Tíminn - 21.03.1978, Blaðsíða 14
14
mm
Þriðjudagur 21. marz 1978
íþróttir
Chris Woods varði stórkostlega i marki Forest, sem
gerði jafntefli 0:0 við Liverpool á Wembley
Matthías
kominn á
skotskóna
A laugardaginn fór fram leikur
Liverpool og Nottingham Forest I
úrslitum enska deildarbikarsins á
Wenibley leikvanginum I
Lundúnunt að viðstöddum 100.000
áhorfendum. Fyrir leikinn voru
veðmál fremur Liverpool I vil,
þar sem þeir Peter Shilton,
Archie Gemmill og Dave Need-
ham i liði Nottingham höfðu ekki
leyfi til að leika úrslitaleikinn,
þar sem þeir hafa leikið með öðr-
um liðum í deildabikarnum fyrr á
keppnistimabilinu. 1 liöi
Liverpool var það aðeins Graeme
Souness, sem ekki gat leikið með
af þessari sömu ástæðu.
Leikurinn var mjög jafn fram-
an af og báðir markveröir vörðu
vel í fyrri hálfleik, hinn leikreyndi
Kay C’lemencei marki Liverpool
og hinn ungi og óreyndi Chris
Woods í marki Nottingham, að-
eins 18 ára gamall, hans fyrsti
leikur með aðalliði Nottingham.
En i seinni hálfleik var Liverpool
liðið allsráðandi á vellinum, en
þeim tókst ekki aö brjóta niður
sterka vörn Nottingham, með þá
Kenny Burnsog Larry Lloyd sem
beztu menn, og Woods i markinu
varði oft meistaralega. Sem
dæmi um yfirburði Liverpool i
hálfleiknum má nefna þaö, að
Clemence i marki Liverpool kom
aðeins við knöttinn þrisvar I
seinni hálfleik. En eins og svo oft
kemur fyrir i leikjum sem þess-
um, þá var það liðið, sem var
undir pressu mest allan leikinn,
sem næstum þvi stal sigrinum á
siðustu minútu leiksins. Þá fengu
leikmenn Nottingham þrivegis i
sömu sóknarlotunni góð tækifæri
til að skora, i eitt skiptið varði
Clemence mjög vel, en varnar-
menn Liverpool komu i veg fyrir
mark i tvöskipti á siðustu stundu.
En knötturinn vildi ekki i mark-
ið, og varð þvi að framlengja i
2x15 minútur. bá setti Liverpool
,,super-sub” David Fairclough
inn á i stað Ray Kennedy en allt
kom fyrir ekki, liðunum tókst
ekki að skora mark i framleng-
ingunni frekar en i leiknum sjálf-
um, og verða þau þvf að mætast
aftur á Old Trafford i Manchester
annað kvöld. Má þá búast við þvi
★
skoraði mark þegar Skagamenn
unnu FH 3:1 i Litlu
bikarkeppninni
Hálfdán byrjaður að skora fyrir
Valsmenn
/ Ijósrí og litaðrí furu
LARRY LLOYD...lék mjög vel
gegn fyrrum félögum hjá
Liverpool og var sem klettur I
vörn Forest.
að það verði annar hörkuleikur,
og eitt er vist, að leikmenn verða
ekki eins sparir á mörkin og á
Wembley.liðeins og Nottingham
og Liverpool spila ekki marga
leiki i röð án þess aðskora mark.
ó.O.
Komnar aftur
SKÁPASAMSTÆÐUR
Matthias Hallgrimsson er aftur
byrjaður aö skora fyrir Skaga-
menn. islandsmeistarar Akra-
ness opnuðu knattspyrnukeppnis-
tfmabilið með þvi að vinna auð-
veldan sigur (3:1) yfir FH-ingum
á Kaplakrikavelli á laugardag-
inn, þcgar þeir mættust þar i
Litlu-bikarkeppninni.
Sigurður Halldórsson skoraði
fyrsta mark keppnistimabilsins
— og kom Skagamönnum yfir 1:0.
Pétur Pétursson, (vitaspyrna) og
Matthias Hallgrimsson skoruöu
hin mörk Skagamanna, en Pálmi
Jónssonskoraði mark FH-liðsins,
sem er nú ekki eins sannfærandi
og í byrjun keppnistimabils
undanfarin ár.
Aftur a móti léku Skagamenn,
undir stjórn George Kirby, oft
mjög skemmtilega.
Þrumufleygur Magna
Magni Pétursson, hinn ungi
sóknarleikmaður bikarmeistara
Vals, skoraði „draumamark”,
þegar Valsmenn léku æfingaleik
gegn Haukum um helgina — og
sigruðu stórt — 5:0. Magni skaut
mjög góðu skoti af 26 m færi —
knötturinn hafnaöi efst I mark-
stönginni og þeyttist þaðan i net-
iö. Hálfdán örlygsson, fyrrum
leikmaður KR, lék sinn fyrsta leik
með Val —hann átti góðan leik og
skoraöi 2 mörk. Hin mörk Vals
skoruðu Ingi Björn Albertsson og
Guðmundur Þorbjörnsson.
Nokkrir aðrir æfingaleikir fóru
fram i Reykjavik um helgina.
Þróttarar unnu sigur (1:0) yfir
KR og þá gerðu þeir jafntefli 2:2
við Viking. Unglingalandsliðiö lék
gegn Fram og sigraöi — 2:1.
-SOS
MATTHlAS...aftur byrjaður aö
hrella Islenzka markverði.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
f 11 "■■■ 1 *
Woods
i viga-
móði
— Woods var stórkostlegur.
Hann koin i veg fyrir að við
færum með sigur af hólmi,
sagði Bob Paisley, fram-
kvæmdastjóri I.iverpool eftir
lcik Liverpool og Nottingham
JForest á Wembley. — Við
gerðum alll — nema að skora
mörk —yfirburðir okkar voru
miklir en strákarnir voru
klaufar upp \ ið markið sagði
Paisley.
Brian Clough framkvæmda-
stjóri Forest var mjög
ánægður með frammistöðu
Woods. — Hann var hreint
stórkostlegur og það var okk-
ur til happs að hann var i ess-
inu sinu sagði Clough.
-
Knatt-
spyrnu-
punktar
18 ára strákur
hetja Forest...