Ísafold - 12.01.1918, Blaðsíða 4
4
IS AFOLD
Nærsveitamenn
eru vinsamlega beðnir að vitja
Isafoldar í afgreiðsluna, þeg u
þeir eru á ferð í bænurn, einku-r
Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem
flytja miólk til bæjarins daglera
Áfgreiðslan npin á hverjum virku r
degi kl. 9 á morgnana til kl. 6 í
kvöldim
ara sinn og íjandmann, þrælmennið
Schtscheglovitov, og vaipa honum í
svartholið.
Þingmaður.
1912 var Kerenskij kos-
inn inn í Dtimuna. Hann
fylti flokk jafnaðarmanna og var með
al sterkustu andstæðinga stjórnar-
innar. Hann vann nú að því öllum
árum að undirbúa byltinguna, og fór
oftlega geyst og iét hug sinn ti
stjórnarinnar óspart i ijósi. En svo
mikill geðsmunamaður sem hann var,
hafði hann þó fult vald á skapi sínu
þegar á þurfti að halda til þess að
skirra vandræðum.
Eitt sinn höfðu orðið æsingar og
óeirðir á fundi í Dúmunni og var
Kerenskij þar fremstur í flokki. Þeir
sem tekið höfðu þátt í óspektunum
voru dæmdir til þess að mega tkki
sækja 15 fandi í Dúmunni. Þessu
neituðu þeir að hlýðnast. Stjórnin
sendi þá lögregruliðið tnn í þingsal-
mn til þess rð varpa hinum dæmdu
á dyr. Það var bú st við uppþoti
og gengið að þvi sem vissu að stjó n-
inni myndi verða það kærkomin
átylla ttl þess að rjúfa Dúmuna.
Þegar svo fodngi lögregluliðsins vék
sér að Kerenskij fyrstum manna' og
krafðist þess að hann færi út úr
salnum, fanst öllum sem komið væri
í óefni. Hann stóð þar eins og spent
stálfjöður*, segir sjónarvottur frá,
>ungur og grannvaxinn. Hann skalf
af geðshræringu og teygði fölt höf-
uð fram. Augun loguðu . , en hann
stilti sig. Hann rétti vinstri höndina
framog hrópaði: »Vérlátum undanfyr-
irvaldmu, en sá dagur kemur að ...«
Háðsyrði afturhaldsmanna kváðu við
í salnum og það heyrðist ekki meira
til Kerenskij’s. Svo gekk hann hratt
fram. Það var dauðaþögn meðan hann
gekk út. Þingmenn sátu sem steini
lostnir*. —- Dórrsmálaráðherrann
hafði rekið upp illgirnishlátur við
orð Kerenskij’s, — sá sami sem nú
situr í Pétur Páls-fangelsinu í Petro-
grad samkvæmt skipan eftirmanns
sins.
Því nær sem dró hyltingunni, því
berorðar hótaði Kerenskij stjórninni
því í ræðuoí sínum í Dúmunni, að
þjóðin myndi verða að gripa til sinna
ráða.
(hramh.).
Iiandsbanka-hneykslið.
Það er nú komið upp úr dúrn-
nm, að bæði hinn setti bankastjóri
fón Gunnarsson samábyrgðarstjóri
og helztu starfsmenn bankans munu
gjarna hafa viljað eiga kost á setningu i
það bankastjóraembættið, sem hr.
Ben. Sveinsson, var settur í.
Verður þvi æ berari hin afdráttar-
lausa pólitíska hlutdrægni, sem hér
hefir beitt verið og sú regla stjórn-
arinnar að forðast haýa menn í stöð-
nr þær, sem hún á yfir að ráða,
eins og heitan eldinn.
Danskar vörur til íalands.
Út af grein með þeirri fyrirsögn
eítir hr. Þór. Tulinius, um daginn
hér í blaðinu, hefir hr. Páll Stefáns-
son beðið ísafold fyrir svar, sem
kemur í næsta blaði.
Sighv. Blöndahl
caud. jur.
Viðtalstími kl. 11-^12 og 4 —6.
Lækjargötu 6 B.
Sími 720. Pósthólf 2.
á
Larsen <£ Petersen
Piavofabrik, Kðbenhavn.
