Ísafold - 28.11.1914, Síða 3
f
ISAFO LD
367
Emden og foringi hennar.
Þegar farið verður að rita sögu
Norðurálfuófriðarins í heild, mun
einhver æfintýrlegasti kaflinn verða
sá er hermir frá þýzka beitiskipinu
Emden og foringja þess v. Miiller
höfuðsmanni. Emden var elt á
röudum af brezkum skipum í beng-
alska flóanum, en á henni varð eigi
Reimleikinn
í Yetleifsholtsheili.
Eftir tilmælum ritstj. ísafoldar fór
eg á sunnudaginn 22. nóv. austur
að Vetleifsholtshelli og um Vetleifs-
holtshverfið til þess að fá sem ábyggi-
legastar sagnir um atburð þenna.
Eg vil geta þess þegar í byrjun að
þessi skýrsla mín er aðeins bygð á
frásögn þess fólks, sem sjálft hefir
verið sjónar- og heyrnarvottar að
eftirfarandi dulbrigðum. Og sneiði
eg algeilega hjá öllum þeim mögn-
uðu kynjasögum, sem eg hefi heyrt
víðsvegar út í frá.
Vetleifsholtshellir stendur á örmjó-
um rima 20 mínútna gang fram af
Vetleifsholtshverfinu, og er mýri alt
í kring. Þar bjó Sigurður Guð-
mundsson áður en hann fluttist að
Selalæk og á hantt öll íbúðar- og
fénaðarhús, sem þar standa. Sigurð-
ur hefir þar nokkuð af fénaði sínum
og gætir Þórður Gíslason hans og
hefir hann haldið þar til með fjöl-
skyldu sinni síðastliðin 7 ár,
Eg kom fram að Vetleifsboltshelli
kl. að ganga 9 um kvöldið og með
mér voru: Jón bóndi í Ási og Ól-
afur Óiafsson yngri búfr. í Lindarbæ.
Við vöktum þar alla nóttina og fór-
um þaðan aftur kl. að ganga tíu um
morguninu. Ekki gátum við orðið
varir við neitt óeðlilegt á þessum
tíma, enda þótt við reyndum að
veita því eftirtekt. Varð eg því að
láta mér nægja annara sögusögn.
Frásögn Þórðar Gíslasonar í Vet-
leifsholtshelli er á þessa leið : Snemma
í október morgun einn í birtingu
varð hann fyrst var við þessi dul-
brigði. Heyrðist þá einhver lifandi
vera þjóti með feikna hraða meðfram
baðstofu þilveggnum. En þannig var
húsagerð háttað, að innaní stórri tóft
Var bæði baðstofa og heyhús, þil-
veggur var eftir endilangri tóftinni
°g að skildi hann baðstofuna og hey-
húsið. Afturendi baðstofunnar var
notaður fyrir eldavél. í heyhúsinu
Var dálítill heystapi og var húsið
lokað að utan, Engin skepna var
Þar inni hvorki hundur né köttur, og
Utn rottur er ekki að tala í þessari
sýslu. Upp úr þessu fór þetta smátt
smátt að endurtaka sig ogfærast
* vöxt> þó nokkuð mismunandi stund-
Utn heyrðist skurk og brestir bæði
bak við þilvegginn og í afturenda
aðstofunnar. Stundum heyrðist brak-
hönd fest fyr en hún var búin að
gera brezka flotanum og brezkum
löndum hinar mestu skráveifur,
sökkva hverja skipinu á fætur öðru
og skjóta á borgir. Foringi skipsins
hefir og hlotið hina mestu aðdáun,
eigi að eins á Þýzkalandi, þar sem
hann er orðin þjóðarhetja, heldur og
út um víða veröld. Veldur þessu
einstakur kjarkur, en eigi siður frá-
hljóð i súðinni uppi yfir fólkinu og
eins í gólfinu. Um miðjan október
fór Þórður í suðurferð. Var þá kon
an ein eftir heima með tvo drengi
annan á 12 ári og hinn 4 ára.
Fyrstu nóttina, sem Þórður var að
heiman, bar með mesta móti á þessu
og lýsti sér einkum með skurki og
brestum, en mesl bar þó á þessum
brestum í baðstofugólfinu fram við
gluggann. Hélst þetta af og til alla
nóttina. Konan vakti alla nóttina og
flutti sig úr bænum daginn eftir.
