Tíminn - 01.08.1971, Blaðsíða 8

Tíminn - 01.08.1971, Blaðsíða 8
' jBffisggæsgggssg ■ tóÉÖ^ jiif É i éBf ' %;sÖP| . pj v mw mmm Haukur Ingibcrgsson Í5; :X.:'S|.^'>5. í-s?* ? :'' gp jjjll ' M Æ n r •' -W WM \ ■ i . WC-ÍSÍX Guðlaugur BiöigvinssM ustusvæði í Húsafellsskógi, þar sem bifreiðaeigendur geta m.a. látið gera við hjólbarða. — Hvað eru margir FÍB-bíl ar staðseltir á þjóðvegunum? — Þeir eru 20. Flestir eru á Suðurlandi og Vésturlandi, 6— 7 bílar á hvorum landshluta. — Hvað vinna margir á ykk ar vegum um helgina? — Þessa helgi vinna um 30 manns hjá okkur, en daglega vinna 3 hjá okkur, það er skrif stofuliðið. Brosa í umferSinni Ásgeir Höskuldsson hittum við, við bensíntankinn, en hann var að láta setja bensín á Mosk vitsinn sinn. Ásgeir sagði að hann og kona hans væru á leið inni vestur í ísafjarðardjúp, en í bæinn kæmu þau aftur á mánu dagskvöld, maður verður víst að stunda sína vinnu sagði Ásgeir. Við ætlurn að taka ferð ina rólega og ég veit ekkert hvar við stönzum í kvöld, bætti hann við. Það fer allt eftir því hversn upplagður maður verð- ur. En eins og ég sagði þá stönz um við lítið fyrir vestan, verð- um mest á ferðinni um helg- ina. Aðspurður sagði Ásgeir, að hann væri ekkert bangirm að aka mikið þessa mestu um- ferðahelgi ársins, maður verð- ur bara að brosa og taka þessu með ró, sagði hann að lokum. Nóg aS gera viS benzínafgreiSslu Ungur maður, sem kvaðst heita Grétar Ólafsson..hafði nóg að géra vlð -aS-afgréiða bensfn, enda var komin bílaröð með óþreyjhfullum bílstjórum, sem biðu eftir því að sett yrði á tankinn á bílnum sínum. Grétar tjáði okkur, að það væri fyrst núna, sem umferð væri far- inn að aukast, fyrrihluta dags- ins, var frekar rólegt sagði hann, en núna eru margir að leggja af stað, og hjá okkur verður sjálfsagt nóg að gera f kvöld sagði hann og enn meira verður það á morgun. Því þá fer umferðin að byrja fyrir al- vöru. Flytur á ÓlafsfjörS Þessu næst hittum við ungan mann og kvaðst hann heita Sigurjón Kristjánsson. Sagðist hann vera á leiðinni, ásamt Framhaid á bls. 18. Pétur Sveinbjarnarson og Arnþór Ingólfsson varðstjóri við fjarskiptataekin í Upplýsingamiðstöð Umferðarmála. (Tímamyndir G.E.) Pálmi Arason EJB-’ÞÓ-Reykjavík, laugardag. Þótt ekki liti vel út með veður yfir helgina, var engan hryggðarsvip á fólki að sjá, er var að leggja af stað út á landsbyggðina í gærkvöldi. Fólkið sem við hittum við benzínstöð ESSO á Ártúnshöfða, þegar við komum þar \við á sjöunda tímanum í gærkvöldi, föstudag, var fullt aí ferðaáhuga og vongott um árangursríkt ferðalag- Strmir voru að fara í sumarfrí og bjuggust við lengri dvöt úti á landsbyggðinni, en flestir voru þó aðeins í helgarferðalagi. Við ræddum við fólkið, sem tiumið hafði staðar þar á ESSO-svæðinu og spurðum hvert verið væri að fara. Ennfremur hittum við menn að máli, sem bera hita og þunga umferðarhelgarinnar. Á leiS til Ólafsfjarðar — Nei, nei, ég er ekki að fara á útiskemmtun, mér finnst ég vera orðin heldur gömul til þess að taka þátt í þeim. Ég er nú á leið norður til Ólafsfjarð- ar í sumarfrí, sagði Hafnfirð- ingurinn Klara Hjartardóttir, er við spurðum hana á hvaða útiskemmtun hún væri að fara. — Ertu með fjölskylduna með þér? — Ég er reyndar ein í biln- um mínum, en í öðrum eru sonur minn, tengdadóttir og bamabörn mín. Við verðum að sjálfsögðu samflota norður. — Og þú ekur? — Já, já, ég er búin að hafa bílpróf í 20 ár. — Hvað gerir þú ráð fyrir að vera lengi á leiðinni? — Ætli maður vcrði ekki svona 9—10 klukkutíma, sagði Klara að lokum og hafði aug- sýnilega ekki áhyggjur af því, að þurfa að aka hina 478 kíló- metra löngu leið frá Reykja- vík til Ólafsf jarðar. MeS hluta af fjölskyldunni í sumarbústaS Pálmi Arason var að athuga vélina í bílnum sínum, þegar við tókum hann tali. — Hvert á að halda? — Austur í Laugardal, en þar á ég sumarbústað. — Á þá ekki að taka þátt í útiskemmtun yfir helgina. — Nei, ég reikna ekki með því, að ég fari á útiskemmtun- ina á Laugarvatni. — Og þú ert með alla f jöl- skylduna með þér? — Nei, ekki aiia, en nokk- urn hluta aí henni. Tvö barna minna, sem eru á táningaaldri, eru eftir heima. Sunnlendingar eru samheldnir Og nú komu tveir meðlimir í liljómsveit Þorsteins Guð- mundssonar frá Selfossi, brun andi að bensíntankinum. Við gripum tækifærið og tókum annan þeirra Hauk Ingibergs- son, háskólanema og hljóm- plötugagnrýnanda Morgunblaðs ins tali. — Á hvaða leið eru þið? — Við erum að fara austur á Laugarvatn. — Ætlið þið að spila þar. — Já það gerum við. — Búizt þið við mörgum þangað austur? — Það fer allt eftir veður- farinu, annars eru Sunnlendi ingar samheldnir svo að við getum verið vongóðir. Haukur kvaðst spá því að 15 þúsund manns taki þá,tt í úti- skemmtuninni þar, en reyndar var það í gamni gert. 3—4 þús- und manns væri raunhæfari spá. 30 manns í vinnu hjá FÍB Þá hittum við þar við ESSO- stöðina Guðlaug Björgviusson, framkvæmdastjóra FÍB. — Er eitthvað nýtt í starf- semi ykkar, Guðlaugur? — Já, tvær nýjungar verða nú teknar upp. Annars vegar starfrækjum við upplýsingamið stöð hér á svæðinu fyrir bif- reiðaeigendur, þar sem m.a. verður hægt að fá upplýsing- ar um umferð og ástand vega. Hins vegar höfum við nú þjón \ ý ÚT í BLÁINN Ásgeir Höskuldsson Sigurjón Kristjánsson Guðmundur Guðvarðarson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.