Ísafold - 02.03.1895, Page 1

Ísafold - 02.03.1895, Page 1
Kemur útýmisteinu ainni eða tvisv.íviku. Verð árg.(80arka minnst)4kr.,erlendis5kr. eða 1 */» dolí.; borgist fyrir miðjan jiili (erlendis íyrir í'ram). ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. oktober. Afgreiðslustofa blaðsins er í Austurstrœti 8. XXII. arg. Reykjavík, laugardaginn 2. marz 1896. 19. blað. Landsbankinn. Þegar menn vilja fá lán í Landsbankan- nm gegn sjálfskuldarábyrgð, og sjálfskuld- arábyrgðarmennirnir eiga heimili langt frá líústað syslumanns, þá geta þeir búizt við að fá lánið, mæli önnur atvik með því, þótt undirskrift sjálfsábyrgðarmannanna sje eigi staðfest af notarius publicus (syslu- manni), ef hreppstjóri með tveimur valin- kunnum, búsettum mönnum, er tilgreina jheimili sitt, votta á ábyrgðarskjalið, að þeir hafi sjeb sjálfsdbyrgðarmennina rita nöfn sín undír það með fúsum vilja og alls gáða. í Landsbankanum 27. febr. 1895. Tryggvi Gunnarsson. xfx xfx. xfx, xfx xfx xfX ,xfx xfx, xfx ,xfx. xfx. xfx xfX, xfx, xfx, H- Chr. Hansen, stórkaupmaðui (Rör- holmsgade 3) í Kaupmannahöfn, byrjaði ís- lenzka umboðsverzlun 1882, tekur að sjer innkaup á vörum fyrir ísland, selur einnig islenzkar vörur í Kaupmannahöfn og Leith. Kaupir íslenzk frímerki fyrir hæsta verð. x>x' X|X' X+X' XÍX xjx XfK xix xix 'xix' 'xix 'xix' x;x xix‘ XÍX 'xix' „Mörg er bumannsraunin”. Eptir síra Ólaf Ólafsson í Arnarbæli. II. (Niðnri.). En— þær eru fleiri búmannsraun- irnar þetta ár en bráðapestin. Heyin hjer á Suðurlandi hafa reynzt víðast bæði afar- ljett og illa verkuð, einkum allt krapthey, svo sem taða og stör; stafar það af moll- unum og þerrileysinu í sumar. Af þessu leiðir það tvennt, að miklu meira þarf að gefa en vanalegt er og að stór brestur er og verður þetta ár á gagnsmunum af kúm. Við þessu er vitanlega ekkert hægt að gjöra, en samt er það ekki með öllu ófróð- legt, að gjöra sjer einhverja hugmynd um skaðann á mjólkinni, þó ekki sje nema í •einni sveit. Mjólkin er ætíð mikilla pen- inga virði, og það ekki sizt í þeim sveit- um, þai sem kúabúin eru aðallifstofn Tnanna. Þegar kýrnar bregðast i þeim sveitum, þá er það ekki ósvipað og þegar fiskurinn bregzt sjáfarbændunum. Jeg skal nú engar getur leiða að því, hvern skaða menn hafa beðið og bíða í þessu efni í öðrum sveitum og hjeruðum; það hagar misjafnlega til og hey eru mis- jafnlega verkuð; betri á einum staðnum, lakari á öðrum. Aptur á móti er mjer uokkuð kunnugt um málnytmnissi hjer í sveit. Málnytuskaðinn er bjer að minnsta kosti 2 merkur í mál, eða 2 pottar á dag árið yfir á hverri kú. Nú eru taldarfram um 300 kyr í sveitinni. Verður þá reikn- ingurinn yfir málnytuskaða sveitarinnar á þessa leið: Málnytuskaði fyrir hverja kú, 2 pottar af nýmjólk á dag, í 365 daga verður................ 730 pott. Hver pottur gjörður á 12 aura verður fvrir hverja kú .... kr. 87,60 Og fyrir kýr allrar sveitarinn- ar (300)............, . . kr. 26280,00 Þegar nú hjer við bætist skaði sá, sem fjárpestin hefir gert sveitinni, eða 700 fjár, hver kind gjörð á 5 kr., ails 3500 kr., þá verður skaði sá, sem ein sveit bíður af pestinni og málnytuskaðanum þetta eina ár kr. 26280,OO+kr. 3500,00 = kr. 29780,00. Við þetta yfirlit má nú gjöra þá athuga- semd, að flestar kyr standa geldar ein- hvern tíma af árinu og að því tjái ekki að reikna mjólkurmissi fyrir hvern dag ársins; og enn fremur, að ekki megi telja hverja pestdauða kind að öllu leyti tap- aða, þar sem opt megi nýta mikið af þeim.