Tíminn - 21.03.1978, Qupperneq 5
Þriðjudagur 21. marz 1978
5
flokksstarfið
Húsvíkingar
Ingi Tryggvason alþingismaður verður til
viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins á
Húsavik kl. 17—19 miðvikudaginn 22. marz
næstkomandi.
Framsóknarfélag Húsavikur.
Grindavík
Framsóknarfélag Grindavíkur efnir til prófkjörs vegna bæjar-
stjórnarkosninganna i vor, og fer það fram i Festi dagana 22. og
23. marz. Kjörstaður verður opinn kl. 14.00-22.00 báða dagana.
Allir stuðningsmenn listans eru hvattir til að taka þátt i próf-
kjörinu.
Framsóknarfélag Grindavikur.
17 ára stúlku
nauðgað
ESE — Þrir menn sitja nú i
gæzluvarðhaldi, fyrir að hafa
nauðgað 17 ára gamalli stúlku i
Reykjavik aðfaranótt laugar-
dags. Atburðurinn mun hafa átt
sér stað i heimahúsi. þar sem
fólkið hafði setið að drykkju um
kvöldið.
Einn þessara manna mun hafa
komiðviðsögui svipuðu máli fyr-
ir u.þ.b. tveim árum, þegar hann
nauðgaði tveim stúlkum.
Rannsókn málsins er i höndum
rannsóknarlögreglunnar, en ekki
munu mennirnir hafa játað
verknaðinn ennþá.
Ný bók um
samvinnuhreyfinguna
kemur út á þessu ári
..Samvinnuhreyfingin á Islandi”
Undanfarið hefur Eysteinn
Sigurðsson hjá Fræðsludeild
Sambandsins unnið að ritun bók-
ar, sem bera á heitið „Samvinnu-
hreyfingin á Islandi” og vera
samtimaleg lýsing á félagslegri
uppbyggingu og atvinnurekstri
samvinnufélaganna hér á landi.
Handrit er nú nánast fullbúið, og
á fundi i stjórn Sambandsins i sið-
ustu viku var það formlega sam-
þykkt, að Sambandið gæfi þessa
bók út. Ætlað er, að þessi bók
komi að nokkru leyti i stað eldri
bóka um sama efni, þ.e. bókar
Jónasar Jónssonar frá Hriflu,
„Islenzkir samvinnumenn” frá
1939, og bókar Benedikts Grön-
dals, „tslenzkt samvinnustarf”
frá 1959, en leggi þó höfuðáherzlu
á þróun mála siðustu áratugina.
Standa vonir til þess, að bókin
komi út fyrir lok ársins.
i Útboð
Tilboð óskast i að leggja dreifikerfi í örfirisey fyrir Hita-
veitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3,
Reykjavik gegn 10 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 13. aprfl
1978 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN. REYK3AVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvcgi 3 — Sími 25800
ATLAS
sumarhjólbarðar:
A-78-13 Verð kr. 13.343.-
B-78-13 Verð kr. 13.679.-
C-78-13 Verð kr. 14.255.-
C-78-14 Verð kr. 14.441.-
E-78-14 Verð kr. 15.270.-
F-78-14 Verð kr. 16.046.-
Véladeild
Sambandsins
HJÓLBARÐAR
BORGARTÚNI 29
SÍMAR 16740 OG 38900
Siglingar
Skipafréttir frá skipadeild
S.I.S. Jökulfell lestar á
Norðurlandshöfnum. Disarfell
kemur til Osló i kvöld. Fer
þaðan til Gautaborgar. Helga-
fell kemur til Lubeck i dag.
Fer þaðan til Svendborgar
Mælifell losar á Húsavik. Fer
þaðan til Heröya. Skaftafell
fór 17. þ.m. frá Halifax til
Reykjavikur. Hvassafell fer
væntanlega á morgun frá
Vopnafirði til Ostend. Stapa-
fell fór i morgun frá Reykja-
vik til Austfjarðahafna. Litla-
fell fór i morguh frá Horna-
firði til Reykjavikur. Paal er i
Svendborg. Fer þaðan til
Hornaf jarða r. Arsenij
Moskvin fór 15. þ.m. frá
Sousse til Akureyrar.
Annaö
ferju-
flugslysiö
á skömmum
tíma
ESE — Tveir bandariskir ferju-
flugmenn fórust aðfaranótt s.l.
laugardags, er vél þeirra, af
gerðinni Beechcraft 80 — Queen
Air, lenti utan i fjallshlið við flug-
völlinn i Kulusuk á Grænlandi.
