Ísafold - 27.08.1884, Page 2

Ísafold - 27.08.1884, Page 2
134 und, en áhorfendur hálfu fleiri. Fyrst gekk þessi litla þyrping í prósessíu um borgina, raðað í fylkingar, með fánum og blæjum. Prósessían var 3 klukkustundir að komast fram hjá einu götuhorni. þegar inn í garð- inn hom, skipti liðið sjer í 7 staði, umhverfis 7 ræðupalla. f>ar voru þingmenn fyrir og aðrir merkismenn, og fluttu tölur fyrir lýðnum, en að lyktum borin upp til sam- þykktar nokkur ályktarorð, lávörðunum til ámælis en stjórninni til uppörvuuar. Mestur rómur var gerður að ræðu þing- manns þess, er Lawson heitir. Hann er bind- indispostuli nafnkenndur og skörungur mik- ill. «Vilji lávarðarnir ekki láta sjer segjast«, mælti hann, «þá ritum vjer drotningunni ávarp og biðjum hana að gera 300 skóara að lávörðum. (Bravo !) Jeg er þó ekki svo mjög meðmæltur þessari aðferð; því mjer finnst það illa gert við skóarana. Jeg þekki ekki nokkurn þann mann, er komizt hefir inn í efri deildina, lávarðadeildina, að hann hafi eigi innan skamms týnt flestum kostum sínum, í stuttu máli, að hann hafi ekki hætt að vera maður, þegar hann varð lávarðum. (Hlátur). Hann kvað sjer lítast annað ráð betra, og það væri að neðri deild- in beitti sínu fjársynjunarvaldi. þá væri éfri deildin frá. A fánana í prósessíunni var saumað margskonar letur. A einum stóðu þessi orð : Stattu á rétti þínum en sittu á lávarð- anna. A öðrum : þá, sem guðin vilja glata, firra þau vitinu áður. Lávarðamir hafa borizt líkt ráð fyrir einu sinni áður, fyrir rúmri hálfri öld. En leikslokin urðu þeim lítill fagnaður, og svo mun enn. f>á, 1832, var á ferðinni stórmikil kosningarrjettarbót, er neðri deild hafði samþykkt með öllum þorra atkvæða. En lávarðarnir hrundu frumvarpinu. Báða- neytið, þeir Grey og hans sessunautar, sögðu af sjer. Konungur,VilhjálmurIY, tók þvífeg- ins hendi; hann var rammur apturhalds- maður. En ekki var hlaupið að því að fá hæfi- lega menn í nýtt ráðaneyti. Eptir mikla mæðu ljet hertoginn af Wellington tilleiðast, sigurvegarinn frá Waterloo, mesti frægðar- rnaður. En svo var kurrinn megn í lýðnum, að þeim konungi og honum var naumast óhætt að láta sjá sig á strætum úti. A fundi í neðri deild skömmu síðar var apturhalds- mönnum gerður sá aðsúgur, að einn höfuð- paurinn úr þeirra liði sagði svo við Welling- ton kvöldið eptir, að hann vildi heldur standa aughti til auglitis við þúsund djöfia heldur en þingmenn í því skapi. f>á gafst Wellington upp, og var konungi nauðugur einn kostur að taka þá Grey aptur til ráða-1 neytis sjer. f>eir þröngvuðu síðan konungí til að skrifa uudir skjal um að gjöra svo marga frelsismenn að lávörðum, þ. e. þing- mönnum í efri deild, að hinir yrðu þar í minni hluta. Grey hafði þessa nýju lávarða- skrá í vasanum á næsta fundi í efri deild. þá fjell apturhaldsmönnum allur ketill f eld, og létu undan, án þess að til þéss kæmi að nota skjalið. því er það, að Lawson kom nú með þetta þjóðráð að fjölga lávörðunum — með 300 skóurum Kóleran. — Hún hefir htið dreifzt út, að eins til 2 borga sunnan á Frakklandi um- fram það sem áður var : Lyon og Arles. Virðist vera heldur í rjenun, það sem það er. Mobðráð við Rússakeisaba. — Hann ætl- aði vestur til Warschau seint í f. m. En skömmu áður varð uppvíst um samsæri þar í borginni. Skyldi sprengja aðseturshöll hans þar í lopt upp. Fjöldi manna voru handsamaðir, bæði í Warschau og Pjeturs- borg. J>eir bíða nú dóms. Norðceskautsfebða-hbakningur. — Fyr- ir fám árum var eptir uppástungu Wey- prechts norðurfara frá Austurríki það ráð gert, að senda uáttúrufræðinga af ýmsum löndum til vetrarsetu norður í óbyggðum, svo nærri heimskauti sem auðið væri, á eitthvað 12 stöðum hringinn í kringum heim- skautið, í