Ísafold - 11.09.1909, Page 3
ISATOLD
235
Kensla í íslenzkum rétti
við Khafnarhásköla.
í fjárlögunum dönsku eru nú veittar
2400 (?) kr. til kenslu i íslenzkum rétti
við ,háskólann í Kaupmannahöfn.
Embætti það var auglýst í sumar
og mun eiga að veitast nú í haust.
Enginn íslendingur sækir um það, að
því er oss er frekast kunnugt. En
stjórnmálaspekingurinn Knútur Berlín,
doktor í lögum, sækir og mun eiga
að fá það.
Ekki eignumst vér íslendingar hauk
í horni eða talsmann réttinda vorra
þar sem er Knútur Berlín. Eins og
kunnugt er metur hann söguleg og
lagaleg réttindi vor harla lítils. En í
orði kveðnu — minsta kosti — segist
hann samt viðurkenna eðlilegan réu
vorn til sjálfstæðis. Einu sinni hefir
hann t. d. látið það í ljósi í samræðu
við ritstj. ísafoldar, að hann hefði
ekkert á móti skilnaði og ekki heldur
á móti persónusambandi við Dan-
mörku, ef sú leið yrði farin, að Ís-
lendingar og Danir skildu fyrst, og
að því loknu kysi íslendingar Friðrik
8. til konungs yfir sig og hann ,(sam-
kvæmt dönsku grundvallarlögunum)
fengi þá leyfi ríkisdagsins danska til
þess að vera kotiungur á íslandi.
EftirmælL
Hér í blaðinu var n/lega getið um
lát dbr. Jens Jónsaonar á Hóli
í Dalasýslu, er dó að heimili sínu 5. ág.
síðastliðinn. Vil eg leyfa mór að geta
hans lítið eitt nánar.
Hann fæddist 28. nóvember 1833, í
Sælingsdalstungu í Hvammssveit. Hann
mun hafa orðiö lítillar mentunar aðnjót-
andi á æskuárum sínum, en var nátt-
úrugreindur og áhugasamur; aflaði sór
því sjálfur þess fróðleiks, er hann þurfti
á að halda. — Búskap byrjaði hann 27
ára gamall á Skarfsstöðum í Hvamms-
sveit, en brá þó búi þar eftir 3 ár,
með því að hann misti þá fyrstu konu
sína. Róðist hann þá að Hjarðar-
holti og var þar 1 ár, en flutti þaðan
að Pálsseli í Laxárdal og bjó þar í 2
ár. Keypti hann þá Hól f Hvammssveit
og flutti þangað vorið 1866 og bjó þar
sfðan til dauðadags.
Þegar Jens kom að Hóli mátti jörðin
kallast kotbýli f niðurníðslu, en hann
gerði hana að einni af betri jörðum sveit-
arinnar, sléttaði og girti alt túnið og
stækkaði það að miklum mun; auk þess
ræktaði hann og girti utan túns 10 dag-
sláttur. Hann var framtakssamur og
duglegur og mun oftast hafa verið fjár-
flesti bóndi f Dalasýslu, enda efnaðist
hann vel.
En Jens var engu síður atorku- og á-
hugamaður í sveitar- og héraðsmálum.
Hann var í hreppsnefnd í mörg ár, hrepp-
stjóri í 30—40 ár, sýslunefndarmaður í
30 ár, sáttasemjari alla sína búskapar-
tíð á Hóli, safnaðarfulltrúi og sóknar-
nefndarmaður lengi. Auk þess var hann
í stjórn Verzlunarfélags Dalamanna um
20 ár, formaður Kaupfélags Hvamms-
fjarðar í 6 ár, einn af stofnendum Spari-
sjóðs Dalasýslu og formaðnr hans f síð-
astliðin 10 ár. Oll þessi fólagsskapar-
störf þótti hann leysa af hendi með ein-
stakri samvizkusemi. Hann var og tví-
vegis kosinn fulltrúi á Þingvallafund.
Hann var þrfgiftur: Fyrst 1860 Ingi-
björgu Þorleifsdóttur prófasts í Hvammi
og átti með henni 2 börn, er bæði dóu
í æsku. Síðar, 1865, Jóhönnu Jónatans-
dóttur frá Litlalaugadal á Skógarströnd.
