Ísafold - 14.11.1917, Page 3
„Þjóðír Norðurálfu, verjið helgustu réttindi yðar!“
Mynd þessi er gerð af Vilhjálmi Þýzkalandskeisara fyrir nokkrum árum. Keisarinn skýrir sjálfur svo myndina, að engillinn, sem segir orðin hér að ofan, sé
Mikael erkiengill. Kvenmyndirnar eiga að tákna Frakkland, Þýzkaland, Rússland (sem styður sig við Þýzkaland), Austurríki-Ungverjaland, Ítalíu og England, en á
yztu myndinni vantar skýringu. í austri sést hin ferlega »gula hætta«.
33. Lögum dýrtíðaruppbót handa
embættis- og sýslunarmönn-
um landssjóðs.
34. Lög um hjónavígslu.
Nýir tímar.
Ný saga eftir Axel Thorsteins-
son um sviknar ástir og endur-
tengdar, fjárspilara og svallsaman
ungan mann, er mist hefir traust
á guði og sjálfum sér og svikið
uunustuna, ætlar af landi burt,
en vill fá fyrirgefning unnust-
unnar áður. Þau hittast, hún heit-
ir honum trygð á ný og hann
verður nýr og betri maður, ei'
gengst síðan fyrir félagsstofnun í
kauptúni einu íslenzku og eiga
þá nýir og betri tímar að renna
upp, barnauppeldi að batna, svall
og sukk að minka, kristilegur andi
að ná yfirtökum yfir hugum fólks-
ins.
Sagan er lipurt rituð, en efnið
hvorki frumlegt né íslenzkt í sjálfu
sér, þó sagan sé íslenzk öll. Sál-
fræðilegar skýringar á endurfæð-
ingu aðalpersónunnar, Árna Rögn-
valdssonar, væru mest virði og
gæti bókin öll skýrt frá því og
setti að gera ef vel væri. En
Árni verður undir eins fyrirmyn-
armaður, og veldur þeirri breyt-
ingu viðtal við unnustuna, er talar
kjark í hann, og draumur föður
hans. Hann er sá fyrirmyndar-
maður, að hann þiggur ekki í
nefið hjá kunningja sínum daginn
eftir afturhvarfið, en reykir þó
úr pípu hjá honum nokkrum mín-
útum á eftir, þrátt fyrir bindind-
issemina, og er ósamræmi í þessu.
Eðlilegast hefði verið, að sagan
hefði lýst 8álarstríði Árna og sýnt
hversu hann smámsaman ynni
sigur á sjálfum sér. Árni réttir
nefnlega við á stuttum tíma og
gengst nú fyrir félagsskap í kaup-
túninu, er boða á nýja og betri
tíraa og er hér bersýnilegt, að
höfundurinn hefir orðið fyrir á-
hrifum af hreyfingum þeim, er
hér ber einna mest á í seinni tíð.
Bindindissemi á vitanlega að ríkja
í kauptúninu, en öfgakent er það,
að drykkjugarmur einn, Sæmund-
ur, gerist alger bindindismaður í
bannlaudinu Islandi, er símfrétt'
kemur til kaupstaðarins frá þing-
inu þess efnis, að aðflutningsbann-
ið sé afnumið. »Meðan aðflutn-
ingsbannið helzt, þá skal eg drekka
En þegar þeir- afnema það, þá
steinhætti eg«. Og Sæmundur
þessi undirritar síðan með öðrum
forgöngumönnum kristilegt ávarp
til kaupstaðarbúa um félagsstofn-
unina. Algerð bindindissenfi er
vitanlega ekkert skilyrði fyrir
nýjum tímum höfundarins. Mest
göiluð er þó lýsingin á félagsstofn-
uninni sjálfri, auglýsingin um nýju
tímana, er kveður m. a. svo að
orði: »forgöngumönnum þessa fyr-
irtækis er það ljóst, að undirstað-
an verður að byggjast á trúar-
andanum, trúarvissunni um, að
þetta líf sé að eins einn þáttur
lífsins, að sálir mannanna lifi, —
lifi út yfir gröf og dauða og að
nauðsynlegt sé, að hver mannssál
búi sig undir þetta framhald lífs-
ins, sem menn þekkja eigi nema
að nokkru leyti enn þá.«
Höf. virðist sammála þeim
mönnum, er halda því fram, að
þekking sé þegar fengin á öðru
lifi, og vill nú láta þenna félags-
skap byggjast á þessum grund-
velli. Þetta er heldur ekki neitt
skilyrði fyrir þessum nýju tímum,
þar sem eindrægni, kristilegt
hugarfar og siðferðisþroski á að
rikja, nema síður sé. Vissan um
annað lif er áreiðanlega lítilfjör-
lagt atriði fyrir þá, sem lengst
eru komnir í siðferðísþroska. Og
tólfunum er kastað, pegar þessir
nýju tímar eiga að renna upp
með tilraunum nokkurra manna
til þess að ná sambandi við fram-
liðna menn. Eða hver trúir því,
að slíkir tímar renni upp, ef
drykkfeldur gamall læknir, en
góðmenni þó, beitir sér fyrir
slíkum félagsskap i íslenzku sjáv-
arþorpi, með aðstoð prestsdóttur
er gengur í berhögg við foreldra
sína til þess að geta fullkomnast
á þenna hátt, og annara manna,
er lýsing er gefin á í sögunni?
