Tíminn - 13.03.1976, Síða 1
TÆNGIR?
Aætlunarstaðir:
Blönduós — Sigiuf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur —Rif Súgandafj:
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Brezku freigdturnar
fara hamförum
— hrognainnihald loðnunnar 20,6%, fitumagnið 6%
— talið að loðnan eigi amk. viku eftir í hrygningu
Þannig litur hún út, hin eftir-
sótta loðna. Gkki er hún stór,
en þessi hérna fékkst á hin-
um nýju miðum út af önd-
verðarnesi. Talið er að þessi
loðnuganga geti bjargað við
loðnufrystingunni, en álit
fiskifræðinga er, að a.m.k.
vika sé þangað til loðnan
hrygnir. Timamynd: Róbert
Gsal— Reykja vik — IVtikil
átök voru á miðum brezku
togaranna úti fyrir Aust-
fjörðum i gærdag og reyndu
brezku freigáturnar hvað
eftir annaö að sigia á is-
lenzku varðskipin. Fjórar
ásigiingartilraunir heppnuö-
ust, Juno sigldi tvivegis á Tý
og Mermaid sigidi tvfvegis á
Þór. Nokkrar skemmdir
urðu á varðskipunum og
einnig löskuðust freigáturn-
ar eitthvað. Engin slys urðu
á mönnum.
Þá gerði freigátan Scylla
aðför aö varðskipinu Ægi og
komst i einni ásiglingartil-
rauninni svo þétt að varð-
skipinu, að vart varð hönd
komið á milli skipanna.
Myndin er frá aðför Scyllu að
Ægi.
Timamynd: örn Rúnarsson.
gébé Rvik — Nýja loðnugangan,
sem fannst út af öndverðarnesi i
fyrrakvöid, viröist vera i mjög
góðu ástandi, fitumagn hennar
6% og hrognainnihald 20,6%. Að
sögn Hjálmars Vilhjálmssonar
fiskifræðings, virtist honum sem
ioðnan ætti a.m.k. viku eða lengur
ihrygningu, þannig að hún ætti að
vera tilvalin til frystingar.
Hjálmar sagði einnig, aö ioðnan
lægi sennilega svo djúpt yfir dag-
inn að skipin gætu ekki veitt hana,
en strax og skyggja tekur kemur
hún upp að yfirboröinu. Þvi höfðu
ekki nema tólf bátar tilkynnt
loðnunefnd um afla rétt fyrir kl.
19 I gærkvöld og var afli þeirra
samtals 4420 tonn.
Þegar Timinn hafði samband
við Hjálmar Vilhjálmsson i gær-
dag, en hann er leiðangursstjóri
um borð i rannsóknarskipinu
Arna Friðrikssyni, voru þeir
staddir út af Hornafiröi. Sagðist
Hjálmar þar hafa orðið var við
loðnuhrafl, en það væri mjög
dreift og ekkert hægt fyrir skip að
eiga við það til veiða. Sagöi
Hjálmar, að ætlunin væri að leita
i nokkra daga á þessum slóðum,
þvi að hann ætti erfitt með að
kyngja þvi, að ekki væri von á
meiri loðnu fyrir austan.
Um loðnuna út af öndverðar-
nesi sagði Hjálmar, að i fyrra
hefði loðnuganga gengið inn með
Snæfellsnesi að sunnan, en að sér
virtist að þessi, sem nú hefur
fundizt á sömu slóðum, sé i mun
betra ástandi heldur en var þá.
Taldi Hjálmar eftir þeim upp-
lýsingum sem hann hefur fengið,
að loðnan eigi a.m.k. eftir viku
eða meira i hrygningu.
Timinn fékk þær upplýsingar
hjá loðnunefnd að hrognainnihald
þessarar loðnu væri um 20,6%, en
áð frystihús hefðu haft það lág-
mark hrognainnihalds loðnu til
frystingar 10-12%.
Flest loðnuskipanna eru nú á
hinum nýju loðnumiðum.
gegn varðskipunum
Gsal—Reykjavlk — Rétt eftir há-
degisbilið igær, er varðskipið Týr
var á siglingu á 17 milna hraða
um 45 sjómilur austur af Norð-
fjarðarhorni, á leið að fjórum
brezkum togurum, sem voru að
veiðum á svæöinu, kom freigátan
Juno siglandi að varðskipinu á
25-30 sjómilna hraða og sigldi
fram með siðu varöskipsins
stjórnborðsmegin. Freigátan
hafði stefnu framan til á varð-
skipið, aö sögn Landhelgisgæzl-
unnar, og þrátt fyrir að varðskip-
ið setti á fulla ferð aftur á bak til
að forðast ásiglingu freigátunnar,
skullu bógar skipanna saman.
Vegna hraðamismunar skipanna
straukst varðskipið siöan aftur
með freigátunni, sem hélt sama
hraða —og sveigöihún siðan allt i
einu til stjórnborða og sló skut
sinum i stefni Týs.
Eftir þetta kom freigátan aftur
siglandi að varðskipinu og nú
sigldi hún fram með Tý á stjórn-
borða, en beygöi siðan snögglega
til stjórnborða og sló skutnum i
bóg varðskipsins.
Að sögn talsmanns Landhelgis-
gæzlunnar varð siðari ásiglingin
mun minni en hin fyrri. Nokkrar
skemmdir urðu framan til á varð-
skipinu og aftur undir ibúöir.
Talsmaðurinn sagði að skemmdir
hefðu oröið nokkrar á freigátunni,
bátadaviði brotnaði, svo og skot-
pallur, krani og rekkverk.
Um klukkan fjögur i gærdag hóf
svo freigátan Mermaid aðför að
varöskipinu Þór, um 23 sjómilur
austur af Hvalbak. Tókst varð-
skipinu að vikja sér undan fyrstu
ásiglingartilraunum freigátunn-
ar, en kl. 16.22 sigldi hún á bak-
borð þess. Kom stjórnborðssiða
freigátunnar á burðarbita á
þyrluþilfari Þórs og telja varð-
skipsmenn að gat hafi komið á
freigátuna við það.
Ekki lét yfirmaður freigátunn-
ar við svo búið sitja, þvi kl. 17.31
Frh. á bls. 15
Fjórði hluti Opins bréfs
dómsmálaráðherra, Ólafs
Jóhannessonar, til Þorsteins
Pálssonar, ritstjóra,
birtist í Tímanum á morgun
NÝJA LOÐNUGANG-
AN í GÓÐU ÁSTANDI
Mikil leit að
Arna í dag
Mikil leit verður gerð i dag
að Árna Jóni Árnasyni, sem
saknað er úr Kópavogi. Mun
Slysavarnafélag Islands
stjórna leitinni.
i gær voru gengnar fjörur
og leitað úr bát við Reykja-
vik, en án árangurs.
Árni Jón Árnason er 31 árs
gamall.
7