E i n k a s a 1 a fyrir í s 1 a n d
í Vöruhúsinu.
Nokknr Piano fyrirliggjandi hér 4
staðnnm; sömnleiöis
pianostólar og nótnr.
'xxrxiixiTEti't in
Skrifstofa andbanningafélagsins,
Ingólfstræti 21,
opin hvern virkan dag kl. 4—7 síöd.
Allir þeir sem vilja koma áfengis-
æálinu i viðunandi hor(, án þess að
hnekkja parsónufrelsi manna og al-
mennum mannréttindum, eru beðnir
rð snúa sér þangað.
Sími 544
GandreiðiD
• eftir Benedikt Gröndal
öskast keypt
á slirifitofu Isafoidar
Erl. símfregnir
Frá fréttaritara isafoldar og Morgunbl.
K.höfn 4. jan.
»Daily News« segir fiá þvi, að
bandamenn muni sennilega viður-
kenna Leninstjórnina.
Sendiherra Rússa í London og
sendiherra Breta í Petrograd hafa
fengið hvíld frá störfum sínum vegna
vanheilsu.
Sænska stjórnin hefir viðurkent
sjálfstæði Finnlands.
K.höfn 4. jan.
Rússar hafa slitið friðarsamningum
f Brest Litovsk og krefjast þess að
þeim sé haldið áfram í hlutlausu
landi, helzt i Stokkhólmi.
Trotzky hefir flett ofan af hinum
hræsnisfullu friðarskilmálum Þjóð-
verja.
Þýzka stjórnin vill komast að
samningum við Rússa, en þeir halda
fast við fyrri kröfnr sínar.
Dómkirkjan í Padua hefir verið
lögð í auðn.
Höll Spánarkonungs i Lagranja er
brunnin.
Sendiherra Breta í Washington fer
frá. —
»Daily Chronicle* spáir miklum
breytingum á sendiherrasveitum Breta
Bajarskrá Rsykjavíkur 1918,
kemur út undir mánaðamót.
Stjórnir fólaga og stofnana ern beðnar un að gera svo vel og gera útgefi nda
viðvart nm breytingar þær, er orðið hafa i þvi efoi síðan í fyrra.
Bæ]arskráin verðnr fjölbreyttari nú en nokknru sinni áður.
Aukiö álit.
Það er deginum Ijósara, að hin siaukna eftirspurn vandlátra
kaupendt og fólks af háum stigum, eftir Scripps Booth bif-
reiðum, stafar af því trausti sem sá vagn hefir unnið sér, þrátt
fyrir mikla samkeppni.
R Scripps~Boo$\
er áreiðanlega bú:nn kostum fegurðar, endurbóta og hinum óvið-
jafnanlegu þolgæðum.
Bifreiðasölum eru þessir kostir vel ljósir og fyrir því er
það, að allir sækjast þeir eftir að verða umboðsmenn vorir,
enda vegnar þeim hvarvetna vel, sem þessa bifreið hafa á boð-
stólum.
Atta syliodra fjoi;nrra farþega vagn, er rnmbetri en
4Öur og milu ’sætanna er gegnt. Stýrissætið er þægilegt
yagnstjóranntn, sem oraabar betri stjðrn og þsegilegra
ferðalag. Geymslupláss gott og handhægt. Karþegarnir
ná til þe<s nr sætnm BÍnum. Auk þe9sara kosta ern aðrir
yfirbnrðir Scripps Booth svo að sízt er að fnrða, þótt
þessi hifreið njóti almennra vinstelda.
Ný gerð af G fjögurra syiirdra, þriggjá farþega bifreið.
Gerð D. átta sylindra, fjögurra farþega bifreið.
Scripps-Bootf) Corporation,
Export Deparfment
2 West 57tt) Streef, Tlew l/ork, U. S. TJ.
K.höfn 5. jan.
Hertling skýrir frá því að Mið-
rfkin haldi fast við friðarskilmála sina
og þvertaki fyrir það að flytja friðar-
ráðstefnuna. Rússar geti eigi sett
Þjóðverjum' neina kosti um það hvort
friðarfundurinn skuli fluttur. »Vér
höldum bara áfram«, segir hann »að
semja við fulltrúa Ukraine, sem ný-
lega eru komnir til Brest Litovsk«.
