Fréttablaðið - 23.11.2002, Page 8
8 23. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
BERLINGSKE TIDENDE
Í leiðara danska dagblaðsins
Berlingske Tidende er samþykkt
Nató um að bjóða Eystrasaltslönd-
unum þremur ásamt fjórum öðr-
um fyrrverandi Austantjaldsríkj-
um aðild sögð vera ótvíræður sig-
ur fyrir bandalagið. Með þessu er
„endanlega hreinsað til eftir
Kalda stríðið.“ Ekki er langt síðan
menn fullyrtu að Nató væri orðið
óþarft vegna þess að óvinurinn
væri horfinn. „Vonandi fylgjast
þeir, sem létu sér slíkt léttúðar-
hjal um munn fara, vel með núna,
þegar sögulegir viðburðir ger-
ast,“ segir leiðarahöfundurinn.
INT. HERALD TRIBUNE
Ógnin sem stafar af hryðju-
verkum hefur verið í brennidepli
leiðtogafundarins í Prag. Enginn
hefur samt „ennþá gefið góða
skýringu á því hvað Nató getur
gert til þess að koma í veg fyrir
árásir herskárra múslima sem
eru staðráðnir í að refsa Vestur-
landabúum fyrir það sem sagan
hefur gert heimi múslima,“ segir
dálkahöfundur í dagblaðinu
International Herald Tribune,
sem gefið er út í París. Þótt hægt
sé með hervaldi að fella talibana-
stjórnina í Afganistan og hugsan-
lega einnig stjórn Saddams
Hussein í Írak, þá „geta hersveit-
ir ekki leyst hryðjuverkavand-
ann.“ Þvert á móti geti stríð gegn
Írak orðið til þess að hættan á
hryðjuverkum verði meiri.
FRANKFURTER RUNDSCHAU
Leiðarahöfundur þýska dag-
blaðsins Frankfurter Rundschau
segir engan vafa leika á því, að
bregðast verði við nýjum hættum
frá hryðjuverkamönnum og
glæparíkjum með hernaðar-
mætti. „Spurningin er bara hvort
Nató er rétta tækið til þess.“ Sér-
staklega spyr hann þó hvort Nató
geti breytt algerlega um stefnu
„án þess að spyrja íbúa aðildar-
ríkjanna?“ Hinar nýju viðbragðs-
sveitir Nató segir leiðara-
höfundur vera annað og meira en
nauðsynlegt framhald á því sem
Nató hefur verið að gera hingað
til, fyrsta skrefið í áttina að því að
finna nýtt hlutverk handa NATO.
Til þess verði bandalagið að hafa
ótvírætt umboð þjóðanna sem að
því standa. ■
Á Nató að taka að sér nýtt hlutverk?
Leiðtogafundur Nató í Prag er sagður vera
mikill sigur. Jafnframt vakna spurningar um
það hvort hernaðarbandalag geti útrýmt
hættunni á hryðjuverkum og hvort ekki
þurfi að fá umboð þjóðanna þegar Nató
tekur sér nýtt hlutverk.
Úr leiðurum
DÓMSMÁL Mál sjúkraflutninga-
mannsins sem dæmdur hefur ver-
ið í 9 mánaða fangelsi fyrir þuklað
á kynfærum og sleikja brjóst
sjúklings í sjúkrabíl, er mannleg-
ur harmleikur að sögn Jóns Við-
ars Matthíassonar, aðstoð-
arslökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins.
„Það eru allir harmi slegnir,“
segir Jón Viðar, en fundað var
með starfsmönnum eftir að dóm-
urinn var kveðinn upp. „Þetta er
mannlegur harmleikur fyrir alla
aðila, bæði geranda og þolanda.“
Forsvarsmenn slökkviliðsins
hafa ekki rætt við konuna eftir at-
burðinn. Jón Viðar segir að þeir
hafi ekki mátt gera það meðan
málið hafi verið í rannsókn, en úti-
lokaði ekki að það yrði gert.
Reyndar hafi konan lýst því yfir
að hún sé ekki reið út í starfsem-
ina sjálfa heldur bara þetta ein-
staka atvik.
Aðspurður sagði Jón Viðar að
farið væri út í ýmis siðfræðileg
vandamál í námi sjúkraflutninga-
manna og engin breyting yrði á
náminu í kjölfar þessa dóms. Það
væri byggt á bandarísku kennslu-
efni og svona mál væru þekkt þar
í landi.
Jón Viðar segir að nú fari í
hönd erfiður tími hjá sjúkraflutn-
ingamönnum. Þeir þurfi að losna
undan þeim skugga sem þetta mál
hafi varpað á starf þeirra. Hann
segir að slökkviliðið hafi sinnt
þessari þjónustu síðan árið 1920
og þetta sé í fyrsta skiptið sem
mál af þessu tagi komi upp.
Slökkviliðið hafi verið lánsamt
með sína starfsmenn og þeir séu
vanari því að fá þakklæti fyrir
störf sín en gagnrýni eða óþakk-
læti.
