Morgunblaðið - 15.07.2005, Side 1
2005 FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
EYJAMENN Í SLÆMUM MÁLUM EFTIR JAFNTEFLI / C2
HEIÐAR Davíð Bragason hefur leikið manna best á
Meistaramótum klúbbanna sem nú standa sem hæst.
Hann er í GKj í Mosfellsbæ og er á fimm höggum undir
pari eftir fyrst tvo dagana, lék fyrsta daginn á 69 högg-
um og í gær var hann á 70 höggum. Ingi Rúnar Gísla-
son golfkennari hjá GKj er annar þar á bæ á tveimur
höggum undir pari og Sigurpáll Geir Sveinsson er
þriðji á einu höggi undir pari. Fínt skor í Mosfells-
bænum. Mikil keppni er í kvennaflokki þar sem Helga
Rut Svanbergsdóttir og Nína Björk Geirsdóttir eru
báðar á 160 höggum og Katrín Dögg Hilmarsdóttir
þremur höggum þar á eftir.
Ólafur Már Sigurðsson er með forystu hjá GR, lék
hringina tvo á einu höggi undir pari og höggi á eftir
honum á pari er Sigurjón Arnarsson. Fimm höggum
þar á eftir koma þrír kylfingar. Ragnhildur Sigurð-
ardóttir er með fimm högga forystu í kvennaflokki hjá
GR. Anna Lísa Jóhannesdóttir er önnur og Helena
Árnadóttir þriðja, fimm höggum á eftir Önnu Lísu.
Heiðar Davíð fimm
höggum undir pari
Þegar Morgunblaðið náði tali afKristjáni voru leikmenn enn
að jafna sig eftir leikinn en að sögn
Kristjáns var hitinn næst því að
vera óbærilegur.
„Menn eru algerlega búnir eftir
leikinn, leikmennirnir hafa verið að
þamba vatn og orkudrykki til að
halda sér á löppunum. Tveir leik-
manna minna voru komnir með
svima í hálfleik þannig að þetta var
mjög erfitt,“ sagði Kristján en var
þrátt fyrir þreytu afskaplega
ánægður með sigurinn og sagði að
forskotið ætti að duga þeim til að
komast áfram.
„Það er ekki hægt að neita því að
gott er að fara heim með fjögurra
marka forskot og við hefðum jafn-
vel getað skorað fleiri mörk á þá
enda stjórnuðum við þessu öllu
saman í síðari hálfleik.
Það er líka alveg ljóst að ef við
verðum vakandi í seinni leiknum þá
ættum við að vera komnir áfram,
það verður alla vega erfitt að
kyngja því að tapa með fimm mörk-
um heima.“
Tókum til hjá
okkur í hálfleik
Kristján sagði leikmenn Etzella
hafa virkað stressaða og þegar
Hörður skoraði fyrsta markið hefðu
þeir farið að efast um sjálfa sig. Et-
zella hefði samt verið meira með
boltann.
„Þetta byrjaði frekar jafnt og
virtist sem stress væri í báðum lið-
um. Þeir fengu snemma gott færi
þegar sóknarmaður þeirra komst
einn inn fyrir vörnina en Ómar
varði vel með úthlaupi. Boltinn
hrökk þá til Gests sem gaf langa
sendingu inn fyrir vörn þeirra,
Hörður hljóp boltann uppi og klár-
aði færið. Þetta var klárlega vendi-
punktur í leiknum en þrátt fyrir
það þróaðist leikurinn þannig að
þeir voru meira með boltann. Í
hálfleik tókum við aðeins til hjá
okkur og löguðum það sem aflaga
fór og í seinni hálfleiknum steinlá
þetta,“ sagði Kristján sem bjóst við
sterkara liði og ekki við svo stórum
sigri.
„Ég vissi að vísu ekki mikið um
þetta lið. Vissi að þeir eru með sex
landsliðsmenn frá Lúxemborg og
bjóst við þeim sterkum. Þeir fengu
líka færi en vörnin hjá okkur var
mjög grimm og Ómar var að verja
vel. Þá átti Hörður mjög góðan
leik, skapaði sér góð hlaup og las
varnarlínuna mjög vel. Hann hefði
alveg getað skorað tvö og jafnvel
þrjú mörk í viðbót.“
„Stjórnuð-
um þessu
öllu saman“
BIKARMEISTARAR Keflavíkur gerðu góða ferð til Lúxemborgar og
lögðu Etzella 4:0 í forkeppni UEFA-keppninnar í gærdag. Hörður
Sveinsson átti stórleik og skoraði öll mörk Keflvíkinga, það fyrsta
á tíundu mínútu - þannig var staðan í hálfleik - og bætti svo við
þremur mörkum á síðustu þrjátíu mínútunum. Kristján Guðmunds-
son, þjálfari Keflvíkinga, hefur því draumastöðu fyrir síðari leikinn
sem fram fer á Laugardalsvelli 28. júlí.
Keflvíkingar unnu stórsigur
á Etzella frá Lúxemborg
Hörður Sveinsson skoraði
öll fjögur mörk Keflvíkinga.
Ljósmynd/Frosti
Ólafur Már Sigurðsson er með eins höggs forystu eftir tvo daga á Meistaramóti GR en meist-
aramót klúbbanna hér á landi standa nú yfir. Hér einbeitir hann sér að pútti á Korpunni.
ENSKA úrvalsdeildarfélagið Ars-
enal samþykkti í gær tilboð
ítalska stórliðsins Juventus í fyr-
irliða liðsins, Patrick Vieira. Upp-
hæðin hljóðar upp á tuttugu millj-
ónir evra, eða um einn og hálfan
milljarð íslenskra króna. Vieira,
sem er 29 ára, gengst undir lækn-
isskoðun í Tórínó í dag og ef allt
gengur að óskum mun hann
skrifa undir fimm ára samning
við Ítalíumeistarana í kjölfarið.
Juventus greiðir Arsenal tíu millj-
ónir evra eftir að leikmaðurinn
skrifar undir samningi, fimm
milljónir 14. ágúst 2006 og fimm
milljónir ári síðar.
Vieira var keyptur til Arsenal
árið 1996 frá AC Milan og var
fyrsti leikmaðurinn sem Arsene
Wenger, knattspyrnustjóri liðs-
ins, keypti. Vieira hefur verið lyk-
ilmaður í liðinu síðan og unnið
þrjá Englandsmeistaratitla, árin
1998, 2002 og 2004. „Eftir að hafa
verið í níu ár hjá félaginu er gíf-
urlega erfið ákvörðun að fara, en
ég varð að hugsa um framtíð
mína,“ var haft eftir Vieira á vef-
svæði Arsenal. Hann sagðist
þurfa að vaxa og mæta nýjum
áskorunum og Juventus hentaði
honum vel. „Ákvörðunin var erfið
en ég er sáttur við hana.“
Hjá Juventus eru fyrir sam-
herjar Vieira hjá franska lands-
liðinu, David Trezeguet og Lillian
Thuram.
Arsene Wenger sagðist deila
sorginni með áðdáendum liðsins.
„Patrick var frábær leikmaður
fyrir félagið, einn af betri í sög-
unni og mér finnst við eiga sér-
stakt samband þar sem ég fékk
hann til liðsins. Ég held að áhrif
hans, ekki aðeins á Arsenal held-
ur enska knattspyrnu, séu gíf-
urleg,“ sagði Wenger.
Arsenal samþykkir tilboð í Vieira