Fréttablaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 60
26. október 2005 MIÐVIKUDAGUR24
menning@frettabladid.is
!
Stóra svið
Salka Valka
Su 30/10 kl. 20 Græn kort
Fi 3/11 kl. 20 Blá kort Lau 12/11 kl. 20
Fi 17/11 kl. 20 Fi 24/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20
Woyzeck
Fi 27/10 Forsýning UPPSELT
Fö 28/10 kl. 20 Frumsýning UPPSELT
Lau 29/10 kl. 20 Gul kort Lau 5/11 kl. 20
Rauð kort Fi 10/11 kl. 20 Græn kort
Fö 11/11 kl. 20 Blá kort
Kalli á þakinu
Su 30/10 kl. 14 UPPSELT Su 6/11 kl. 14
Su 13/11 kl. 14 Su 20/11 kl. 14
Id - Haustsýning
Wonderland e. Jóhann Frey Björgvinsson
Critic ´s Choice? e. P.Anderson og Pocket
Ocean e. Rui Horta 4/11 kl. 20 Frumsýning
6/11 kl. 20 13/11 kl. 20 20/11 kl. 20
23/11 kl. 20 Aðeins þessar 5 sýningar
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Fi 27/10 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Fö 28/10 kl. 20 UPPSELT
Fi 3/11 kl. 20 UPPSELT Fö 4/11 kl. 20
Lau 5/11 kl. 20 Fi 10/11 kl. 20 Fö 11/11 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Lau 29/10 kl.20 UPPSELT
Su 30/10 KL. 20 UPPS. Su 6/11 kl. 20 UPPS.
Su 13/11 kl. 20 AUKASÝING
Su 20/11 kl. 20 AUKASÝNING
Manntafl
Lau 12/11 kl. 20
Forðist okkur
e. Hugleik Dagsson. Síðustu sýningar!
Nemendaleikhúsið í samvinnu við leik-
hópinn CommonNonsense.
Lau 29/10 kl. 18 Lau 29/10 kl. 21
Su 30/10 kl. 17 Su 30/10 kl. 20
Má 31/10 kl. 20 Þr 1/11kl. 20
13. sýn fös 28. okt - örfá sæti
14. sýn lau 29. okt - örfá sæti
15. sýn fös 4. nóv - örfá sæti
16. sýn lau 5. nóv - örfá sæti
17. sýn fös 11. nóv - örfá sæti
18. sýn fös 18. nóv
19. sýn lau 19. nóv
20. sýn fös 25. nóv
21. sýn lau 26. nóv
��������
�������
���������������������
�� � � �
������
����������
����
����������
��� ����
������
�����
����������������������������������������������������������������������� �����������
�
����������������������������������������������������������
����������������������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������������������������������������
����������������������������������������������� ����������
����������������������������������� ������������
���������������������������������
������ ������������������������������������������������
Kl. 22.00
Ljóðakvöld verður haldið á Café
Rosenberg í kvöld. Þar koma fram
þeir Mike Pollock og Sigfús Bjart-
marsson ásamt Dóra DNA og GAK.
Í lokin verður hljóðneminn opinn
gestum.
Ekki reynist nokkur leið að taka einleik Eddu Björgvins-
dóttur, Alveg brilljant skilnað, af fjölunum því miðar á
allar aukasýningar á verkinu í október hafa selst upp.
Ákveðið hefur verið að bæta við örfáum aukasýning-
um í nóvember og eru þær óðum að fyllast.
Einleikurinn er sýndur á Nýja sviði Borgarleik-
hússins og hefur gjörsamlega slegið í gegn á Íslandi
rétt eins og annars staðar þar sem hann hefur verið
sýndur.
Edda leikur þar ráðvillta konu, Ástríði Jónu Kjart-
ansdóttur, sem er að reyna að fóta sig í tilverunni
sem nýfráskilin kona. Ástkær eiginmaður hennar til
þrjátíu ára hefur yfirgefið hana fyrir yngri konu, Ástríði
Jónu til mikillar furðu.
Tilfinningaflækjur hennar virðast eiga greiðan
aðgang að hjörtum Íslendinga, sem ýmist veltast um
af hlátri eða tárast meðan á sýningu stendur.
Einleikurinn Alveg brilljant skilnaður var frumsýnd-
ur síðastliðið vor og var þá sýndur sextíu sinnum fyrir
fullum sal. Sýningin var ein þeirra fimm sem hlaut
flest atkvæði í netkosningu almennings sem sýning
ársins á Grímuverðlaununum. Vegna fjölda áskorana
var ákveðið að hafa nokkrar sýningar í viðbót í sept-
ember. Ekkert lát virðist vera á aðsókninni.
