Fréttablaðið - 02.04.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 02.04.2003, Blaðsíða 4
4 2. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR Á að leyfa hjónabönd samkyn- hneigðra? Spurning dagsins í dag: Á heilbrigðisráðherra að grípa inn í heimahjúkrunardeiluna? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 50,2% 49,8% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Afríka HEIMAHJÚKRUN „Ég hefði viljað að menn reyndu að leysa þetta mál, en það er greinilega mikil harka í deilunni,“ sagði Jón Kristjáns- son heilbrigðisráðherra um þann hnút sem heimahjúkrunar- deilan væri komin í. Hann bætti við að til þess að samkomulag næðist yrðu menn að láta af ein- hverju. Jón Kristjánsson sagði að staðan í heimahjúkrun yrði rædd utan dagskrár á Alþingi eftir hádegi í dag, ef staðan í deilunni yrði enn óbreytt. Jón kristjánsson kvaðst myndu gera grein fyrir málinu þar. Hann sagðist hins vegar bíða með ákvarðanatöku þar til að utandagskrárumræðunum lokn- um. Jón sagði menn vona í lengstu lög að deiluaðilar næðu samkomulagi „Ég tel ekki tímabært að fjal- la um þau inngrip, sem til greina gætu komið til að leysa málið,“ sagði Jón kristjánsson. „En auðvitað fylgist ég mjög grannt með þróuninni, því að við viljum að heimahjúkrunin gangi snurðulaust fyrir sig.“ ■ HEIMAHJÚKRUN „Við erum undrandi á vinnubrögðum viðkomandi stéttarfélaga. Okkur finnst að þau hafi verið að bregða fyrir okkur fæti,“ sagði Þórunn Ólafsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæsl- unnar, vegna yfirstandandi aksturssamningsdeilu við starfs- fólk í heimahjúkrun. Þórunn sagði að þeir fjórir starfsmenn, þrír hjúkrunarfræð- ingar og einn sjúkraliði, sem Heilsugæslan hafði verið búin að ráða til heima- hjúkrunar frá þjónustufyrir- tækinu Alhjúkr- un, hefðu dregið sig til baka vegna þrýstings frá stéttarfélög- unum. Eftir það hefði verið leit- að eftir liðsauka úr röðum starfs- fólks Heilsu- gæslunnar. Þeir starfsmenn sem störfuðu áfram væru undir mikl- um þrýstingi. „Það er sama hvar við berum niður til að leita eftir fólki,“ sagði hún. „Það virðist alls staðar hafa verið beitt ákveðnum þrýstingi til að koma í veg fyrir að við getum haldið úti þjónustunni. Þetta er ekki kjaradeila og þar af leiðandi ekki verkfallsaðgerðir. Við erum fyrst og fremst að leita eftir fólki til að sinna þeim störfum, sem þessir 37 starfsmenn sem sagt hafa upp, höfðu með höndum. Við sáum ekki fyrir neyðar- ástand með þeim úrræðum sem við vorum búin að setja niður fyr- ir okkur, heldur tímabundna rösk- un,“ sagði Þórunn enn fremur. „Ef það hefði gengið eftir, og ef það mun ganga eftir, þá erum við ekki að sigla inn í neyðarástand. En séu svona aðgerðir í gangi, þá erum það ekki við sem erum að koma á neyðarástandi. Það eru stéttarfé- lögin sem eru að koma í veg fyrir að við getum haldið úti þjónustu. Ef þau ætla ekki að láta af þessu, sem ég tel vera ólöglegt athæfi í stöðunni, þá getur þetta ekki gengið svona mikið lengur.“ Þórunn sagði að kostnaður við samning um nýtt aksturskerfi, sem Heilsugæslan hefði boðið, væri svipaður og verið hefði á því kerfi sem Heilsugæslan væri nú að leggja niður. Spurð hver væri ástæðan fyrir breytingunni, ef ekki sparnaður, sagði hún að Heilsugæslan þyrfti að breyta þjónustustigi sínu til samræmis við breytta þjónustu spítalanna. Nú væri farið að útskrifa veikara fólk heldur en áður, auk þess sem stefnan væri að gera öldruðum kleift að dvelja lengur heima. Landspítali hafi oft gagnrýnt heimahjúkrun og viljað sjá aðrar áherslur. Í ákveðnum tilvikum hafi spítalinn viljað nota sitt starfsfólk, þ.e. sjúkrahústengda heimaþjónustu, til að sjá um sjúk- lingana. Þórunn sagði að starfsfólk Heilsugæslunnar hefði í gær sest enn einu sinni yfir skipulagið til að geta veitt þá þjónustu sem rætt hefði verið um. Þegar Fréttablað- ið ræddi við hana í gær, sagði hún að búið væri að skipuleggja þjón- ustuna í gærkvöld og líklega í dag. jss@frettabladid.is UMSÁTUR Egypskur hermaður bíður átekta í þorpinu Nakhila í suðurhluta Egyptalands. Umsátri lokið: Hundrað gíslar frelsaðir EGYPTALAND, AP Öryggissveitir eg- ypsku lögreglunnar gerðu áhlaup á þorp í suðurhluta Egyptalands og yfirbugaðu hóp vopnaðra glæpamanna sem hafði haldið um 100 óbreyttum borgurum í gísl- ingu í sex daga. Fimmtán manns voru handteknir og lagt hald á vopn og mikið magn eiturlyfja en þorpið er miðstöð ólöglegrar eiturlyfja- og vopnasölu. Umsátrið hófst síðastliðinn miðvikudag þegar um 3.000 her- og lögreglumenn voru sendir til Nakhilah til að handtaka