„Okkar ósk er að fólk hjálpi
okkur að glíma við þetta og kom-
ast í gegnum þetta erfiða tímabil.“
Í kjölfar dómsins var dæmda
manninum vikið úr starfi hjá
Slökkviliðinu. Í mars, þegar málið
kom upp, var hann leystur tíma-
bundið undan starfsskyldum sín-
um.
trausti@frettabladid.is
Sjúkraflutninga-
menn vilja hjálp
Dómsmál sjúkraflutningamannsins er mannlegur harmleikur, segir að-
stoðarslökkviliðsstjóri. Siðfræðikennslu sjúkraflutningamanna verður
ekki breytt. Hugsanlega verður rætt við fórnarlambið.
ERFIÐIR TÍMAR FRAM UNDAN
Jón Viðar Matthíasson aðstoðarslökkviliðsstjóri segir að nú fari í hönd erfiður tími hjá sjúkraflutningamönnum. Þeir þurfi að losna undan
þeim skugga sem dómsmál sjúkraflutningamannsins, sem sakfelldur var fyrir að sleikja brjóst sjúklings, hafi varpað á starf þeirra.
Í HRÓKASAMRÆÐUM
Davíð Oddsson forsætisráðherra spjallaði
svolítið við ítalskan starfsbróður sinn, Silvio
Berlusconi, meðan leiðtogar Natóríkjanna
voru að stilla sér upp fyrir myndatöku í
Prag í gærmorgun.
Leiðtogafundur
Nató í Prag:
Horft
lengra til
austurs
PRAG, AP Leiðtogar Nató áttu í gær
fund með leiðtogum samstarfs-
ríkja bandalagsins, meðal annars
leiðtogum Mið-Asíuríkja sem hafa
veitt aðstoð sína í stríðinu við
hryðjuverkamenn í þeim heims-
hluta.
Robertson lávarður, fram-
kvæmdastjóri Nató, sagði að rætt
hefði verið um nýja „umgjörð“ að
betri samvinnu bandalagsríkj-
anna og 27 samstarfsríkja þeirra í
Evrópu-Atlantshafssamvinnuráð-
inu.
„Við þurfum að sýna hug-
rekki,“ sagði Robertson. Ekki
megi lengur einblína á hefðbund-
in hlutverk ríkjanna, heldur taka
mið af nýjum aðstæðum. „Við
stöndum öll frammi fyrir nýjum
hættum.“
Vladimír Pútín, forseti Rúss-
lands, var ekki á þessum fundi
þrátt fyrir að Rússland taki þátt í
samstarfinu með Nató. Þess í stað
fór George W. Bush Bandaríkja-
forseti í gær í heimsókn til Pútíns
að loknum fundinum í Prag.
Daginn áður höfðu leiðtogar
Nató samþykkt að fjölga aðildar-
ríkjum bandalagsins um sjö. Auk
þess samþykktu þeir að koma á
fót sérstökum viðbragðssveitum,
tuttugu þúsund manna herliði sem
á að geta brugðist snöggt við
óvæntum ógnum á borð við
hryðjuverk. ■
Starfandi fólki fækkar:
Atvinnu-
leysi 3,2%
VINNUMARKAÐUR Enginn breyting
hefur orðið á fjölda atvinnulausra
samkvæmt vinnumarkaðsrann-
sókn Hagstofunnar í nóvember.
Nú eru 3,2% vinnuafls án atvinnu.
Það jafngildir því að 5.200 ein-
staklingar séu án vinnu. Færri eru
við störf nú í landinu en á sama
tíma í fyrra. Fækkun starfandi
fólks er 3.200 manns. Atvinnu-
þátttaka hefur lækkað úr 83,6% í
82,8% á einu ári.
Þeir sem hafa vinnu vinna ör-
lítið meira nú að meðaltali en í
fyrra. Meðalfjöldi vinnustunda á
viku var 43 tímar, en 42,8 tímar
fyrir ári. ■
AP
/M
YN
DÉg hef búið í Reykjavík allamína hunds og kattar tíð. Er
ég þess minnugur þegar ég gekk
innan um iðandi mannlíf Lauga-
vegarins þar sem verzlun og við-
skipti blómstruðu. Fyrir
nokkrum árum gerðist það svo að
verzlun dróst saman í harðnandi
samkeppni við verzlunarmið-
stöðvar o.fl. Ég er þess einnig
minnugur að nafn og andlit kaup-
manns á Laugaveginum, Ásgeirs
Bolla Kristinssonar, oft kenndur
við verzlunina 17, varð sífellt
meira áberandi. Hann fór fyrir
einhverjum samtökum, sem mig
minnir að hafi verið nefnd
Laugavegssamtökin, og ætluðu
að snúa við blaðinu. Alls kyns til-
lögur, teikningar, ræður, blaða-
greinar o.s.frv. o.s.frv. komu frá
þessum kaupmanni.
Mér er í dag spurn: Hvaða ár-
angri hefur hann náð við að end-
urreisa verzlun á Laugavegin-
um? ■
Hvar eru
Laugavegs-
samtökin?
Einar Einarsson skrifar:
Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert
bréf sé ekki lengra en sem nemur
hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að
senda bréfin í tölvupósti, rit-
stjorn@frettabladid.is, hringja í
síma 515 7500, faxa í síma 515 7506
eða senda bréf á Fréttablaðið,
Þverholti 9, 105 Reykjavík.
LESENDABRÉF
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T