Ísafold - 24.02.1892, Side 1

Ísafold - 24.02.1892, Side 1
'Kemur út á miúvikudögum og laugardögum. Verö árg (um lOOarka) 4 kr., eriend- is 5 kr.; borgist fyrir miöjan iúlimánuö. ISAFOLD. XIX. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 24. febrúar 1892- Jarðræktin í Reykjavík. Eptir Sœm. F.yjólfsson. II. £>ótt það sje engum va£a bundið, að jarð- ræktin, einkum grasræktm, sje mjög arð- söm og ábatavæn í sveitinni, þá er samt alls eigi ástæðulaust að bera upp þá spurn- ingu, hvort jarðræktin muni svara kostnaði eða vera ábatasöm hjer í Reykjavík. Hjer hagar að ýmsu leyti oðruvísi til. Jarðrækt- in er hjer miklu kostnaðarsamari en hún er til sveita, aí þvi landið er svo hrjóstrugt og illt viðureignar, ýmist holt eða melar, eða þá graslitlar mýrar. Et vjer viljum gjöra oss nokkra greiu fyr- ir því, hvermg túnrœktin launar kostnaðinn hjer í Reykjavík, þá verður auðveldast að gjöra það með því, aö athuga hann í sam- bandi við kvikfjárræktina, eða í sambandi við kúaeign; því lijer rækta menn eigi töðu, svo teljandi sje, nema fyrir kýr. það er auðveldast að skoöa þetta tvennt sem eina utvinnugrein, og athuga siðan, hvernig hún launar kostnaðinn. það er og hægra að gjöra slíka athugan hjer en víðast annars- staðar hjer á landinu, af því mjólkin hefir hjer ákveðið gangverð. E£ einhver gjörir t. d. einn kýrvöll að túni, og athugar, hvað ,það kostar, þá kemur fram sá höfuðstóll, er henn leggur upphafiega í túnræktina. Ef hann hefir svo kú á töðunni, þá verður ár- legi kostnaðurinn við þessa atvinriu: að bera á túnið og hirða það, slá það og flytja heyið heim, viðhald á túninu og opinber gjöld o. s. frv., og í öðru lagi hirðing á kúnni, leiga af húsnæði fyrir hana og heyið, vextir og afborgun af verði hennar, að mjólka hana og koma mjólkinni í peninga o. fl. Tekj- urnar eru mjólk kýrinnar. Mismuninn á þessum árlegu gjöldum og tekjum má þá telja sem árlega vöxtu af þeim höfuðstól, 8em upphaflega var varið tii að gjöra kýr- 'völlinn að túni. ^ijer hafa fáir eða engir, að því, er mjer er kunnugt^ athugað nákvæmlega, hvað þeir hafa lagt í kostnað til að gjöra einhvern blett af óraektuðu landi að góðu túni, og hvað þeir hafa svo borið úr býtum. Jeg get því eigi gjört neina áætlun um þetta, svo að nokkuð veruiegt sje 4 henni að græða. Eptir því sem hið óræktaða laud gjörist hjer, UPP °g niður, mun eigi vera mjög fjarri sanni, að gjöra ráð fyrir, ag kostnaðurinn við að gjöra einhvern blett af óræktuðu landi að góðu túni verði um 300—350 krónur á hverja dagsláttu (o: að sljetta, lokræsa, og girða, og kostnaður við þann áburð, sem þarf til þess að koma túninu í góða rækt). iþað mun nú mega gjöra ráð fyrir, að 2J— 3 dagsláttur af túni gefi af sjer kýrfóður. ^eg vil því gjöra ráð fyrir, að það kosti 1000 krónur að koma upp einum kýrvelli, eða 8Jöra hann að tirni. Jeg get ímyndað mjer, að sutnum kunni að þykja þetta of hátt 'talið, og jeg held einnig að það sje fremur of hátt en of lágt; en þó mun það varla kosta miklu minna að meðaltali. það kost- ar mikið að gjöra dagsláttu af óræktarmýri eða graslitlu holti að góðu og vel ræktuðu túni. Eptir því sem ræktunin er verri og ófullkomnari, eptir því sprettur túnið ver, og eptir því verður kýrvöllurinn stærri. Kýr- fóðrið fæst eflau8t með minnstum kostnaði með því, að rækta vel það, sem ræktað er. það verður ávallt bezt og drjúgast, að leggja góða rækt við það sem ræktað er. það er mjög erfitt að ætla á um það, hve árlegi kostnaðurinn við kýrvöllinn og kúna verði mikill; en setjum svo, að hann verði 200 krónur. það er ólíklegt, að hann verði meiri. það mun láta nærri, að með- alkýr hjer á landi mjólki 2500 potta á ári. Sje nú verðið á mjólkurpottinum talið 20 aur., svo sem hjer tíðkast venjul., verður ársmjólk kýrinnar 500 kr. virði. það getur verið, að ársmjólkin sje talin of mikil, því kýr mjólka fretnur illa hjer í Reykjavík. I annan stað er útsala á mjólkinni eigi ætíð viss, þótt það sje líklega fremur af ólagi og óhagan- legri tilhögun en hinu, að hún geti eigi ver- ið það. það er og heldur eigi ólíklegt, að mjólkin kunni að lækka nolckuð í verði, ef kúnum fjölgar að mun; en þó er það alls eigi víst. Yjer skulum því taka tillit til alls þessa, og setja svo, að ársmjólk kýr- innar sje 400 kr. virði. Mismunurinn á kostnaði og tekjum yrði þá 200 krónur, en þær 200 kr. mætti þá telja sem vöxtu af þeim 1000 kr., er upphaflega var varið til að gjöra