Einleikurinn er eftir breska leikskáldið Geraldine
Aron en Gísli Rúnar Jónsson hefur þýtt og staðfært.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir.
Engin leið að hætta
Heimsókn finnska karla-
kórsins YL til Íslands þykir
mikill hvalreki á fjörur
unnenda góðrar kórtón-
listar. Kórinn er með þeim
allra bestu í heiminum um
þessar mundir og syngur
í Hallgrímskirkju á föstu-
dagskvöld.
„Það er sjaldgæft að við fáum
kóra af þessum „kaliber“ í heim-
sókn,“ segir Árni Harðarson,
stjórnandi karlakórsins Fóst-
bræðra. „Í Finnlandi er mikil
kórahefð en þessi kór ber óum-
deilanlega höfuð og herðar yfir
aðra karlakóra í Finnlandi.“
Ylioppilaskunnan Laulajat er
nafn kórsins upp á finnsku, en
það mun þýða Stúdentakórinn.
Hann var stofnaður við Háskól-
ann í Helsinki árið 1883 og var
lengi vel í nánum tengslum við
tónskáldið Sibelius.
„Sibelius skrifaði mörg af
sínum lögum fyrir þennan kór.
Kórinn hefur alla tíð síðan hald-
ið þessum tengslum við Sibelius
og er enn að flytja hans músík,
en um leið flytur hann mikið af
nýrri tónlist og gerir mikið af
því að panta tónverk til flutn-
ings.“
Á tónleikunum í Hallgríms-
kirkju ætlar kórinn að flytja í
bland hefðbundna tónlist eftir
menn á borð við Sibelius, Schu-
bert og Rossini og nýrri tónverk
eins og til dæmis Ave Mariu og
Le bain eftir Rautavaara.“
„Til dæmis ætlar hann að
flytja verk eftir eistneska tón-
skáldið Veljo Tormis, sem er
skrifað til minningar um þá sem
fórust í Estonia-ferjuslysinu. Það
er mjög áhrifamikið stykki.“
Þetta verk var pantað af
tónskáldinu af tveimur kórum,
bæði YL og sænska karlakórn-
um Orphei Drängar, en þessir
tveir kórar teljast hafa algera
sérstöðu meðal karlakóra á
Norðurlöndunum hvað gæði
varðar.
„Það er ekki nóg með að þessi
kór eigi sér glæsta sögu held-
ur sýnist mér hann alltaf hafa
verið að bæta í og sé mjög öfl-
ugur núna. Kórinn hefur unnið
alþjóðleg verðlaun fyrir diska
sem hann hefur gefið út og hefur
hlotið alls kyns verðlaun í Finn-
landi, svo sem fyrir kórplötu
ársins og sem kór ársins.“
Stjórnandi kórsins er Matti
Hyökki, prófessor í kórstjórn
við Síbelíusarakademíuna, sem
einnig hefur unnið til fjölda
verðlauna.
Íslandsheimsóknin er loka-
hnykkurinn á tónleikaferðalagi
YL til Bandaríkjanna. Karlakór-
inn Fóstbræður tekur á móti YL
og syngur auk þess með honum á
tónleikunum í Hallgrímskirkju,
sem hefjast klukkan 20 á föstu-
dagskvöldið.
Karlakór í fremstu röð
ÞEIR ERU Á LEIÐINNI TIL LANDSINS Karlakórinn YL frá Finnlandi syngur í Hallgrímskirkju á
föstudagskvöld.
> Ekki missa af ...
... Grasrótarsýningu ungra myndlist-
armanna í Nýlistasafninu við Laugaveg.
Sýningunni lýkur 6. nóvember.
... sýningu Myndhöggvarafélagsins
í Hafnarborg í Hafnarfirði þar sem á
þriðja tug félagsmanna sýna verk sín.
Sýningunni lýkur um mánaðamótin.
... sýningunni Föðurmorð og norna-
tími í Norræna húsinu þar sem hópur
ungra myndlistarmanna sýnir út frá
Manifesto sem Valur Antonsson rithöf-
undur sendi frá sér.
Sýnt í Iðnó, miðasala í síma:
562-9700, á idno@xnet.is og á midi.is
Gestur - Síðasta máltíðin
Hinsegin óperetta
3. sýning - Sun. 30. okt. kl. 17.00
4. sýning - fim. 3. nóv. kl. 20.00
5. sýning - lau. 5. nóv. kl. 17.00
örfá sæti laus