Ísafold - 19.07.1893, Page 2

Ísafold - 19.07.1893, Page 2
186 eigin hag, og svíkjast um að gefa :'ireið- anlegar skýrslnr handa almenningi. En eigi er ástæða til að gruna kaupmenn um pretti öðrum mönnum fremur að rauna- lausu. Og þó svo færi, að sá, er þetta er- indi ræki, hefði þar að auki veg af því sjálfur ef vel tækist til, þá væri þar fyrir enginn skaði slceður. Því höfuð- árangur ferðarinnar kæmi þó landinu í heild sinni að gagni, að minnsta kosti þeim, er stunda sjávarútveg, og þar að auki er ekki óhugsandi, að sá er færi för þessa gæti orðið að töluverðu liði að því er snertir aðrar verzlunarvörnr landsins. D. T. Um afnám læknaskólans í Reykjavík. Eptir landlækni Schierbeck. ísafold hefur nýlega flutt 2 greinar ura «afnám læknaskólans í Reykjavík«. Með því jeg er ekki að öllu leyti samdómahin- um heiðruðu greinarhöfundum, vil jeghjer með hiðja yður, herra ritstjóri, að l)á rúm í blaði yðar nokkrum athugasemdum um málið. Um eitt gætum vjer að líkindum allir orðið ásáttir, og það er, að engin ástæða væri til að halda læknaskóla í Reykjavík, ef vjer hefðum fulla tryggingu fyrir því, að geta ávallt fengið nógu marga nýtilega lækna frá öðrum löndum. Þyki mönnum sem landið hafl þá tryggingu, þá ræð jeg til, að læknaskólinn í Reykjavik sje lagður niður; því það liggur í augum uppi, að kennslan hjer getur eigi verið eins góð, eins yflrgripsmikil og eins verkleg og í útlöndum, þar sem kennarar erusvomarg- ir og skólarnir svo fullkomnir. En vanti þessa trygging, ætla jeg rjett- ara, að umbæta skólann en að leggja hann niður. Læknaskólinn er heldur engan veg- inn svo illa staddur, sem menn virðast gjöra sjer í hugarlund ; að hann sje ef til vill í miður góðum metum í Kaupmanna- höfn, mun að líkindum mcstmegnis sprott- /ið af ókunnugleik á honum og stöku mið- ur góður dæmum, sem læknisfræðis-deild háskólans heflr rekið sig á; en sem betur fer eru þessi dæmi of fá til þess, að hægt sje að byggja á þeim rökstuddan dóm um skólann í heild sinni. Það er mjög svo eðlilegt, að lærisveinum læknaskólans bæði sje og hljóti að vera ábótavant í ýmsum námsgreinum; en jeg er sannfærður um, að mörgum hinna betri lærisveina vorra muni eigi veita svo mjög örðugt aðstanda útlendum námsmönnum á sporði, er þeirra er vitjað til sjúkra. Jeg hefl haft það aðalmark og mið síð. an jeg kom hingað til lands, að beina kennslunni við læknaskólann í verklega stefnu, og í þá átt var tillaga mín 1883, um stofnun nýtilegs spítala í Reykjavik, einkum stíluð. Jeg hafði fengizt við það mál jafnvel meðan jeg var í Khöfn, með því að mjer gat ekki dulizt, að eintóm bók, leg kennsla fyrir læknisefni væri allsendis ónóg. En er þessari tillögu minni var eigi gaumur gefinn, tók jeg það ráð, að hafa ókeypis »klinik« fyrir fátæklinga á spítal- anum, og lagði þannig í sölurnar nokkuð af læknistekjum þeim, er jeg hefði getað haft utan hjá. Við þessa. »klinik« eiga lærisveinarnir kost á tvisvar í viku að rannsaka sjúklinga, finna hvað að þeim gengur og stinga upp á lækningaraðferð- inni; einnig njóta lærisveinar hjer tilsagn- ar í umbúðafræði (Bandagelære) o. s. frv. Það heflr heldur ekki verið neinn hörgull á meiri háttar og opt og tíðuin mjögerflð- um «operatíónum«, er lærisveinarnir hafa verið látnir taka þátt í, svo að lærisveinar læknaskólans í Reykjavík hafa að þvíleyti fengið betri tilsögn ennokkursstaðarannars- staðar; þvíað íöðrumlöndum eru operatíónir gerðar með aðstoð kandidata, en nemend- ur mega hundruðum saman láta sjer lynda að sitja langar leiðir frá opei’atíónsborðinu og þykjast góðu bættir, ef þeir koma rjett sem snöggvast auga á eitthvert handarvik læknisins. Að nemendur lijer á læknaskólanum geti notið eigi svo lítillar verklegrar fræðslu má og sjá af því, að nú sem stendur eru þessir sjúklingar á hinu litla sjúkra- húsi voru, sem er einstakra manna eign : 1 sjúklingur (Eyjólfur Grímsson). Lær- hnútan tekin úr mjaðmarholunni (Re- sectio coxae). 1 sjúklingur (Ragnheiður Magnúsdóttir). Milcill hluti af neðri kjálkanum tekinn burt ásamt stóru meini (Resectio maxill. inf.). 1 sjúklingur með hnjámeini (»svamp« í hnjáliðnum). 