Eignuðust þau 9 börn. Af þeim lifa
að eins 2 synir, Bjarni óðalsbóndi í Ás-
garði og Friðjóu hóraðslæknir á Eski-
firði. Loks giftist Jens í þriðja sinn
1875 Sigrfði Daníelsdóttur prests í Ögur-
þingum. Þau eignuðust 6 börn; af þeim
lifa 3 dætur: Jensína, kona Guðbjarnar
Guðbrandssonar bókbindara í Reykjavik,
Valgerður, kona Jóns Jóuassonar ritstjóra
í Hafnarfirði og Jóhanna búsett á Hóli.
— Síðustu konu sína misti Jens 30. júlí
1907.
Jarðarför Jens fór fram að Hvammi
23. ágúst síðastl. Hun var afarfjölmeiin
og fluttu 3 prestar þar líkræður, sókn-
arpresturinn síra Ásgeir Ásgeirsson f
Hvammi, prófastur síra Ólafur Ólafsson
í Hjarðarholti og sfra Jóhannes L. L.
Jóhannesson á Kvennabrekku. í kirkj-
unni var sungið einkarfallegt kvæði eftir
Bjarna Jónsson frá Vogi.
Það er mikil eftirsjá að Jens fyrir
hórað hans og sveit, því að hann var
stórnýtur maður og drengur góður.
I+(
Loftsýn.
»Retournonsa lanature«, (Hverfum aft-
ur til náttúrunnar), segir Rousseau. Undar-
legt, hvað mikilmennin hafa mikil
tök á fólki! Eg rak mig á þessa setn-
ingu < blaði, sem var innan í hágöfugri
embættisbók — og óðara varð eg leiður
á lífsstarfinu og þaut út undir kletta
og söng »retournons a la nature«. Og
alt f kring um mig var hrópað: »retour-
nons a la nature«. Það voru klettarnir,
Bem tóku undir með mér á óaðfinnan-
legri frönsku, klettarnir, sem eg hólt að
alfaðir hefði innsiglað með þagnarinnar
eilífa innsigli. Eg fleygði mór niður á
lítinn, grænan blett, og starði upp í
himininn. Fyrst fanst mór útsýnið
of mikið, og eg lokaði augunum. Svo
opnaði eg þau aftur. Skýin yfir höfði
mér urðu að ótal myndum. Alt í einu
sýndist mór þau verða að háöldruðum
embættismönnum úr Reykjavík; þeir
drukku brennivín og prédikuðu frelsi.
Og Nansen, Björnson og Mikkelsen klöpp-
uðu á kollinn á þeim. En Magnús Ein-
arsson og Sigurður Lýðsson hrópuðu um
himingeiminn: »sjálfur leiddu sjálfan
þig«. Og vínguðinu kom í eldrauðu skýi.
Og brennivínsnefin á mannfólkinu stækk-
uðu um helming. Og hver einstakur
átti nóg með að leiða sjálfan sig og
enginn gat stutt annan, því fólkið var
orðið helmingi frjálsara og brennivíns-
straumurinn vaxinn um helming. Og
allir stórtemplarar, stórkanslarar og stór-
ritarar urðu að undri. — Var eg orð-
inn ruglaður? Eg nuggaði ennið lengi,
lengi. Svo leit eg upp aftur. Alt var
eins og venjulega. Skýin liðu hægt um
himinhvolfið, fíllinn gargaði í fjallinu
fyrir ofan mig, en steinarnir steinþögðu.
Bjeaður karlinn hann Rousseau hafði
dregið mig út í þessa heimsku. Hrylli-
legustvar embættismanna loftsýnin. Auð-
mjúklega rendi eg augunum til höfuð-
staðarins og sá eg að alt var í lagi. Heilag-
ur kaucellistíll hvfldi yfir ásjónum hinna
öldruðu feðra. Og enn fór þó hrollur
um mig. Eg leit ekki á náttúrufegurð-
ina f kringum mig, eg þaut heim, og
gróf mig niður í myglaða réttlætisbók.
Og ilmurinn verkaði þægilega á mig;
smátt og smátt kom ró yfir mig og sál
mín steig allra virðingarfylst hærra og
hærra í mjúkum embættisdraumum, þang-
að sem jarðabókasjóðsávísanirnar verða
til, en gegnum draumana heyrði eg béuð
köllin í honum Rousseau: »retournons,
retournons«.
Sagax.
Druknun.
Guðmundur Jónsson bóudi í Þing-
nesi druknaði í Hornafjarðarfljótum þ.
21. ágúst. Haldið, að hann hafi lent
í sandbleytu.
' teykjavíkur-annáll.
Oánir. Elín Snorradóttir, gift kona (Guðm.