kýrvöllinn að túni. Arlegir vextir af þeim höfuðstól yrðu eptir því 20;' . þessi áætlun hefir að vísu eigi við mikið að styðjast, og það er eigi ólíklegt, að reyndin verði nokkuð á annan veg, þegar farið verður að gjöra nákvæmar athuganir um þetta. það er þó eigi líklegt, að hagn- aðurinn reynist tniklu miuni en jeg hefi hjer talið hann, enda hefi jeg við þessa áætlun leitazt við að gjöra svo ráð fyrir hverju einu, að hagnaðurinn yrði fremur of lítill en of mikill, því jeg hefi viljað vera viss um, að vekja eigi um of glæsilegar vonir í þessu efni. Garðrœktin eða matjurtaræktin getur sjálf- sagt gefið góðan arð hjer í Reykjavík, eink- um kartöfluræktin. Sumir telja það mikinn kost við garðyrkjuua, að hún gefi mikla uppskeru af litlum bletti, en þetta skiptir mjög litlu hjer á landi, því hvert ákveðið íiatarmál, t. a. m. dagslátta, er í svo afar- litlu verði, og enginn skortur er á landrými til ræktunar. þó getur þetta komið til greina hjer í Reykjavík, því hver lands- blettur er hjer í margfalt hærra verði en til sveita, og landrýmið er hjer margfalt takmarkaðra. Af þessari ástæðu getur því jafnvel verið meiri ástæða til að leggja hjer stund á garðyrkju en almennt í sveitum. f>að, sem þó sjerstaklega mælir með garð- yrkjunni hjer framar en í sveitinni, er sá aukaáburður, sem hjer er kostur á, og eigi steudur í neinu beinu sambandi við kvik- Uppsögn (akrifleg) bundin við áraraót, ógild nema kom- in sje til útgefanda fvrir 1. októberraán. Afgreiðflustofa í Austurstrœti 8. || 16 blað. fjárræktina, en það er fiskivirgangur og þang. Garðyrkjan hjer þarf því eigi beinlínis að standa í vegi fyrir grasræktinui. Auk þessa getur það ekki komið til neinna mála, að það sje heppilegt að stunda garðyrkju í sveitum nema til heimilisþarfa; — að rækta t. a. m. kartöflur^til sölu getur alls eigi svarað kostnaði vegna flutninganna. Garð- yrkjan í sveitinni getur verið til nokkurra hagsmuna og mikilla þæginda, en getur aldr- ei orðið neinn verlegur atvinnuvegur. En hjer í Reykjavík, og yfir höfuð að tala í fiskiverum og kaupstöðum, getur verið öðru máli að gegna, því hjer má selja kartöflur og rófur, og koma þeim í peninga með litl- um kostnaði. Jeg get eigi annað ætlað, en að kartöfluræktin hljóti að geta gefið hjer mik- inn arð. |>að er að vísu eigi unnt að segja neitt ákveðið um það, því til þess vantar nægar athuganir. Ef jeg vildi fara að gjöra einhverja áætl- un um þetta, mundi hún að mestu verða út í bláinn. það, sem eigi sízt gjörir svo erfitt að ætla á um árlegan kostnað við garðana, er áburðurinn, því hann verður að metast til verðs. En þegar gras er rækt- að, og einhver kvikfjenaður alinn á því, þá þarf eigi sjerstaklega að reikna verð áburð- arins, þá er hinn árlegi kostnaður við gras- ræktina er talinn; því ef það væri gjört, hlyti að koma jafnmikil upphæð í tekju- dálkinn, þá er arðurinn er talinn af kvik- fjenaði þeim, sem fóðraður er á grasinu, því frá kvikfjenaðinum fæst sá áburður, sem fóður hans er ræktað með. jpar sem gras- rækt og kvikfjárrækt fara saman, er jörðin eigi svipt frjóefnunum, heldur eru þau tek- in til láns hjá henni um stundar sakir, og svo er þeim skilað aptur. Við garðræktina er jörðin beinlínis svipt frjóefnum og þeim ekki skilað aptur. þess vegna verður að fá sarns konar efni annarstaðar frá til þess að bæta henni skaðann. Sá, sem vill gjöra sjer reikningslega grein fyrir garðyrkju sinni, verður því að gefa áburðinum, sem hann ber í garðinn, eitthvert ákveðið verð- mæti. Jeg vil gjöra ráð fyrir, að það kosti 400 kr. að gjöra kartöflugarð að nýju, sem er 400 □ faðar að stærð, og búa hann að öllu leyti undir, svo sem hlaða girðinguna, pæla garðinn upp, flytja þangað mold eða sand til þess að bæta jarðvegiun, ef þess þarf, lokræsa vandlega. þurfi meiri áburð í fyrsta sinn en annars þarf árlega, verður að telja það með. Ef þetta kostar 400 kr., þá er það sá höfuðstóll, sem upphaflega er varið til garðsins. Jeg vil enn fremur gjöra ráð fyrir, að árlegi kostnaðurinn við garðinn verði um 140 kr., svo sem það, að flytja í hann áburð, verð áburðarins, að stinga garð- inn upp, að gróðursetja kartöflurnar í lrann, hirða hann að sumrinu, taka kartöflurnar upp úr honum, þurrka þær, koma þeim í peninga o. s. frv. Arlegu tekjurnar eru apt- ur þær kartöflur, sem árlega fást úr garðin- um, eða verð þeirra. Jeg gjöri ráð fyrir

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.