Flugmennirnir, sem voru að
ferja flugvélina frá Bandaríkjun-
um til Evrópu, héldu á föstudag-
inn upp frá Syðri-Straumsfirði á
Grænlandi áleiðis til Reykjavik-
ur. Á leiðinni mun mikil ising
hafa hlaðizt á vélina, auk þess
sem hið versta veður var á þess-
um slóðum. Reyndu flugmennirn-
ir að lenda i Kulusuk, en eins og
áður segir tókst það ekki. Þeir
urðu að snúa frá flugvellinum og
lentu utan i fjalli við flugvöllinn
og biðu báðir bana.
o
Vorvaka
dag hefst svo klukkan 16. Tón-
flutning á þeirri vöku mun Ragn-
ar Björnsson annast að mestu
leyti, en henni lýkur með söng
kirkjukórs Hvammstangakirkju
undir stjórn Helga S. Ólafssonar
með undirleik Ragnars Björns-
sonar. Lýkur þar með vorvöku
Vestur-Húnvetninga 1978, svo að
allir megi ná til sins heima fyrir
sjálfa páskana.
A myndlistarsýningunum
munu verða oliumálverk eftir
Stein Björnsson og Veturliða
Gunnarsson, oliu- og steinamynd-
ir eftir Mariu Jónsdttur, akril og
þekjulitamyndir eftir Mariu
Hjaltadóttur og oliumyndir á tau
eftir Guðrúnu Þorsteinsdóttur á
Króksstöðum. Er þessi mynd-
listarsýning einnig sölusýning.
Þá verða á vökunum flutt ljóð og
óbundið mál eftir Ólaf Jónsson,
Gunnar Halldórsson, Guðmund
Þ. Sigurgeirsson, Eðvald Hall-
dórsson, Ólaf Þórhallsson, Pétur
Aðalsteinsson, Sigurð Gislason,
Valdemar Eylands, Sigurð H.
Þorsteinsson, Jón S. Bergmann
og Magnús F. Jónsson.
Það skal sérstaklega tekið
fram, að enginn aðgangseyrir
verður tekinn af gestum, hvorki
aðtónleikum Ragnars Björnsson-
ar, myndlistarsýningum eðavök-
unum. Þá munu konur Lios-
manna selja kaffi á skirdag og á
laugardaginn fyrir páska meðan
myndlistarsýningar eru opnar.
Myndir á listsýningunni verða
flestar til sölu, en nokkrar eru i
einkaeign. Menningarvökunefnd
skipa Sigurður H. Þorsteinsson,
Hólmfriður Bjamadóttír, Róbert
Jack, Kristján Björnsson og Þór-
hallur Jónsson.
Það er von Vestur-Húnvetninga
að sem flestir sæki vökurnar, og
tónleika þá og listsýningar þær,
sem henni fylgja. Þetta er, eins
og áður segir, i annað skiptið sem
slik vorvaka er haldin, og er það
von manna hún megi verða fastur
liður í. félagslifi sýslunnar.
Tímínn er ?
penlngar
S Auglýslcf
{ í Tímanum i
»»»»»»»•»»»»»♦»»»»»»—»»»—»«»
<R-PiO
4ra manna
Gúmmfbjörgunarbátar
fyrirliggjandi
Athugið verð og greiðslukjör
ÓLAfUR OÍSLASOM & CO. !lf.
SUNDABORG 22 - SÍMl 84800 104 REYKjAV K
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags
Reykjavlkur verður haldinn að Hótel
Sögu, Súlnasal.þriðjudaginn 21.marz 1978
kl. 20,30,
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Lagabreytingar.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
Skíðaferðir í Bláfjöll
úr Kópavogi og Hafnarfirði páskavikuna
Þriðjudag kl. 13 og 18
Miðvikudag kl. 13
Skirdag kl. 13 og 18
Föstudaginn langa kl. 10 og 13
Laugardag kl. 10 og 13
Páskadag kl. 10 og 13
Annan i páskum kl. 10 og 13
Skiðakennari verður á staðnum. Páska- mótið verður haldið annan páskadag.
Tómstundaráð Kópavogs
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar
Skiðadeild Breiðabliks
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
20. mars 1978
Lyfsöluleyfi sem
forseti íslands veitir
Lyfsöluleyfi i Mosfellshreppi er laust til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 20. april 1978.
Umsóknir sendist landlækni.