Ísafold - 19.03.1901, Blaðsíða 2
58
Jón Brynjólfsson, Austurstr. 3
hefir fengið nú með Laura talsvert af útlendum skófatnaði, þar á meðal
Brúnelskó, brún Barnastígvél og Touristaskó — Alt selst mjög ódýrt.
Hér með gjörist
♦> Stór verðlækkun!
Með 20°/o afslætti selst til 10. apríl alt, sem til er í úrverzl-
un minni í Reykjavík af alls konar vasaúrum, stofuúrum, úrfest-
um, alls konar gullstássi, hita- og loftþyngdarmælum
og mörgu fl.
Þetta kostaboð stendur að eins til 10. apríl.
GUÐJÓN SIGURÐSSON.
Stóra- og iitla-
11 kunnugt: ——■
að eg undirritaður hefi fast ákveðið að ferðast i sumar á flesta viðkomustaði
kring um land á þann hátt, er hér segir:
Frá lleykjavík með Ceres 8. mai til Isafjarðar og þaðan með
Skálholti 19. s. m. 'til Akureyrar, og svo með Hólum austur og suður um
land til Reykjavíkur.
Eg mun hafa mikið úrval af sýnishornum (Pröver), sem til
fata heyrir, samkvœmt nýjustu tízku og vona að geta í fylsta máta fullnægt
mönnum, sem panta vilja hjá mér föt, með því að taka sjálfur mál af þeim.
En á þeim viðkomustöðum, sem skipið dvelur svo stutt á, að ekki verð-
ur tími til að fara í land, vil eg vekja athygli manna á, að eg mun taka
mál og að öllu leyti fullnægja þörfum þeirra í þessu efni um borð.
Virðingarfylst
H. Audersen.
Verzlun Guðm. Olsens
Nýkomið með Ceres og Laura
Osturinn góði Russ. Back Ostur, ágæt Servelatpylsa.
Dagmar og silkiprjóstsykurinn, Konfectbrjóstsykur, Appelsínur,
Döðlur, Tvistgarn, Legtur, Stiftasaumur, Hóffjaðrir, o. m. m. fl. Karlmanna- og
Barnahúfur. Svínasultan kemur með Skálholti.
Yerzlun G. Zoéga
NÝKOMNAR V0RUR :
Fataefni margar tegundir — Enskt vaðmál margar teg. — Prjóna-
garn — Rúmteppi — Tvisttau — Kvenslifsi mjög falleg — Drengjafataefni
— Barnakjólar — Tvistgarn — Hálsklútar — Ensku húfurnar — Loðnar
húfur — Barnaboltar o. fl.
Farfavörur alls konar — mjög góðar tegundir, en samt ódýrar.
Verzlunin „Nyhöfn“.
hefir nú með »Ceres« og »Lauru« fengið alls konar vörur:
Rúgmjöl. Rúg. Hveiti. Bygg. Hafra. Bankabygg. Grjón. Hvítan
sykur. Kandíssykur. Muscatblóm. Fiskiídýfu. Kngifer. Chocolade. Confect-
rúsínur. Confect-brjóstsykur. Munntóbak. Husblas. Biáber þurkuð. Eggjaduft
í smápökkum og mjög margt fleira.
hefir nú fengið:
Appelsínur. Osta. Syltetau. Niðursoðin matvæli og margt fleira..
Eð
CD
Vi
(JT
S
cr
so
P
CíQ
P
(0
OQ
0
0
P-
^ P
& ~
Til verzlunar
Th. Thorsteinson
kom nú með »Laura« og »Ceres«.
Margs konar álnavara, svo sem: Tvisttau — Flonell —
Léreft — Stumpasirz — Fóðurefni — Hálsklútar — Margar
tegundir af — Lílstykkjum — ;svört og misiit — Cache-
mirsjöl — Margar tegundir af fallegum
kvenslifsum .
Hattar svartir og misl. --- Kaskeiti — Enskar húfur.
Bollapör fieiri tegundir — Skálar — Diskar -- Könnur
fyrir b ö r n m. m.
Matarpottar með og án Emaille.
Alls konar matvara, þar á meðai Kaffibrauð — Thekex —
Chocolade — Syltetöj — Sardiner —
Anschiovis — Hummer.
Peninga-
verð:
80 kr.
á nr. 13.
mjólkurskilvindan
„ALEXANDRA.“
Peninga-
verð:
120 kr.
á nr. 12.
Hún er sterkasta og vandaðasta
skilvindan, sem 3núið er með hand-
krafti. Létt að flytja heim til sín,
vegur tæp 70 pd. í kassa og öllum
umbúðum, skilur 90 potta af mjólk á
klukkutíma, nær talsvert meiri rjóma
úr mjólkiuni en þegar hún er sett
upp, gefur betra og útgengilegra smjör,
borgar sig á meðalheimili á fyrsta
ári. Ágæt lýsing á vindunni eftir
skólastjóra Jónas Eiríksson á Eiðum
stendur í 23. tbl. Bjarka 1898.
ALEXANDRA skilur rjómann úr
mjólkinni, hvort sem hún er heit eða
köld, en það gerir engin önnur skil-
vinda.
ALEXÖNDRU er fljótast að hreinsa
af öllum skilvindum. í henni er stál-
skilhólkur (Cylinder), sem nú er tekið
á einkaleyfi um allan heim; hann er
hægt að hreinsa í volgu vatni á ör-
stuttum tíma; margar aðrar skilvindur
hafa f etaðinn fyrir hann 14 til 20
smástykki, sem öll þurfa að skiljast
að og hreinsast út af fyrir sig; þessi
kostur á Alexöndru er því auðsær.
ALEXANDRA er fljótust að skilja
mjólkina af öllum skilvindum, sem enn
eru til.
