Ísafold - 19.03.1901, Side 1
Kemur út ■ ýmist 'einu sinni eða
tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
1 */* doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót,, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgrciðsinstofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXVIII. árs
Reykjavík þriðiudaginn
19. tnarz 1901.
15. blað.
Þetta telst að eins aukablað við
fsafold, fi. e. reiknast elcki kaupendum.
Frá útlöndum.
Vilhjálmi þýzkalandskeisara var
veitt banatilræði í Brimum 6. þ. m.
Hann var á ferð þar á götunum í
vagni, og var þá kastað járnbút upp
í vagninn og lenti hann á kinninni á
keisaranum, rétt fyrir neðan augað.
Keisarinn særðist nokkuð, varð að
liggja rúmfastur nokkura daga. Mað-
urinn, sam járnbútnum kastaði, er
talinn geggjaður og fullyrt, að hann
hafi ekki verið gerður til höfuðs
keisara af neinum óvildarflokkum.
Bíkisþingið lét í ljósi andstygð sína á
glæpnum, þegar fréttirnar bárust af
honum og fögnuð út af því, að ekki
hefði verra af hlotist — nema sósía-
listar; þeir höfðu vaðið fyrir neðan
sig og voru ekki viðstaddir.
þau tíðindi helzt af ófriðinnm í
Suður-Afríku, að Búar réðu á vígi
Breta við Lichtenburg í Transvaal ð.
þ. m. og biðu ósigur. Hershöfðingi
þeirra, Celliers, féll. Mannfall nokk-
urt af Bretum, 22 fallnir, 14 særðir.
|>rem dögum síðar raæltu þeir mót
með sér, yfirhershöfðingjar Breta og
og Búa, Kitchener lávarður og Botha,
Og fundust, í því skyni, að sagt er,
að semja um ófriðarlok. Mælt, að
Kitchener hafi veitt viku vopnahlé til
þess að Botha skyldi geta borið ráð
sín saman við aðra hershöfðingja Búa.
Að hinu leytinu neitar Kriiger því af-
dráttarlaust, að um friðarsamninga
geti verið að ræða, með því að Botha
hafi ekkert vald til að byrja á þeim.
íslenzk-færeysk
skemtisamkoma
í Kaupmannahöfn.
Ferðamannafélagið danska hefir
gengist fyrir mjög glæsilegri íslenzk-
færeyskri skemtisamkomu, er haldín
var 27. febr. í stóra salnum í sam-
söngvahöllinni í Kaupmannahöfn, sem
orðin er nú eign Oddfellow-félagsins,
og var það fyrirtæki framhald af ann-
ari viðleitni félagsins til þess að vekja
skilning Dana á íslenzku og færeysku
þjóðlífi.
Um 1600 manna var boðið, körlum
og konum. þar voru meðal annarra
Valdimar prinz og kona hans, prinz-
essa Maria, ýmsir núverandi og fyr-
verandi ráðgjafar, fjöldi þingmanna,
borgarstjórn Kaupmannahafnar, fjöldi
rithöfunda, listamanna o. s. frv.
Öll Kaupmannahafnarblöðin flytja
langar greinar urn sarnkomu þessa, og
öll lúka þau á hana mesta lofsorði.
Fyrst var leikið á hljóðfæri »Der er
et yndigt Land« og þar næst »Ó guð
vor lands». Formaður Ferðamanna-
félagsins, v. Krogh kammerherra, hélt
þá ræðu, mintist þar stúdentaleiðang-
ursins síðastliðið sumar og þeirra verk-
efna, sem stæðu í sambandi við hann.
Dr. Finnur Jónsson prófessor hé)t
þá stuttan fyrirlestur um ísland.
íslenzkir stúdentar sungu íslenzka
söngva. Blöðunum ber saman um, að
mest hafi mönnum þótt vert um fjög-
ur lög: »Skarphéðinn« eftir Helga
Helgason, »Við hafið« eftir Jónas Helga-
son og þjóðsöngvana »Bára blá« og
»Ólafur reið með björgum fram«. Stud.
jur. Jón Sveinbjörnsson söng sóló í
því lagi, og þótti takast mikið vel.
Yfirleitt lokið lofsorði á bönginn. —
Tvísöngur var og sunginu; en ekki ber
blöðunum saman um hann að öðru
eyti en því, að eiukennilegur sé hann;
sum láta vel af, en öðrum þykir hann
ekki láta sem bezt í eyrum. Sigfús
Einarsson stud. jur. stýrði söngnum.
Enn fremur voru sýndar skugga-
myndir frá íslandi, sem tveir þýzkir
læknar, dr.Cahnheim og dr. Grossmann,
höfðu tekið hér fyrir nokkurum árum.
|>ær þóttu fyrirtaks-fallegar.
þ>á tóku Færeyingar við. Dr. Jakob
Jakobsen, færeyskur vísindamaður.flutti
fyrirlestur um eyjarnar. Og svo voru
sýndir alþýðudansar þaðan, sem mjög
mikið þótti til koma.
