Tíminn - 05.03.1974, Blaðsíða 2
12
TÍMINN
Meistaramót íslands
Hreinn er sterk-
ur nuna..
Guðrún Ingólfsdóttir (JS(J
bætti þó kvennametið enn meira
og varpaði 11.5 mctra, sem er
1.33 m lengra en gamla metið,
sem Alda Helgadóttir UMSK átti
frá 1970. Guðrún gekk þó ekki heil
til skógar að þessu sinni og getur
betur.
Ymsir fleiri gcrðu vel I kúlu-
varpskeppninni, -sérstaklcga
Óskar Jakobsson ÍK, sem
varpaði 15.10 m, en hann hefur
aldrei kastað yfir 14 metra áður,
hvaðþá 15, svo að framfarir hans
eru gífurlegar. Stefán Hallgrims-
son KK, tugþrautarmaður, er og i
framför, kastaði 13.66 m og átti
ógilt kast y-fir 14 metra.
— hann var í essinu sínu
og setti íslandsmet
í kúluvarpi —
Guðrún setti
kvennamet
í kúluvarpi
HREINN HALLDÓRSSON
innanhúss:
Tvö íslandsmet sáu dagsins ljós á Mí i frjálsum
iþróttum innanhúss um helgina, bæði i
kúluvarpi. Hreinn Halldórsson Strandamaður
var i essinu sinu og bætti met Guðmundar Her-
mannssonar um 48 sentimetra. Hreinn er sterkur
núna, hann ætti að geta bætt metið utanhúss
verulega i sumar, og jafnvel varpa yfir 19 metra.
GUÐRUN INGÓLFSDÓTTIR
Gísli
sein-
heppinn
Vilmundur fjór-
faldur meistari
VILMUNDUR VILHJALMSSON
Valbjörn stökk yfir 4 metra
— Tveir aðrir gerðu slíkt hiö sama
Keppnin i stangar-
stökki á Mí i frjálsum
iþróttum var ágæt, og
eitt óvenjulegt gerðist,
þrir íslendingar stukku
4 metra og hærra i
fyrsta sinn i keppni
saman.
Guðmundur Jóhannesson, UBK
sigraði eftir hörkukeppni við Val-
björn Þorláksson, sem verður
fertugur i vor. Guðmundur stökk
yfir 4.30 og Valbjörn yfir 4.20.
Mesta athygli vekur þó framför
Karls West, sem stökk í fyrsta
sinn yfir 4 metra og átti góða
tilraun við 4.10.
Kannski eignumst við fimm 4
metra menn i sumar, þvi að þeir
Elias Sveinsson og Stefán
Hallgrimsson, sem ekki kepptu á
mótinu, hafa verið að stökkva
3.90 á æfingum i vetur. Það veitir
ekki af að hressa upp á stangar-
stökkið hjá okkur, en sú grein
hefur dregizt aftur úr undanfarin
ár.
Guðmundur átti allgóðar
tilraunir við nýja innan-
hússmethæð, 4,40 m.
Gisli Rlöndal, landsliðsmaður
i handknattleik og Vais-
maður, ætlar að verða sein-
heppinn i stórmótum erlendis.
Gisli gat ekkert leikið með
landsliðinu i heimsmeistara-
keppninni i Austur-Þýzka-
landi, þar sem hann veiktist
og lá í flensu. Hann lá rúm-
fastur um tima og var á
pensílinkúr. Gisli gat heldur
ekki leikið með landsliðinu á
Olympiuleikunum I Munchen
1972, þar sem hann meiddist
þááfætiog varðaðganga við
hækjur. A þessu sést, að
heppnin hefur ekki verið með
þessum snjalla handknatt-
leiksmanni.
FH-ingar í mikilli framför
Vilmundur Vilhjálms-
son KR hlaut flesta
meistaratitla á
meistaramótinu, eða
fjóra, þrjá i
einstaklingsgreinum og
einn i boðhlaupi. Hann
jafnaði enn einu sinni
metið 150 m, hljóp á 5,8,
og náði sinum bezta
árangri i þristökki án at-
rennu, 9,68 m.