1 sjúklingur, sem hefir verið ópereraður í endaþarminum. Auk margra annara sjúklinga. Enda þótt vjer sjeum hvergi nándar nœrri komnir eins langt hjer einsogmenn eru komnir á stórum spítölum erlendis, þá getur þó enginn, sem þekkir til, hvernig hjer var ástatt áður og hvernig það er nú, borið á móti því, að læknaskólinn veitir lærisveinum sínum rni miklum mun ræki- legri og yflrgripsmeiri verklega kennslu en áður átti sjer stað. Yfir höfuð er lækna- skólinn hjer á svo góðu reki, sem senni- legt er að ætlast til að af 3 læknum ogó- fullkomnum áhöldum. Vilji menn ekki leggja niður skólann, er auðvelt að benda á, hvað gjöra þarf til þess að endurbæta hann. Fyrst af öllu er það stofnun reglulegs spítala, og leyfi jeg mjer í því efni að skýrskota til tillögu minnar 1883; þá væri einnigþar með feng- ið baðhús, sótthreinsunarofn og rúm fyrir nokkra vitskerta menn o. s. frv. Skipun eins kennara í viðbót, sem einkum ætti að hafa á hendi »kliniska« tilsögn í innvortis sjúkdómum. Ókeypis lækning og aðhlynn- ing á spítalanum fyrir fátæka sjúklinga. Til þess að efla þrif og gengi skólans er öldungis nauðsynlegt, að bæta kjör læknanna, því að annars geta menn ekki búizt við, að efnilegir nemendur vilji nota hann. Kjör lækna má bæta með því, að hækka beinlínis laun þeirra; með því að nema úr gildi hinn núverandi læknataxta, með hinum hlæilegu fyrirmælum hans; veita læknum, eins og sýslumönnum og prestum rjett, til að láta taka lögtaki, og veita aukalæknum rjett til eptirlauna; eða þá með því, að hjálpa fátæklingum með árlegu tillagi úr landssjóði til þess, að borga meðöl og læknishjálp sómasamlega. Sýslumenn ættu þá að kveða áum, hverja. bæri að álíta fátæka; læknirinn að nefna sjúkdóminn, og stiptsyfirvöldin, með ráði landlæknis, að skera úr, hverjir fátækling- ar skuli verða aðnjótandi styrksins úr- landssjóði, og hve mikill styrkur hverjum fyrir sig yrði látinn í tje. Gætu læknar þannig hat’t verulegan arð af vinnu sinni og fyrirhöfn, mundi það hvetja þá til fram- kvæmda, þar sem hætt er við, eins og nú á stendur, að þeir missi löngun og við- leitni til læknisstarfa og skoði jafnvel sjúk-- lingana eins og óþægilegn ónáðaseggh. Þegar læknar geta ekki lifað á launum sínum og þeir fá lítið sem ekkert fyrir verk sín og fyrirhöfn, neyðast þeir til, eins. og aðrir, að bæta sjer það upp með þvi að stunda eitthvað annað, sem er ef til vill læknisiðninni harla óskylt. Ennfremur skal jeg að eins leyfa mjer að benda á einn örðugleika, sem kemur i Ijós, ef læknaskólinn heldur áfram, og jafn- framt gefa kost á sjer nokkrir ungir ís- lenzkir læknar, sem lært hafa utanlands. Vilji menn nú skilyrðislaust taka þessa ungu lækna fram yflr læknaskólakandí- data og láta þá sitja fyrir læknaembætt- unum, þá ríður það læknaskólanum að fullu; því að það er ekki sjerlega girmandi fyrir stúdentana, að ganga læknaskólaveg- inn til þess, að eiga í vændunj að þjóna aukalæknisembætti helming æfi sinnar, með 1000 kr. árlegum launum og engum rjetti til eptirlaúna. Þar að auki virðist: mjer ekkert rjettlæti i slíku; því að sam- kvæmt lögum 11. febr. 1876 liafa lækna- skólakandídatar rjett til læknaembætta á Islandi, og í von um, að geta náð þessu takmarki, hafa þeir stundað nám við skól- ann og gengið undir burtfararpróf. En þá koma keppinautar, sem hafa, ef svo mættii að orði kveða, aflað sjer nokkurs konar yfir- heimildar til embættanna. Þetta er rangt. En á hinn bóginn er mjög leiðinlegt, að geta eigi af slíkum ástæðum tryggt land- inu góð læknisefni, er bjóðast kynnu þá. leiðina. Jeg lýk máli mínu með þeirri ósk og von, að þessar fáu athugasemdir geti orð- ið til þess, að gefa mönnum rjetta hug- mynd um læknaskólann og stöðu lækna hjer á landi. Prestsvígsla. Sunnudag 16. þ. m.. vígði biskup landsins þessa þrjá presta: Einar Pálsson að Ilálsi í Fnjóskadal, Ófeig Vigfússon að Guttormshaga og Sigurð Jónsson að Þönglabakka. Gufuskipið Stamford kom í gær hing- að beint frá Englandi, eptir hestum o. s. frv. Fer aptur á morgún. Frá útlöndum frjettalaust að kalla með «Stamford». ViJcingur, norska forn- aldarskipið, er sagt heflr verið frá í þessu blaði ýtarlega, kom til Netv-York 17. júní og hafði gengið vel ferðin yflr Atlanzhaf; var þar fagnað forkunnar vel. Dáinn er og hinn frakkneski skáldsagnahöfundur Guy de Maupassant, er vitskertur^ varð- fyrir nokkrum missirum.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.