fínan varaleik. Calvin Clemmons
fór mikinn í fyrri hálfleik, skoraði
grimmt og reif niður fráköst, en í
þeim síðari týndist hann svolítið.
Pálmi Freyr Sigurgeirsson var
traustur eins og hans er von og vísa.
Mike Ames hefur oft gert betur.
Hjá KR fór Harper hreinlega á
kostum. Cameron Echols var í
heildina mjög góður, góður sóknar-
maður og drjúgur í vörninni. Stein-
ar Kaldal átti fínan dag, alltaf mikil
barátta hjá honum í vörninni og síð-
an sí ógnandi í sókninni. Lárus
Jónsson stýrði leik liðsins prýðilega,
fljótur með boltann og ekki má líta
af honum í skotfæri. Snæfellingur-
inn Jón Ólafur Jónsson reyndist sín-
um fyrri félögum erfiður á köflum.
Hjalti Kristinsson var óheppinn,
fékk fljótt þrjár villur.
KR-sigur í
fyrstu lotu
KR sigraði Snæfell með 91 stigum gegn 89 í úrslitakeppni Inter-
sport-deildarinnar í Stykkishólmi í gærkvöldi. Þessi fyrsta rimma í
úrslitakeppninni á milli Snæfells og KR var góð skemmtun eins allir
leikir þessara liða hafa verið í vetur. Það var ljóst á öllu fasi leik-
manna fyrir leik og í upphafi leiks að þetta var alvaran. Leikurinn fór
mjög vel af stað, mikill hraði, hörku varnarleikur beggja liða og góð
tilþrif í sókninni. Staðan í hálfleik var 53:46, Snæfelli í vil.
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
Ljósmynd/Víkurfréttir
u Grindvíkinga án þess að Morten Szmiedowicz fái vörnum við komið.
KRISTJÁN Örn Sigurðsson og
Ólafur Örn Bjarnason léku allan
leikinn fyrir Brann þegar liðið tapaði
fyrir IFK Gautaborg, 2:0, í Skandin-
avíudeildinni í knattspyrnu í gær-
kvöldi, en leikið var í Gautaborg.
ÍSLAND tapaði fyrir Frakklandi
10:8 á EM í snóker í gær. Jóhannes
B. Jóhannesson vann einn leik og
gerði tvö jafntefli, Brynjar Valdi-
marsson vann einn, gerði eitt jafn-
tefli og tapaði einum og Gunnar
Hreiðarsson gerði eitt jafntefli og
tapaði tveimur.
RENATE Götschl frá Austurríki
sigraði á heimsbikarmóti í bruni sem
fram fór í Lenzerheide í Sviss í gær
en hún tryggði sér þar með sigur í
samanlögðum árangri í brunmótum
heimsbikarsins. Ingrid Jacquemod
frá Frakklandi varð önnur og Hilde
Berg frá Þýskalandi þriðja.
PAOLO Di Canio, hinn litskrúðugi
sóknarmaður Lazio, var í gær sekt-
aður um jafnvirði 900.000 króna fyrir
að ögra stuðningsmönnum Roma
með því að heilsa þeim með nasista-
kveðju í lok leiks liðanna í janúar sl.
CHELSEA og Blackburn voru í
gær sektuð um samtals nærri 3 millj.
króna af enska knattspyrnusam-
bandinu í gær vegna slagsmála sem
brutust út á milli leikmanna liðanna
á Ewood Park 2. febrúar. Jafnframt
voru félögin vöruð við því að harðar
verði tekið á málum ef svipaðar
uppákomur eiga sér í framtíðinni.
OLYMPIAKOS missti tvo leik-
menn af velli með rautt spjald í fyrri
hálfleik gegn Newcastle í fyrri leik
liðanna í 16-liða úrslitum UEFA-
keppninnar í knattspyrnu. Grigorios
Georgatos fauk út af á 11. mínútu
eftir að hafa brotið illa af sér á Kier-
on Dyer sem var einn fyrir opnu
marki. Rúmum hálftíma síðar var
Thanassis Kostoulas einnig sendur
snemma í bað þegar hann fékk ann-
að gult spjald.