Félagi Vilmundar, Borgþór
Magnússon, varð meistari bæði i
50 m grindahlaupi, 7,0 hans bezti
timi, og i þristökki 13,73 m. Hann
var og i sigursveit' KR i
boðhlaupinu. Vonandi heldur
Borgþór áfram af fullum krafti,
það sem eftir er vetrar og i sum-
ar.
FH-ingar stóðu sig með ágæt-
um á mótinu, hlutu alls 5
meistaratitla, aöeins KR hlaut
fleiri, eða 6. Armann fékk einnig
5, alla i kvennagreinunum, enda á
félagið harösnúinn flokk kvenna i
frjálsum iþróttum. FH er að
verða stórveldi i frjálsum
iþróttum undir ötulli stjórn
Haralds Magnússonar, og það
væri veglegt framlag til þessa
dugmikla unga fólks og Haralds
að taka i notkun nothæft frjáls-
iþróttasvæði i sumar.
Keppendur komu viða að á
þetta mót, m.a. Sigurlina Gisla-
dóttir, Skagafirði, sem stóð sig
vel og varð meistari i langstökki,
án atrennu. Einnig er að vakna
áhugi I Ungmennasambandi V,-
Skaftafellssýslu, (USVS). Skarp-
héöinn átti þarna ungt og óreynt,
en efnilegt fólk, en þar bar hæst
Þráin Hafsteinsson.
GÍSLI BLÖNDAL
Allt er
fertugum
fært....
ALLT Á
FLOTI
Sigurður Steindórsson, um-
sjónarmaður iþróttaheimilis
Keflvikinga, varð heldur betur
undrandi um daginn, þegar
hann fór niður i kjallara
heimilisins. (Það var
rigningarhelgina miklu — en
þá var allt á floti i kjallaran-
um.) Það fyrsta,sem Sigurður
rakst á, voru Ivftingatól
Kefla vikurliðsins I knatt-
spyrnu, sem flutu ofan á vatn-
inu.
Gamansamir menn i Kefla-
vik segjast nú skilja, hvers
vegna það séu 100 prósent
mætingar á lyftingaæfingar
hjá Keflavikurliðinu.
Þriðjudagur 5. marz 1974.
Þriðjudagur 5. marz 1974.
TÍMINN
13
GEIR HALLSTEINSSON... klæðist ekki landsliðspeysunni framar.
GEIR ER
HÆTTUR
— hann gefur ekki framar kost d sér
í landsliðið í handknattleik
AAarkakóngurinn
John Richards
færði Úlfunum
deildarbikarinn
— hann skoraði sigurmarkið gegn Manchester City á Wembley
þegar aðeins sex mín. voru til leiksloka
Mikil spenna kringum úrslitaleikinn
Markakóngurinn, John
Richards, tryggði Úlfun-
um deildarbikarinn á
laugardaginn var, þegar
hann skoraði sigur-
markið gegn
Manchester City á
Wembley-leikvanginum
i Lundúnum. Leiknum,
sem var afar skemmti-
legur, lauk með sigri
Úlfanna, 2:1, en sann-
gjörn úrslit hefðu verið
jafntefli. Áhorfendur að
leiknum á Wembley
voru um 100 þúsund
talsins, og tóku þeir að
streyma að vellinum,
nokkrum klukkustund-
um áður en leikurinn
hófst. Strax viku fyrir
leikinn var byrjað að
tala um hann i dagblöð-
unum á Englandi, og
var sá forleikur afar
spennandi.