Skáldið Mylius-Erichsen, leiðtogi
stúdentanna á norðurför þeirra, var
aðal-forstöðumaður samkomunnar. Og
Olaf Hansen skáld, sá er hér lagðist
veikur og varð eftir af félögum sínum
síðastliðið sumar, hafði lagt út kvæði
þau, er aungin voru.
Hið eina, sem að samkomunni er
fundið í blöðunum, er það, að hún
hafi verið heldur löng—fyrirlestrunura
ofaukið. Samt var fyrirkomulaginu að
engu breytt, er skemtunin var haldín
af nýju 1. marz, þ>á var inngangur
seldur, og varð húsfyllir. Sami fögn-
uður með áheyrendum eins og fyrra
kvöldið.
Blöðin segja, að enginn vafi leiki á
því, að fyrirtæki þetta veki og efli á-
huga manna í Danmörku á að kynn-
ast þjóðlífi og mentalífi íslendinga og
Færoyinga.
Aug. Enna, frægasta ljóðlagaskáld
Dana nú, hjálpaði ísl. stúdentunum,
er þeir voru að undirþúa söngskemtun
þeirra, og kvað ætla að koma hingað
í sumar.
Póstgufuskip >Ceres«, kapt. Kiær, kora
hingað aðfaranótt sunnud. 17. d. m., af
Austfjörðum með vörur frá Khöfn, er ekki
komust fyrir í Laura. Fór aftur í gær-
kveldi til Liverpool.
Póstgufuskip Laura, kapt Aasberg,kom
í fyrri nótt,. Farþegar frá Khöfn þau bjón
cand. med, & chir. Chr. Sehierbeck og hans
frú, og frá Englandi agent Sigfús Eymunds-
son.
Héraðsl. Páll Blöndal fengiú lausn frá
embætti.
Siðdegisguðsþjón. flytur á morgun í dóm-
kirkjunni cand. Magnús Þorsteinsson.
Hlutafélagsbankinn.
Frá Kaupmannahöfn er skrifað, að
samningum með forgöngumönnum
fyrirtækisins og stjórninni sé enu ó-
lokið, en að allar horfur séu á því,
eins og áður, að þeir samningar takist.
Allir sem œtla sér að panta
Lossins S t e 11 i n e r-P o r 11 a n d s
„Cement“
°g
»Nordons« koparbotnfarfa
eru beönir að gjöra viövart um þaö sem
fyrst.
Th. Thorsteinsson.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)og
Einar Hjörleifsson.
Isafoldarprentsmiðja
Hvaða skilvindu á eg
að kaupa?
Það er fullvist að skilvindau »Perfect«,
sem mikið er gumað af nú á dögum, fekk
ekki »Gfrand Prix« á kcimsýningunni í
París 1900 af. því, að hún væri reynd;
enda vita fróðir menn ekki til að hún hafi
verið reynd á Frakklandi fyrir þann tima.
Af ÞYRIL8KILVINDUM (Kronsepara-
torer) frá Svenska Centrifug Aktiehoiaget
í Stokkhólmi hafði þá verið selt á Erakk-
landi um 8000 (nú nál. 3000), og þær Hk-
að mjög vel. Frakkar höfðu áður haft í
miklum metum skilvindu, sem kallast
»Melotte«; var hún reynd til jafnaðar við
þyrilskilvindur í Le Mans 1899; báru þyr-
ilskilvindurnar signr úr býtum, og fengu
þá gullverðlaunapening.
ÞYRILSKILVINDURNAR fengu hæstu
verðlaun (»Grand »Prix«) á sýningunni í
Paris 1900 fyrir, hve vel þær hafa reynst
á Erakklandi, en ekki af því, að þær væru
smiðaðar af stærstu skipsbyggingarstöð
á Norðurlöndum (!)
ÞYRILSKILYINDUR voru fyrst gjöið
ar árið 1898. Til ársloka 1900 var selt
af þeim um 23000, og höfðu þær þá feng-
ið þessi 3 árin: 1 »Grrand Prix», 1 ríkis-
verðlaun, 7 heiðursmerki (liin æðstu), 30
fyrstu vérðlaun; og enn ýms önnur sæmd-
armerki.
ÞYRILSKILVINDURNaR hafa reynst
vel á íslandi. Vér eruni sannfærðir um,
að eigi eru aðrar skilvindur betri og því
engin ástæða að hlanpa eftir auglýsinga-
gumi um óþektar skilvélar.
Sannleikurinn er sagnabeztur, en skrum
skaðvænlegt!
Pantið fiyrilskilvindur hjá fieim, sem
þið skiftið við.
Sagradavín
°g
Maitextrakt
með kínin og járni er komið.
Björn Kpistjánsson.
