Fréttablaðið - 23.11.2002, Qupperneq 20
Leikarinn Rupert Grint, sem leik-ur Ron í Harry Potter-myndun-
um, segist hafa verið látinn sitja eft-
ir í skólanum daginn eftir frumsýn-
ingu nýju myndarinnar. Hann segist
hafa gleymt að koma með leikfimis-
dótið sitt þrisvar í röð og því hafi
hann verið látinn þrífa leikfimis-
skápana í skólanum. Rupert er fjórt-
án ára og segist ekki þola að þurfa
að fara aftur í skólann á milli þess
sem myndirnar eru gerðar.
Múltímilljónerinn og söngkonanMadonna þurfti að slá lán á
veitingastað í London nýlega þegar
hún komst að því að
hún átti ekki fyrir
kökusneiðinni sem
hún hafði keypt
handa syni sínum,
Rocco. Systur sem
voru staddar á veit-
ingastaðnum, Mimi
og Titi Negussie,
sögðu söngkonuna
hafa komið til sín og sagt: „Þið virð-
ist vera gott fólk. Getið þið lánað
mér peninga vegna þess að ég
gleymdi seðlaveskinu mínu.“ Titi,
sem þekkti ekki söngkonuna, rétti
henni tvö pund svo hún gæti borgað
reikning upp á 5,25 pund, en söng-
konuna vantaði 1,25 pund upp á.
Madonna var efst á lista Sunday
Times yfir tekjuhæstu tónlistar-
menn heims, með tæpa 5 milljarða
íslenskra króna í árstekjur. Talsmað-
ur Madonnu sagði að systurnar
fengju sendan disk og ávísun fyrir
greiðann við söngkonuna.
Ewan McGregor hefur fengiðhlutverk í nýrri rómantískri
kvikmynd, Flora Plum, sem leikstýrt
er af Judy Foster.
Russell Crowe
hafði ætlað að leika
í myndinni en
þurfti að hætta við
vegna þess að hann
er slasaður á öxl.
Meryl Streep og
Claire Danes hafa
einnig verið orðað-
ar við myndina. Upptökur hefjast
seint á næsta ári eða í byrjun ársins
2004.
20 23. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
MR. DEEDS kl. 2
STÚART LITLI 2 kl. 2
LITLA LIRFAN kl. 2 og 3
ONE HOUR PHOTO 5.50, 8 og 10.10
ROAD TO PERD... kl. 2.30, 7.30 og 10
ROAD TO PERD... kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 2, 6, 8 og 10
kl. 10.20Í SKÓM DREKANS
kl. 4FÁLKAR
kl. 1.45LILO OG STITCH/ísl tal
kl. 1.50BEND IT LIKE BECKHAM
BLOOD WORK kl. 8 og 10.15
Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8, 10 og 11.15
Sýnd kl. 6
THE TUXEDO kl. 6, 8 og 10 VIT474 UNDERCOVER BROTHERkl. 2 og 4
VIT
448
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 2 og 4 VIT429
Sýnd kl. 6, 8 og 10 VIT 479Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10 VIT 468
Sýnd kl. 12, 4 og 8 VIT 469kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.10HAFIÐ
kl. 8DAS EXPERIMEN
FRÉTTIR AF FÓLKI
KVIKMYNDIR
Það er ekki auðvelt að horfa ákvikmyndina „Changing
Lanes“, sem er nýjasta leikstjórn-
arverkefni Roger Michell (Notting
Hill). Ástæðan er ekki sú að hún sé
leiðinleg, því það er hún svo sann-
arlega ekki, heldur er hún óþægi-
lega raunveruleg. Ég trúi því að að-
stæðurnar sem aðalpersónur
myndarinnar, lögfræðingurinn
Gavin Banek og tryggingasölumað-
urinn Doyle Gipson, finna sig í,
gætu skapast. Þess vegna fór ég að
ókyrrast í sæti mínu, með fótbolta í
maganum, á meðan samvisku-
spurningum var látið rigna yfir
áhorfendur. Það versta er nefni-
lega að þrátt fyrir að báðar persón-
ur breyti rangt á köflum skilur
maður ástæður þeirra og veit innra
með sér að maður hefði hugsanlega
brugðist eins við.
Báðir aðalleikararnir eru sem
þríkorna deig í höndunum á leik-
stjóranum. Michell nær að baka
betra brauð úr báðum leikurum en
ég hef bragðað áður. Affleck sýnir
að hann getur valdið tilfinninga-
ríku hlutverki og Samuel Jackson
er í fyrsta skiptið í langan tíma
ekkert líkur persónu sinni úr „Pulp
Fiction“.
Miðað við það sem er í bíó þessa
dagana hlýtur „Changing Lanes“ að
teljast með betri kostum. Stórfín
mynd.