Upp á siðkastið hafa
Manchester City og Wolves
ekki leikið með fullskipuð lið og
hafa þvi greinilega verið að búa
sig undir átökin a' Wembley. í
siðustu viku tilkynntu fram-
kvæmdastjórar beggja liðanna,
að þau myndu flagga öllum sinum
beztu leikmönnum. Fyrirliði
Ulfanna, Mike Bailey, var
maðurinn, sem kom, sá og
sigraði. Hann hefur ekki leikið
með Ulfunum i siðustu leikjum
sökum meiðsla. A laugardaginn
lék hann aftur með, og hann fór
með bikarinn af Wembley-leik-
vanginum. En sá maður, sem
Ulfarnir mega þakka sigurinn, er
tvimælalaust markvörðurinn Phil
Parkes, sem hefur leikið fáa leiki
með Ulfunum á keppnistima-
bilinu. Hann átti stórleik i
markinu, sérstaklega i siðari
hálfleik.
Fyrir leikinn var óvist, hvort
Francis Lee, Denis Law og
Rodney Marsh myndu leika með
City sökum meiðsla. En i siðustu
viku, þegar nöfn leikmanna voru
tilkynnt, voru þeir á lista City-
liðsins. Og á laugardags-
morguninn var vart um annað
talað á bjórkrám Lundúna-
borgar en úrslitaleikinn. Tölu-
vert var um svartamarkaðsbrask
á miðum, en uppselt var á
leikinn fyrir löngu — menn
greiddu jafnvel um 100 pund fyrir
aðgöngumiða. Þegar leikurinn
hófst, var greinilegt, að
áhorfendur voru meira á bandi
City.
Leikmenn Ulfanna létu
JOHN RICHARDS
það ekkert á sig fá. Þeir
hófu strax sóknarleik, og
sóttu stift I fyrri hálfleiknum. Og
munaði mjóu, að þeim tækist að
skora mark, og menn voru farnir
að halda, að þeir væru ekki á
skotskónum. En þegar Kenny
Hibbitt fékk knöttinn einn og
óvaldaðúr, eins og svo oft áður i
ieiknum, einni min. fyrir leikhlé,
fór kliður um áhorfendastæðin.
Og Hibbitt brást ekki áhangend-
um Ulfanna — knötturinn skali i
mark City. Það var eins og leik-
menn City vöknuðu við þetta. þvi
að þeir komu tviefldir til leiks i
siðari hálfleik og sóttu nær
stöðugt. Það var ekki fyrr en á 60.
min., sem þeim tókst að koma
knettinum framhjá Phil Parkes,
markverði Ulfanna, sem átti
stórleik. Það var Colin Bell, sem
skoraði markið. En markakóng-
urinn mikli, John Richards.
skoraði siðan sigurmark Ulfanna.
þegar aðeins sex min. voru til
leiksloka. Fögnuðurinn var gevsi-
legur hjá áhangendum þeirra. og
enginn fagnaði eins mikið og
Derek Dougan, sem vann nú
langþráðan sigur á Wembley.
SOS.
GEIR HALLSTEINSSON, — handknattleiksmaðurinn kunni, sem leikur nú
með v-þýzka liðinu Göppingen, hefur ákveðiðað leika ekki framar með lands-
liðinu i handknattleik. Hann sagði fyrir HM-keppnina, að hann myndi
hætta að leika með liðinu eftir keppnina, og fyrir leikinn gegn Dönum á
sunnudaginn sagði hann, að sá leikur yrði sfðasti landsleikurinn sinn.
Astæðan fyrir þvf,að hann er hættur að leika með landsliðinu, segir hann,að sé
samkomulag milli hans og eiginkonu hans. Geir sagði, að það færi of mikill
timi hjá honum i handknattleik og aðhann vildi hvila sig frá honum. Þá sagði
hann, að það ætti að fara að byggja upp landslið, skipað ungum leikmönnum,
fyrir OL-Ieikana 1976 i Kanada.
Geir, sem er aðeins 28 ára, ætlar að halda áfram að leika meö félagsliöum,
og hann mun ákveða það i sumar, hvort hann leikur með Göppingen eftir
þetta keppnistimabil. Geir hefur leikið 80 landsleiki fyrir tsland og skorað 397
mörk í þeim.
Það kom nokkuð á óvart, þegar Geir tilkynnti, að hann myndi ekki leika
framar meö landsliðinu. Var timabært hjá honum að tilkynna þaö rétt fyrir
heimsmeistarakeppnina? Heföi þaöekki verið réttaö láta þaö biða?
Axel orðinn
«a—wmwni
kónqurinn...
hann skoraði 18 mörk í HM-keppninni
AXEL AXELSSON, stórskyttan snjalla i
Fram, er nú orðinn liinn ókrýndi
konungur i islenzkum handknattleik.
Hann sýndi það i HM-keppninni, en þar
var hann langbezti leikmaður islenzka
liðsins, ásamt Björgvini Björgvinssyni.
Þessir tveir leikmenn sýndu frábæra
samvinnu i HM — skoruðu samtals 27 af
48 mörkum Islenzka lisðins. Axel vakti
geysilega athygli i HM, bæði fyrir skot-
kraft sinn og frábærar linusendingar á
Björgvin, og fengu þessir tveir leikmenn
oft gott klapp frá áhorfendum.
Mörk tslands i HM skoruðu:
Axel Axelsson, Fram 18
Björgvin Björgvinsson, Fram 9
Einar Magnússon, Vikingi 6
Geir Hallsteinsson, Göppingen 5
Viðar Sfmonarson, FH 4
Gunnar Einarsson, FH 3
Gunnsteinn Skúlason, Ólafur H. Jóns-
son (báðir i Val) og Hörður Kristinsson,
Ármanni, eitt hver.
AXFIL AXELSSON.. sýndi góða
leiki I HM.
ENSKA KNATTSPYRNAN:
Langþrdður sigur
Manchester United
— Macari færði liðinu fyrsta útisigurinn á keppnistímabilinu
— Botnliðin eru farin að taka við sér
— Heppnin er með toppliðunum
Skozki iandsliðsmaöurinn
Lou Macari færði áhang-
endum Manchester United
langþráðan sigur á laugar-
daginn, þegarhann skoraði
sigurmark United gegn
Shef field United á Bramall
Lane. Þetta er fyrsti úti-
STAÐAN
Staðan er nú þannig i I. deild:
Leeds 32 19 12 1 55-21 50
Liverpool 31 18 8 5 39-23 44
Derby 31 12 11 8 40-31 35
QPR 31 12 11 8 49-41 35
Ipswich 31 13 9 9 50-45 35
Leicester 31 11 12 8 40-31 34
Everton 31 12 9 10 35-33 33
Burnley 30 11 10 9 36-35 32
Newcastle 30 12 7 11 40-33 31
Manch. City29 11 8 10 30-27 30
Sheff.Utd. 31 10 10 11 38-37 30
Tottenham 31 10 10 11 35-42 30
Stoke 30 8 13 9 39-33 29
Arsenal 32 10 9 13 34-41 29
Coventry 33 11 7 15 33-43 29
West Ham 32 9 10 13 41-48 28
Wolves 31 9 10 12 35-41 28
Southampt:3l 9 10 12 37-49 28
Chelsea 31 9 9 13 45-46 27
Birmingh 30 7 9 14 33-49 23
Manch. Utd.30 6 9 15 25-38 21
Norwich 31 4 11 16 25-47 19
sigur Manchester United á
keppnistímabilinu, sigur,
sem kemur að öllum
likindum of seint. Leik-
menn United, sem berjast
nú fyrir tilveru sinni i 1.
deild, léku vel á Bramall
Lane. Það var á 34. min.,
sem Macari skoraði eina
mark leiksins. I siðari
hálfleiknum lögðu leik-
menn United áherzlu á
vörnina. Þeir ætluðu ekki
að tapa dýrmætu stigi, eða
réttara sagt stigum. Þeim
tókst það, og fögnuður
þeirra var innilegur eftir
leikinn.
Heppnin var með toppliðunum
Leeds og Liverpool, þegar þau
léku á heimavöllum. Leeds var
heppið að ná jafntefli, 1:1, við
Newcastle á Elland Road, og
Liverpool var heppið að sigra
Burnley, 1:0, á Anfield Road.
Burnley-liðið átti meira I leikn-
um, og voru áhorfendur byrjaðir
að streyma óánægðir út af leik-
vellinum, þegar John Toshack
skoraði sigurmark Liverpool —
aðeins 15 sek. fyrir leikslok. Alan
Clarke skoraði mark Leeds i
siðari hálfleik gegn Newcastle.
Leikmenn Newcastle voru rétt
byrjaöir að leika aftur — þegar
knötturinn lá i netinu hjá Leeds.
Það var Barrowclough, sem skor-
aði, og eftir markið sóttu leik-
menn Newcastle mikið, en þeim
tókst ekki að skora.
(Jrslit leikja i 1. og 2. deild urðu
þannig:
Arsenal—Southampton 1-0
Coventry—Birmingham o-l
Derby—Stoke City 1-1
Ipswich —Norwich i-i
Leeds—Newcastle i-i
Leicester—Everton 2-1
Liverpool—Burnlev i-o
QPR—Tottenham 3-1
Sheff. Utd.—Manch. Utd. 0-1
West Ham-—Chelsea 3-0
2. deild:
Aston Villa—WBA 1-3
Blackpool—Bolton 0-2
Bristol City—Oxford o-O
Carlisle—Preston 2-2
C. Palace—Orient 0-0
Hull—Sheff. Wed. 2-1
Nottm. For,—NottsCo. 0-0
Portsmouth—Millvall 0-0
Sunderland—Middlesbro 0-2
Swindon—Cardiff 1-1
Alan Ball skoraði sigurmark
Arsenal, eins og svo oft áður á
keppnistimabilinu. Leikur
Arsenal og Southampton á High-
bury var mjög lélegur og sýndi
hann, að bæði liðin eru i öldudal
um þessar mundir.
Howard Kendall, fyrrum fyrir-
liði Everton, sýndi nú aftur stór-
leik með Birmingham. Það er
greinilegt, að koma hans til liðs-
ins hefur haft góð áhrif á það.
Birmingham vann verðskuldaðan
sigur i leik gegn Coventry á High-
LOU MACARI
field Road. Það var Hatton, sem
skoraði eina mark leiksins. i fyrri
hálfleik.
Latchford skoraði fyrsta mark
sitt fyrir Everton á laugardaginn
gegn Leicester. Það dugði ekki
Everton til sigurs, þvi að Leicest-
er var komið i 2:0, þegar Latch-
ford skoraði markið. Það voru
þeir Worthington og Earie, sem
skoruðu mörkin.
Norwich nældi sér i stig, þegar
liðið gerði jafntefli við Ipswich á
Portman Road i Ipswich 1:1.
Hamilton skoraði mark Ipswich,
en Stringer jafnaði.
Q.P.R. sýndi frábæran leik
gegn Tottenham, og leikmenn
liðsinseru vel búnir undir leikinn
við Leicester i bikarkeppninni.
Þeir yfirspiluðu Tottenham og
unnu góðan sigur, 3:1. Don
Givens skoraði fyrsta mark
Q.P.R., Martin Chivers jafnaði
siðan, 1:1, úr vitaspyrnu, en leik-
menn Q.P.R. mótmæltu henni.
Staðan var 1:1 i hálfleik, en i
siðari hálfleik komu yfirburðir
litla Lundúnaliðsins i ijós. Stan
Bowles og Francis bættu tveimur
mörkum við.
Billy Bond.'fyrirliði West Ham,
átti stórleik gegn Chelsea á Upton
Park, skoraði öll mörk West
llam. ,,hat trick”.