Jónas Eiríksson búnaðarskólastjóri
á Eiðum ráðleggur öllum að kaupa
Alexöndru.
Feilberg umsjónarmaður, fulltrúi
landbúnaðarfélagsins danska, sem ferð-
aðist hér á íslandi, segir, að skilvind-
an Alexandra hafi mest álit á sér í
Danmörku af öllum skilvindum.
ALEXÖNDRU er hættuminna að
brúka en nokkra aðra skilvindu; hún
þolir 15,000 snúninga á mínútu án
þess að springa.
Litla Alexandra nr. 13.
er nú sú nýasta og fullkomnasta skil-
vinda af þeirri stærð, sem til er, og
ætti hún því að komast inn á hvert
heirnili. Hún skilur um 50 potta á
klukkutíma og er því nægilega stór
fyrir hvert það heimili, sem ekki hef-
ir yfir 100 ær og 3 kýr mjólkandi.
Á vélasýningu í Englandi s. 1. sum-
ar fekk þessi skilvinda hæstu verðlaun
af öllum þessum minni tegundum.
Hún kostar 80 kr. gegn peningum
strax, en þó lána jeg hana áreiðan-
anlegum kaupendum til næstu kaup-
tíðar.
150 skilvindur koma nú með »Vestu« í
marz, sem flestar eru pantaðar, þó ekki
allar enn; þeir sem því skrifa von bráð-
ar geta búist við að sitja fyrir þeim.
Bili eitthvað í vindunum, eða þar
verði fyrir slysi, þá geri eg við alt
þess háttar fyrir mjög lágt verð og á
mjög stuttum tíma. Guttaperkahring-
ir, olia, leiðarvísir og alt, sem Alex-
öndru viðvíkur, fæst hjá mér.
Verksmiðjuverð vélarinnar nr. 12 er
120 kr. og 6 kr. að auk, ef mjólkur-
hylki með krana fylgír. — f>egar pen-
ingar fylgja pöntun eða hún er borg-
uð í peningum við móttöku gef eg 6/.
afslátt. Að öðru leyti tek eg sem
borgun alla góða verzlunarvöru án
þess að binda mig við það verð, sem
aðrir kaupmenn kunna að setja á hana
móti vörum sínum.
ALLAR pantanir, hvaðan sem þær
koma, verða afgreiddar og sendar strax
ef hægt er.
Seyðisfirði, 1900.
Aðalumboðsmaður fyrir ísland
St. Th. Jóusson.
Yfir 100 bændur á Austur- og Norður-
landi brúka þessa skilvindu og allir hafa
þeir skrifað viðlíka og hér segir:
Herra sýslunefndarmaður 0 g prestur
Björn Þorláksson skrifar:
Eg, sem í tæpt ár hefi látið hrúka Alex-
andra skilvinduna á heimili minu, álít, að
ekki sé tii nauðsynlegri hlutur fyrir búandi
menn, þar sem nokkur mjólk er til muna,
en hún. Hún borgar sig furðufljótt, 0g
þvi fyr sem búið er stærra. Eg vil ráð-
leggja hverjum sveitabónda að reyna að
eignast skilvindu sem fyrst. Hver sem hef-
ir það í byggju, en dregur það t. d. í tvö
ár, hefir tapað verði einnar slíkrar skil-
vindu.
Dvergasteini í Seyðisfirði.
Björn Þorláksson.
Kaupmaður og sjálfseignarhóndi Jón
Bergsson á Egilsstöðum segir svo um skil-
vinduna Alexandra, eftir að hafa brúkað
hana eitt ár:
Þó það slys skyldi vilja til, að skilvinda
min (Aiexandra) eyðilegðist nú þegar, þá
mundi eg kaupa már strax aðra. Svo nauð-
synleg álít eg hún sé á hverju heimili.
Prestur og hreppsnefndaroddviti Þorsteinn
Halldórsson í Mjóafirði sem keypt hefir
litlu Alexöndru nr. 13, segir :
Eg þakka yður fyrir skilvinduna; hún
er lítið reynd enn, en líkar vel það sem
af er; er nægilega sfór fyrir heimili sem
ekki hefir því meiri mjólk.
Þinghól i Mjóafirði.
Þorsteinn Halldórsson.
Hreppstjóri Einar Eiriksson á Eiríksstöð-
um skrifar ásamt fleiru:
Vel líkar mér skilvindan frá þér,og ekki
iðrar mig eftir því kaupi.
Eiriksstöðum á Jökuldal.
Einar Eiriksson.
Hreppstjóri Sölvi Vigfússon skrifar mér
á þessa leið:
Mjólkurskilvindan Alexandra, sem þú
seldir mér, líkar mér i alla staði vel, og
vildi eg heldur missa beztu kúna úr fjós-
inu en hana. Erágangnr og útlit vindu
þesBarar er svo ákaflega fallegt, að eg
vildi gefa 20 kr. meira fyrir hana en aðr-
ar sams konar, sem eg hefi séð.
Arnheiðar8töðum í Fljótsdal.
Sölvi Vigfússon.
Sýslunefndarmaður Halldór Benediktsson
segir:
Mjólkurskilvindan Alexandra, er eg keypti
hjá þér, reynist ágætlega og hlýtur að
borga sig á hverju meðalbúi á fyrsta ári,
þegar til alls er litið.
Skriðukluustri í Fljótsdal.
Halldór Benediktsson.
Óðalsbóndi Jón Magnússon skrifar ásamt
fieiru:
Eg skal taka það fram, að skilvindan
Alexandra, er eg keypti hjá yður held eg
sé sá hezti hlutur, sem komið hefir í mína
eigu.
Skeggjastöðum á Jökuldal
Jón Magnússson