Eg hefi minst á, hvers eg sakn-
aði hjá aðalpersónunni, en ýmis-
legt fleira mætti benda á, eins og
t. d. líkingu höf. um silfurbergs-
molana og sálír mannanna, er 3
persónnr í sögunni bera fram:
Anna, unnustan, Sigríður hús-
freyja Jóns á Kambi, og Árni
sjálfur (faðir hans dáinn í draumi
sonarins). Þetta er huglægt atriði
höfundarins og missir hlutlegt
gildi sitt, er fleiri persónur nota
sömu líkinguna. Annars ber tölu-
vert á þessum galla í nútíðar-
skáldsögum íslenzkum, að per-
sónurnar endurspegla altaf höf-
undinn sjálfan, eru ekki sannar
myndir af þeim mönnum, sem
lýsa á, en sambland af hvoru-
tveggja, sögupersónunni og höf-
undi 8ögunnar. Annars er fyrstu
kaflarnir betur ritaðir, en það er
eðli ritdómara að benda frekar á
galla en kosti. Höfundurinn er
enn kornungur og á eflaust eftir
margt óritað. , ,
H8fkjaííiariQnáiL
Einar H. Kvaran rithöfundur fór
með Sterling til Akureyrar til þesa
að halda fyrirlestra um bindindi og
ofdrykkju, að sögn fyrir tilstilli Good-
templara.
Útflutningsleyfi hafa Bretar veitt
Norðmönnum á 20 þús. tunnum af
saltkjöti héðan.
»Sterling« fór í gærmorgun vestur
um land til Akureyrar. — Farþegar
voru : Guðrúu Pétursdóttir frá Hrólfs-
skála, Kristín Fjeldsted, Helga Jón-
asd., Vigdís Björnsd. þóranna Erlends-
dóttir, Halld. Benediktsdóttir, Rebekka
þiðriksdóttir, Ólöf BeDediktsdóttir,
Sigríður Ingimundardóttir, Hólmíríð-
ur Jónsdóttir, Sig. A. Guðmundsson
skipBtjóri, P. A. Ólafsson, þóra Guð
mundsdóttir, Kristmundur Guðjóns-
son, Gunnar Gíslason, Bjarni Pálma-
son, Finnur Thorlacius, Páll Björns-
son, Hallgrímur Jónsson, Jónas Magn-
ússon, Bjarni Arnason, Halldór
Guðmundsson rafmagnsfræðingur, S.
Grauslund, Stefán Sigurðsson kaupm.
á Akureyri, Bjarni þormóðsson, Krist-
ján Blöndal póstafgrm. á Sauðárkróki.
Látinn er þ, 11, þ. mán. í Vífils-
staöahæli Magnús Bjarnason kaupm.
eftir margra ára þunga vanheilsu.
Hann varð aðeins þrítugur. Efnis-
maður og Ijúfmenni.
Fölsunartilraun gerði maður einn
hér í bæ sig sekan í á laugardaginn.
Hafði ‘falsað undirskrift Sláturfól.
Suðurlands á nokkur hundruð króna
tékk, en komst upp og var raaðurinn.
Ólafur Guðnason að nafni, tekinn
fastur og hefir hann nú kannast við
afbrot sitt.
Landsspítalinn, Tillögur nefndar-
innar, sem um spítalamálið f jallar eru
að Landsspítalinn verði reistur skamt
frá Kennaraskólanum annað hvort
fyrir sunnan og austan eða norðan
og vestan hann.
Borgarstjóra-fnlltrúi er ráðinn
Ólafur Lárusson yfirdómslögmaður.
Eldur hefir tvívegis komið upp í
húsi Guðmundar Björnssonar land-
læknis í haust, en ekki sakað. Hefir
þetta gerzt með þeim hætti að ekki
þvkir ugglaust um nema í hafi verið
kveikt af mannavöldum.
Leikhúsið. »Tengdapabbit var leik-
inn á sunnudagskvöldið og þóttí
bezta skemtun. Endurtekinn verður
leikurinn í kvöld. Nánara getið síðar.
Endurskoðendur Iandsverzlunar-
innar eru þeir skipaðir dr. phil.
Ólafur Daníelsson og jpórður Bjarna-
son stórkaupm.
Verðlagsnefnd hefir krafið lands-
verzlunina sagna um ástæðurnar fyrir
hækkun sykurverðsins, en mun engin
svör hafa fengið enn, fremur en aðrir.
Frá Vesturheimi kom í gær Fran-
cis Hyde, sklp þeirra Johnson &
Kaaber, sem landsstjórnin hefir á
leigu.
Látin er í morgun ekkjan Ingibjörg
Einarsdóttir Jónassen, móðir Magnús-
ar Vigfússonar, dyravarðar í Stjórnar-
ráðinu og þeirra systkina. Hún varð
85 ára, mikil tápkona.