því skyni að athuga þar veðra- brigði og ýmsar aðrar tilbreytingar í nátt- úrunni, allir jafnsnemma, frá 31. ágúst 1882 til jafnleugdar árið eptir. Var skipt með sjer verkum eptir því sem hentast þótti. Danir höfðu sínar stöðvar t. d. í Grænlandi, í Upernivík; Austurríkismenn á Jan Mayen, —herskipið Pola, er hjer kom í fyrra, var að vitja þeirra, sem þar sátu. Ollum þessum leiðangrum reiddi vel af, nema þeim frá Bandaríkjunum í Norður-Ameríku. Enda höfðu sendimenn þaðan verstu stöðvarnar: á 80. mælistigi norðurbreiddar, við Frank- linsflóa við Smithsund, milli Grænlands og Ameríku, í þeim mikla klakageim. J>eir lögðu af stað ári á undan öðrum, vorið 1881, með því að það er svo hæpið að komast þar norður eptir fyrir ísum. Fyrir förinni rjeð Greely lautinant, vaskur maður og öt- ull. |>eir komust alla leið samsumars, og sneri skipið, sem flutti þá, heimleiðis aptur 18. ágúst. J>eir höfðu vistir til tveggja ára og valinn útbúnað að öðru ksyti. Sumarið eptir var sent skip norður að vitja um þá, til vonar og vara, en það komst hvergi fyrir ís. þriðja sumarið, 1883, voru send 2 skip að sækja þá, en það fór á sömu leið. I vor var enn gerður út hinn þriðji leiðangur í sama skyui, með þrem skipum, 2 frá Banda- ríkjum og 1 frá Englandi, er stjórnin þar gaf Bandamönuuin til fararinnar. Skip þessi komust við illan leik norður í mynnið á Smithsundi. Voru eptirleitarmenn svo heppnir að finna þar loks þá Greely og fjelaga hans 6, en að fram koma; 19 voru dauðir. f>að var 22. jxiní. Er svo sagt, að hefðu leitarmenn komið 2 dögum síðar, mundu þeir engan þeirra hitt hafa á lífi. Einn þeirra, sem á lífi fundust, ljezt síðan á heimleiðinni; höfðu kalið af honum bæði hendur og fætur. |>eir höfðu hafzt við 9 mánuði þar sem þeir fundust, frá því í fyrra haust, og borizt þangað norðan að á jaka, eptir mánaðar-hrakning. þessir 19 ljetust seinni part vetrar, af hungri og kulda. Greely lætur vel yfir för sinni að öðru leyti. f>eir höfðu komizt lengra norður en nokkrum manni hefir áður tekizt, eða 83 stig 24 mín.; áður lengst 83° 20'. J>eir fundu að Grinnelsland er eyja. f>ar kom- ust þeir upp á 5000 feta hátt fja.ll. Af öðru fjalli, 2000 feta háu, þar sem þeir komust lengst norður eða þar nærri, var víðsýni mikið norður af og austur, og hvergi land að sjá, nema í landnorðri; þar sáu þeir höfða allmikinn, á að gizka á 83° 35' norð- urbreiddar, og kenndu við Róbert Lincoln, hermálaráðherra Bandamanna. f>að er norður af Grænlandi. t Brjef úr Odáðahrauni, eptir pcruv’a C3 cfíuyioddocn. L Herðubreiðarlindum 27. júlí 1884. Ódáðahraun er hinn hálendasti kafli af öræfum Islands, og hefir ávallt verið þvínær ókunnur byggðamönnum, þrátt fyrir það, þótt ýmsar tilraunir hafi verið gjörðar til að rannsaka hraunið og finna vegi um það. Á 17. öld er þess opt getið, að menn fóru frá Austurlandi suður yfir Odáðahraun, og þann veg fóru Skálholtsbiskupar opt á vísitazíu- ferðum sínum til Austfjarða. f>ann veg fór Oddur biskup Einarsson, er hann hitti úti- legumennina, og er sagt að Bjarni sýslu- tnaður Oddsson hafi farið þann veg síðastur árið 1736. Vegur þessi hefir að öllum lík- indum legið frá Möðrudal og yfir norðurjað- ar hraunsins, í Kiðagil. Vestan við Jökulsá, litlu fyrir sunnan Möðrudal, er fell, sem heitir Ferjufjall, milli Grafarlanda og Herðu- breiðarlinda; þar er ágætur áningastaöur áður en lagt er á hraunið; síðan taka við þaðan í norðvestur grýttar melöldur upp undir norðurenda Herðubreiðarfjalla, eða Dyngjufjalla hinna nyrðri, en l.til hraun; þar hefi ég og séð vörðubrot, og eina mosa- vaxna vörðu ágætlóga hlaðna rúmlega inann- hæðar háa; hefir vegurinu síðan legið fyrir

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.