Þegar Þórður kom heim flutti hann
sig aftur á bæinn. Urðu þau þá
aftur vör við þetta sama, meira eða
minna, Ekki var þetta bundið við
neina vissa tíma, nema heldur minna
á daginn. Einu sinni var Þórður
einn inni um miðjan dag, heyrir
hann þá að slegið var i hengilampa
sem hékk í baðstofunni og sér að
hann hreyfist til og frá eftir höggið.
Annars segist Þórður aldrei hafa séð'
eða orðið þess var, að nokkrir hlutir
hafi hreyfst eða fluzt úr stað og ekki
getað séð nein vegsummerki eða
skemdir á neinu eftir þetta. Eina
nótt á undan óveðursdegi segir hann
að langmest hafi borið á þessum
ólátum. Heyrðist brak og brestir
bæði á þilveggjum og súðinni uppi
og til og frá um baðstofuna, skurk
og skellir líkast því að verið væii að
skella saman járni. Þó vissi hann
ekki til, að neitt af lausu járni væri
þar inni.
Eftir þetta flutti Þórður sig alfarið
úr bænum. Tók þá Sigurður á
Selalæk það til ráðs að rífa niður
bæinn og flytja hann sunnar í rim-
ann. Þegar búið var að koma bæn-
um upp, fluttist Þórður í hann aftur
með konu sína og 3 börn. Segir
hann að einkis hafi orðið vart þar
fyrstu vikuna, en úr því farið að bera
á einhverju, sem þann kunni ekki
bær drengskapur, sem hann er tal-
inn hafa sýnt, með björgunar-afrek-
um á skipshöfnum þeim er Emden
hafði skotið skipin undan.
Eins og kunnugt er náðu Bretar
loks taki á Emden fyrir skömmu
og brendu skipið, en tóku hinn
hrausta foringja höndum.
Emden var 3650 smálestir, en
skipshöfnin 361 manns.
við, svo sem dump á milli þils og
veggjar.
Frás'óour vökumanna.
Guðjón Einarsson, bóndi i Rifs-
halakoti, vakti í þrjár nætur og varð
ekki var við neitt, nema einn morg-
uninn kl. 9. Hann var þá í þann
veginn að ganga út, heyrir hann þá
smá þyt í ytri enda baðstofunnar og
eins og riðið væri þekju og kom þá
brakhljóð í þakviði alla. Hljóp þá
Guðjón út sem skjótast til að gæta
að því, hvort nokkuð væri upp á
húsþekju, en varð engu vísari.
Frásöqn Björns Guðmundssonar
bónda i Götu.
Hann vakti þar eina nótt með
tveimur öðrum mönnum úr hverfinu.
Það var eftir að fólkið hafði flúið
bæinn. Þeir komu þangað kl. 9 um
kvöldið. Sátu þeir í myrkrinu til
kl. 11. Þá heyra þeir eitthvað
óvanalegt. Þótti Birni það líkast því,
þegar botnvörpungur hleypir út gufu.
Svo verða þeir einkis varir fyr en kl.
2. Þá sér Björn bregða fyrir bjarma
eða ljósbirtu, sem var til að sjá eins
og maurildi í myrkri. Þetta var
um eitt fet á hæð og í lögun likast
stundaglasi. Svo hvarf þetta í eins
skjótri svipan og það hafði birzt.
Allan þriðja kl.tímann heyrðu þeir
smá högg. Kl. 4 heyrðist þeim
eins og dregin væri hörð húð eftir
baðstofuþilveggnum baka til. Meira
urðu þeir ekki varir við.
Tvisvar segist Björn hafa séð ljós
í gömlu bæjartóftunum. í seinna
skiftið sá hann það um kvöldið 12.
þ. m. og þá samtímis sá Sigurður
í Vetleifsholti það lika. Lýsir Björn
þvi svo, að það hafi verið rauðleitara
en vanalegt ljós, likast því er ljós
sést á glugga i gegnum rauð glugga-
tjöld.
Ekki er gott að gera sér grein
fyrir því, hvað þetta muni vera.
Reyndar hefi eg heyrt ýmsar getgát-
ur, sem litið er á að byggja. Ástæðu-
laust sýnist vera að segja alt þetta
eintóman hugarburð og uppspuna
þeirra sem við þetta hafa veiið riðnir.
Æskiiegt hefði verið að Sigurður
hefði lofað bænum að standa óhreyfð-
um fyrst um sinn, svo að hægt hefði
veiið að ransaka þetta betur. Svona
atburðir nú á tímum eru svo sjald-
gæfir, að tæplega má ganga fram hjá
þeim órannsökuðum.
Ola/ur Isleifsson.
ReykjaYíkar-annáll.
Brydesverzlun, ein af elztu verzl
unum Reykjavíkurbæjar, er nú að
syngja sitt síðasta vers, hættir undir
miðjan næsta mánuð. -— Mestöll hús
verzlunarinnar hafa umboðskaupmenn-
irnir Johnson & Kaaber keypt. I þessu
l/sir framsókn innlendrar verzl-
iunar sór all-einkennilega, þar sem ein
hver máttugasta selstöðuverzlunin, um
margra ára skeið, verður að leggja ár-
ar í bát og einhver elztu selstöðuverzl-
unarhúsin verða að skrifstofum fyrstu
öflugu innlendu umboðverzlunarinuar.
Er þetta í rauu og veru einn, eigi ó-
merkur kapítuli í íslenzkri verzlunar-
sögu. Þeim fer að fækka nú dönsku
verzlununum í Reykjavík. Hvað er eig-
inlega eftir af þeim?
Ný botnvörpusbip voru nokkur í
smíðum í Þ/zkalandi, er ófriðurinn
hofst, m. a. eitt fyrir útgerðarfélagið
Ý m i í Hafnarfirði. Til stendur nú
að Hjalti skipstjóri Jónsson fari utan
með Sterling næst til þess að rannsaka
hvað botnvörpungssmíði þeirri líður og
hafa umsjón með henni um tíma.
Galdra-Loftur, hið nyja leikritJóh.
Sigurjónssonar verður jólaleikur Leik-
fólags Rvíkur. Jens Waage á að leika
sjálfan Loft, en Árni Eiríksson annað
mesta karlmannshlutverkið. Kvenhlut
verkin tvö hin helztu eru falin þeim
frú Stefaníu og jungfrú Emilíu Indriða-
dóttur.
Mesaur: í fríkirkjunni á morgun
kl. 12 síra Ól. Ólafsson, kl. 5 síra Jóh.
Þorkelsson.
Yörukaup landssjóðs. Landssjóður
hefir bætt við sig nokkurum birgðum
af haframjöli frá Quaker Oats & Co.
í Chicago (umboðsm. Blöndahl & Sívejt-
ssn).
Dóinkirkjuviðgerðin er nú all langi
á veg komin. Má búast við, að messu-
fært verði í kirkjunni um miðjan des.
Skipafregn :
Á u k a s k i p frá Sam.fól á að fara
frá Khöfn kringum 12. des.
Kong Helge er væntanlegur
hingað fyrstu dagatia í des. með kola-
farm.
Niðurjöfnunarnefndin. Þaulkunn-
ugir menn og verkhæfir eru á lista
þeim, sem Sjálfstæðisfólagið mælir með
og birtur var í siðasta blaði. Samúel
Ólafsson söðlasmiður efst. Ættu menn
eigi að telja á sig að skreppa suður í
Barnaskóla á mánudag og greiða þeim
lista atkvæði.
----— -frí-ar ----
Island erlendís.
Nýr doktor íslenzkur. Sigurður
Nordal magister, sonur Jóhannesar ís-
hússtjóra, á að verja doktorsritgerð við
Khafnarháskóla 1. des. næstk. — Rit
gerðin heitir : »Om Olaf den hel-
liges Saga. En kritiskUn-
d e r s 0 g e 1 s e«. Er þetta mikil bók
og vafalaust merkileg. En á því brest-
ur oss vit. ísafold væntir þess að fá
sérfræðing til þess að rita um hann á
næstunni.
Utanríkismál íslands. Knúti Berlín
verður mikill matur úr frásögn Skalla-
gríms í Lögr. af bók G. B. landl.:
Yanrækt vandamál. Ritar hann um
það langt mál í K 0 b e n h a v n 22.
okt., og önnur dönsk blöð lepja upp.
Endar grein K. B. á þessum orðum :
»Þessi íslenzku ummæli þurfa naum-
ast danskra sk/ringa. Þau syna hvað
hin óvænta framsókn í fánamálinu hef-
ir haft víðtækar afleiðingar. íslenzkar
kröfur eru nú að komast að hámark-
inu: sórstök utanríkisstjórn,
er í norsku sambandsdeiluni — fyrir-
mynd Islendinga — varð bein orsök
til fullnaðar skilnaðar Svía og Norð-
manna«.
Ofriðar-fróðleikur.
Heimsstyrjöld. Nú þegsr Japanar
eru komnir með í stríðið og Bretar
farnir að ráðast á n/lendur Þjóðverja
í Afríku og við Kyrrahafið, má svo að
orði kveða, að upp só runnin h e i m s-
styrj öld. Um 60 °/0 af bygðu landi
heimsins er flækt inn í ófriðinn. í
Norðurálfu er rúmir s/4 hlutar allrar
álfunnar í ófriði, í Asíu er rúmur
helmingur í stríði, í Afríkn u/12 hlut-
ar álfunnar, í Ameríku er Kanada með
og auk þess mest öll Eyjaálfa.
— Þetta er gert upp áður en Tyrk-
ir lótu sig skifta stríðið, svo að nú
má allmjög auka við ófriðarlönd Asíu.
42 cm. fallbyssurnar, sem unnið
hafa meira gagn en tölum verði talið
í ófriðnum, eru algerlega undir um-
sjón verkfiæðinga frá Krupps-verk*
smiðjum. Úr þeim er skotið með raf-
magnsafli í mikilli fjarlægð, því eng-
um manni er óhætt nálægt þeim, er
skotið ríður af. Sjálf kúlan vegur 1900
pund og skotfæri fallbyssunnar 4
mílur íslenzkar. Hvert skot kostar
30.000 kr.
Siðusíu simfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezku utanríkisstjórninni
í London.
Rússar vinna á við
Weichselfljótið.
London 23. nóv. kl. 1.20 árd.
Skeyti frá aðalstöðvum Rússa, sem
komu i kvöld, flytja mjög góðar
fregnir, er þangað hafa borist frá
vígstöðvunum milli Weichselfljóts og
Warta. Tilkynt er að Þjóðverjar
hörfi undan frá mjög þýðingarmikl-
nm aðstöðum.
Sigur Rússa í Kákasus.
Herstjórnin í Kákasus tilkynnir
að Rússar hafi unnið sigur bæði við
Kara Kilisse og í héraðinu við
Khanessuphæðirnar. Þar tóku Rúss-
ar nokkurn hluta stórskotaliðs óvin-
anna.
Þýzkur tundurbátur sekkur í Eyrarsundi.
Þýzki tundurbáturinn S 124 sökk
eftir árekstur við danskt gufuskip í
suðurhluta Eyrarsunds.
De Wet.
Uppreisnarforinginn De Wet er
nú flóttamaður. Tveir af sonum
hans hafa gefist upp og einn er fall-
inn. Menn hafa hitt á slóð De
Wets sjálfs og nú er verið að elta
hann.
Viðureignin við Weichel.
London 25. nóv. kl. 1.20 e.h.
Eftirfarandi opinber tilkynning hef-
ir komið frá herstjórn Rússa:
Orustan milli Weichel og Warta
heldur áfram og virðist muni verða
langvinn enn norður af Lodz.
■ Allan daginn þ. 22. þ. m. gerðu
Þjóðverjar æðisgengin áhlaup, en
voru alstaðar brotnir á bak aftur. í
Wieltunhéraði kom fram nýtt lið
Þjóðverja, sem reynir að hrekja
vinstra herarm vorn aftur á bak.
Engin breyting hefir orðið milli
Czestochovo og Kraká.
21. nóvember tókum vér meira
en 5000 austuríska fanga.
□8S
mu
D
§
D
§
/ Bankasfræti nr. 8
fáið þér beztar
Vefnaðarvörur,
Prjónavörur,
Smávörur.
Bráðlega verður Jólabazar opnaður í verzluninni.
Jón Björnsson & Co.
D
§
D