Kr. Ólafssonar skipstjóra) 52 ára, heimili
Langaveg 22 B; dó 6. sept.
Gnðrún Jónasdóttir, gift kona (Samúels
Ólafssonar söðlasmiðs) 37 ára, heimili Lauga-
veg 53 B; dó 4. sept.
Fasteignaafsal. Chr. B. Eyólfsson ljós-
myndari selur Sigurði kaupmanni Ásbjörns-
syni húseign nr. 37 við Bergstaðastræti
fyrir 4000 kr. Dags. 2. marz. Þingl. 9.
sept.
Guðmundur Stefánsson nœturvörður af-
salar i hendur Landsbankanum eignarheim-
ild fyrir húseigninni Nr. 67 við Laugaveg,
er hann hafði fengið með upphoðsafsals-
bréfi hæjarfógeta. Dags. 31. júli. Þgl. 26.
ágúst.
Ingvar Guðmundsson selur Þorst. Sveins-
syni á Laugaveg 74 húseign Nr. 37 við
Bergstaðastræti fyrir 4000 kr. Dags. 17.
april. Þgl. 9. sept.
Jóhannes Nordal fshússtjóri selur Jóni
Jakobssyni landsbókaverði og Hannesi Thor-
arensen Slátrunarfélagsstjóra l/3 i húseign-
inni Nr. 27 við Laufásveg með tilh. fyrir
5070 kr. Dags. 4. sept. Þgl. 9. sept.
Sigurður kaupm. Ásbjörnsson selur Ing-
vari Guðmundssyni húseign Nr. 37 við Berg-
staðastræti fyrir 4000 kr. Dags. 22. marz.
Þgl. 9. sept.
Niðursuðuverksm. Island.
á ísafirði (eign Péturs M. Bjarna-
sonar & Co.) hefir á Árósasýningunni
hlotið heiðursskjal (Diplom) fyrir nið-
ursoðinn fisk og kjöt. Engar aðrar
íslenzkar afurðir voru á sýningunni.
í byrjun var kona ein í islenzkum
skautbúningi við afgreiðslu í búð verk-
smiðjunnar. íslendingum, er á sýn-
inguna komu, þótti það lítt hæfa
skautbúningi vorum, að flagga með
honum sem auglýsingu um niður-
soðið kjöt og fengu því til leiðar
snúið, að afgreiðslukonan hætti að
vera í bonum.
Stjórnarvaldaaugl. (ágrip)
Skuldum skal lýsa í
dánarbú Einars Eirikssonar húsmanns frá
Helgastöðum í Biskupstungum fyrir skifta-
ráðanda í Árnessýslu innan 6 mánaða frá
26. f. mán.; i db. Einars Sigurðssonar sjó-
manns i Bergstaðastræti 30 Rvik fyrir skifta-
ráðanda i Rvik innan 6 mán. frá 9. þ. mán.;
í db. séra Eyólfs Jónssonar frá Árnesi fyrir
gnllsmið Jóni Birni Eyólfssyni á ísafirði
innan 6 mán. frá sama degi; i þrb. Hall-
dórs Vilhjálmssonar i Barðsnesgerði í N#rð-
urfj.hr. fyrir sýslumanninum i Suður-Múla-
sýslu innau 6 mán. frá s. d.; 1 dbú Þor-
láks Þorlákssonar frá Yesturhópshólum fyrir
Þorláki Magnúsi Þorlákssyni á Blikastöð-
um i Mosfellssveit innan 6 mán. frá s. d.;
i þrotabú Gisla Jónssonar söðlasmiðs, Lauga*
veg 50 B i Rvík fyrir skiftaráðanda i Rvik
innan 6 mánaða frá sama degi.
2— 3 herbergi með eða án hús-
gagna til leigu í Grjótagötu 10.
3— 4 herbergi móti sól og
stúlknaherbergi til leigu 1. oktbr. í
Lækjargötu 12 B. — Upplýsingar á
Laugaveg 10. — A. V. Carlqvist.
Stulku vantar í vetrarvist,
helzt frá 14. þ. m. Ritstj. ávísar.
Fæði fæst frá 1. okt, í Hverfis-
götu 2. 1 herbergi fyrir einhleypa
sama stað. Upplýsingar í barnaskól-
anum hjá Katrínu Guðbrandsdóttur.
1 herbergi með húsgögnum
og forstofuinngangi, helzt í miðbæn-
um óskast til leigu strax. Afgr. ávísar.