Eg undirskrifhður niálaflutn-
ingsmadur við landsyfirréttinn í
Reykjavik gjöri almenningi kunnugt:
að eg tek að mér að flytja mál og
veita upplýsingar þar að lútandi, að
gjöra samninga, að kaupa og selja
fasteignir, að innheimta skuldir, og að
útvega lán í Landsbankanum og veð-
deildinni gegn sanngjarnri borgun.
Oddur Gísluson
Notið tækifærið.
Hjá undirrituðum geta menn feng-
ið lceypt mikið af timburbraki til upp-
kveikju. — Sömuleiðis talsvert af
pakjárnbútnm, stærri og smærri, sem
alt selst með mjög sanngjörnu verði.
H. Ancierson.
Verzlunin
G 01T H A A B
hefir fengið mikið af góða Kexinu.
Margarin, ný sort til viðbótar. Fjór-
snúnir Kaðlar úr ágætu manilla. Segl-
garn í þorska- og grásleppunet. Ó-
leskjað Kalk. Tjörupappi m. m. Enn
þá lítið eitt til af Blýi og ágæt Færi
alls konar.
Alt mjög ódýtt í stórkaupum.
Thor Jensen.
Slifsi hvít ljómandi falleg (4 af
hverri sort) fást þangað til að Vesta
fer (3. apríl) í Þingholtsstrœti 16.
Matiurtafrœ, blómfræ og
grasfræ fæst í Vinaminni á hverj-
um virkum degi kl. 1—3.
Einar Helgason.
Fiskhnífarnir
ágætu komnir.
Leður, skinn og tau afýmsu
tægi. Yflrfrakkar. Tilbúin
föt o. fl.
Björn Kristjánsson.
Til leigu frá 14. maí n.k. er stofa
fyrir einhleypa í húsi Steingrhns Ginðmunds-
sonar snikkara við Laugaveg.
Til leigu frá 1. maí til 1. októb»r 2
berbergi. Ititstj. vísar á.
N/komið með Laura og Ceres.
í PAKKHÚSDEILDINA.
Allskomir koruvörui*, Kaffi, Export,
Kandís, Melís, Smjörlíki, Steinolía, Kallt,
Þakpappi, Borðviður, Eldspýtur o. m.
m. fl.
í GÖMLU BÚÐINA.
Tóbak allsk., Brjóstsyknr, Kerti, Blelt,
Konfekt, Handsápa, Ilmvötn, Postulíns
og leirvörur, Sevillafíkjur, Súkkat,
Bláber, Þurkuð epli, Appelsínur, Sago,
Dextrin, Kartöflumjöl, Kirsibersaft,
Hindbersaft, Cocaoduft, Kjötkvarnir,
Kjötbamrar, Slípubretti, Sáld, Sleifar,
Smjörspaðar, Saltkassar, Þvottafjalir,
Etagerar, Krukkur, Hakkabretti, Vögg-
ur, Kústasköft, Kökukefli, Kleinujárn,
Skólatöskur o. m. m. fl.
í BAZAR-DKILDINA.
Allskonar Smíðatól, Skrár, Lamir og
allskonar byggingar-áböld og m. m. fl.
í KJALLARADEILDINA.
Ýmiskonar drykkjarföng.
í VEFNAÐARVÖRUDEILDINA.
Svart klæði, Kjólatau, Svuntutau sv. og
misl. Silki, sv. Silkiflauel, sv. Patent-
flauel, Pliisch svart og misb, Halfklæði,
sv. og misl., ítalskt ldæði, OxfordsTwist-
tau, Vergarn, Flonnelet, bl. og óbl. Lér-
eft, Cambric, Lenou, Fóðurdúkar, allsk.
Sjúkradúlcur, Afmældar hvítar Gardín-
ur, Gardínutau hv. og misl. Cachemir-
sjöl, Borðdúkar, Gólfteppi, Rúmteppi,
Sjalklútar, Handklæði, Hálsklútar, Vasa-
klútar, Hanzkar, Skófatnaður, Barnasokl;-
ar, Prjónstígvól, Smokkar, Ullarbolir,
Ullarklukkur, Barnahúfur, Kvenn- og
barnasvuutur, Dömu-Regnkápur, Góif-
blússur, Kvennslifs. Edelweisblúndur,
Hattslör, Kvennhattar, Ullarband, Vefj-
argarn, Tvinni allsk., Vat o. m. m. fl.
í FATASÖLUBÚÐINA.
Stórar birgðir af alls konar fataefnum,
Hattar, Húfur, Skófatnaður, Regnkápur,
Hálslín, Nærfatnaður o. m. fl.
Með því nú er stuttnr tími til páska,
ættu þeir sem ætla að fá sér föt fyrir
þann tíma, að koma sem fyrst og velja
sér fataefni, til þess að mögulegt verði
að sauma fötiu fyrir þá sem þess óska.
ASsókniu er svo mikil aS saumastofunui,
að vansóð er, að mögulegt verði að sauma
alt, sem pantað verSur fyrir páskana.