eitur- lyfjasmyglara og aðra eftirlýsta glæpamenn. Tilraunir til að semja við glæpamennina báru ekki ár- angur og í dögun í gærmorgun ákváðu öryggissveitirnar að gera áhlaup á þorpið. ■ HVETUR TIL SÁTTA EN EKKI MORÐA Fyrsta einkarekna út- varpsstöðin í Rúanda eftir þjóð- armorðin fyrir áratug hóf starf- semi á mánudag. Stjórnendur stöðvarinnar lögðu áherslu á að þeir ætluðu að skemmta fólki og hvetja til sátta í Rúanda. Eina einkarekna stöðin í Rúanda fyrir áratug hvatti Hútúa óspart til að myrða Tútsa. Þjófnaðir: Miklu stolið af iðnvörum LÖGREGLUMÁL Töluvert hefur verið um þjófnaði á verkfærum og öðru sem tengist iðnframkvæmdum upp á síðkastið. Lögreglan í Reykjavík segir þetta einkum hafa verið áberandi í Grafarholts- hverfi. Í gærmorgun var tilkynnt um innbrot í nýbyggingu í Grafar- holti þar sem stolið var miklu magni af gólfflísum auk ýmis konar útbúnaðar sem notaður er við flísalagningar. Einnig var brotist inn í nýbyggingu í Vestur- bæ þar sem stolið var verkfærum sem notuð eru við blikksmíðar. ■ ELSA B. FRIÐFINNSDÓTTIR „Beiti mér ekki.“ Elsa B. Friðfinnsdóttir: Mikil stéttvísi HEIMAHJÚKRUN „Ég hef tekið það skýrt fram, að ég, sem formaður, beiti mér ekki fyrir því að fólk sæki ekki um, það væri siðlaust af minni hálfu,“ sagði Elsa B. Frið- finnsdóttir, formaður Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga, um staðhæfingar þess efnis að stéttar- félögin beiti óheyrilegum þrýst- ingi í deilu Heilsugæslunnar og starfsfólks í heimahjúkrun. „Þegar mér barst til eyrna að þau ætluðu að leita til Alhjúkrunar, þá hringdi ég í forstöðumann fyr- irtækisins og spurði hvort þetta væri rétt. Forstöðumaðurinn kvaðst hafa náð mjög góðum samningum við Heilsugæsluna. Ég sagði honum að ég gæti ekki bann- að henni neitt slíkt og gerði það ekki. Hins vegar veit ég að það er mikil stéttvísi hjá hjúkrunarfræð- ingum og sjúkraliðum. Ég býst við að það sé talsvert ríkt hjá þessum stéttum að virða það, að ef kjara- deila er í gangi þá gangi menn ekki inn í þau störf. Enda stendur það svo sem í siðareglum okkar, að við eigum að sýna öðrum hjúkrunar- fræðingum stéttvísi, bæði innan starfsvettvangs og utan,“ sagði Elsa. ■ HEIMAHJÚKRUN „Mér finnst barna- legt að láta svona út úr sér,“ sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir, for- maður Sjúkraliðafélags Íslands, um umrædd afskipti félagsins af aksturssamningsdeilunni. „Við erum búnar að vara við því frá upphafi að þetta gæti eng- an veginn gengið, það er svo ein- falt mál,“ sagði hún enn fremur. „Jafnvel þó að Alhjúkrun hefði sent þarna inn 3-4 hjúkrunarfræð- inga þá var útilokað að þeir myndu fylla upp í stöður þeirra 37 starfsmanna sem eru farnir út.“ Kristín kvaðst ekki hafa haft nein afskipti af samskiptum Heilsugæslunnar við Alhjúkrun, né rætt við fyrirtækið. Hins vegar hefðu hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar orðið mjög reiðir, ekki síst þeir sem væru enn starfandi, vegna þess mikla launamismunar sem myndi vera á fólki sem ynni hlið við hlið, eftir að Alhjúkrun hefði komið inn í dæmið. Sú staða er nú aftur út úr myndinni.“ ■ KRISTÍN Á. GUÐMUNDSDÓTTIR Ljóst frá upphafi að þetta gat ekki gengið. Kristín Á. Guðmundsdóttir: Barnaleg ummæli Sauðárkrókur Nýir menn í lögregluna LÖGREGLUMÁL Ríkarður Másson, sýslumaður á Sauðarkróki, vinnur nú að endurskipulagningu á störf- um á vegum embættisins. Átta hér- aðslögreglumönnum verður sagt upp og fjórir til fimm nýir ráðnir í staðinn. Að sögn Ríkarðs er hugmyndin ekki sú að heildarvinnumagn minn- ki við breytinguna heldur er verið að fá til starfa menn sem geta skil- að fleiri vinnustundum á ári. Hér- aðslögreglumenn eru eins konar íhlaupamenn hjá lögreglunni og sinna jafnan öðrum störfum sam- hliða en eru tiltækir til aðstoðar lög- reglu ef á þarf að halda. ■ JÓN KRISTJÁNSSON Bíður eftir utandagskrárumræðum sem eiga að vera í dag, sé staða málsins óbreytt.. Heilbrigðisráðherra bíður utandagskrárumræðna í dag: Mikil harka í málinu „Það eru stéttarfélögin sem eru að koma í veg fyrir að við getum haldið úti þjónustu. ÞÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR Stéttarfélögin beita mjög miklum þrýstingi í aksturssamningsdeilu starfsfólks í heima- hjúkrun og Heilsugæslunnar. Stéttarfélögin sögð skapa neyðarástand Starfsmenn Alhjúkrunar, sem Heilsugæslan var búin að ráða til heima- hjúkrunar, hafa dregið sig til baka. Hjúkrunarforstjóri segir að stéttarfé- lögin beiti þrýstingi til að koma í veg fyrir að hægt sé að veita þjónustuna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.