— Fyrra atriðinu svarast á þá leið, að enda þótt gjöra megi ráð fyrir, að kyrin standi einhvern tíma ársins geld, þá er iíka mjólkurmissirinn miklu meiri en hjer er gjört ráð fyrir meðan þær eru mjólkandi; því ineiri hluti kúa nær ekki nema hálfri og tveim þriðju hlutum nytjar; að eins ör- fáar kyr komast nærri fullri nyt. Er því svo langt frá, að of hátt sje reiknað, að skaðinn er í raun og veru, er á allt er lit- ið, að öllum líkindum frekari. En að því er hið síðast talda atriðið snertir, þá verð- ur og að líta á missi þeirra gagnsmuna, sem kindin hefði borið bóndanum, ef hún hefði lifað, og sem hann við dauða henn- ar fer á mis við. Það er meira en stund- arskaði að missa y4, y8 eða helming fjár sins. Það lifirenginn að ári komandaeða hitt árið á gagnsmunum þeirra kinda, sem drápust í haust. Þegar öll kurl koma til grafar, má því reikna fullt verð fyrir hverja pestdauða kind, enda þótt eitthvað nýtist af þeim, sem þó er í reglulegum pestarhjeruðum bæði illt og lítið. Því er nú svona háttað hjer á landi, að sje einhver svo forvitinn, að vilja vita um ástand, gagnsmuni eða skaða þjóðarinnar eða einstakra hjeraða í einhverri grein, þá verður hann optast að byggja á áætl- unum og ágizkunum. Fer þá, sem við er að búast, svo, að »sínum augum lítur hver á silfrið«; einn lítur á málið frá þessari hlið, hinn frá annari. Hagfræðisskýrslur vorar eru fáar og því miður í mörgum greinum óáreiðanlegar. i öðrum löndum er safnað nákvæmum skýrslum um flest- allt, sem nöfnum tjáir að nefna; hjer finna menn ekki þörf á slíku og þvílíku; sum- um þætti það líklega »óþarfa-hnýsni«. Vjer göngum því í mörgum efnum sem í myrkri og fálmum út i loptið eins og börn í blindingsleik; það er opt einhver »blind hending*, eðft það, sem almenningur kall- ar »hundaheppni«, ef vjer rekum okkur á það, sem vjer erum að leita að eða oss langar til að vita. Gaman væri nú að reka einu sinni af sjer slyðruorðið, og að allir hreppstjórar landsins söfnuðu nú með vorinu nákvæm- um skýrslum hver í sínum hreppi um tölu hins pestdauða fjár með sennilegu verði; senda síðan skýrsluna hver slnum sýslu- manni; en þeir birta aptur 1 blöðunum stutt yfirlit yflr hverja sýslu. Að þessu væri bæði gagn og gaman. Fiskisamþykktir eða lagaleysi. í »Fj.konunni«, 1. þ. m., stendur grein, eptir hr. Guðm. Einarsson í Nesi, um »fiski- samþykktir«. Vildi jeg leyfa mjer að gera við þá grein fáeinar athugasemdir. Meðal annars segir þar, að »þegar menn hafi verið að gjöra fiskisamþykktir, hafi menn verið svo óhyggnir að hnýsast ekk- ert eptir breytni Norðmanna í þessu efni, heldur fálmað alveg í blindni«. Þetta er ekki rjett hermt. Þeir eru mjög margir hjer syðra, sem einmitt hafa kynnt sjer háttu JNorðmanna hvað fiskiveiðar snertir, eptir því sem auðið er, og skal jeg skýra það seinna. Auk þess hafa menn alls ekki fálmað í blindni, heldur byggt skoðanir sínar á margra ára reynslu og eptirtekt. Enn fremur er þar borið fram, að »síð- an 1816 hafi hverjum manni við Lófótinn verið leyft að brúka hvert það veiðarfæri, sem hann vill ... að ályktun fiskifræðing- anna hafi verið sú, að ekkert sjerstakt veiðarf'æri spilli fiskigöngunni ... að eng- um sje mögulegt að reikna út fiskigöng- una fyrirfram«. Þetta er nú allt rjett skráð, en þó ekki nema hálfsögð sagan. í Noregi er leyft að brúka haldfæri, lóðir og net, en með þeim takmörkunum, sem Ijóslega sýna, að Norðmenn álíta þessi veiðarfæri skaðleg fyrir fiskiveiðarnar, sjeu þau brúkuð án nokkurrar hemju eða fyrirhyggju. Jeg hefi áður birt í ísafold (1890) nokkr- ar greinar úr fiskiveiðalögum Norðmanna, og vfsa jeg til þeirra. Þó skal jeg drepa á fáein atriði úr þeim. Tilskipun 13. sept. 1830, 1. gr. í hverri verstöð skulu vera tilsjónarmenxi; hversu margir þeir skuli vera, fer eptir því, hversu margir bátar geta rekið fiskiveiðar frá þeirri verstöð, og það fer eptir því, hversu stórt sjáfarsvæði hverri verstöð er ætlað; einn umsjónarmaður skal skipaður yfir hverja 6 báta, sem róa með lóð, og yfir hverja 9 báta, sem leggja þorskanet.------ 6. gr. Þegar bátur kemur í það fiskiver, þar sem hann ætlar að róa, skal formað- ur hans þegar tjá yfirumsjónarmanninum þar komu sína, og skýra honum frá, hvert veiðarfæri hann ætli að brúka. Umsjón- armaðurinn innfserir þá nafn hans og lieim-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.