Birgir Örn Steinarsson
Samviskuregn
CHANGING LANES:
TÓNLIST „Þetta er svona svipað kon-
sept og ég hef verið með. Ég er að
syngja alls kyns lög, möguleg og
ómöguleg,“ segir Páll Rósinkrans
um lög á nýjum diski, Nobody
Knows, sem kom út í vikunni. „Þetta
eru svona perlur eins og All Along
the Watchtower og Sara eftir Bob
Dylan, The Dock of the Bay eftir
Otis Redding, Nights in White Satin,
Jealous Guy eftir John Lennon og
You Are so Beautiful sem Joe
Cocker gerði ódauðlegt, svo eitt-
hvað sé nefnt.“
Páll hóf sem kunnugt er feril
sinn í rokksveitinni Jet Black Joe,
en sú hljómsveit sendi frá sér þrjár
stórar plötur á árunum 1992 til 1994.
Bandið lagði svo upp laupana, tíma-
bundið þó, árið 1996. Það sama ár
sendi Páll frá sér sína fyrstu sóló-
plötu, I Believe in You, og eftir
nokkurra ára hlé komu út tvær plöt-
ur sem seldust í tæpum 15.000 ein-
tökum hvor. Páll segist vera á svip-
uðum slóðum á þessari nýju plötu og
á síðustu tveimur. „Mörg þessara
laga eru uppáháldslög, eins og til
dæmis eftir Bob Dylan sem ég hef
lengi haldið upp á.“ Aðspurður segir
hann síðan að ekkert sé frumsamið.
Páll, sem er fjöskyldumaður, á
konu og fjögur börn, segist ein-
göngu lifa af tónlistinni. „Ég bara
syng,“ segir hann og verður væntan-
lega að syngja mikið til að standa
undir því að eiga í fólkið sitt og á.
Aðspurður hvort hann hyggi á sigra
úti í hinum stóra heimi segir hann
það alltaf inni í myndinni. „En ef
eitthvað svoleiðis væri í gangi
myndi ég ekki tala um það,“ segir
hann.
Páll frelsaðist fyrir nokkrum
árum og segist vera frelsaður enn.
„Ég er þó ekki í neinu samfélagi, en
trúaður. Jú, það hjálpar örugglega í
þessum bransa eins og öðrum að
vera trúaður, það sem er gott er
gott,“ segir Páll, sem er líka viss
um að þessi nýja plata höfði til
breiðs hóps fólks eins og síðustu
tvær. „Þetta er tónlist fyrir ung-
linga og allt upp í farlama gamal-
menni,“ segir hann og hlær hressi-
lega.
edda@frettabladid.is
Gamlar perlur
og uppáhaldslög
Nýlega kom út nýr geisladiskur, Nobody Knows, með Páli Rósinkrans.
Sígildur diskur fyrir alla aldurshópa, segir Páll.
PÁLL RÓSINKRANS
Var að gefa út nýja disk, en vill ekkert ræða um hugsanlega sigra í útlöndum.
TÓNLIST Tónlistarmaðurinn Beck segir
að vaxandi vinsældir hljómsveita á
borð við The Strokes og The White
Stripes hafi orðið til þess að hann
hætti við öll áform sín um að gera
rokktónlist. Í stað þess ætlar hann að
gefa út aðra breiðskífu í órafmögnuð-
um anda „Sea Change“ innan 12 mán-
aða.
Beck viðurkenndi það í spjalli við
Rolling Stone tónlistarblaðið að hann
hefði verið byrjaður að vinna að
rokkplötu og að hann hefði hætt við
útgáfuna þegar The Strokes braust
fram á sjónvarsviðið.
„Mér finnst þetta góðar sveitir,“
útskýrði hann í viðtalinu. „Þeir eru að
semja ný lög. Ég byrjaði á rokkplöt-
unni minni fyrir einu og hálfu ári síð-
an af því að það var enginn að gera
rokk. Venjulega geri ég plötur með
tónlist sem mig langar til að heyra.“
Beck segist eiga fullt af fullunn-
um afgangslögum af „Sea Change“-
plötunni sem hann ætli að gefa út
sem fyrst. Eftir það segist hann vilja
snúa sér að því að gera tónlist sem
fær fæturna á hreyfingu.
Beck:
Snýr baki
við rokk-
tónlist
BECK
Segist eiga lög á lager í svipuðum dúr og
lögin á „Sea Change“.
Nóvember – Desember
Jólahlaðborð
frá 29. nóvember
Skötuveisla
23. desember
Velkominn í jólahlaðborðið okkar
Einar Geirsson
Yfirmatreiðslumaður
Opnunartími
Hádegi mán. – föst. 12.00 – 14.00
Kvöld alla daga frá 18.00
tveir fiskar
( við Reykjavíkurhöfn )
Geirsgata 9 • 101 reykjavik
sími 511 - 3474
netfang restaurant@restaurant.is
heimasíða www.restaurant.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI