Tíminn - 01.06.1974, Page 3
Laugardagur 1. júní 1974.
TÍMINN
3
------------------------1
Laugvetningar 1941, 42,
43 og 1944 hittast að
Laugarvatni
FB-Reykjavik. Laug-
vetningar, sem voru i
skólanum 1941, 42, 43
og 1944 hafa ákveðið
að koma saman að
Laugarvatni laugar-
daginn 8. júni næst
komandi. Þar munu
þeir færa skólanum
gjöf. Ákveðið hefur
verið að fara frá
Umferðarmiðstöðinni
i Reykjavik klukkan 3
þennan dag, og eru
allir Laugvetningar
úr þessum árgöngum
kvattir til þess að
mæta. Þátttöku skal
tilkynna i sima 38875
og 38930. Vonast
undirbúningsnefndin
til þess að þessi dagur
geti orðið öllum fyrr-
verandi Laugvetning-
um úr áðurnefndum
fjórum árgöngum
sem eftirminnilegast-
ur.
Tíðarfar gott í Búðardal
Frönsk vika
í Kaupgarði
KAUPGARÐUR h/f í Kópavogi
stendur fyrir kynningu á frönsk-
um niðursuðuvörum þessa viku.
Kynning þessi er haldin i samráði
við franska verzlunarfulltrúann i
Reykjavik, en tilgangur hennar
er tviþættur: Annars vegar til
þess að kynna kaupmönnum
möguleika á innflutningi úrvals
ávaxta, grænmetis og skyldum
vörum frá þekktum matvæla-
iðnaðarfyrirtækjum i Frakklandi.
Hinsvegar er tilgangur kynning-
arinnar að bjóða islenzkum hús-
Árekstraflóð
í gærdag
Gsal-Rvik. — Það var nóg að
starfa hjá Reykjavikurlögregl-
unni I gærdag. Frá þvi um hádegi
til klukkan sjö höfðú orðið 22
árekstrar i borginni og nálægt
þrjátiu yfir allan daginn.
Bílvelta á
Seltjarnarnesi
Gsal-Rvik. — Á þriðjúdag ók
Volkswagen-bifreið út af veginum
við Lindarbraut á Seltjarnarnesi
og valt á hliðina. Bifreiðin var að
taka beygju á gatnamótum
Lindarbrautar og Suðurstrandar,
þegar bensingjöfin hefur senni-
lega festst og bíllinn tekið snar-
lega á rás út úr beygjunni með
þeim afleiðingum aö hann
hafnaði utan vegar.
Billin er mikið skemmdur á
hliðum og á toppi, en öku-
maðurinn slapp ómeiddur. Hann
var einn i bilnum.
mæðrum að reyna franskar
niðursuðuvörur, sem eru viður-
kenndar af sælkerum um allan
heim. En þó einkennilegt megi
virðast hefur frönsk niður-
suðuvara ekki fyrr verið á
boðstólum hérlendis svo teljandi
sé.
Framkvæmdastjóri Kaupgarðs
h/f lét þess getið i viðtali við blað-
ið i gær, að frönsku vörurnar
væru I mjög sambærilegum verð-
flokki og svipaðar vörur frá öðr-
um löndum. Hins vegar væri
óhætt að treysta gæðum frönsku
vörunnar, enda væru Frakkar
viðurkenndir matmælasér-
fræðingar. Væri þvi von sin að
franska kynningin gæti stuðlað að
frekari innflutningi á frönskum
niðursuðuvörum, sem jafnframt
gæti aukið vöruúrval að mun. A
kynningunni ber mikið á hvers
konar niðursoðnum ávöxtum,
perum, plómum o.s.frv., blönd-
uðu grænmeti, grænum baunum
og gulrótum. Einnig virtust
sperglar (aspargns leggir) i ný-
tizkulegum ur. oúðum vekja
mikla athygli kaupmanna.
Franski verzlunarfulltrúinn á
fslandi: M. Daniel Parret sagði
það mikið ánægjuefni, að nú væri
kominn visir að væntanlegum
viðskiptum á þessu sviði. Fransk-
ur niðursuðuiðnaður hefði mikið
og gott úrval til boða, t.d. mikið
og gott úrval grænmetis, sem
hann vissi að islenzkar húsmæður
kynnu vel að meta.
Kaupgarður h/f rekur mark-
aðsverzlun i Kópavogi, auk þess
sem fyrirtækið kemur til þess að
vinna að verzlunarhagræðingu
fyrir hluthafa sina m.a. með
magninnflutningi. Hluthafar
Kaupgarðs h/f eru flestir mat-
vörukaupmenn.
AAatstofa NLFÍ opnuð
á ný við Laugaveginn
Timamynd GE
SJ-Reykjavik Matstofa Náttúru
lækningafélags fslands hefur nú
verið opnuð á ný eftir nokkurra
ára hlé á slikri starfsemi I höfuð-
borginni. Matstofan er nú að
Laugavegi 20 b, 2. hæð, en gengið
inn frá Klapparstig og lltt áber-
andi frá götu séð. A dyrum er
skilti um að þarna sé skrifstofa
Náttúrulækningafélagsins. Þrátt
fyrir þetta virðist fólkið, sem
kann að meta þann góða mat,
sem þarna er framreiddur, hafa
fylgzt með þvi, að nú var búið að
opna aftur, eftir aðsokninni i há-
deginu tvo fyrstu dagana að
dæma, en starfsfólkið hafði
tæpast undan að afgreiða.
Matstofan verður opin frá
klukkan 9-5. Allan þann tima eru
á boðstólum jurtate, mjólk og
ávaxtasafi, kökur og bráuð úr
heilhveiti, rúgi og öðrum náttúr-
legum korntegundum grænmetis-
salöt, ostur, súrmjólk, rjómatert-
ur og skyrtertur.
t hádeginu er auk þess fram-
þrjú einbýlishús er einnig
áformað að byggja.
Bardögum hætt
Damaskus NTB/Tel Aviv —
Fallbyssurnar við Golanhæðirnar
þögnuðu eftir siðasta stórskota-
liðsbardagann á föstudag, en
hann er sagður hafa verið einn sá
ofsafyllsti, er þar hefur geysað.
Strax eftir að samningarnir milli
Sýrlendinga og tsraela, höfðu
verið undirskrifaðir á föstudag
hljómaði skipun til Israelsku her-
mannanna um að hætta skothrið.
Brosandi og blaðir komu þeir frá
stöðvum sinum, en voru heldur
betur fljótir I skjól aftur, þegar
Sýrlendingar hófu ofsafulla skot-
hrið á þá. Héldu Sýrlendingarnir
skothriðinni áfram I hálfa
klukkustund, áður en allt varð
kyrrt meðfram linum þeirra.
Talið var, að það hefði tekið
þennan tima að koma skipuninni
um að hætta skothrið til allra
stöðva þeirra.
Hvað á
miðbærinn
að heita?
Fyrir nokkru efndi Kópavogsbær
til samkeppni um nafn á miðbæn-
um i Kópavogi. Alls bárust
nokkrir tugir tillagna frá sjö aðil-
um, en ekki verður tekin ákvörð-
un um nafngiftina, fyrr en nýtt
bæjarráð hefur tekið til starfa
eftir nokkra daga.
Baháíar á
kynningarferð
Eftir hvitasunnu leggja Bahá’iar
upp i kynningarferð um Austfirði
sem leið liggur allt frá Hornafirði
til Raufarhafnar.
Tilgangur ferðarinnar er að
gefa fólki tækifæri til að kynna
sér hin 130 ára gömlu alheims-
trúarbrögð, Bahá’itrúna, sem er
yngsti hlekkurinn i spámanna-
keöju Guðs.
reiddur heitur matur, jurta- og
grænmetisréttir og súpur.
t nýju matstofunni.
SÞ—Búðardai — Siðan i marz
hefur verið með eindæmum gott
tiðarfar I Búðardal, og gróðurinn
þýtur upp. Byggingarfram-
kvæmdir verða með meira móti i
sumar, kaupfélagið byrjar
byggingu nýs frystihúss, og
byrjað verður á nýrri barna-
skólabyggingu, en teikningu
hennar gerði Teiknistofa Ormars
Þórs Guðmundssonar. Tvö til
Fundinn leg-
steinn Sig-
urðar Árna-
sonar
á Leirá
AÐ UNDANFÖRNU hafa farið
fram miklar og gagngerar
endurbætur á Leirárkirkju, og
eru þær langt á veg komnar.
Verður kirkjan tekin i notkun á ný
við hátiðlega athöfn á hvita-
sunnudag. Prófasturinn, séra Jón
M. Guðjónsson á Akranesi, flytur
ávarp, lýsir kirkjuna tekna i
notkun að nýju og biður bless-
unar Guðs yfir starf hennar og
framtið. Siðan fer fram ferming
og aitarisganga i umsjá sóknar-
prestsins, séra Jóns Einarssonar
I Saurbæ.
Þegar verið var að gera við
kirkjuna, fannst gamall og
merkur legsteinn undir gólfi
hennar. Steinninn er úr liparíti,
útlendrar gerðar og með táknum
á hornum. Letur steinsins er
mjög máð, enda mun hann hafa
verið notaður sem dyrahella við
Leirárkirkju á sl. öld, en verið
lagður undir gólf undir altari
kirkjunnar að tilstuðlan
Matthiasar Þórðarsonar þjóð-
minjavarðar árið 1911.
Talið er fullvist, að steinninn
hafi verið á leiði Sigurðar Arna-
sonar, lögréttumanns I Leirár-
görðum, er var sonur Arna Odds-
sonar á Leirá og lézt árið 1690. Má
lesa nafn Sigurðar á steininum,
þó að máð sé.
Einingarflokkurinn
mikli
Þjóðviljinn kveinkaði sér i
gær undan þvi, að sézt hefur á
prenti, að tvenn sérframboð
róttækra kommúnista hafi
komið fram og þessir listar
muni draga úr fylgi Alþýðu-
bandalagsins, sem er móður-
skip islenzkra kommúnista.
Þjóðviljinn segir, að það sé
enginn klofningur i þess
röðum, þar sé það einingin ein
sem riki um þá, sem I
framboði eru fyrir flokkinn,
sem blaðið segir að séu allir
„liðsmenn” verkalýðs-
stéttarinnar.
Þessi skrif Þjóðviijans eru
kannski einmitt til komin nú
vegna þess, að mikil óánægja
er viða meðal þeirra „liðs-
manna vcrkalýðsstéttar-
innar”, sem fylgt hafa
Alþýðubandalaginu, með
framboðslista Alþýðubanda-
iagsins i Reykjavik.
Flokkur verka-
lýðshreyfingar
treður á foringj-
um hennar
í fjórða sæti listans var
„liðsmaður verkaiýðs-
hreyfingarinnar” Jón Snorri
Þorleifsson, formaður
Trésmiðafélags Reykjavikur.
Hann hverfur sporlaust af list-
anum. Engar skýringar
gefnar. Jón Snorri var þó
fyrsti varamaður þingmanna
Alþýðubandalagsins i Reykja-
vik og sat oft á alþingi. Menn
hefðu getað haldið, að Jón
Snorri hefði verið látinn rýma
sætið fyrir yngri „liðsmanni
verkalýðshreyfingarinnar”,
Sigurði Magnússyni rafvéla-
virkja, sem var i 5. sætinu og
tók nokkrum sinnum sæti á
alþingi og þótti standa sig
mjög vel. Nei. Að visu fékk
þessi liðsmaður að halda sæti
sinu, þvi fimmta, en upp fyrir
hann var troðið blaðamanni af
Þjóðviljanum. Það hefur
kannski verið gert til að leita
jafnvægis við annan blaða-
mann Þjóðviljans, sem er á
framboðslista Fylkingarinnar
i Reykjavik?
Hver er skýringin?
Sú saga hefur heyrzt, að
blaðamaðurinn, sem fékk 4.
sætið, sæti formanns Tré-
smiðafélagsins, hafi verið
óánægður með Alþýðubanda-
lagið og hótað að kjósa lista
Fy1kingarinnar eða
marxistanna-leninistanna.
Ekki er þáð þó selt dýrara en
það var keypt. En hvers á hinn
ungi og glæsilegi „liðsmaður
verkalýðshreyfingarinnar”,
Sigurður Magnússon, að
gjalda i flokki einingarinnar?
Og var „Gvendur
jaki" ekki boð-
legur heldur?
Og menn hafa spurt: Hvers
vegna fékk Guðmundur J.
Guðmundsson, varaformaður
Dagsbrúnar, ekki að halda 3.
sætinu á lista Alþýðubanda-
lagsins við borgarstjórnar-
kosningarnar? Af hverju og
fyrir hverjum þurfti þessi
„liðsmaður verkalýðs-
hreyfingarinnar” að vikja?
Það var sóttur tvilráður
maður i annan flokk i 3ja
sætið, þegar Aiþýðubanda-
lagið taldi 3ja sætið alveg
öruggt borgarfulltrúasæti,
Þorbjörn Broddason, vara-
niaður Njarðviks i útvarps-
ráði, kosinn þangað af
Samtökum frjálslyndra og
vinstri manna.
Og af hvcrju cr Guðjón
Jónsson, formaður Félags
Framhald á bls. 23