Norðurlönd halda ráðstefnu um
vöruskifti i Kristiania.
Maximalistar hafa í hyggju að birta
leynisamninga milli Rússa og Þjóð-
verja.
Viðsjár með Maximalistum og
Ukraine-búum.
Spánarkonungur hefir uppleyst
[.ingið.
Kauphöllm i Danmörku hefir hætt
við það að gefa upp gangverð á
rússneskri mynt.
Kaupmannahöfn, 6. jan.
»Daily Telegraph« ber það til
baka að bandamenn muni viðurkenna
stjórn Maximalista.
í Portugal fer vaxandi sú hreyfing
að endurreisa aftur konungsveldið.
Trotzky er kominn til Brest
Litovsk til þess að reyna að fá full-
trúa Miðrikjanna að fallast á það að
friðarfundurinn verði fluttur.
ítalir búast við sókn af bálfu
M ðríkjanna.
Þýzk sprengiefni hafa fundist í
Kirkjunesi í Noregi.
Branting, fjármálaráðherra Svía,
hefir orðið að fara frá vegna veik-
inda. Jafnaðarmaðurinn. Thorsson
hefir tekið við af honum.
Frakkar viðurkenna Finnland sem
sjálfstætt ríki.
K.höfn 7. jan.
Með samþykki allra stjórnmál?-
flokka skýrði Lloyd George forsæt-
isráðherra Breta, frá því, að friðar-
skilmálar bandamanna væru þessir:
Bandamenn ætluðu sér ekki að
koma Miðveldunum eða Tyrklandi
á kné.
Belgia, Serbía, Montenegro og h n
herteknu lönd Frakka, ítala og Rú-
meníu verði að endurreisa og gjalda
þeim fullar hernaðarskaðabætur.
Örlög Elsass og Lothringen skuli
verða tekin til-íhugunar og þvi spurs-
máli ráðið til lykta síðar.
Rússar ákveði sjálfir um framtíð
sína.
Pólland verði sjálfstætt ríki.
Hellusund verði alþjóðaeign, —
opið öllum þjóðum.
Ráðstefna verði látin ráða til lykta
framtíð nýlendna Þjóðverja.
Undirokaðar þjóðir fái sjálfar að
ákveða með þjóðaratkvæði hvað um
þær verði.
Að komið verði á því alþjóðasam-
bandi sem stungið hefir verið upp á.
Þjóðverjar hafa viðurkent sjálfstæði
Fínnlands.
Miðríkin halda áfram að semja við
Ukrainebúa.
K.höfn 8. jan.
Þýzku blöðin hafoa harðlega frið
arskilmálum Breta.
Miðrikin ætla að afturkalla frið-
arboð sin frá 25. deserr ber þar
sem bandamenn vilja eigi vera með.
HuysmanD væntir þess að friðar-
stefna verði bráðlega háð í Kaup-
mannahöfn.
Þjóðverjar færast í aukana hjá
Ypres.
Kaupmannahöfn, 9. jan.
Rússar hafa viðurkent sjálfstæði
Finnlands.
Reding jarl er orðinn sendiherra
Breta í Washington.
Áköf stórskotahríð á vígstöðvum
Itala og Breta.
Friðarskrafinu er haldið áfrarn,
Bandamenn fallast að öllu leyti á
ræðu Lloyd George.
K.höfn 10. jan.
í ávarpi til þingsins í Bandarikj-
unum hefir Wilson forseti lýst frið-
arskilyrðum bandamanna i samræmi
við það er Lloyd George hefir sagt
uin þau.
Bandamenn búast við þvi að Þjóð-
verjar hefji sókn á vesturvigstöðv-
unum.
Uppteist í flota Portugals.
Miðríkin og Rússar hófu aftur
friðarsamninga í Brest Litovsk í gæi-
dag.
Khöfn 11. jan
Norðmenn og Danir hafa viður-
kent sjálfstæði Finnlands.
Þýzku blöðin eru andfrig ræða
Wilsons.
Maximalistar hafa í hyggju að
ógilda þjóðarskuld Rússa.
Endurbótum hefir verið komið á
í brezka flotaráðuneytinu.