ALAN Shearer skoraði fyrsta
mark Newcastle, sem vann 3:1, úr
vítaspyrnu á 12. mínútu og hin tvö
mörkin gerðu Laurent Robert og
Patrick Kluivert og stendur lið
þeirra vel að vígi fyrir síðari leikinn á
heimavelli í næstu viku.
THIERRY Henry, framherji Ars-
enal, leikur ekki með liðinu næstu
þrjár vikur. Hann meiddist í kálfa í
leiknum Bayern München á mið-
vikudaginn. Henry verður þar með
fjarri góðu gamni þegar Arsenal
leikur við Bolton í 8-liða úrslitum
bikarkeppninnar á morgun.
DAVID Unsworth hefur verið
sviptur ökuleyfi næstu tvö árin eftir
að hafa verið stöðvaður mjög ölvaður
undir stýri fyrir skömmu. Áfengis-
magn í blóði hans reyndist þrefalt
hærra en leyfilegt er. Unsworth
leikur um þessar mundir með Ips-
wich.
FÓLK
að leikstjórnendur liðanna eigi eftir
að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til þess að bera sína menn í
gegnum þessa leiki. „Það verður
gaman að fylgjast með einvígi Jeb
Ivey hjá Fjölni og Clifton Cook hjá
Skallagrím. Þeir elska að taka af
skarið þegar mest á reynir og þeir
eru einnig góðir í að gera aðra betri
í sínum liðum. Baráttan í teignum
verður einnig hörð enda eru bæði
lið með tvo bandaríska leikmenn og
framherja frá Evrópu. Íslensku
leikmennirnir í þessum liðum geta
líka haft úrslitaáhrif en það hefur
loðað við Skallagrímsmennina að
þeir eru gríðarlega sterkir á heima-
velli en þeir hafa að ég held aðeins
unnið tvo leiki á útivelli í vetur.
Fjölnir vinnur þetta einvígi, 2:1,“
sagði Reynir Kristjánsson.
en þeir geta síðan verið arfaslakir á
útivelli. Að mínu mati verður Eirík-
ur Önundarson að eiga stórleiki
ætli liðið sér að komast áfram í
undanúrslit, en ég spái því að það
verði oddaleikur í Njarðvík og þar
fara Njarðvíkingar áfram,“ sagði
Reynir.
Ivey hefur betur gegn Cook
Nýliðar Fjölnis úr Grafarvogi og
Skallagríms úr Borgarnesi eigast
við í fyrsta leiknum í Reykjavík.
Liðin hafa vissulega komið á óvart í
vetur og Fjölnismenn töpuðu í bik-
arúrslitaleiknum gegn Njarðvík á
dögunum. „Hér eru áþekk lið að
mætast að mínu mati og heimavöll-
urinn mun skipta öllu máli. Fjölnir
vinnur þessa rimmu í oddaleik,“
segir Reynir en hann bætir því við
leggja ÍR að velli. Þannig að
Bandaríkjamennirnir þurfa ekki að
taka of mikla ábyrgð í sínar hendur
strax. Brenton Birmingham lék í 40
mínútur gegn okkur Haukamönn-
um í lokaumferðinni og sló ekki feil-
nótu. Og ungir leikmenn á borð við
Guðmund Jónsson eiga það til að
detta í stuð í stórleikjum og með
Friðrik Stefánsson og Pál Kristins-
son sér við hlið geta þeir unnið alla.
ÍR-ingar eru eins og áður segir
brothættir. Þeir vinna oft á heima-
velli sínum í Seljaskóla, Hellinum,
sæti
i við
ynir
ð sé
eigi
góða
arð-
spila
ví að
n til
nina.
i ís-
uppi
ss að
jölnir hafa betur í oddaleikjum,“ segir Reynir Kristjánsson
ðvík í getraunum
r karla í körfuknattleik, Intersportdeild,
ast við bikarmeistaralið Njarðvíkur
arvogi eigast við nýliðar deildarinnar,
nir Kristjánsson, fyrrum þjálfari Hauka-
eikja komi í báðum þessum viðureign-
nn vega þungt.