Til leigu 2—3 herbergi frá 1.
október í Tjarnargötu 8._____________
Ibúðir til leigu, góðar og stórar,
í húsunum nr. 3 og r8 í Þingholts-
stræti. Semjið við Sigurð Björnsson,
Grettisgötu 38.
Stór og björt íbúð, 5 herbergi auk
eldhúss og stúlknaherbergis, með mið-
stöðvarhitun, fæst leigð nú þegar eða
1. okt. Afgr. ávísar.
Stofa til leigu. Upplýsingar
í Vesturgötu 26 C.
Ung hæns til sölu í Grjótagötu
hjá Einari Vigfússyni.
Til leigu frá 1. október stofa
með svefnherbergi í húsi Steingr.
Guðmundssonar, Amtmannsstíg 4.
Peningabuddu, er fanst inn
á vegi, má vitja til Gunnars kaup-
manns Gunnarssonar í Hafnarstræti 8.
Herbergi, stórt og gott, með
húsgögnum og sérinngangi, og 2 tóm
loftherbergi eru til leigu 1. október
í miðbænum. Upplýsingar í Lindar-
götu 3 6.____________________________
Kommóður og borð til sölu
í Grjótagötu 9.
Til leigu 4—5 herbergi mót sól.
Upplýsingar hjá Ámunda kaupmanni
Árnasyni.
1 herbergi til leigu. Upplýs-
ingar gefur Jón Lúðvígsson verzlm.,
Þingholtsstræti 1.
Til leigu 2—3 herbergi með
eldhúsi og geymslu, Hverfisgötu 51.
Afarstóra tombólu halda
Thorvaldsensfélagið og Kvenfélagið í
sameiningu 2. og 3. október.
Nánar á götuauglýsingum.
Teikniskóli
Stefáns Eiríkssonar byrj-
ar sem að undanförnu hinn 1. októ-
ber, og eru menn því beðnir að skrifa
sig heima hjá mér, 15. og 16. þ. m.
frá kl. 6—8 báða daga. Skólagjaldið,
8 kr., greiðist um leið.
Grjótagötu 4.
Innilegt þakklæti öllum þeim, er með nær-
veru sinni heiðruðu útfarir mæðra og tengda-
mœðra okkar, Helgu Ásmundsdóttur og Guð-
laugar Þórarinsdóttur.
Óseyri 10. sept. 1909.
Geirlaug Sigurðardóttir, Einar Þorgilsson.
Fundi
með kjósendum í Borgarfjarðarsýslu
ætla eg að halda á Akranesi (í Báru-
búð) fimtudaginn 23. þ. m. kl. 12 á
hádegi; að Grund í Skorradal föstu-
daginn 24. þ. m. kl. 2 e. h.
Reykjavik 10. sept. 1909.
Kristján Jónsson þm. Bf.
Otto Mönsteds
danska smjörlíki er bezt.
Biðjið kaupmanninn yðar um þessi merki:
„Sóley“ „Ingólfur“
„Hekla“ eða „Isafold“
Til leiðbeiningar.
í verzlun Jóns þörðarsonar
fæst verkaður fiskur, svo sem þorskur,
langa, keila, skata upsi, ísa og saltað
tros, söltuð grásleppa, harðfiskur o.m.fl.
Alls konar nauðsynjavara seld með
lægsta verði.
Skriftarkensla.
Eg undirrituð hefi í Kaupmanna-
höfn lært að kenna skrift, og tek að
mér kenslu í hentii frá 15. sept.
(helzt börnum, sem eigi hafa lært fyr).
Sigríður Arnadóttir,
Bergstaðastræti 9 B.
Þurmjólkin
sem mest var eftir spurð síðastliðinn
vetur er nú aftur komin í verzlun
Jóns Þórðatsonar. Leiðarvísir á íslenzku
fylgir með um notkun hennar.
MoiofbÉrinn Hvítá
fer eftirtaldar ferðir:
18., 24. og 30. sept.; ro., 15.,
19., 24. og 30. okt.
Hve langt báturinn fer upp eftir
ánum, Norðurá og Hvítá, í hverri
ferð, er komið undir flutningsþörf.
Auk þeirra ferða, sem taldar eru, fer
báturinn ætið aukaferðir þegar þörf
krefur.
Stjórn mótorbátsfél- Stígandi.
Barnaskólinn
í Bergstaðastræti 3 byrjar 1. október,
í enn fullkomnari stil en nokkru
sinni fyr. Ný skólaborð, endurbætt
kensluáhöld og auknir kenslukraftar.
Foreldrar skólaskyldra barna þurfa
e k k i að sækja um undanþágu fyrir
börn sín, en eru vinsamlega beðnir
að gefa sig fram við undirritaðan Jyr-
ir 21. p. m.
Asgrímur Magnússon.
Loðskinn
á gólf, yfir barnavagna og í hvílu-
poka, líka fóðurskinn, hvergi ódýrari
en hjá Bergi Einarssyni sútara
Lindargötu 8 A.
Söðlasmiðir, skósmiðir
og aðrir út um land, sparið peninga
með því að láta mig súta fyrir ykkur
gul fóðurskinn; tek að eins ull-
ina í ómakslaun. (Má ekki raka gær-
urnar).
Bergur Einarsson, sútari.
Lindargötu 8 A.
2—3 vanta i
góðan stað.
Upplýsingar geta fengist hjá mönn-
um hér í bæ, er hafa átt hesta í þeim
stað. Semjið sem fyrst við
Berg Einarsson, Lindargötu 8A.
Smælingj ar
eftir
Einar Hjörleifsson.
Fimm sögur: 1. Góð boð; 2. Fyr-
irgefning; 3. Þurkur; 4. Skilnaður;
3. Vitlausa Gunna.
Bókin er prentuð í Ameríku en
nýkomin hingað. Aðalsala í bók-
verzlun ísafoldarpr.sm. Verð: heft
1 kr., bundin 1.75.
Til leigu
2 góð samanliggjandi herbergi fyrir
einhleypa með inngangi úr forstofu.
Upplýsingar gefur E. Þorkelsson, úr-
smiður, Austurstræti 6.
Ungu meyjar!
Lesið eftirfarandi línur!
l»að mun borga sig.
Ungur maður á bezta aldri, gáfað-
ur og vel mentaður, er mun því geta
trygt sér góða atvinnu í framtíðinni,
óskar að giftast ungri, greindri, mynd-
arlegri og efnaðri — helzt ríkri stúlku.
Freistið hamingjunnar og notið tæki-
færið — það býðst ekki oftar. Til-
boðum merktum: T r y g ð, tekurritstj.
ísafoldar á móti.
Ilæns til söíu
í Þingholtsstræti 15; góðar varphænur.
Lampar
Þar á meðal
nattlamparnir
þeir beztu og þægilegustu sem fást,
lampabrennarar,
lampaglös
tiýkomið til
G-uðm. Olsen.
Steinolíumaskínur,
3 kveikjaðar
ódýrastar hjá
Guðm. Olsen.
Tímakensla.
Undirrituð veitir tilsögn í orgelspili,
gitarspili og dönsku.
Laugaveg %i 8 L — Maren Pétursdóttir.
Skósmiður,
duglegur og reglusamur, sem sjálfur
vill reyna lukkuna og setja upp
vinnustofu, getur nú fengið nýja
skósmíðamaskínu, fyrirtaks
góða, nýja jarnleista beztu teg.
og alt leður, sem hann þarf að
brúka, alt þetta með afar-þægi-
legum kjörum og mánaðar-
afborgun. Afgr. blaðsins ávísar.
Igræðireitinum við Rauðavatn
(Baldurshaga) eru nú í haust
og að vori til stórar plöntur
af lævirkjatrjám (Larix sibirica), reyni-
við (Sorbus anaparia), sænskum reyni-
við (Sorbus skandica) og axelber-reyni-
við (Sorbus aria), allar vel fallnar til
plöntunar í görðum.
Þeir sem vilja fá plöntur af áminst-
um tegundum, eru beðnir að panta
þær hjá Guðmundi Davíðssyni, Frakka-
stíg 12.
Verðið er 5 aura pr. stk. án flutn-
ings.
Systurnar
í st. Viking, sem heima eru, eru
vinsamlega beðnar að hittast í Báru-
búð á morgun, sunnud. þann 12., kl.
6 e. m. Áríðandi málefni til umræðu.
Jónína Jónatansdóttir.
Einingin nr. 14.
Fundur miðvikudaginn 15. þ. m.
Framkvœmdarnefnd stórstúkunnar
mætir á fundinum.
Margbreytt umrceðuejni,
Allir Jélagar stúkunnar beðnir að nueta.
Ndtnapappír
aftur kominn í afgreiðslu ísafoldar.
n ‘\l * 'I traust óg vel útlítandi
KPinnin “tilsðln. upplýsing-
j IlUIUIIjUI ar { fsafoldarprentsm,
Fóðurhesta